Morgunblaðið - 20.06.1978, Side 39

Morgunblaðið - 20.06.1978, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978 39 sístarfandi alveg til dauðadags. Valgarð var afar eljusamur maður og hann skorti því aldrei verkefni. Auk sinna föstu starfa gegndi Valgarð Thoroddsen fjölmörgum trúnaðarstörfum. Hann átti t.d. sæti í stjórn Sambands íslenskra rafveitna 1943—1961, var formað- ur Rafmagnsverkfræðingafélags Islands 1955, formaður Fegrunar- félags Hafnarfjarðar 1951—1962 og Fimleikafélags Hafnarfjarðar 1959—1965. Þá átti Valgarð sæti í byggingarnefnd Hafnarfjarðar 1952—1961. Þótt hér sé látið staðar numið er margt ótalið, svo mörg trúnaðarstörf voru Valgarð falin. Valgarð Thoroddsen var einn af stofnendum Rótarýklúbbs Hafnar- fjarðar og forseti hans 1955—1956. Auk þess var hann umdæmisstjóri rótarýhreyfingarinnar á Islandi rótarýárið 1974—1975. Fyrir mína hönd, konu minnar og rótarýfélaga votta ég eftirlif- andi konu Valgarðs, Maríu Thor- oddsen og börnum hans dýpstu samúð og bið góðan guð að veita þeim styrk og huggun við hið snögga fráfall ástkærs eiginmanns og föður. Blessuð sé minning hins góða drengs, Valgarðs Thorodd- sens. Gísli Jónsson Kvcðja Rotaryumdæmis 136 Valgarð Thoroddsen, verkfræð- ingur og fyrrum rafmagnsveitu- stjóri, sem andaðist 10. þ.m., verður í dag kvaddur hinstu kveðju frá Fossvogskirkju í Reykjavík. Með Valgarði Thoroddsen er genginn óvenju fjölgáfaður og mikilhæfur maður, sem markaði heilladrjúg spor á fjölbreytilegum starfsvettvangi sínum. Ég veit að margir mér kunnugri og færari munu verða til að minnast þessa hugljúfa og gagnmerka dreng- skaparmanns og rekja helstu æviatriði hans. Læt ég það því ógert í þessari fáorðu kveðju, en get ekki látið hjá líða að minnast starfa hans í þágu Rótaryhreyf- ingarinnar hér á landi, sem vissulega voru mikil og góð. Valgarð gekk snemma til liðs við Rotaryfélagsskapinn og lagði hug- sjón hans og málefnum margvís- legt liðsinni um áratuga skeið. Hann var einn af stofnfélögum Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar árið 1946. Gegndi hann ýmsum trúnað- arstörfum í þágu þess klúbbs um árabil og var forseti hans Rótary- árið 1955—56. Umdæmisstjóri íslenska Rótaryumdæmisins var hann svo Rótaryárið 1974—75 og rækti það starf af einskærri ljúfmennsku og myndarskap, svo að vart verður á betra kosið. Hann var sífellt reiðubúinn til að leggja af mörkum mikið og óeigingjarnt starf í þágu þessara göfugu og háleitu samtaka og gerði vissulega að sínum boðskap félagsskaparins um þjónustu ofar sjálfshyggju, svo sem félagar hans í Hafnarfjarðar- klúbbnum geta best um borið. En hann kom miklu víðar við innan samtaka okkar og lét sér raunar ekkert óviðkomandi, sem til heilla horfði fyrir Rótaryfélagsskapinn. Sem- umdæmisstjóri heimsótti Valgarð Thoroddsen alla Rótary- klúbba landsins og lagði þeim margvíslegt lið bæði þá og síðar sem fulltrúi í Rótaryráði umdæm- isins. Fyrir þessi fjölþættu og óeigingjörnu störf vil ég fyrir hönd íslenska Rótaryumdæmisins flytja honum innilegustu þakkir. Tilgangur samtaka okkar Rótarymanna er að stuðla að kynningu, gagnkvæmum skilningi og góðvild meðal manna um heim allan í anda þjónustuhugsjónar- innar. Valgarð Thoroddsen var ótrauður liðsmaður þeirrar hug- sjónar og sakir mikilla hæfileika og manndyggða varð honum vel ágengt í því að vinna málstaðnum verulegt gagn óg styrkja hann á alla lund. Fyrir öll þessi miklu og góðu störf þökkum við íslenskir Rótaryfélagar og kveðjum Valgarð Thoroddsen, þennan virta og ótrauða forystumann okkar, með virðingu og þakklæti. Öllum ást- vinum hans sendum við einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Jón R. Hjálmarsson. Umdæmisstjóri Rótary 1977 — 78. Helgi Lárusson Klaustri: Varnarliðið VILTU SELJA? VILTU KAUPA? Komdu í Chrysler-salinn. Þar er bílaúrval á boðstólnum. Ef þú vilt ekki notaðan bíl, þá eigum viðeinnig nýja bílafrá CHRYSL- ER. Við getum einnig selt notaða bílinn fyrir þig í okkar bjarta og glæsilega sýn- ingarsal. Ekkert innigjald. Þvottaaðstaða fyrir viðskiptavini. CHRYSLER í 1^1 ö l IIHIMIK Plijmnuth SIMCA | Oadge í Morgunblaðinu 7. þessa mán- aðar er greint frá þeirri frétt að enn muni standa til að aðilar þeir, sem kalla áig „herstöðvarandstæð- inga,“ ætli þann 10. júní næstkom- andi að eigra um Keflavíkurveginn hið heimskulega ráp sitt sem þeir eða svipaðir „þátttakendur" hafa