Morgunblaðið - 16.06.1978, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978
41
virðist sem atburðirnir á árinu i
1977 hafi verið „önnur byltingin", 1
eins og stendur í bæklingi fyrir
flokksmenn, sem einn flóttamann-
anna náði í. Henni virðist hafa
verið formlega lokið með
umburðarbréfi „nr. 870“ frá Pot
Pol. Þar er mikið vísað í leninisma
og marxisma, sem nær ekkert bar
á á árunum 1975—76. Marx-lenin-
ismi var aldrei nefndur í hinu
opinbera útvarpi nema af Pot Pol
sjálfum, við lát Maos. En öll
opinber skjöl, sem gefin eru út
eftir september 1977, vitna í
marx-leninisma.
irnar innan valdhafanna og meðal
þjóðarinnar eru skýrðar með
eftirfarandi: „Verjið það sem
áunnist hefur með byltingunni,
verjið flokkinn, verjið
byltingarstjórnina... útrýmið úr
öllum störfum og öllum stofnunum
og úr Kambódíu allri síðasta
óvininum, sem smogið hefur þar
inn... upprætið öll viðhorf og
skilning, sem byggð eru á frjáls-
hyggju og styrkið virðingu fyrir
aga.“ Þetta eru hinar nýju
tilskipanir. Og eins segir á fyrr-
nefndu opinberu plaggi: „Jafnvel
þó við verðum að fórna milljón
í september 1977 kom Pol Pot skyndilega fram á sjónvarsviðið sem
alsráðandi í Kambódíu og gaf í 5 klst. ræðu „hátíðlega yfirlýsingu um
opinbera stjórnun kommúnistaflokksins á Kambódíu." Og nú er pað
„Flokkurinn" í stað „Anka“, sem gefur skipanirnar og ræður lífi allra.
— Samkvæmt upplýsingum
flóttamanna er nýja yfirstéttin,
sem komin er fram síðan í ágúst
1977 skár upplýst eða betur
þjálfuð. Hefur sýnilega verið í
enduruppeldisskólum og getur
tekið við af þeirri sem rubbað var
upp eftir sigurinn 1975. Hreinsan-
manna, ætti flokkurinn ekki að
vera að sjá eftir því. Hann verður
að festa sig í sessi með festu.“
— Svo sem sjá má, hafa lífsskil-
yrðin orðið jafnvel enn erfiðari í
Kambódíu á árinu 1977. Uppbygg-
ing samfélagsins hefur færst enn
nær hópmennsku. „Fylgið sósíal-
ískri byltingu út í æsar... byggið
upp sósíalisma á öllum
sviðum. . . útrýmið úr hugskoti
ykkar allra og allri ykkar þjónustu
hugmyndum um eignarétt (ein-
staklingshyggju, eiginhagsmuna-
hyggju o.s.frv...) ... alið sjálf
ykkur upp í samræmi við hóp-
mennsku alþýðunnar...“ Þetta eru
opinberar tilskipanir, sem kennd-
ar eru á endurhæfingarfundum
inni í landinu.
• Allt sameign
— Eftir fyrstu samvinnufélögin
með samhjálp að markmiði, sem>
stofnað var til í frelsuðu svæðun-
um 1973, og í kjölfar þeirra
samvinnufyrirtækin um alla fram-
leiðslu 1975, hefur næsta skrefið
verið „samvinna alveg upp úr“,
sem hefur verið útfærð um allt
landið síðan 1977. Allt er héðan
frá sameign: landskikar, uppskera,
verkfæri og tæki, nautgripir,
eldhúsáhöld. Og máltíðir erú
sameiginlegar. Sunls staðar
mynda allir íbúar þorpsins einn
hóp („ruom phum“), annars staðar
hefur hann náð yfir allt héraðið,
(rom sangkat).
— Sameiginleg vinna er rekin
áfram með brjálaðri vinnuhörku,
alveg eins og á undanförnum
árum. Samt er nú búið að taka upp '
eins dags frí á 10 daga fresti, sem
nota á til að stunda pólitíska
fundi. Næstum undantekningar-
laust tala flóttamennirnir um
næturvinnu og um vinnudaga sem
ná frá kl. 8 á morgnana til 12 á
miðnætti. Þeir staðfesta að þar
hafi óhemjumikil vinna verið af
hendi leyst við að gera risastíflur
og grafa djúpa og langa skurði, en
þeir eru ekki á sama máli og
yfirvöld um gagnsemi þess.Stíflan
við Stoeng Chimit eyðilagði t.d.
uppskeruna 1976 og önnur stífla
tók fyrir allt vatn í sveitunum
nokkrum km neðar.
