Morgunblaðið - 16.06.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978
49
verkmenntun verður að fá að
þróast við hlið bóklegra fræða,
lista og andlegrar verðmæta-
sköpunar. Verkmenntun er
líka menning, skapar líka
þjóðfélaginu varanlega arf-
leið.“
kennslu við hlið bóklegra
fræða. Þessar verknámsdeildir
eru orðnar 6, og eru undirbún-
ingur undir alls 28 iðngreinar.
Hver deild fyrir sig er fjölþætt
stofnun, fjölbreytilegri að
störfum til, en áður þekktist,
kannski í öllum iðnskólanum
áður, og flestar bjóða fram
möguleika til áframhaldandi
skólanáms, — án námssamn-
inga — við hlið hins hefð-
bundna meistaranáms. Það
hefir mikil vinna verið lögð í
skipulagsmál þessara verk-
námsdeilda og þær þróast og
breytast eftir því sem hægt er
að fylgjast með kröfum tím-
ans, og fjármunir leyfa. Þrátt
fyrir útibú í Ármúlaskóla
skortir enn mikið á að húsnæði
og annað sé í samræmi við
þarfir og til þess að vera
samstiga nágrönnum okkar. —
Ég vil nefna samræmdan
verknámsskóla fyrir bygginga-
greinarnar, s.s. múrun, pípu-
lagnir, málaraiðn, veggfóðrun,
ýmsa þætti í húsasmíði og
innréttingasmíði, auk verk-
námsaðstöðu fyrir nokkrar
fámennari greinar.
— Við erum mjög langt frá
því að hafa sambærilegar
náms- og vinnubækur til að
kenna eftir, eins og nágrannar
okkar, við búum við véla- og
tækjaskort á mörgum sviðum,
höfum ekki einu sinni
ramma-námsskrár í suraum
greinum, sem þó er undirstaða
þess að hægt sé að semja
námsgögn. Okkur skortir mjög
húsnæði og þenslumöguleika,
því þótt sjálfur nemendahópur
hvers árgangs aukist ekki
hröðum skrefum eykst kenn-
ara-tímafjöldinn jafnt og þétt
og tækin sem nota skal þurfa
líka húsrými.
Ég hefi ekki spurt; hefir
þjóðfélagið efni á að standa
undir öllum þessum kostnaði,
því iðn- og tæknifræðsla er
miklu dýrari en kennsla í
almennum bóklegum fræðum,
en ég spyr hins vegar; Höfum
við efni á að dragast afturúr?
— Getum við í þessum efnum
hætt „að dansa með“, er okkur
fær sú leið að draga okkur út
úr og stunda eingöngu hugræn
störf? Er það forsvaranlegt
horfa á iðn- og tæknifræðslu
standa í stað meðan síaukin
aðsókn er í menntaskóla- og
langskólanám? Nei, einn kost-
ur aðeins er fyrir hendi, lærum
að lifa í nútímanum, tækni- og
„Á þróunina í skólastarfinu
hin síðari ár má leggja einn
góðan mælikvarða. — Fyrir 5
árum' voru kennaratímar á
skólaárinu um 64 þúsund en
voru í vetur 113 þúsund að
Vörðuskóla meðtöldum eða
76.6% aukning á 5 árum,
15V2% á ári.“
Félagslíf í skólanum var
betra og fjölþættara en áður. í
þessu sambandi sagði skóla-
stjóri:
„Nemendur tóku í sínar
hendur á s.l. hausti rekstur
mötuneytis síns og eftir því
sem ég best veit hefir það
gengið vel. Íþróttalíf var með
þeim hætti að minnir á gömlu
góðu dagana þegar nemendur
unnu marga verðlaunagripi í
íþróttakeppnum skólanna og
standa þeir óbrotgjarnir og
bera vitni. Nú í vetur unnu
nemendur Iðnskólans hand-
knattleikskeppni Reykjavíkur-
skólanna. Vil ég færa nemend-
um þeim, sem staðið hafa að
þessum tveim þáttum, svo og
annarskonar félagslífi í skól-
anum, einlægar þakkir fyrir.“
Að lokum kvaddi skólastjóri
brautskráða nemendur og ósk-
aði þeim góðs gengis í störfum.
Frá skólastarfinu.
Reyklausir
bekkir
heiðraðir
Eftirfarandi fréttatilkynn-
ing hefur borizt Morgunblað-
inu frá Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur:
Um miðjan maí kom út
áttunda blaðið af Takmarki
sem krabbameinsfélögin gefa
út með styrk frá Samstarfs-
nefnd um reykingavarnir og
dreift er til nemenda í 5., 6., 7.
og 8. bekk grunnskóla um land
allt.
Takmark hefur frá upphafi
verið helgað baráttunni gegn
reykingum og birt margvíslegt
efni þar að lútandi. í blaðinu
er nú viðtal við Vilhjálm
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra sem sýnt hefur mikinn
áhuga á reykingavarnastarf-
inu í skólunum og veitt því
stuðning. Einnig er viðtal við
Jón Sigurðsson, fyrirliða
landsliðsins í körfuknattleik,
af því tilefni að liðið tók þátt
í Norðurlandamótinu í vor
undir kjörorðinu Við reykjum
ekki.
Þá er skýrt frá því að áttatíu
og sex bekkjardeildir í 6. bekk
og ofar í grunnskólum landsins
hafa á nýliðnu skólaári hlotið
viðurkenningu frá Krabba-
meinsfélagi Reykjavíkur sem
„reyklausir bekkir“ að fenginni
staðfestri yfirlýsingu nemend-
anna um að enginn í bekknum
reyki. Er þetta fyrsta skóiaárið
sem reyklausir bekkir fá slíka
viðurkenningu en næsta vetur
verður sami háttur hafður á.
Ymislegt fleira efni er í
blaðinu, m.a. er sagt frá því að
nokkrir piltar í Hagaskóla
tóku þátt í kröfugöngunni 1.
maí í Reykjavík og báru þar
spjöld með vígorðum gegn
reykingum.
Á þeim stöðum, þar sem
maí-blaðið náði ekki til nem-
endanna fyrir skólaslit, verður
það afhent í skólunum í haust,
en hægt er að fá blaðið hjá
Krabbameinsfélagi Reykjavík-
ur, Suðurgötu 24 og Samstarfs-
nefnd um reykingavarnir, Lág-
múla 9.
Það skal tekið fram að
kaupendur að Fréttabréfi um
heilbrigðismál fá Takmark
jafnan sent með Fréttabréfinu.
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI • -SlMAR: 17152*17355