Morgunblaðið - 20.06.1978, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
27
PAÐ munaði ekki nema
6 mínútum, að endur-
tekning yrði á úrslitum
síðasta úrslitaleiks í
HM árið 1974 í Vestur
Þýskalandi er Þjóðverj-
arnir mættu Hollend-
ingum. Þegar 6 mínút-
ur voru eftir var staðan
2—1 fyrir Þjóðverja en
þannig lauk einmitt
úrslitaleiknum 1974.
Nú höfðu Hollendingar
hins vegar heppnina
með sér og nægir þeim
jafntefli gegn Ítalíu á
miðvikudaginn til þess
að tryggja sig í úrslita-
leikinn. Vestur-Þjóð-
verjar verða hins vegar
að sigra Austurríki.
Þetta er greinilega op-
inn riðill í meira lagi og
alls kyns flækjur gætu
komið upp úr honum
áður en upp er staðið.
Þaö kom eins og köld vatnsgusa
framan í hollensku leikmennina,
þegar Riidiger Abramczick skoraði
gegn þeim eftir aðeins 2 mínútur.
Dieter Miiller tók aukaspyrnu og
sendi knöttinn inn að vítateig, Piet
Schrievers kom hlaupandi út úr
markinu og sló boltann frá, en það
tókst ekki betur til en svo, að
knötturinn lenti á höfðinu á
Abramczich og þaðan rakleiðis í
netið.
Leikurinn varð nú mjög fjörug-
ur og opinn, Reiner Bonhof reyndi
a.m.k. þrisvar að klekkja á Hol-
lendingum með aukaspyrnum sín-
Vestur-Þýski útherjinn Riidiger Abramczick skorar fyrra mark Vestur-Þjóðverja gegn Ilollandi í jafnteflisleiknum á sunnudaginn.
Ernie Brandts er sá hollenski á myndinni og veit hann ekki sitt rjúkandi ráð. enda voru aðeins tvær minútur liðnar af leiknum.
(Símamynd — AP.)
URSUTALIÐIN FRA 1974 SKILDU JÖFN
um, en Piet Schrievers sá ávallt
við honum. Og Schrievers varði
einnig mjög vel frá Erich Beer.
Hollendingar fengu einnig sín
tækifaeri í fyrri hálfleik, t.d.
skallaði Rob Rensenbrink naum-
lega fram hjá markinu eftir
sendingu frá Arie Haan og það var
Haan sem jafnaði fyrir Holland
nokkru fyrir leikhlé. Var það
mikill og glæsilegur þrumufieygur
langt utan af velli. Þannig stóð í
leikhléi, 1-1.
Framan af var síðari hálfleikur
heldur þunglamalegri og rólegri,
en það voru Hollendingarnir sem
sýndu þá virðingarverðustu til-
burðina, og var Rensenbrink eink-
um þar að verki. Johnny Rep var
tvívegis nærri því að skora, bæði
skiptin eftir að hafa fengið góðar
sendingar frá Rensenbrink, fyrst
skaut Rep fram hjá, en síðan
hafnaði skot hans í þverslánni.
Bestu færi Þjóðverja fengu þeir
Erich Beer og Abramczich, en þeir
brenndu báðir af. Það var síðan á
70. mínútu að til tíðinda dró á ný,
en þá náði Dieter Muller for-
ystunni fyrir Þjóðverja með góðu
skallamarki. Það stefndi því allt í
endurtekningu frá HM-1974, eða
allt þar til 6 mínútum fyrir
leikslok, er Rene Van Der Kerkhov
tókst að jafna fyrir Hollendinga.
Einni mínútu fyrirleikslok dró svo
enn til tíðinda, er Dirk Hanninga
var rekinn af leikvelli fyrir að
brosa til dómarans. Gangur máls-
ins var sá að Þjóðverjinn Bernd
Hölzenbein kleip Dirk í nefið og
hann svaraði að sjálfsögðu í sömu
mynt en honum til meins sá
dómarinn tii hans og bókaði hann.
Brosti þá Hanninga við smámuna-
seminni og ærðist þá dómarinn
yfir þeirri smán sem honum var
sýnd. Rak hann Hanninga af
leikvelli.
