Morgunblaðið - 20.06.1978, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
21
Jóhann Ingi
næsti lands-
liðsþjálfari?
STJÓRN HSÍ mun
væntanlega í þessari
viku ganga frá ráðn-
ingu landsliðsþjálfara
fyrir næsta vetur.
Stjórnarmenn í HSÍ hafa ekki
viljaö tjá sig um málið í samtölum
aö undanförnu en Morgunblaöinu
er kunnugt um aö stjórnin sé
einhuga um aö láta íslandsmótið
ganga fyrir öllu ööru næsta vetur
og að landsliðiö taki sem minnstan
tíma frá félögunum. Stjórnin mun
ákveöin í því aö ráöa íslenzkan
þjálfara til aö stjórna landsliöinu
næsta keppnistímabil og hefur í því
sambandi veriö rætt um nokkra
menn, þeirra á meðal Jóhann Inga
Landsliðið
leikur við
Akurnesinga
LANDSLIÐIÐ, sem mæta mun
Dönum 28. júní n.k. á Laugar-
dalsvelli, leikur á laugardaginn
við íslandsmeistara Akraness
og fer leikurinn fram á Akra-
nesi.
Leikur þessi kemur í stað
landsleiksins við Færeyinga
sem fyrirhugaður var á laugar-
daginn en orðið hefur að fresta
sem kunnugt er. Leikurinn á
Akranesi verður til ágóða fyrir
minningarsjóð Guðmundar
Sveinbjörnssonar, hins kunna
forystumanns í knattspyrnu-
málum Akurnesinga um langt
árabil og stjórnarmanns í KSÍ.
Gunnarsson, Karl Benediktsson,
Geir Hallsteinsson og Hilmar
Björnsson.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. hefur aflaö sér er Jóhann
Ingi efstur á óska listanum hjá
stjórn HSÍ og eru taldar miklar líkur
á því aö hann muni þjálfa landsliöið
næsta keppnistímabil. Jóhann er
kornungur maöur, aöeins hálfþrít-
ugur.
— SS.
Ólafur til
Belgíu?
ÓLAFUR Sigurvinsson, landsliðs-
bakvörðurinn úr ÍBV, hefur í
hyggju að flytja út til Belgíu með
fjölskyldu sína og setjast þar að,
en sem kunnugt er leikur bróðir
hans Asgeir með liðinu Standard
Liege í Belgíu. Hefur Ólafur gert
ráðstafanir varðandi vinnu og
einnig mun hann ætla að leika
knattspyrnu áfram. ólafur er
einn bezti bakvörður landsins og
yrði það áfall fyrir lið hans og
landsliðið ef hann flytti út.
Möguleikar Argentínu
og Hofands taldir mestir
SÍDUSTU leíkir í milliriölunum tveimur í HM keppninni í Argentínu fara
fram á miövikudagskvöld. Er beðið eftir peim með mikílli spennu víðast
hvar um heiminn enda skera peir úr um hvaöa liö leika um fjögur efstu
sætin í keppninni.
Flestar þjóðirnar, sem leika, hafa möguleika á að komast í úrslitaleikinn
þó svo að möguleikar Argentínu og Hollands séu álitnir bestir sem stendur.
Lsikirnir, sem fara fram á miövikudnn, eru í A-riðli: Holland — ítalía og
Austurríki — V-Þýzkaland. í B-riöli leika Brasilía — Pólland og Argentína —
Perú.
Hoilendingar eru svo gott sem komnir með annan fótinn í úrslitalcikinn,
það eina sem gæti komið í veg fyrir það er aö þeir tapi tyrir Itölum. Leikur
ítala þótti ekki sannfærandi á móti Austurríki og töldu margir aö ítalir hefðu
mátt þakka fyrir aö ganga meö sigur af hólmi. Verði jafntefli í leiknum ættu
Hollendingar aö komast áfram á hagstæöara markahlutfalli.
Möguleikar V-Þjóöverja eru þeir að þeir sigri Austurríki meö fimm marka
mun og aö Ítalía sigri Holland. ítalía þarf að sigra Holland til aö komast í
úrslitin.
í hinum riölinum berjast Suöur-Ameríku risarnir sem geröu jafntefli sín á
milli, Argentína og Brasilía. Þarna eru allar dyr opnar og ómögulegt aö spá.
Bæöi liðin eru meö þrjú stig. Argentína er með markahlutfallið 2—0 en
Brasilía 3—0. Búist er viö að lið Argentínu komist frekar létt frá leik sínum
við Perú. Brasilía þarf hinsvegar aö sækja á brattann á móti hinum sterku
Pólverjum. Og það eitt er víst að það verður enginn leikur. Sællar minningar
tapaöi Brasilía fyrir þeim í V-Þýzkalandi 1974. Þeir hafa því harma aö hefna.
Eins og sjá má getur allt gerst.
Sjá nánar um HM á bls. 26 og 27
Koma 6 „útlending-
ar"í leikinn við Dani?
ÍSLENDINGAR leika
landsleik við Dani
miðvikudaginn í
næstu , viku á
Laugardalsvellinum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
mun ætlun landsliðsnefndar
KSÍ að kalla heim til leiksins
a.m.k. sex leikmenn sem leika
með erlendum liðum. Asgeir
Sigurvinsson og Jóhannes Eð-
valdsson eru sjálfsagðir í liðið
og hafa báðir hug á að vera með.
