Morgunblaðið - 20.06.1978, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
128. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Perú:
f or ing j ast j ór n
(AP-KÍmamynd)
Dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands var í gær sæmdur heiðursnafnbót fyrir fræðistörf
við háskólann í Leeds í Englandi og var mynd þessi tekin við það tækifæri.
Lima — 19. júní — AP. -
FYRSTU kosningatölur í
þingkosningum í Perá, sem
fram fóru um heigina, benda
til þess að lýðræðisflokkar
hafi unnið yfirburðasigur og
að borgaraleg stjórn komist
á í landinu innan tveggja
ára, en vinstri sinnaðir
herforingjar hafa ráðið lög-
um og lofum í landinu.
APRA-flokkurinn, sem er
miðflokkur, hefur hlotið
35% atkvæða, en PPC, sem
er hægri flokkur, virðist
Skotbardagi „Undir linditrjánum,,í Austur-Berlín:
Lögregla yfirbugaði tvo
rússneska hermenn á flótta
hafa hiotið 26% kjörfylgis.
Sex vinstri sinnaðir smá-
flokkar eru með alls 27%, en
hægri smáflokkar með 10%.
Opinberar tölur um endanleg
kosningaúrslit liggja enn ekki
fyrir, en 3.7 milljónir manna
greiddu atkvæði. Þingi því, sem
kosið var, er ætlað að ganga frá
nýrri stjórnarskrá fyrir Perú,
þannig að borgaraleg stjórn geti
leyst herforingjastjórnina af
hólmi. 100 fulltrúar eiga sæti á
þinginu, sem kallað verður saman
hinn 28. júlí, og er ætlað að leggja
fram drög að hinni nýju stjórnar-
skrá innan árs. Stjórn Morales
Bermudes hershöfðingja hefur lýst
því yfir að gangi þingstörf sam-
kvæmt áætlun verði öll völd í
landinu fengin í hendur kjörnum
forseta og þingi fyrir 1980.
AusturBerlín — 19. júní. — AP. — Router.
TIL skotbardaga kom í dag milli lögreglu í Austur-Berlín
og rússneskra hermanna, sem sjónarvottar segja að hafi
augljóslega verið að freista þess að komast yfir til
Vestur-Berlínar með því að aka á ofsahraða niður Unter
den Linden í áttina að Brandenburgarhliðinu og síðan að
varðstöð þeirri, sem í daglegu tali er nefnd Checkpoint
Charlie, en hún er við Berlínarmúrinn. Fjórir vegfarendur
særðust í skothríðinni þar af einn vestur-þýzkur
sendiráðsmaður
Sjónarvottar segja að tveir
austur-þýzkir lögreglubílar af
Volgu-gerð hafi elt ljósbláan
fólksflutningabíl. Á horni
Friedrichstrasse og Unter den
Linden hafi lögreglan hafið skot-
hríð að bílnum og tekizt að hrekja
hann upp á gangstétt, þar sem
hann hafi stöðvazt á einu lindi-
trjánna, sem hin fornfræga gata
dregur nafn sitt af. Hafi þá tveir
rússneskir hermenn stokkið út, og
annar þeirra, bílstjórinn, hafið
skothríð af handahófi.
Voru rússnesku hermennirnir
fljótlega yfirbugaðir, en eftir því
sem næst verður komizt urðu þrír
fótgangandi vegfarendur fyrir
skotsárum, og auk þess ökumaður
Volkswagenbifreiðar frá v-þýzku
ræðismannsskrifstofunni í Aust-
ur-Berlín. Sáu vegfarendur hvar
Vestur-Þjóðverjinn var dreginn út
úr bifreið sinni meðvitundarlaus.
Var bifreið hans stórskemmd, en
svo virðist sem alls hafi fjórir
bílar skemmzt í þessum átökum.
Atburður þessi varð um hádegið,
en fimm stundir liðu þar til
austur-þýzk yfirvöld sáu sér fært
að tjá sig um málið. Að sögn
þeirra er Vestur-Þjóðverjinn ekki
lífshættulega særður, en hin
opinbera austur-þýzka fréttastofa
Checkpoint Charlie
N orður-Irland:
Þrír öryggisverð-
ir lágu í valnum
Belíast — 19. júní — Ap. — Reuter.
