Morgunblaðið - 06.06.1978, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
46
Um það bil 38.5 milljónir
greiddu atkvæði í fyrstu forseta-
kosningum landsins og fóru kosn-
ingarnar fram að mestu með friði,
en meðal stjórnarandstöðu bar
nokkuð á ólgu og óánægju. Zia
hafði heitið að létta herlögunum í
landinu og halda þingkosningar í
desember n.k. en ekki eru allir á
því að hann muni telja bráðaðkall-
andi að standa við þau fyrirheit.
Osmani, fyrrverandi forseti
Bangladesh, var einn helztur
baráttumanna Bangladesh í frels-
isstríðinu 1971, þegar Bangladesh,
Eiginmaður
Liz náði ekki
útnefningu
Richmond. Virginía. 5. júní. Reuter.
JOHN Warner, eiginmaður kvik-
myndaleikkonunnar Elizabeth
Taylor og fyrrverandi flotamálaráð-
herra Bandaríkjanna, náði ekki
útnefningu sem frambjóðandi repú-
blikanaflokksins til öldungadeiidar
Bandaríkjaþings. Warner sem er
íhaldssamur repúblikani og fyrrv.
formaður flokksins hafði barizt
mjög ákaft fyrir því að ná útnefn-
ingu og eiginkona hans hafði veitt
honum dyggilegan stuðning, en
hvorugt dugði þó til.
VEÐUR
víða um heim
Amsterdam 22 skýjaö
Apena 27 bjart
Barceiona 23 skýjaö
Berlín 27 sól
Brússel 25 skýjað
Chicago 28 bjart
Kaupmannah. 28 bjart
Frankturt 29 rígning
Genf 25 bjart
Helsinki 21 sól
Jerúsalem 24 skýjað
Jóhannes.b. 18 bjart
Lissabon 22 bjart
London 26 skýjaö
Los Angeles 25 skýjaö
Madrid 27 bjart
Majorka 27 skýjaó
Malaga 22 skýjað
Miami 30 rigning
Moskva 19 skýjaö
Nýja Deihi 43 mistur
New York 22 skýjaö
Ósló 27 bjart
París 24 skýjað
Rómaborg 26 bjart
San Fransico 17 skýjað
Stokkhólmur 23 bjart
Tel Aviv 25 skýjað
Tókíó 26 bjart
Toronto 19 rigning
Vancouver . 24 bjart
Vínarborg 27 bjart
Þetta gerðist
þýzkan bát í landhelgi
1976 — J. Paul Getty, talinn
auöugasti maður heims, andast,
83 ára gamall.
1975 — Bretar samþykkja- í
þjóðaratkvæði að vera áfram í
EBE.
1973 — Vestur-Þjóðverjar full-
gilda samning við Austur-Þjóð-
verja.
1%8 — Robert Kennedy deyr af
skotsárum.
1967 — Egyptar loka Sú-
ez-skurði.
1944 — Innrásin í Normandí
hefst.
1942 — Nazistar brenna Lidice
til ösku — „Yorktown" sökkt í
orrustunni um Midway.
1919 — Finnar segja Rússum
stríð á hendur.
1916 — Kitchener ferst —
Hafnbann á Grikkland.
1884 — Annam viðurkennt
franskt verndarsvæðj.
1882 — 3ja mílna landheigi
ákveðin í Haag-sáttmála.
1871 — Þjóðverjar innlima
Elsass.
1840 —' Karlistastríðum á Spáni
iýkur.
1797 — Napoleon stofnar Liv-
ornolýðveldið í Genúa.
1660 — Friðurinn í Kaup-
mannahöfn bindur enda á stríð
Svía og Dana.
1654 — Kristín Svíadrottning
leggur niður völd.
Kiel, Vesturbýzkalandi.
5. júní. Reuter.
VESTUR'þýzkur fiskibátur
var tekinn í dag að meintum
ólöglegum veiðum innan 200
mílna landhelgi Póllands. I
fréttum segir að báturinn,
Capella, sem er 194 tonn að
stærð, hafi verið færður til
pólsku hafnarinnar Kolo-
brzeg. Heimildir hjá strand-
gæzlunni í Kiel sögðu, að
báturinn hefði verið að veið-
um á þessum slóðum ásamt
um tuttugu dönskum fiski-
bátum. Hefðu pólsku varð-
skipin ekki skipt sér neitt af
þeim. Pólska landhelgisgæzl-
an tók annan vestur-þýzkan
bát að meintum ólöglegum
veiðum fyrir tveimur mánuð-
um á svipuðum slóðum. Þá
var skipstjórinn dæmdur í
árs fangelsi og 30 þúsund
marka sekt en fangelsis-
dómnum var ekki fullnægt og
skipstjóra og skipi skilað
eftir að vestur-þýzka stjórnin
hafði heitið því að greiða
sektina.
Sovéskir Gyd-
ingar í andófi
Moskvu. 5. júní. AP.
IIÓPIJR sovézkra Gyðinga sem
hefur undanfarið reynt að fá
leyfi yfirvalda í Sovétríkjunum
til að flytjast til ísraels hafði
uppi átta mi'nútna mótmælaað-
Palestínumenn
gegn Arafat
VínarhorK. Rcirút. f>. júní. AI*.
SÍÐDEGIS í dag benti ýmislegt
til þess að Palestínumenn myndu
ekki hlíta boði Yassirs Arafats
yfirmanns PLO að gera ekki
árásir á ísrael frá SuðurLíban-
on. Talsmenn ýmissa arma PLO
gáfu út skeleggar yfirlýsingar
um að Arafat hefði ekki umboð
neins utan sjáifs síns til að gefa
Afmæli dagsinsi Robert Falcon
Scott, brezkur heimskautafari
(1868 — 1912), Dalai Lama,
andlegur ieiðtogi Tíbeta (1935 —
-), Thomas. Mann, þýzkur rit-
höfundur (1875 — 1955), Aram
Katsjaturian, rússneskt tón-
skáld (1903 - 1978).