Ásgeir er farinn utan til Belgíu
til æfinga og mun væntanlega fá
leyfi Standard Liege til að vera
með í leiknum. Jóhannes er
einnig byrjaður að æfa af kappi
fyrir leikinn og er ekkert því til
fyrirstöðu af hálfu Celtic að
hann verði með.
Árni Stefánsson og Jón
Pétursson, sem báðir leika með
Jönköping í Svíþjóð, eru tilbún-
ir að koma hingað með góðum
fyrirvara til undirbúnings fyrir
leikinn en óvíst er hvort Teitur
Þórðarson getur komið, þar sem
lið hans, Öster, á leik í bikar-
keppninni sænsku daginn eftir
landsleikinn. Hann hefur þó hug
á að vera með. Landsliðsnefndin
hefur mikinn hug á því að fá
Teit óg sömuleiðis mun Teitur
hafa áhuga á því að koma og
verður unnið að því að svo geti
orðið.
Þá er aðeins ónefndur Mart-
einn Geirsson, sem leikið hefur
með belgíska félaginu Royal
Union. Hann hefur verið að
athuga með samninga við önnur
félög og mun að sögn vera í
góðri æfingu.
- SS.
Miklar líkur eru á því að bæði Ásgeir Sigurvinsson og Jóhannes
Eðvaldsson verði með í landsleiknum gegn Dönum í næstu viku.
Sjö atvinnumenn
ídanska liðinu
gegn íslendingum
DANSKA knattspyrnusam-
bandið hefur valið 16 manna
hóp landsliðsmanna vegna
landsleiksins við íslendinga á
Laugardalsvellinum 28. júní
n.k.
Landsliðshópurinn er
blanda atvinnumanna og
áhugamanna. í hópnum eru sjö
atvinnumenn en í hópinn vant-
ar þekktustu landsliðsmenn
Dana, þá Allan Simonsen
Borussia Mönchengladbach,
Henning Jensen Real Madrid
og Birgir Jensen FC Briigge.
Landsliöshópurinn danski
veröur þannig:
Markverðir: Ole Kjær Esbjerg
og Per Poulsen B 1903.
Varnarmenn: Johnny Hansen
Vejle, John Andersen B 1903,
Sören Lerby Ajax, Henning
Munk Jensen Frederikshavn,
Niels Tune St. Pauli og Per
Röntved Bremen.
Tengiliöir: Jens Jörgen
Berthelsen Esbjerg, Peter Poul-
sen Köge, Frank Arnesen Ajax
og Heino Hansen Preusen
Munster.
Framlínumenn: Preben Elkjær
Lokeren, Lars Lundqvuist
Skovbakken, Benny Nielsen
Anderlecht og Henrik Agerbeck
KB.
Tveir nýliöar eru í hópnum,
Lundquist og Agerbeck en þeir
eru markahæstir í 1. deildinni
dönsku sem stendur meö 15
mörk í 13 leikjum. Henning
Munk Jensen, sú gamla kempa,
mun leika sinn 60. landsleik á
Laugardalsvellinum og er þaö
nýtt danskt met.
Skúli setti Norðurlandamet
SKÚLI Óskarsson, lyftingakappi, setti á laugardaginn nýtt
Norðurlandamet í léttþungavigt á innanfélagsmóti sem fram íór í
Jakabóli. Skúli lyfti 280 kg í hnébeygju og setti íslandsmet í
samanlögðu. 675 kg. Met hans í hncbeygjunni er 2,5 kg betra en fyrra
met hans. Árangur þessi lofar sannarlega góðu fyrir heimsmótið sem
haldið verður í Finnlandi f haust.
Gústaf í 6. sæti í snörun á EM
GÚSTAF Agnarssnn v»r í sviðsliósinu um helgina. er hann keppti í
Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Havírov í Tékkóslóvakíu.
Ilann varð í sjötta sæti í snörun með 155 kg lyftu. sem er fjarri hans
besta, en hann hefur best lyft áður 202 kg. Þegar að jafnhöttuninni
kom, mislukkaðist Agnari lyftan er hann reyndi við 185 kg og var
hann þar með úr Irik.
Gústaf taldi það hafa háð sér mjög, að hann fékk enga mjólk hjá
Tékkunum og hafi hann því orðið að þamba vatn, sem var vont í
þokkabót. Gat Gústaf því ekki nærst sem skyldi.
Dregið í þriðju umferð
• SEPP Mayer. hinn góðkunni
markvörður Vestur-bjóðverja.
setti nýtt met um daginn, þegar
hann lék samtals 475 mínútur í
HM leikjum án þess að fá á sig
mark. Maraþonið hófst. er Johan
Neeskens skoraði úr vítaspyrnu á
fyrstu mínútu úrslitaleiksins árið
1974 og því lauk með marki Arie
Haan í fyrri hálfleik viðureignar
Þjóðverja og Hollendinga á
sunnudaginn.
DREGIÐ hefur verið í þriðju
umferð bikarkeppni KSÍ. Allir
lcikirnir fara fram miðvikudag-
inn 21. júní kl. 20.00. Eftirtalin
lið leika saman.
KR—Grindavík á KR-vellinum
við Kaplaskjólsveg.
Armann—Víkingur ólafsvík á
Melavellinum.
Fylkir—ÍBÍ á Árbæjarvelli.
KS—Tindastóll á Siglufirði.
Þór—Leiftur á Akureyrarvelli.
Einherji —Austri á Vopnafirði.