Morgunblaðið - 20.06.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
Tæplega 4000 manns höföu neytt atkvæðisréttar stns við utankjörstaðaatkvæðagreiðslu í
Miðbæjarskólanum í gærkvöldi og var Mbl. tjáð að það væri 12—14% meiri þátttaka en fyrir kosningarnar
1974. bessi mynd var tekin í Miðbæjarskólanum í gær.
Ólafur vill athuga til-
lögur Eyjólf s Konráds
Á FRAMBOÐSFUNDI á Blöndu-
ósi lýsti Ólafur Jóhannesson,
formaður Framsóknarflokksins
því yfir að hann teldi sjálfsagt að
athuga tillögur Eyjólfs Konráðs
Jónssonar og Jóhanns Hafstein
um breytt fyrirkomulag á greiðsl-
Samið um
formennsku
í borgarráði
ÞAÐ var ranghermi, sem sagði í
Mbl. sl. laugardag, að varpað hafi
verið hlutkesti um það hver
meirihlutaflokkanna í borgar-
stjórn hlyti formennsku í borgar-
ráði fyrsta árið. Það var aðeins
gert í fyrstu á meðan formanns-
kjör hafði ekki farið fram.
Alþýðuflokkurinn hlaut for-
mann borgarráðs fyrsta starfsárið
samkvæmt samningum milli
meirihlutaflokkanna. Formaður-
inn er Björgvin Guðmundsson.
um þeim. sem til landbúnaðar
eigi að renna, þannig að bændur
fengju féð beint í hendur.
I framboðsræðu sinni á Blöndu-
ósi fjallaði Eyjólfur Konráð Jóns-
son einungis um rekstrar- og
afurðalán landbúnaðarins og
greiðslur útflutningsbóta og niður-
greiðslna beint til bænda. Benti
hann á að það fé, sem bændur
fengju þannig í hendur milliliða-
laust mundi nema um 5 milljónum
króna á meðalbú árlega eða um
400 þúsund krónum á mánuði og
eðlilegast væri að greiða þetta fé
mánaðarlega. Mætti þá segja að
bændur fengju loks laun sín greidd
í peningum eins og lögboðið var að
því er sjómenn og verkamenn
varðar fyrir nær hálfri öld með
lögum nr. 28 frá 1930, sem
fyrirskipa peningagreiðslur fyrir
vinnu þessara stétta og banna
innskriftakerfið, sem bændur búa
enn við.
Eyjólfur benti á ummæli Gunn-
ars Guðbjartssonar, formanns
Stéttarsambands bænda, sem
sagði stjórnskipaða nefnd nú fjalla
um þetta mál sem eitt hið
Stef nan í land-
helgismálinu
— vard til þess ad Alþýðuflokkurinn
hafnaði þátttöku í vinstri stjórn
segir Magnús Torfi Olafsson
„SÁ málefnaágreiningur sem
kom fram við stjórnarmyndunina
Svavar Gestsson;
Vamarmál-
insettáodd-
inn í stjóm-
arsamstarfi
SVAVAR Gestsson, sem skipar
efsta sæti á framboðslista
Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík, segir í viðtali við Þjóðvilj-
ann sl. laugardag, að hann
telji cngar líkur á því, að
Alþýðubandalagið sé reiðubú-
ið til þess að ganga inn í
Framhaid á bls. 30.
er fólginn í afstöðunni til út-
færslu fiskveiðilögsögunnar,“
sagði Magnús Torfi Ólafsson
formaður Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna, er Mbl. spurði
hann í gær um það atriði, sem
Magnús hefur skýrt frá opinber-
lega að Alþýðuflokkurinn hafi
hafnað þátttöku í vinstri stjórn-
inni 1971 vegna andstöðu við
útfærsluna í 50 mflur.
„Það var sameiginleg stefna
Framsóknarflokks, Alþýðubanda-
lags og Samtakanna strax fyrir
kosningarnar að færa fiskveiðilög-
söguna út í 50 sjómílur og fella úr
gildi samningana við Breta og
V-Þjóðverja um málskot til Haag-
dómstólsins ef til frekari útfærslu
en í tólf mílur kæmi,“ sagði
Magnús Torfi. „Það var þessi
stefna sem formaður Framsóknar-
flokksins meðal annars kynnti
Alþýðuflokknum í bréfi er hann
bauð flokknum til þátttöku í
viðræðum um stjórnarmyndun en
því boði hafnaði Alþýðuflokkur-
inn. Eg hef svo nefnt þá ástæðu
Alþýðuflokksins, að vísa einnig til
sameiningar jafnaðarmanna í
svarbréfi sínu, tylliástæðu og við
það skal ég standa hvar og hvenær
sem er.“
Hér fer á eftir svarbréf Gylfa Þ.
