Morgunblaðið - 20.06.1978, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
Rætt við f ólk á sýningu Errós
,Á<\ur fyrr var þad
Kjarval, nú er þad Erró,“
saydi eldri frú brosandi á
sýningu Errós að Kjarvals-
stöðum, en þar virðist lítið
lát á ösinni, hvort sem er
um helgar eða virka daga,
i sólskini eða rigningu.
Islendingar hafa tekið
Erró opnum örmum og
hvort sem þeir eru undr-
andi eða hneykslaðir,
hrifnir eða ánœgðir, eru
þeirflestir yfir sig stoltir af
listamanninum „sínum“
eða ekki gat Morgunblaðið
séð betur, þegar það brá sér
á vettvang nú í vikunni. Að
minnsta kosti varð ekki á
vegi þess m aður með svip-
aða afstöðu til sýningarinn-
ar og auðugur Bandarikja-
maðurfrá Alaska sem gekk
út afhenni og hafði að orði
að ennþá skini sól í heiði.
Fólk á öllum aldri virðist
sækja sýninguna, alltfrá
kornabörnum til eldra
fólks. í miðri viku þegar
ösin er minniferfólk sér
rólega, labbar um með
sýningarskrána, tyllir sér á
bekkina í salnum eða fær
sér kaffi.
Untíur maður í gulri regnkáou
stóð brosandi og virti fyrir sér
mynd númer 119 af Che. Hann
heitir Hallgrímur Thorsteinsson
og er við nám í blaðamennsku í
Portland, Oregon í Bandaríkj-
unum. Hallgrímur sagði um
sýninguna: „Mér finnst hún
æðisleg. Hún undirstrikar sér-
staklega heimsvaldastefnu
Bandaríkjanna og litadýrðin ...
maður! Ég vildi helzt géta haft
með mér góða myndavél og eyða
síðan viku í vangaveltur yfir
myndunum.
Sumar myndanna finnast mér
þó ofhlaðnar, þær eru svo
ákafar. En vissulega er þetta
samtímalýsing og áróður, nauð-
synlegur áróður. Sjálfur hef ég
séð Bandaríkin og get því ekki
hneykslazt á myndaröðinni af
„Bandarískri búsæld". Mér
finnst ég verða var við greinileg
bandarísk áhrif hjá listamann-
inum.
Þá eru myndirnar af Kínverj-
unum frábærar. Þeir eru gerðir
miklu fallegri en þeir eru í
raun“ — og Hallgrímur heldur
ferð sinni áfram um salinn.
Hjónin Sigríður Ingvarsdóttir
og Skúli Sveinsson fyrrverandi
lögregluvarðstjóri sátu á bekk
og horfðu á mynd númer 144,
sem ber nafnið Israel
(Krokodil). „Þetta er alveg
stórkostleg sýning," sagði Sig-
ríður. „Sögulegar heimildir sem
þarf góðan tíma til að melta.“
Skúli tók undir og sagði: „Af-
skaplegt vinnuþrek sem Guð-
mundur hefur að geta afkastað
þessu öllu.“ „Það er mikið grín
í myndunum," sagði Sigríður.
„Þær eru afskaplega pólitískar
og svo er klám í þeim,“ bætti
hún við hálfhlæjandi. Skúli tók
undir: „Já, töluvert klám.“ „Ætli
það sé ekki nútíminn," sagði
Sigríður. „Maður fylgist ekki
með.“ „Já, það er viðbúið,“
svaraði Skúli. „Annars getur
maður ekki annað en hiegið að
þessari mynd,“ sagði Sigríður og
benti á mynd númer 144. „Þar
sem þessi Gyðingur er að gefa
barni í hermannabúningi brjóst
og brjóstið er peningasekkur."
„Já, ég hef heyrt að sumar
miðaldra konur fari hjá sér
þegar þær skoða þessa sýningu,"
sagði Skúli rólega.
„Þetta er mjög merkileg sýn-
ing,“ sagði Guðmundur Örn
Ragnarsson kerfisfræðingur.
„Hún segir miklu meira heldur
Hallgrímur Thorsteinsson.
Hjónin Sigríður Ingvarsdóttir og Skúli Sveinsson.
Karl Helgason, Bjarni Pálsson, Margrét Helgadóttir og Ingihjörg Bjarnadottir.
