Morgunblaðið - 20.06.1978, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
BÚH auglýsir eft-
ir verkstjórum
„ÞAÐ er verið að vinna í máiinu
með því að auglýsa eftir verk-
stjórum,“ sagði Kristinn Ö. Guð-
mundsson bæjarstjóri í Hafnar-
firði, er Mbl. spurði hann í
gærkvöldi frétta af Bæjarútgerð-
armálinu.
Þegar Mbl. spurði hvort núver-
andi verkstjórar yrðu látnir hætta
strax og nýir hefðu verið ráðnir
svaraði Kristinn: „Starfsfólkið
neitar að koma til vinnu undir
stjórn verkstjóranna. Við ráðum
því hvort þeir verða látnir hætta
strax, en að sjálfsögðu verðum við
þá að greiða þeim laun eins og
uppsagnarfresturinn segir til um.“
Alþýðuflokksins á, að þegar for-
maður Framsóknarflokksins tók
að sér tilraun til stjórnarmyndun-
ar, lýsti hann því yfir, að hann
mundi freista þess að mynda
stjórn Framsóknarflokks, Alþýðu-'
bandalags og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna, en þessir!
flokkar, sem voru í stjórnarand-
stöðu, hafa nú starfhæfan meiri-
hluta á Alþingi. Ennfremur vekur
flokksstjórnin athygli á því, að í
bréfi formanns Framsóknar-
flokksins er það skilyrði sett, að
Alþýðuflokkurinn fallist á starfs-
aðferðir við útfærslu fiskveiðilög-
sögunnar, sem hann telur var-
hugaverðar.
Af þessum ástæðum telur
flokksstjórnin því þátttöku Al-
þýðuflokksins til tilraunum til
stjórnarmyndunar ótímabærar nú,
en hann mun sem áður hafa
ábyrga stefnu varðandi lausn
aðkallandi vandamála og vinna
ótrauður að því, að þjóðfélagsþró-
un framtíðarinnar verði í anda
jafnaðarstefnunnar.
í því skyni mun Alþýðuflokkur-
irin taka upp athuganir á samein-
ingu lýðræðissinnaðra jafnaðar-
manna í einum flokki."
Gylfi Þ. Gíslason.
r
— N-Irland
Framhald af bls. 1
lífi mínu, en afleiðingin varð svo
aðeins sú að IRA birti þessa
yfirlýsingu". Taldi presturinn að
rökrétt framhald af frelsun hans
hefði verið það að Turbitt
lögreglumanni hefði verið sleppt
úr haldi hjá Irska lýðveldishern-
um.
Yfirlýsingin um morðið á Tur-
bitt batt enda á þessa „svörtu
helgi" brezku öryggissveitanna á
Norður-írlandi, en tveir lögreglu-
menn að auki urðu IRA-mönnum
að bráð. Félagi Turbitts í landa-
mæralögreglunni, Hugh McConn-
ell, féll 1 kúlnahríðinni í árásinni
á laugardag, og á föstudaginn féll
nítján ára gamall varaliðsmaður í
Londonderry.
Yfir þúsund manna lið her-
manna og lögreglu leitaði beggja
vegna landamæranna að líki Tur-
bitts eftir að morðfrétt IRA var
birt, en þegar eftir skotárásina á
laugardaginn þótti fullljóst af
ummerkjum á staðnum að hann
hefði særzt mjög alvarlega. Arásin
á Turbitt og McConnell átti sér
stað í Camlough í Suður-Armagh,
þar sem öryggissveitirnar telja að
sé eitt mesta hættusvæðið við
landamærin. Séra Murphy var
haldið í 12 stundir áður en honum
var sleppt á sunnudagskvöld, en
það var fyrir orð ekkju Turbitts og
leiðtoga mótmælenda.
— A-Berlín
Framhald af bls. 1
Þessi átök urðu steinsnar frá
sovézku sendiráðsbyggingunni,
sem stendur við Unter den Linden.
Vegfarendur segja að blóðslettur
hafi verið á víð og dreif þegar
skothríðinni lauk, en í fregn ADN
er ekki minnzt á það að aust-
ur-þýzk lögregla hafi beitt skot-
vopnum í viðureigninni við Rúss-
ana.