Framhald á bls. 30.
mikilvægasta og orð Inga
Tryggvasonar, þingmanns Fram-
sóknarflokksins, bæði á Alþingi og
í sjónvarpi sl. miðvikudag um hinn
mikla vanda bænda, sem skapaðist
af því hve seint þeir fengju
fjármuni sína í hendur.
„Ingi Tryggvason skilur hvar
skórinn kreppir," sagði Eyjólfur,
„og það er meira en sagt verður
um frambjóðendur Framsóknar-
flokksins í þessu kjördæmi."
Þessu svaraði Ólafur Jóhannes-
son á þann veg að Eyjólfur væri
hugsjónamaður, sem berðist fyrir
þessu máii og sjálfsagt væri að
skoða tillögur hans gaumgæfilega.
Milljóna-
þjófnaður
upplýstur
RANNSÓKNARLÖGREGLAN upp-
lýsti um helgina þjófnað úr húsi í
Breiðholti f fyrrahaust, en þar var
stolið einni og hálfri milljón króna
í peningum, erlendum gjaldeyri og
skuldabréfum.
Rannsóknarlögreglan fékk nýjar
upplýsingar í málinu nú nýverið og
leiddu þær til handtöku manns á
þrítugsaldri, sem nú hefur játað á
sig þjófnaðinn. Maður þessi var
handtekinn nokkru eftir þjófnaðinn
og hafður í gæzluvarðhaldi um tíma
vegna gruns um aðild að málinu.
Hann neitaði þá stöðugt og var
sleppt eftir tæpan hálfan mánuð.
Öllum verðmætunum var búiö að
eyða að undanskildum erlendum
gjaldeyri sem fannst á manninum og
félaga hans við handtökuna í fyrra.
Aðalfundur Arnarflugs hf:
Nettóhagnaður 8,2
milljónir kr. í fyrra
AÐALFUNDUR Arnarflugs hf
var haldinn að Hótel Sögu í
Reykjavík í gærkvöldi. Formaður
stjórnar Arnarflugs, Vilhjálmur
Jónsson forstjóri, flutti skýrslu
stjórnarinnar fyrir árið 1977 og
kom þar m.a. fram að veltuaukn-
ing á árinu var tæplega 300% og
nettóhagnaður 8,2 milljónir.
í ræðu sinni sagði Vilhjálmur
m.a:
„Árið 1977 var ár mikilla
breytinga fyrir Arnarflug. Félagið
hóf starfsemi sína á árinu með 12
fasta starfsmenn og rekstur einn-
ar vélar en í lok ársins 1977 voru
fastráðnir starfsmenn orðnir 52 og
90 manns komust á launaskrá á
árinu. Félagið hafði þá 2 flugvélar
af gerðinni Boeing 720 í rekstri.
Umfang starfseminnar jókst hægt
og sígandi eftir því sem líða tók á
árið, stjórnin hélt með sér tólf
fundi og félagið festi kaup á
húseigninni Skeggjagötu 1 fyrir
starfsemi sína. Heildarvelta fé-
lagsins nam 847.828.165 krónum en
var á sl. ári 227.369.452 krónur eða
tæplega 300% aukning. Laun og
launatengd gjöld voru árið 1977
Ekkert svar
frá Alþýðu-
bandalaginu
„Alpýðubandalagið hefur ekki
svarað okkur ennpá Þanníg að við
fðrum að líta svo á sem Þeir vilji
ekki Þennan fund,“ sagði Gunnar
Guðni Andrésson efsti maður ð lista
Kommúnistaflokksins í Reykjavík í
samtali við Mbl. í gær.
„Við sendum þeim bréf meö
formlegri áskorun fyrir meira en viku
en höfum ekkert svar fengið," sagði
Gunnar. „Okkur þykir miður ef ekkert
verður af því að fólk fái að heyra í
okkur þessum flokkum sem kennum
okkur við verkalýðshreyfinguna og
erum svona á róttækari vængnum."