Innlenti F. Guðmundur Kamb-
an 1888.
Orð dagsinst Ég hef þá trú að
sannleikurinn sigri að lokum. —
John Wycliffe, enskur trúarum-
bótasinni (1320 — 1384).
út slíkar yfirlýsingar og
Palestínumenn myndu hafa boð
hans að engu.
Opinber taismaður PLO í Vínar-
borg sagði í dag að hin ógeðfellda
útþenslustefna Israels myndi leiða
til styrjaldar innan mánaðar milli
Palestínumanna og Israels og
myndi þessi nýja styrjöld ekki
aðeins hafa hinar hörmulegustu
afleiðingar fyrir fólkið í Miðaust-
urlöndum, heldur væri þetta ógn-
un við heim allan. Mættu Banda-
ríkjamenn teljast ábyrgir fyrir því
að meiri styrjaldarhætta væri nú
í þessum heimshluta en um langa
hríð áður.
í yfirlýsingu ýmissa arma PLO
sem gáfu út yfirlýsingar í dag
sagði að það væri gallhörð ætlan
þeirra að halda áfram baráttunni
við ísrael og myndi aðeins verða
höfð samvinna við Friðargæzlu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna ef
Palestínumenn treystu því að þeir
hefðu aðeins með höndum hlutlaus
eftirlitsstörf.
Fleira benti til að spenna í
Líbanon væri að aukast þar sem
tveir armar hægri sinnaðra krist-
inna manna lentu í átökum í
austurhluta rústaborgarinnar
Beirút í dag. Er ekki ljóst hvort
manntjón hefur orðið í þeim
átökum.
gerð í miðborg Moskvu á
sunnudagskvöld en lögregla
kom síðan á staðinn og tók
andófsmennina með á lögreglu-
stöð tii yfirheyrslu. Meðal
þeirra sem héldu uppi mót-
mælaspjöldum á Trubnaya-
torgi voru Boris og Natalya
Katz með átta mánaða gömlu
barni sínu, Jessicu, sem ritað
hefur verið um vegna þess, að
barnið þjáist af óvenjulegum
sjúkdómi sem aðeins hefur
tekizt að mcðhöndla með
árarigri á Barnasjúkrahúsinu í
Boston í Bandaríkjunum. Ilafa
þeir foreldrarnir árangurs-
laust reynt að fá að fara með
barnið til lækninga en fengið
neitun.
Eftir fjögurra stunda yfir-
heyrslur var andófsfólkinu
sleppt og fékk það að fara
óáreitt ferða sinna.
Portúgalir
herða port-
yínsdrykkju
Lissabon. 5. júní. Routcr.
PORTÚGALAR hafa undanfarið
ár hert mjög portvínsdrykkju og
koma þeir nú næstir á eftir
Frökkum sem mestu aðdáendur og
neytendur portvíns í heiminum.
Portvínsstofnun Portúgals sagði í
dag að innanlandsportvínsneyzla
hefði aukizt á s.l. ári um 38,2
prósent. Frakkar drukku þá
192.221 hektólítra og síðan komu
þá Portúgalir með 86.132 hektó-
lítra og í þriðja sæti eru Bretar
með 82.585 hektólítra.
Brezhnev, forseti Sovétríkjanna, og Gustav Husak, forseti Tékkóslóvakíu, sjást hér saman á
hátíðarfundi í Prag-kastala á dögunum, en þá var Brezhnev í opinberri heimsókn í Tékkóslóvakíu.
Bangladesh:
Zia kjörinn
með yfírburðum
ZIAUR Rahman, yfirmaður
herforingjastjórnar Bangla-
desh og hæstráðandi í land-
inu, var kjörinn forseti
Bangladesh um helgina með
miklum yfirburðum og hafði
hann þegar aðeins voru
ótalin um tvö prósent at-
kvæða, fengið 15.4 milljónir
atkvæða eða 77% á móti 4.4
milljónum aðalkeppinauts
síns, Ataul Osmani. Zia
hershöfðingi er 42 ára gam-
all og hefur verið mestur
áhrifamanna í Bangladesh
um langa hríð.
sem þá hét Austur-Pakistan, fékk
sjálfstæði sitt. Zia gat sér og
hetjulegan orðstír í þeirri baráttu
og hann komst síðan til valda 1975
með byltingu þegar hann steypti
af stóli Mujibur Rahman.
Zia Rahman sagði í ræðu á
útifundi í kvöld að 200 þús.
flóttamenn sem hafa komið til
Bangladesh frá Burma upp á
síðkastið, yrðu að snúa aftur til
heimkynna sinna. Hann kvaðst
vona að stjórn Burma myndi
stuðla að lausn málsins. Níu
manna stjórnskipuð nefnd frá
Bangladesh fer til Burma á
morgun til viðræðna um þetta
mikla flóttamannamál.
Erlendir fréttamenn sem fylgd-
ust með kosningunum segja að
meiri samstarfsvilji hafi komið
fram af hálfu opinberra aðila nú
en áður til að greiða götu þeirra.
Telja fréttamenn ekkert hæft í
þeim staðhæfingum andstæðinga
Zia, að kosningarnar hafi verið
falsaðar að einhverju leyti.
Kjörstaðir voru alls 21535 og
kosning var leynileg. Bangladesh
er eitt snauðasta land heims, og
hefur þurft að glíma við ólýsan-
lega erfiðleika síðan það hlaut
sjálfstæði.
Pólver jar tóku vestur-