Ökumaður rússneska bílsins
hafði, að sögn sjónarvotta, svip-
mót Asíubúa, og bendir það til að
hann hafi verið frá einu Sovétlýð-
veldanna í Mið-Asíu. Ekki er vitað
hvort maðurinn komst iífs af eða
hvort hann er særður.
Þetta er í eina skiptið sem vitað
er til að austur-þýzk lögregla hafi
skotið að flóttamönnum, sem hafa
reynt að komast vestur yfir
Berlínarmúrinn, að undanförnu,
en flóttatilraunir hafa verið
óvenju tíðar að undanförnu og
hafa þær tekizt í mörgum tilvik-
um. Tveir Austur-Berlínarbúar
komust um CheckpointCharlie í
síðustu viku en þeir höfðu gefið
belgískum sendiráðsmanni svefn-
lyf og stolið persónuskilríkjum
hans. Um svipað leyti komust tveir
austur-þýzkir landamæraverðir
yfir Múrinn í námunda við
Spandau, og enn einn komst í
gegnum hlið, sem hingað til hefur
ekki verið vitað um.
— OPEC
Framhald af bls. 1
formannsins, olíumálaráð-
hcrra Kuwait, komið hvort
hækkun yrði á olíuverði í
samræmi við niðurstöður
nefndarinnar.
Talið er að koma Fahds,
krónprins og forsætisráðherra
Saudi-Arabíu, til Genfar á
sunnudag hafi orðið til þess að
koma í veg fyrir olíuhækkun en
Saudi-Arabía er það ríki innan
OPEC sem flytur út mest af
olíu, þ.e. um fjórðung af
heildarmagninu, og hefur lang-
mest áhrif á olíuverðið.
Efnahagsmálasérfræðingar á
Vesturlöndum telja líklegt að
olía hækki um fimm af hund-
raði að minnsta kosti eftir
næstu áramót. Ákvörðun OPEC
um óbreytt verð fram að
áramótum hefur verið vel tekið
í Bandaríkjunum, Japan og
V-Þýzkalandi og eru ýmsir
þeirrar skoðunar að Saudi-
Arabar stefni að því að olíu-
verðstöðvun verði enn fram-
lengd þegar næsti OPEC-fund-
ur verður haldinn í Abu Dhabi
í desember.
— Nettóhagn-
aður 8,2 millj.
Framhald af bls. 2
ins orðið veruleg, farþegar sem
fluttir voru á vegum Arnarflugs á
sl. ári voru 80.360 talsins og jókst
farþegafjöldinn um 358,73% frá
árinu áður, en þá voru farþegar
17.518. Samhliða aukningu á starf-
semi félagsins erlendis og á
erlendum leigumörkuðum jukust
verkefni Arnarflugs að miklum
mun á innlendum vettvangi og
flutti félagið hópa íslenskra ferða-
manna á árinu 1977 fyrir ferða'-
skrifstofurnar Sunnu, Samvinnu-
ferðir, Ferðamiðstöðina. Jafn-
framt jókst verulega farþegaflutn-
ingar Arnarflugs á þýzkum ferða-
mönnum til landsins ásamt því að
reynt var að flytja skandinavíska
og írska ferðamenn til landsins.
Samtals komu vélar félagsins til
64 flugvalla og 29 þjóðlanda."
- Guðmundur J.
skellti hurðum
Framhald af bls. 48 1
velli málefnasamningsins og þar
skiptu flokkarnir þrír, Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og
Framsóknarflokkur þeim á milli
sín. Alþýðubandalagið mun
tvisvar sinnum hafa átt kost á
hafnarstjórn, en tekið annan
kost fram yfir í bæði skiptin.