148.632.350 krónur á móti 38
milljónum rúmum árið 1976. Nettó
ágóði á þessu ári samkvæmt
rekstrarreikningi er 8.249.430
krónur."
Þá sagði Vilhjálmur ennfremur:
„Eins og fram kom hér áðan
hefur aukning á starfsemi félags-
Framhald á bls. 30.
Kjartan og
Steingrím-
ur vilja
vinstri stjóm
STEINGRÍMUR Hermannsson,
ritari Framsóknarflokksins, og
Kjartan ólafsson, ritstjóri
Þjóðviljans, lýsa því báðir yfir
í viðtali við dagblaðið Vísi sl.
föstudag, að þeir vilji stefna að
myndun nýrrar vinstri stjórn-
ar.
Steingrímur Hermannsson:
„... og ég hef ekkert farið leynt
með þá skoðun mína, að ég tel
eðlilegt fyrir
Framsóknarflokkinn, frjáls-
lyndan umbótaflokk, að vinna
með þessum svokölluðu vinstri
flokkum." Steingrímur segir
ennfremur, að hann telji að
vinstri stjórn verði ekki mynduð
án forystu Framsóknarflokksins
en bætir því við, að það verði að
öllufn líkindum ákaflega erfitt
að ná samstarfi við Alþýðuflokk-
inn og Alþýðubandalagið.
Kjartan Ólafsson segir: „Mér
sýnist að niðurstöður bæjar-
Framhald á bls. 31
Talsverð ölvun
við Austurbæj-
arskóla á 17. júní
„ÉG álít að íorsendur fyrir
kvölddansleik á 17. júní séu
endanlega brostnar,“ sagði
Margrét S. Einarsdóttir, formað-
ur þjóðhátíðarnefndar, er
Morgunblaðið innti hana álits á
útidansleikjum á þjóðhátíðardag-
inn. Margrét kvað þjóðhátíðar-
nefnd áður hafa rætt það, að
jafnvel væri tímabært að leggja
Einar
*
Agústsson:
„Liður í því
að losa herinn
Framsóknarflokkurinn viU
vinna að brottf ör varnarliðs
EINAR Ágústsson utanríkisráð-
herra, segir í viðtali við dag-
blaðið Tímann sl. laugardag að
stefna sú sem hann hafi rekið í
utanríkis-og varnarmálum á
liðnu kjörtímabili hafi verið
„liður í því að losa herinn“,
þannig að brottför hans geti
farið fram án röskunar á
starfsemi (slendinga á Keflavík-
urflugvelli.
í viötali þessu ítrekar utan-
ríkisráðherra að Framsóknar
flokkurinn vilji vinna að því að
varnarliðið hverfi af landi
brott.
slíkt dansleikjahald niður, og
eftir reynslu af dansleik við
Austurbæjarskóla á laugardags-
kvöld virtist það skoðun nefndar
innar að vafi léki á um framhald
dansleikjanna.
Bjarki Elíasson yfirlögreglu-
þjónn játaði að mjög mikil ölvun
hefði verið á áðurnefndum dans-
leik við Austurbæjarskóla, en hins
vegar hefði dagskrá þjóðhátíðar
farið vel fram að öðru leyti, og
ástand á laugardagskvöld hefði
engan veginn verið jafnslæmt og
það var 1972, í síðasta skiptið sem
dansleikur var haldinn í miðborg-
inni.
„Það er reynsla undanfarinna
ára,. að ölvun verður einkum á
einum ákveðnum stað, og svo var
einnig nú,“ sagði Bjarki. „Og þess
ber að geta að hér var ekki bara
um að ræða reykvísk ungmenni,
heldur komu einnig unglingar úr
nágrannabæjum Reykjavíkur, svo
sem alla leið frá Keflavík og
Akranesi. Það má því segja að
Reykjavík taki kúf frá nágranna-
byggðunum, og það er ekki gott að
segja hvort ástandið væri nokkuð
betra ef enginn væri útidansleik-
urinn. Það urðu engin stór óhöpp
að þessu sinni, og lögreglan reyndi
að koma drukknum unglingum
heim til sín eða láta sækja þá eins
og hægt var.“
Bjarki sagðist að öðru leyti vera
ánægður með framkvæmd hátíða-
halda á 17. júní.