Þorgeir Magnússon
Guðmundur örn Ragnarsson
Vigdís Jakobsdóttir
Atli Konráðsson
Þessi snáði var á sýningunni þótt
hann sneri að vísu baki í
myndina „Amsterdam" og horfði
inn í ljósopið hjá Friðþjófi
ljósmyndara um leið og hann
fletti sýningarskránni.
en þessar sýningar á landslags-
myndum sem maður á að
venjast. Jú, myndirnar eru
pólitískar en það er ekki hægri
eða vinstri pólitík heldur ádeilu-
pólitík. Annars finnst mér vera
ofurlítil persónudýrkun í þessu
líka. Það er augljóst að Erró
dýrkar Van Gogh, til dæmis, og
fleiri. Þá finnst mér anzi mikið
háð í þessu hjá honum,“ sagði
Guðmundur.
Þorgeir Magnússon flugmað-
ur hafði að orði hversu góð
sýningin væri, þá sérstaklega
handbragð Errós og túlkun í
myndunum. „Það er athyglis-
vert hvernig hann tekur þjóðfé-
lagsmál fyrir, bæði liðins tíma,
nútímans og framtíðarinnar.
Hann hefur mjög sérstakan stíl.
Erró fer nú sennilega í hóp
þeirra beztu sem ég hef séð.“
A Erró sýningunni er krökkt
jafnt af körlum sem konum, þó
var það því miður áberandi er
Morgunblaðið leitaði álits fólks
að kvenfólkið vildi sjaldnar gefa
færi á sér og segja sitt álit.
Tvær miðaldra frúr stóðu og
horfðu á myndina af Allende,
forðaði önnur sér hið skjótasta
og sagðist ekkert vilja láta hafa
eftir sér í blöðum. Vigdís
Jakobsdóttir sagði hins vegar
innilega: „Þetta er alveg stór-
kostleg sýning. Ég hef aldrei séð
neitt þessu líkt. Áður fyrr var
Kjarval í mestu uppáhaldi hjá
mér en héðan í frá er það Erró.
Maður þarf að taka sér góðan
tíma í að skoða þessa sýningu.
Bæði eru myndirnar svo margar
og svo margar myndir í einni
mynd.
Þetta er önnur hringferðin
mín um salina. Þetta er yfir-
þyrmandi," sagði Vigdís að
lokum.
„Dásamleg sýning," sagði
Karl Helgason fyrrverandi póst-
og símamálastjóri sem sat við
borð ásamt mági sínum, systur
og dóttur þeirra.
„Hún verkar á mig eins og
falleg tónlist. Ég sé enga pólitík
í henni og finnst hún ekkert
erótískari en hún má vera. Ég
hafði gert mér nokkra hugmynd
um hana eftir lestur nýútkom-
innar bókar um Erró en nú
þegar ég sé hana ljóslifandi
fyrir mér finnst mér hún
dásamleg."
Bjarni Pálsson byggingafull-
trúi á Selfossi og mágur Karls
kvað sýninguna mjög fróðlega.
Kona hans og dóttir vildu ekki
fella dóm um sýninguna, sögð-
ust láta karlmennina um það.
Kristín Einarsdóttir og Hann-
es Jóhannsson starfsmaður hjá
íslenzka sjónvarpinu kváðu sýn-
inguna mjög óvenjulega. Kristín
hafði að orði að hún væri
jafnframt dálítið ruglingsleg.
„Ég er ekkert yfir mig hrifin,“
sagði hún. „Mér finnst sumar
myndirnar hafa óþægileg áhrif,
sérstaklega allar þessar hasar-
myndir. Nei, ég vildi ekki eiga
neina af þeim myndum sem ég
hef séð hér. En gaman hef ég af
sýningunni samt.“ Hannes sagði
það svolítið merkilegt hversu
fyrri myndir listamannsins
væru öðruvísi en þær síðari og
hversu þær síðari væru miklu
skemmtilegri.
Tveir nemar frá Menntaskól-
anum á Laugavatni, þeir Atli
Konráðsson og Karl Kristjáns-
son, sögðu: Þessi sýning er mjög
góð. Virkilega vönduð. Sérstak-
lega finnst okkur góð þessi
númer 26 (Við messu) af svíninu
við altarið. Erró er alveg örugg-
lega bezti íslenzki málarinn."
Haraldur J. Hamar: „Sjáðu,
ég er of nátengdur þessari
sýningu til að geta fellt nokkurn
dóm.“ Síðan hlæjandi: „Ég er aö
selja bók hér um Erró. Annars
finnst mér viðbrögð fólks við
myndunum mjög jákvæð. Ég hef
orðið var við bæði undrun og
hrifningu."