Á þessum fundi alþýðubanda-
lagsmanna, sem áður er getið,
mun hafa verið látið liggja að
því við Guðmund J. Guðmunds-
son, að hann gæti fengið for-
mennsku í einhverjum öðrum
nefndum, en Guðmundur hafn-
aði áður en málið var komið svo
langt að ákveðnar nefndir væru
nefndar á nafn. Á fundinum
mun Guðmundur hafa sagt, að
væri Reykjavíkurhöfn smáatriði
í rekstri borgarinnar en ekki
lífæð, skildi hann að Alþýðu-
bandalagið afhenti Alþýðu-
flokknum formennskuna í hafn-
arstjórn, Reykjavíkurborgar
gæti haft veruleg áhrif á aðbún-
að verkamanna við höfnina og
vinnuskilyrði þeirra og ef hann
sem formaður Verkamannasam-
bandsins ætti ekki að fá for-
mennskustöðuna í hafnarstjórn,
hlyti borgarstjórnarflokkurinn
að líta svo á að þessi stærsti
vinnustaður Dagsbrúnar í
Reykjavík væri verkamönnum
gjörsamlega óviðkomandi — og
borgarstjórnarfulltrúum Al-
þýðubandalagsins væri þar með
ekki við bjargandi.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu síðastliðinn laugardag
styðja þrír fulltrúar Guðmund
J. Guðmundsson sem formann,
borgarstjórnarfulltrúarnir Guð-
rún Helgadóttir, Guðmundur Þ.
Jónsson og Þór Vigfússon. Er þó
talið alls kostar óvíst, hvort Þór
sé tilbúinn til þess að greiða
honum atkvæði, þegar til kosn-
inga kemur í hafnarstjórn.
Sigurjón Pétursson og Ádda
Bára Sigfúsdóttir munu hins
vegar styðja Björgvin Guð-
mundsson til formennsku í
hafnarstjórn Reykjavíkur, enda
munu þau hafa átt drýgsta þátt
í gerð málefnasamnings meiri-
hlutaflokkanna, þar sem þau
samþykktu að afhenda Alþýðu-
flokknum formennskuna.
Hringborðsumræður í
sjónvarpi annað kvöld
SÍÐASTI framboðsþátturinn á
dagskrá sjónvarpsins verður á
miðvikudagskvöldið en þá verða
hringborðsumræður í beinni út-
sendingu, sem Ólafur Ragnars-
son ritstjóri stjórnar.
Emil Björnsson fréttastjóri
sjónvarpsins sagði í samtali við
Mbl. í gær að reiknað væri með
Húsavík:
Samstarf B
og D lista
„ÞAÐ ER verið að ganga frá
samningi um meirihlutasamstarf
framsóknarmanna og sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn,“ sagði
Katrin Eymundsdóttir efsti mað-
ur á lista Sjálfstæðisflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar á
Húsavfk. Sagði Katrín að næsti
bæjarstjórnarfundur yrði á mið-
vikudag.
Framsóknarflokkur hefur 3
bæjarfulltrúa á Húsavík og Sjálf-
stæðisflokkur 2, K-Iisti Alþýðu-
bandalags, óháðra og vinstri
manna 3 og Alþýðuflokkur 1.
Fyrrverandi meirihluti á Húsavík
var skipaður 7 fulltrúum Fram-
sóknarflokks, K-lista og J-lista
Alþýðuflokks og Samtakanna.
Sprengiefni
stolið í
Þorlákshöfn
Brotizt var inn í sprengiefna-
geymslu Ölfushrepps í Þorláks-
höfn um helgina og stolið nokkru
magni af hvellhettum og dýna-
míti. Lögreglan á Selfossi bað
Mbl. sérstaklega að vara foreldra
Þorlákshöfn við. ef þau yrðu vör
við þessi efni f höndum barna
sinna. ______
— Vill innflutn-
ingshöft. . .
Framhald af bls. 48
sem stöfuðu af aðild íslands að
EFTA og EBE verði afturkallað-
ar og frestað um óákveðinn tíma
þeim tollalækkunum. sem koma
eiga til framkvæmda í ársbyrjun
1979 og 1980. Fjármagn, sem
þannig sparast ríkissjóði 5 — 6000
milljónir króna samtals á næstu
þremur árum, skal notað til þess
að halda niðri innlendu verðlagi og
til að létta útgjöldum af innlendri
iðnaðarframleiðslu."
