Morgunblaðið - 20.06.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
45
.11 ^ ---T&
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGi
BORG & BECK
fyrir því að ABBA sé að „gjöreyði-
leggja tónlistarsmekk þeirra sem
nú vaxa úr grasi" eins og hún
orðar það í bréfi sínu?
Heldur þessi Ragnhildur
Blöndal að hún sé eitthvað „músik
séní“? Hún getur átt sinn hlusta-
verk í friði og viljum við benda
henni á að leita til eyrnalæknis ef
verkurinn verður óbærilegur.
Einnig viljum við fræða Ragn-
hildi um það að aldrei hefur verið
til vinsælli hljómsveit en ABBA,
hvorki fyrr né síðar, né hljómsveit
Þessir hringdu . . .
• Við eigum líka
rétt á að vera til
Kona sem mikið berst gegn
reykingum vill koma eftirfarandi
á framfæri:
Ég vil leggja það til að hin nýju
strætisvagnaskýli, sem verið er að
byggja, verði þannig skipulög að
að þar verði algjörlega einangrað
herbergi fyrir þá sem ekki vilja
reykja.
Það er bókstaflega ekki bjóðandi
fólki, sem vill verja heilsu sína og
ekki reykir, að sitja í þeim
reykjarmekki sem oftast er í
þessum biðskýlum eins og t.d. í
biðskýlinu á Lækjartorgi.
Einnig vil ég mælast til þess að
reykingar verði bannaðar í lang-
ferðabílunum sem sjá um áætlun-
arferðir út á land. Þeir stanza
oftast með ákveðnu millibili og
getur þá fólk alveg farið út úr
bílnum og reykt í stað þess að gera
þeim, sem ekki vilja reykingar,
lífið leitt. Fólk hlýtur að geta setið
án þess að reykja í langferðabílum
eins og það getur setið þannig í
leikhúsum og kvikmyndahúsum.
Mér finnst fólk sem reykir
yfirleitt sýna mikið tillitsleysi
gagnvart þeim sem ekki gera það.
Ef maður biður t.d. fólk um að
reykja ekki í langferðabílum segir
þaö yfir leitt með skætingi eitt-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Pernik
í Búlgaríu í fyrra kom þessi staða
upp í skák heimamannanna
Antonovs, sem hafði hvitt og átti
leik, og Lozanovs.
33. IId7! - Dxfl, 34. IIb7+ -
Ka8, 35. Hxb5+? — 35. Hexe7! og
vinnur strax) Ka7, 36. Hb7+ —
Ka8, 37. Hb4+ (Betra en 37. Hxe7+
— Hc6, 38. Bxc6+ — Kb8 og
svartur heldur drottningu sinni).
Svártur gafst upp. Með þrjú -peð
undir í endatafli er aðstaða hans
vonlaus, jafnvel þó að mislitir
biskupar séu á borðinu. Mikhail
Zeitlin, Sovétríkjunum sigraði á
mótinu, hiaut 9'Æ v. af 13
mögulegum. Antonov varð næstur
með 9 v.
sem selt hefur fleiri plötur, ekki
einu sinni Bítlarnir ná því marki.
Þetta getur ekki stafaö af því að
hljómsveitin sé svo léleg. Vel-
gengni ABBA hlýtur að byggjast á
einhverju og ef ekki á góðri tónlist
og skenmtilegri framkomu, þá á
hverju?
Að lokum taldi Ragnhildur upp
nokkra sína eftirlætistónlistar-
menn, þar á meðal Frank Zappa og
viljum við benda henni á að eitt af
áhugamálum ABBA er einmitt
Frank Zappa. Undirritaðar vilja
einnig benda á að þeir tónlistar-
menn, sem Ragnhildur nefnir,
hafa flestir komið fyrir hlustir
ABBA aðdáenda, en því má ekki
fólkið ráða því sjálft hvort það
hlustar meira á ABBA eða hinar
hljómsveitirnar? Við höfum held-
ur aldrei skilið hvers vegna fólk
vill kalla Megas listamann.
Að síðustu, Ragnhildur, hvers
vegna tekur þú þetta ABBA æði
svona nærri þér?
Tvær sem svöruðu“.
hvað á þá leið að það standi hvergi
að það sé bannað.
Við, sem ekki reykjum, eigum
fullan rétt á að vera til og við
eigum ekki alltaf að þurfa að láta
undan þeim sem reykja.
A.G
• Ég vil
færa þakkir
Eftirfarandi þakkir hefur
Sveinn Sveinsson, Sólvallagötu 3,
beðið Velvakanda um að koma á
framfæri:
Ég vil færa þakkir læknunum
Einari Kr. Þórhallssyni, yfir-
lækninum Hannesi Finnbogasyni
og Agli Jakobsen fyrir frábærar
móttökur og hjálp er ég var lagður
inn í deild 4D 3. hæð í Landspítal-
anum þann 8. maí s.l. til rannsókn-
ar.
Ég færi þeim kæra kveðju mína
óg innilegustu þakkir.
Einnig vil ég þakka af alhug
hjúkrunarkonum og starfsfólki
öllu. Lengra en þetta fólk gengur
í hjúkrun og kærleika er ekki
hægt.
Sveinn Sveinsson,
Sólvallagötu 3.
Orginal kúpplingar
HÖGNI HREKKVÍSI
Óþarfi að vera með málband á lofti. — Ég sé
fjarlægðina með hálfu auga!