• Enn hungur
— Fæða heldur áfram að vera
ákaflega naumt skömmtuð, þrátt
fyrir yfirlýsingar stjórnvalda.
Framhald á bls. 62.
sem flúði landið sitt
í heilsuverndarstöðinni norðan
við þorpið. Einn hermannanna
fékk lánaðan haka hjá mér og
hann sagði mér hvernig þeir
heföu drepið þá. 3—4 dögum
seinna sá ég, þegar ég var á ferð
að tína bambussprota 4 km utan
við þorpið okkar, lík þeirra sem
drepnir höfðu verið. Villisvín og
hundar höfðu nartað í eitt líkið,
sem var af ungum manni, sem
við þekktum. Við sögðum fjöl-
skyldu hans ekki af því sem við
höfðum séð.
— Eftir þetta tóku Rauðu
kmerarnir að reka fólkið út úr
þorpinu sínu og settu það niður
annars staðar í smáhópum.
Þessu fámenna þorpi okkar
skiptu þeir jafnvel í tvennt, í A
og B og fólkinu var bannað að
fara yfir götuna, yfir í hinn
hlutann. Það átti bara að vera
kyrrt á sínum stað og vinna
fyrir Anka. Mjög strangar
reglur voru settar og hermenn
fóru um á nóttunni og gerðu alls
konar húsleitir. Frá öllum fjöl-
skyldumálum varð að segja — ef
maður þagði yfir einhverju var
fjölskyldan drepin. Við vorum
því alltaf óróleg og hrædd vegna
þess að við vissum ekki hvaða
mistök við kynnum að hafa
framið.
— Þeir sögðu að allir framá-
menn og allir menntamenn
væru heimsvaldasinnar og kúg-
arar og drápu þá. Og þeir tóku
uxana, hrísgrjónaakrana og
jafnvel hrísgrjóniii af okkur, til
að setja í sameiginlegan sjóð.
Þeir söfnuðu fjölskyldunum til
máltíðar kring um einn sameig-
inlegan suðupott með hrís-
grjónasúpu, sem blandað var í
laufi, vanillugreinum og trjá-'
sprotum.
— Ekkert lát var á mann-
drápum allt árið 1976 og fram á
árið 1977. Þeir hertu þá leitina
og drápu alla, sem höfðu lært að
lesa. Sumir voru úr þorpinu, en
suma fluttu þeir að úr öðrum
þorpum. Ég get talið upp nöfn
margra þeirra. Suma lögðu þeir
gildrur fyrir, en aðrir voru bara
teknir á heimilunum. Þannig
sóttu þeir Thong Chhem frænda
minn. Vegna þessara stöðugu
manndrápa yfirgaf ég bæinn
minri og hélt út í óvissuna án
þess að leiða að því nokkra
hugsun hvað af mér yrði. Það
var þegar þeir höfðu drepið
fjögur systkini mín.
— Ég er bóndi, ég er enginn
letingi. Við höfum unnið hörð-
um höndum í steikjandi sólar-
hita og lifað á landinu í margar
kynslóðir. En ég yfirgaf heimili
Framhald á bls. 62.
Stokkseyri
Umboösmaöur óskast til aö annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaöiö á Stokks-
eyri.
Uppl. hjá umboösmanni Jónasi Larson,
Stokkseyri og hjá afgreiöslunni í Reykjavík
sími 10100.
UTGARÐUR
í Glæsibæ
Veislumatur,
hvaða nafni sem
hann nefnist:
Kaldir eða heita réttir,
Kalt borð, Kabarett,
Síldarréttir, Smurt brauð,
Snittur o.fl.
Sendum í heimahús
ÚTGARÐUR
í Glæsibæ
86220
Furumarkaður
í Vörumarkaðinum
Puntuhandklæðahengi
Vegghankar
Kryddhillur
Bókahillur
Hornhillur
Blaöagrindur
Tóbaks og barskápar
Hljómplötuskápar
Kollar og stólar
Smáborð
Blómasúlur
Símahilla
Spegill meö skúffu
hillum
Bekkir
Sjón er sögu ríkari
Opið til kl. 8
rSI Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1 a Sími 86112
eöa