Krafan um 5 milljarða króna
skattlagningu á verzlun, þjónustu
og iðnað, sem framleiðir fyrir
innlendan markað, kemur fram í
tölulið 4.2. sama kafla en þar segir:
„Veltugjald að meðaltali 1.2%
verði lagt á aðstöðugjaldsstofn í
öllum rekstri. þó ekki á fyrirtæki
í sjávarútvegi, fiskiðnaði, land-
búnaði og útflutningsiðnaði.
Tekjuauki ríkissjóðs af veltu-
gjaldi næmi um 5 milljörðum
króna."
Eins og sjá má af þessari
upptalningu eru verzlun, þjónustu-
greinar og iðnaður fyrir heima-
markað ekki undanþegin þessu
veltugjaldi.
þátttöku formanna stjórnmála-
flokka; þeirra Benedikts Gröndal
formanns Alþýðuflokksins, Lúð-
víks Jósepssonar formanns Al-
þýðubandalagsins, Ólafs Jó-
hannessonar formanns Framsókn-
arflokksins, Magnúsar Torfa
Ólafssonar formanns Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna og
Geirs Hallgrímssonar formanns
Sjálfstæðisflokksins. Sagði Emil
að Ólafur Ragnarsson myndi bera
fram spurningar og stjórna um-
ræðum.
Hringborðsumræðurnar eru á
dagskrá síðast á miðvikudagskvöld
og sagði Emil að þetta yrðu
tveggja tíma umræður.
— Varnarmálin
sett á oddinn
Framhald af bls. 2
ríkisstjórn án þess að setja
varnarmálin á oddinn.
í sama blaði Þjóðviljans
birtist ræða, sem Vilborg Harð-
ardóttir, einn af varaþing-
mönnum Alþýðubandalagsins á
yfirstandandi kjörtímabili,
flutti á Akureyri hinn 1. maí sl.
í ræðu þessari segir hún m.a.:
„Vegna þess að við erum hér á
fundi sem Alþýðubandalagið
heldur og af því, að kosningar
eru á næsta leiti, ætla ég að
leyfa mér að orða þá skoðun
mína, að það megi ekki ske
oftar, að Alþýðubandalagið fari
í ríkisstjórn mema brottför
hersins sé fyrirfram gerð að
skilyrði. Það er bjargföst trú
mín, að brottför hersins sé
bæði tákn og forsenda þeirrar
breytingar eða byltingar, sem
yrði að verða á stjórnmálalífi í
landinu til að unnt væri að
takast á um innanlandsmál
með árangri til frambúðar."
— Stefnan í land-
helgismálinu
Framhald af bls. 2
Gíslasonar þáverandi formanns
Alþýðuflokksins til Ólafs Jóhann-
essonar formanns Framsóknar-
flokksins. Bréfið er dagsett 30.
júní 1971:
„Alþýðuflokkurinn hefur mót-
tekið bréf formanns Framsóknar-
flokksins, dags. 25. júní, þar sem
hann býður Alþýðuflokknum til
þátttöku í viðræðum um samstarf
og myndun ríkisstjórnar Fram-
sóknarflokks, Alþýðubandalags og
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
teiur, að nú, að loknum kosning-
um, sé eðlilegt, að gerð verði
tilraun til þess að sameina lýðræð-
issinnaða jafnaðarmenn í einum
flokki og lítur svo á, að úrslit
kosninganna hafi áréttað mikil-
vægi þess máls.
Flokksstjórnin telur, að þessar
tilraunir til sameiningar jafnaðar-
manna eigi að vera undanfari
viðræðna um stjórnarmyndun og
telur Alþýðuflokkurinn, í ljósi
kosningaúrslitanna, ekki fært að
ganga til samninga um stjórnar-
myndun, án þess að áður hafi verið
gerðar alvarlegar tilraunir til
sameiningar jafnaðarmanna.
Jafnframt minnir flokksstjórn
ÞESSI hifreið lá fyrir utan þjóðveginn við Vagla í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði og barst lögreglunni á
Akureyri tilkynning um vcru bílsins þar um klukkan 14 á þjóðhátíðardaginn. Síðast þegar Morgunblaðið
hafði spurnir af málum, hafði bifreiðastjórinn ekki fundizt. — Ljósm: Kr Ó1