áður drattast. Það fyrsta sem þarf að gera, gegn þessu kynduglega háttalagi, er að krefja forsprakka þessa hóps sannra sagna, hvaðan komi til þeirra fyrirskipanir um slíkt athæfi. — Koma fyrirmæli þessi ef til vill frá Moskvu eða frá öðrum svipuðum stöðum einum eða fleir- um: Hvaðan koma fyrirmælini Sannleikurinn verður að koma fram, því fyrr því betra, já strax. Ilinn annar þáttur, sem upplýsast þarf, er: Hvers vegna . hamast menn þessir gegn því, að ísland sé í NATO? Þriðji þátturinn, — sem er ásamt öðrum þætti — mest áríðandi atriðin, sem sé: Hvers vegna vilja þessir vargar í véum, hafa hér varnarlaust land? Hvað er hér á bak við. Öllum ætti að vera ljóst, hve hin ógurlegustu ofbeldisöfl, eru nú ríkjandi víða á jarðhnetti þessum. Árið 1918 fengum vér íslending- ar loksins fyrstu opinberu viður- kenningu á sjálfstæði voru sem fullkomnaðist árið 1944. Árið 1918 fengu þrjú önnur lönd einnig viðurkenndan sjálfstæðisrétt sinn, — þau Lettland, Lithauen og Eistland. Þau nutu sjálfstæðis síns um nokkurra ára skeið með góðum árangri. Hvernig er nú komið fyrir sjálfstæði þeirra? Það munu flestir vita. Fyrir fáum árum komu fréttir um, að þessi sjálf- stæðu ríki væru öll svipt frelsi sinu — með ofbeldi innlimuð í Ráðstjórnarríkin — Rússland. Allt útlit er fyrir að hið sama hafi átt að gerast hér á íslandi. Ekki er langt að huga aftur í tímann að fréttist um fjölda rússneskra herskipa sem lengi voru að sveima hér um Norð- ur-Atlantshafið í kring um ísland, einkum og sér í lagi á sjávar-svæði þess. Talið var að herskipin hefðu verið að minnsta kosti 50 -fimm- tíu-, að tölu. Einnig var talið, að rússneskir kafbátar værí í sjónum um sama leyti en á miklu stærra svæði enda líklega meira en helmingi fleiri að tölu heldur en m i-ttt i"<| rij. í asgú.r i herskipin. Mörgum var tíðrætt um þennan mikla hernaðar- tækja-bægslagang og virtist sýni- legt, að tilgangurinn hefði fyrst og fremst átt að vera að hertaka Island eins og Lettland, Lithauen og Eistland. Þessi dálaglegu „tæki“, munu hafa verið hér að flækjast um margra vikna skeið — líklega svo mánuðum skipti —. Þar sem bandaríska varnarliðið var hér var dokað við með framkvæmdir en jafnframt líklega reynt að fregna sem nákvæmast um varnarsamninginn á milli íslands og Bandaríkjanna. Þegar svo kom á daginn að staðreyndirn- ar myndu vera að hver sú þjóð eða aðilar, sem réðust á varnarliðið á íslandi væru þar með búnir að segja Bandaríkjunum stríð á hendur þá lögðu „árásaröflin" skottin niður, eins og sneyptar og hræddar rottur og snautuðu í burtu. Ekki munu „öfl“ þessi hafa sést hér síðan svo að sögur fari af. Nú virðist eiga að nota þá aðferð — með lævísum áróðri og erlendri og innlendri skipulagningu — að reyna að sannfæra íslendinga um, að best og sjálfsagðást sé, að hafa hér varnarlaust land — láta Varnarliðið fara og .hafa hér galopnar dyr. Allar rottur fara inn | um minnstu smugur hvað þá heldur opnar dyr. Þær allra grimmustu, aumustu og viðbjóð- legustu rottur sem til eru í heiminum, — fyrr og síðar — eru: Kommúnistar allra landa. að Kína-veldi undanskildu. Slík nag- dýr eru sí og æ nagandi, grafandi, tístandi og eyðileggjandi allt sem unnt er, sérstaklega það sem er nauðsynlegast, nytsamast og hag- kvæmast frjálsum ríkjum með blessunarríku lífi ásamt fullum mannréttindum í fyrirrúmi. Allar góðar og gáfaðar þjóðir velja sér að grundvelli til að byggja Frjálst líf og frið Grundvöllurinn má hvergi bila ef að vel á að fara á lífsbrautinni. Hann er fjöreggið sjálft sem engin eyðingaröfl mega snerta. Þau pésamenni hér á íslandi, sem virðast vera á annarlegum mála hjá Moskvu-valdinu, ættu að kynna sér, hvernig fór fyrir föðurlandssvikurunum í Póllandi, — sem hjálpuðu Moskvu-valdinu Framhald á bls. 34 Suðurlandsbraut 10. Sítnar 83330 - 83454 SJALFSTÆÐI GEGN SOSIALISMA ÚTIFUNDUR SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJAVÍK Á LÆKJARTORGI fimmtudaginn 22. júní kl. 18 Dagskrá: Fundurlnn hefst meö ávarpi Birgis ísl. Gunnarssonar borgarfulltrúa, sem veröur fundarstjóri. Þá munu þau Geir Hallgrímsson, forsætisráöherra, Pétur Sigurösson,. alþingismaöur og Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaöur, flytja stutt ávörp Lúörasveitin Svanur leikur frá kl. 17:30 FRAM TIL SIGURS SXT 1J iiflmiiBH mm me aigiiavraiiamuatiiuBáatfliiié

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.