Morgunblaðið - 06.06.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
31
Karl G, Siggeirssort
vélstjóri — Minning
Það mun í fáum tilfellum vera
erfitt að ákveða sig um hverja
maður vill skrifa minningargrein
um, því það er aðeins um þá sem
eru manni hugstæðastir og því var
ég strax ákveðin í að minnast
þessa vinar míns og fjölskyldu
minnar, þegar mér barst andláts-
fregn hans. Með minningargrein-
inni er ég að votta honum og
eiskulegri fjölskyldu hans þá
vinsemd og virðingu sem minning-
argreinar yfirleitt túlka.
„Og blómin fölna á einni hélu-
nótt,“ þetta vísubrot kom í huga
minn þegar vinkona mín hringdi
tii mín á gamlársdagsmorgun sl.
til að tjá mér lát eiginmanns síns
Karls G. Siggeirssonar (Kalla)
vélstjóra, sem hafði orðið bráð-
kvaddur þá um nóttina.
Karl var fæddur 6. júní 1933,
sonur hjónanna Helgu Finnboga-
dóttur og Siggeirs Stefánssonar
skipstjóra og útgerðarmanns á
Fáskrúðsfirði. Kalli ólst þar upp
ásamt 5 systkinum sínum sem
aðeins þrjú eru enn á lífi. Fljótt
mótaðist hann af umhverfi sínu
svo hugurinn var opinn fyrir starfi
er að sjóstörfum hneig og var
hann ekki með.mörg ár að baki er
hann fór að beita línu og um
fermingu fór hann að stunda
sjómennsku á bátum. Veturinn
1952—’53 fór Kalli á vélstjóra
námskeið og fékk réttindi sem
vélstjóri.
Stundaði hann sjóróðra frá
1952—'56 í Vestmannaeyjum, en
fer síðan aftur á æskustöðvar
sínar. Hinn 31. desember 1957
giftist hann Sæunni Þorleifsdótt-
ur. Var því 20 ára brúðkaupsdagur
þeirra er hann kveður þennan
heim. Sæunn er frá Akranesi en
þau bjuggu nokkur ár á Fáskrúðs-
firði og fluttust svo suður. Þeim
hjónum varð 5 barna auðið og eru
þau eftirtalin: Aðalbjörg 20 ára,
Ragnheiður 18, Daníel 16 ára,
Harpa 13 ára og Finnbogi sem
varð 10 ára á nýársdag sl. Öll eru
þau í foreldrahúsum nema Ragn-
heiður sem býr í Kópavogi með
unnusta sínum Guðmundi Björns-
syni frá Stokkhólmi í Skagafirði.
Aðalbjörg er fráskilin og á einn
dreng ársgamlan úr hjónabandi
sínu og ber hann nafn foreldra
hennar Karl Sæberg. Svo góður og
stoltur sem afi hans og nafni var
sínum börnum var dálætið og
umhyggjan síst minni á nafna
litla. Öll eru þau börnin og
dóttursonurinn, sérstaklega elsku-
leg og vel gerð og erfa tryggð og
blíðlyndi foreldra sinna svo ríku-
lega að sérstakt er og heillandi. Án
þess að gera lítið úr öðrum get ég
með hreinni samvisku sagt að jafn
barngóð hjón og þau Kalla og
Sæunni hef ég aldrei þekkt. Sæunn
hefur lengi starfað. að eftirliti á
yngri og eldri börnum og er þá góð
„móðir“ sem með þau fer. Kalji
fylgdist vel með hennar samstarfi
við börn og var þeim hlýr og við
sín börn var hann svo óvenjulegur
faðir að unun var að kynnast, það
var eins og þessi stóri, grófgerði
sjómaður fyndi þá fyrst sanna
gleði er hann hélt í litla hönd,
kyssti mjúkan barnskoll eða
hampaði þeim á annan hátt og
ylurinn minnkaði ekki þó að
börnin fullorðnuðust. Þessari
Grieg Duo
EDVARD Hagerup Gríeg er með
talinn eitt af sérkennilegustu tón-
skáldum heimsins og hóf norska
tónlist til vegs. Eins og hann er
sterkt tengdur norskri menníngu er
pað sérkennilegt að langafi hans
var Skoti að nafni Alexander Grieg,
sem flúði Skotland 1746. Móðir
Griegs var af Hagerup ætt frá
Bergen og var sú ætt pekkt fyrir
tónlistarhæfileika og kona Griegs,
Nína var af pessari ætt og pekkt
söngkona. Ole Bull fyrsti fiðlusnill-
ingur Norðmanna hvatti Grieg til að
fara til Leipzig til náms og er talið
að Arthur Sullivan hafi par verið
með honum i skóla. Sá sem er
talinn hafa hvatt Grieg til aö nota
norsk pjóðlög, var Rikard Nordraak.
Sérkennileg hljómnotkun, hljóðfall
og lagform norska pjóölagsins í
höndum Griegs hafði mikil áhrif á
tónsköpún seínni tónskálda. Grieg
og Sibelíus eru pau norrænu
tónskáld sem eiga sæti á bekk með
frægustu tónskáldum heimsins og
Norðmenn eru að vonum stoltir af
sínum Grieg. Síðan á dögum Ole
Bull hafa Norðmenn átt marga góða
fiöluleikara, enda er fiölan eins
konar pjóðarhljóöfæri peirra og pað
fer vel saman, er ungir menn fara
út í heim til að öðlast frægö og
frama, að peir nesti sig sem bezt að
heiman og kenni sig við fræga
forfeður.