ÍRSKI lýðveldisherinn lýsti því
yfir í dag, að William Turbitt,
lögreglumaður, sem var mótmæl-
endatrúar, heíði verið „tekinn af
lífi“ þar sem hann hafi verið
verkfæri „brezku stríðsvélarinn-
ar“. Turbitt, sem var fjögurra
barna faðir, var rænt í blóðugri
skotárás á laugardaginn var. í
hefndarskyni við ránið á Turbitt
rændu mótmælendur kaþólskum
presti, séra Hugh Murphy, á
sunnudagsmorgun, en honum var
sleppt eftir áskoranir á ræningja
hans í nafni mannúðar.
„Mér er hræðilega innan-
brjósts", sagði séra Murphy í dag
„þar sem mennirnir, sem höfðu
mig á valdi sínu, urðu við ein-
dregnum áskorunum um að þyrma
Framhald á b!s. 30.
segir að hér hafi verið um að ræða
umferðarslys. Hafi fólksflutninga-
bifreiðin ekið á bifreið Vest-
ur-Þjóðverjans, en við stýrið hafi
verið geðtruflaður sovézkur her-
maður, sem hafði ætlað að komast
hjá því að rannsókn færi fram á
tildrögum árekstrarins og hafi
hann því hafið skothríðina. I frétt
ADN, austur-þýzku fréttastofunn-
ar, segir, að auk Vestur-Þjóðverj-
ans hafi þrír vegfarendur særzt,
en enginn þó lífshættulega.
Framhald á bls. 30.
OPEC:
Olíverð
óbreytt til
áramóta
Gení — 19. júní — AP — Reuter
HELZTU olíuútflutningsríki
heims, OPEC, samþykktu ein-
róma í dag að halda verði á
hráolíu óbreyttu miðað við það
sem verið hefur undanfarna 12
mánuði. í yfirlýsingu, sem birt
var að OPEC-fundinum í Genf
loknum var gefið í skyn að
búast mætti við hækkun olíu-
verðs í janúar næstkomandi.
Þá kom fram að sérstök nefnd
fær það verkefni að kanna
áhrif gengissigs bandaríkja
dals á olíuverðið, og sagði
Jaidah, framkvæmdastjóri
OPEC-samtakanna, að það
yrði undir ákvörðun nefndar-
Framhald á bls. 30.
Hersveitir Zaire og
Angóla við landamærin
Kinshasa — 19. júní — AP
ANGÓLSKAR hersveitir hafa
tekið sér stöðu við landamærin
sem liggja að Zaire til þess að
koma í veg fyrir áhlaup Zaire-
hers á stöðvar uppreisnarmanna
frá Katanga f námunda við
landamærin, að því er áreiðanleg-
ar heimildir hermdu í dag.
Upprcisnarmenn hafa hvað eftir
annað farið í árásarferðir yfir
landamærin, en ekki er ljóst
hversu þeim hefur orðið ágengt
að undanförnu. Ljóst er þó að
hersveitir stjórnanna f Kinshasa
og Lúanda standa gráar fyrir
járnum beggja vegna landamær
anna, og að litlu má muna að ekki
sjóði upp úr. Að því er næst
verður komizt er innrásarliðið,
sem í síðasta mánuði tók náma-
borgina Kolwesi herskildi og stóð
fyrir blóðbaðinu þar, aðskilið frá
Angólaher.
Um tvö þúsund manna herlið,
skipað hermönnum frá Marokkó,
Tógó, Senegal, Fílabeinsströndinni
og Mið-Afríkukeisaraveldinu, er
nú í Shaba-héraði. Hlutverk þess
er að aðstoða Zaire-her við að
koma í veg fyrir frekari árásir frá
Angóla. I Lumumbashi, helztu
borg héraðsins, ríkir mikill ótti
meðal hvítra aðkomumanna við
aðra innrás og skæruhernað,
einnig af hálfu Zaire-hers sem
hefur á sér illt orð fyrir gripdeildir
og speilvirki. I Kolwesi eru nánast
engir hvítir menn eftir og leyfi
yfirvalda þarf til þess að fá aðgang
að borginni. Er hér um að ræða
varúðarráðstöfun vegna verðmæta
og fasteigna, sem þar eru óvarin
og eftirlitslaus.
S.l. laugardag var fréttamönn-
um í Kinshasa sýndur kassi með
vopnum. Að sögn yfirvalda voru
vopnin frá nokkrum löndum, og
hafði hann fundizt í námunda við
Kolwesi, en tilkynnt var að nánari
upplýsingar yrðu birtar þegar
frekari vopnaleit á umræddu
svæði væri lokið.
Lýðræðisöflin
sigruðu undir
vinstri her-