Liðin voru skipuð eftirtöldum leikmönn-
um,
Þýskalandi Mayer, Voicts. l)ietz, Russman.
Kaltz, Bonhof. Abramezirk. RummenÍKfte.
Dieter MUIler, Beer, Hölzenbein.
Hollandi Sehrievers.Poortveijlet, Krol,
Jansen, Wildsehut. HanninKa. Haan, Rene
Van Der Kerkhov, Rensenbrink, Rep,
Brandts.
Dómari var Ramon Barreto frá UruKuay.
PÓLVERJAR HAFA ENN VEIKA VON
PÓLLAND sigraði Perú L0 í Mendoza á sunnudaginn og þar með fuku
síðustu vonir Perúmanna út í veður og vind. Hins vegar eiga Pólverjar
enn veika von um sigur í B-riðli Heimsmeistarakeppninnar en þá
verða þeir líka að leggja Brasilíumenn að velli í síðasta leiknum á
miðvikudaginn. Sigurmark Pólverja gegn Perú skoraði miðherjinn
Andrzej Szarmach í seinni hálfleik.
Argentina'78
Markið kom á 65. mínútu eftir
að Pólverjarnir höfðu haft algera
yfirburði í leiknum. Lato náði
knettinum og gaf fyrir markið þar
sem Szarmach kom á fullri ferð,
henti sér fram og skallaði boltann
glæsilega í markið.
Szarmach, Lato og Deyna, þeir
þrír framlínumenn Pólverja, sem
.enn eru eftir í liðinu frá HM 1974
áttu allir stórleik í gær og settu
þeir vörn Perú hvað eftir annað í
vanda. Pólverjarnir hefðu getað
skorað fleiri mörk en markvörður
Perú, Ramon Quiroga, sem átt
hefur hvern stórleikinn eftir
annan í keppninni, var ekki á þeim
buxunum að láta skora hjá sér.
Hann varði hvað eftir annað
snilldarvel frá fyrrnefndum þrem-
ur stórskyttum Pólverja. Auk þess
áttu Pólverjarnir tvívegis skot í
stangir.
Leikurinn endaði með miklum
tilþrifum. Perúmenn sóttu ákaft
síðustu mínúturnar og markvörð-
urinn Quiroga gleymdi sér alveg í
æsingnum og var kominn fram að
miðlínu til að hvetja sína menn til
dáða. En þá komust Pólverjar í
A*JbíAe> i_ie> fTVl-rVjAE: gierti,
'i r>es5ACLÍ i<spt>ui eeJ>
O-ÍÍUE
TtgS** ’,***?• ****£Ti
K09AS 5lí=»ASro MitOOTO.
MA>OKieo<Si_c>'tiortU-e
He<SRAe tVo;„
evfc(R.t_1&/>vvotjA
PhíWAwoo f irn A.
skyndisókn og var boltinn gefinn
fram til Szarmach. Quiroga sá
ekki aðra leið út úr ógöngunum en
grípa í fætur Szarmachs og fella
hann. Pólverjar fengu aukaspyrnu
en þeir voru alltof lengi að taka
hana og þegar þeir loksins náðu að
skjóta var markið ekki lengur
tómt heldur var Quiroga þangað
kominn til bjargar. En hann fékk
gula spjaldið fyrir gönuhlaup sitt
út á miðjan völlinn.
Menn velta því nú fyrir sér
hvort Pólverjum takist að sigra
Brasilíu á miðvikudaginn. F.ru
ýmsir á þeirri skoðun að þeim
takist það og er í því sambandi
bent á að í síðustu HM keppni
sigraði Pólland Brasiliu 1:0 í
keppninni um þriðja sætið.
Lið IVrú, QuiroKa. Duartc. Manzo.
Ohumpitaz. Navarro. Cucto. Quczada.
Cuhillas. Munantc (Rujas). l,a Iíosa (Sotil).
Oblitas.
Lið Póllandsi Kukla. Szymanowski. Gorir
on. Zmuda. Maculcwic. Masztalrr (Kaspcrc-
zak). Nawalka. Dcyna. Lato. Bonick
(Luhanski). Szarmach.
Dómarii Pat PartridKC. EnKlandi.