Tónleikar Grieg Duo hófust með
Sónötu eftir Jón Nordal. Það hefur
ávallt verið talinn góður siöur gesta,
að pekkja vel til allra siða peirra
sem sóttir eru heim, pegar reynt er
Tónllst
Á LISTAHÁTÍÐ
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
að ná sambandi við heimamenn.
Þess vegna voru pað nokkur
vonbrigði hversu ógætilega var
staðið að flutningi sónötunnar eftir
Jón Nordal. Hún var nánast eins og
lesin af blaði. Annaö verkið var
sónata nr. 2 eftir Grieg. í pví verki
var margt fallega gert. Eftir hlé var
svo flutt Krauzersónatan eftir Beet-
hoven. Það getur verið að Beethov-
en hafi verið erfiöur i skapi, en í
tónlist sinni er hann aldrei geðillur.
Þunglyndi og skapofsi er allt annaö
en geðillska. Grátvæl eins og kom
fram í miðpættinum á ekkert skylt
við tilfinningar Beethovens, sem
var alltaf karlmannleg í beztu
merkingu orðsins.
Ole Böhn er um margt fær
fiðluleikari en hann á margt eftir
ólært og ef hann ætlar að vinna
sérrægð og frama, ætti hann að
temja sér hjartahlýju Griegs, svo
nafn dúosins veröi ekki öfugmæli.
Einar Sten-Nökleberg er röskur
píanóleikari en samvinna hans og
fiöluleikarans t.d. í Beethoven var
svo ópyrmileg að undirritaður
minnist varla meiri hrottaskapar í
meöferð tónverks.
miklu ást og umhyggju vildi hann
einnig umvefja konu sína og tel ég
það fremur hafa aukist en dvínað
eftir því sem samvistarárum
þeirra fjölgaði. Það var gaman að
heyra ferðasögur þeirra þegar þau
komu úr siglingum og sýndu
myndir af því sem til voru, eða af
börnunum.
Kynni mín af Kalla hófust með
komu þeirra hjóna eftir að þau
flytja frá Fáskrúðsfirði því að við
Sæunn kynntumst þegar við erum
við sameiginlegt nám á hús-
mæðraskólanum á Varmalandi í
Borgarfirði veturinn 1951—‘52 og
tengdumst við þeim vináttubönd-
um sem aldrei hefur borið skugga
á og þess vegna leiddi það til
þeirra eðlilegu afleiðingar að
vinátta skapaðist og þróaðist með
fjölskyldum okkar líka. Flest
sumur hafa þau komið hingað „í
sveitina“ og þá er nú létt á hjalla,
og þegar við förum „í bæinn“ er
sem annað heimili bíði manns þar
hjá þeim.
Eitt.dæmi um umhyggju Kalla
fyrir konu sinni get ég ekki stillt
mig um að tala hér um og það er
það þegar hann frétti að við hjónin
hér létum eina dóttur okkar heita
í höfuðið á Sæunni. Þá færði hann
henni sérlega þægilega og fallega
skó næst er hann kom úr siglingu,
alveg án þess um það hefði verið
talað við hann til að hún gæti gefið
litlu nöfnu sinni. Já, Kalli var
sannur vinur eins og einn vinur
hans (Olgeir Jóhannsson) er búinn
að minnast hans í minningargrein
fyrir nokkru, og allt viðmótið var
svo bjart, falslaust og fullt af
tryggð og hvernig sem ég hef núna
reynt, man ég aldrei eftir að hann
reiddist, en bros var svo fljótt að
kvikna og lýsti þá svo vel innri
manni hans. Mér er svo margt í
huga af minningum liðins tíma í
samvistum við þessa fjölskyldu, en
ætla að láta hér staðar numið og
þakka Kalla og fjölskyldu hans
allt okkur sameiginlegt og fjöl-
skylda mín biður þess sama. Við
hér vonum að fjölskylda Kalla eigi
sem oftast eftir að koma hingað og
rifja upp gamlar stundir og bæta
við nýjum , því lífið heldur áfram
rás sinni í tímans hjóli og eins lifir
bjarta minningin um Kalla og
lýsir harmastundir okkar nú. I
mörgum skólaminningarbókum er
þessi fallega vísa hjá börnunum
mínum, sem mér finnst eiga hér
við.
Allar stundir okkar hér,
er mér Ijúft að muna,
fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
Guð blessi minningu hans og
framtíð barna hans og eiginkonu,
dóttursonar og annarra náinna
ættingja.
Fjóla Lsleld.
& n\ itms
1 %
EX X
c. ce
7 8 9
4 5 6
1 2 3
o OO
(btvnc)3;?PQ
m m
r ■
lomic:
312 Pog
312 PD
Ny reiknivel
byggð eftir forskrift Skrifstofuvéla ht
Reynsla Skrlfstofuvéla h.f. og ósklr vlð-
sklptamanna okkar var höfð til hllðsjónar.
þegar hin nýfa OMIC reiknivél var h&nnuð.
Vlð lögðum áherslu á lipurt talnaborð,
hraðvlrka prentun, lausan strimil, greini-
legar Ijósatölur í grænum tit, tólf stafa út-
komu, og sfáifstætt mlnni, auk allra nýjustu
tækniþátta.
Útkoman er OMIC:
Létt (2,1 kg) falleg og áreiðanleg relknlvél
tll ffölbreyttustu verkefna
OMIC kostar aðeins
kr. 55.100,—(312P)
kr. 59.900,— (312 PD)
O ja!eí*<e.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
HVERFISGATA
+ — -f Hverfisgötu 33
s“2(*60
Vlð byggjum upp framtíð fyrirtækis þfns.