Morgunblaðið - 20.06.1978, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
Rauðu herdeildirnar:
Morðið á
Moro há-
punktur
baráttunnar
Tórínó, 19. júní. AP.
MÁL stofnanda og 14 annarra
félaga í' Rauðu herdeildunum fór
fyrir kviðdóm í dag eftir að
ákærðu höfðu látið þau orð falla
að morðið á Aldo Moro hafi verið
hápunktur baráttu deildanna
gegn ríkisvaldinu. Heimildir
herma að það geti tekið kviðdóm-
inn ailt að tvo daga að koma sér
saman um dóminn yfir
fimmtánmenningunum.
Félagarnir 15 létu frá sér fara
í dag yfirlýsingu þar sem tilgang-
ur Rauðu herdeildanna er undir-
strikaður. Tilkynningin sem er 16
síðna löng var lesin upp við
réttarhöldin í dag og Iásu Arnaldo
Lintrami og Nadia Mantovani
hana upp.
I tilkynningunni segir m.a. að
ákærðu séu félagar í Rauðu
herdeildunum og „sem
kommúnistískir hermenn teljum
við okkur bera fulla ábyrgð á
öllum hermdarverkum sem framin
hafa verið eða eftir á að fremja í
nafni Rauðu herdeildanna."
Þá segir í tilkynningunni að
aðstandendur réttarhaldanna séu
ófærir um að kveða upp dóm yfir
félögum í Rauðu herdeildunum.
Ávallt með útrétta hjálparhönd — Breshnev stillir sér upp með herforingjum sínum. Ustinov, varnarmálaráðherra, situr
leiðtoganum á vinstri hönd.
Stefna Rússar að
innrás í Namibíu?
Leysa Kúbani af í Angóla
London, 18. júní. AP.
ELLEFU háttsettir sovéskir
hershöfðingjar, eru nú
komnir til Angóla til að
leysa af hólmi kúbanska
herstjóra, er þar störfuðu
áður. Upplýsingar þessar
koma fram í brezka blaðinu
„Sadat vegur að
rótum lýðræðis”
Lissabon, 19. júní. AP.
SENDIHERRA Egypta í Portúgal
og fyrrverandi starfsmannastjóri
egypska hersins, Saad el Shazly,
fór á mánudag mjög hörðum
orðum um frumkvæði Sadats
forseta í friðarumleitunum og
fullyrti auk þess að hann gerði nú
skipulagða aðför að lýðræði í
landi sínu.
EI Shazly hershöfðingi, sem verið
hefur sendiherra Egypta í Portúgal
um þriggja ára skeið, sagði skilið
við stefnu stjórnar sinnar í þriggja
síðna handskrifuðu bréfi sem hann
afhenti fréttastofum afrit af.
Sendiherrann sagði fréttamönnum
að hann hygðist engan veginn segja
af sér störfum, en það myndi að
sjálfsögðu fara eftir viðbrögðum
stjórnvalda í Kairó hvort hann yrði
áfram fulltrúi lands síns í Lissa-
bon.
Aðfinnslur sendiherrans varð-
andi friðarumleitanir Sadats í
Mið-Austurlöndum féllu mjög í
sama farveg og aðrar, sem fram
hafa komið að undanförnu, en hann
lét í ljós þá skoðun að ísraelsmenn
væru nú „ósveigjanlegri en nokkru
sinni" eftir að Sadat markaði
stefnu sína. Benti hann á að
hernaðarstyrkur Egypta væri nú
Framhald á bls. 31
„Sunday Times“ nýlega, sem
ber íyrir sig áreiðanlegar
heimildir í París. Telur
blaðið að atburður þessi
kunni að vera forboði inn-
rásar inn í nágrannalandið
Namibíu (öðru nafni
Suð-V esturaf ríku).
Blaðamaður blaðsins, Antony
Terry, skýrir svo frá í forsíðugrein
að háttsettir sovéskir hernaðar-
sérfræðingar hafi nú töglin og
hagldirnar í flota og flugliði
Angóla og stjórni auk þess upplýs-
ingaþjónustu hersins. Segir hann
ennfremur að Austur-Þjóðverjar
„sem almennt eru taldir áreiðan-
legri en Kúbanirnir" hafi nú
yfirumsjón með öllum samgöngum
landsins, hernaðarlegum sem og
meðal óbreyttra borgara.
I greininni er einnig vitnað í
heimildir upplýsingaþjónustu á
Vesturlöndum í þá veru að næsta
skref Sovétmanna verði að öllum
líkindum að leggja á ráðin um
innrás skæruliða úr röðum „AI-
þýðusamtaka Suð-vesturafríku“
(SWAPO) inn í Namibíu. Ríki
þetta liggur við suðurjaðar Angóla
og eru íbúar um ein milljón.
Landið er mjög auðugt af hráefn-
Framhald á bls. 31
Kambódíumenn
ráðast á togara
BanKkok, 19. júní — AP.
TÍU thailenzkir fiskimenn biðu
bana og þrír týndust þegar
kambódískir fallbyssubátar
gerðu árás á sjö thailenzka
togara um helgina að því er
skýrt var frá 1 Bangkok í dag.
Kínverjar þjáJfa
s jóher Mobutus
Kinhasa. 18. júní. Reuter.
KÍNVERJAR hafa sent hernaðar
sérfræðinga til að þjálfa ílota
Afríkuríkisins Zaire, að því er
Haf a fréttastofur
róið á borð með
ofbeldisstefnu?
Flúrence. Italíu. 18. júní. Reuter.
TALSMAÐUR brezku stjórnar
innar hvatti blaðamenn um
heim allan 1 dag til að hætta að
„nota áróðursmálfar hryðju-
verkamanna.“ Það var Harris
lávarður, ráðherra í brezka
innanríkisráðuneytinu, sem lét
þessi orð falla á alþjóðlegri
ráðstefnu um tengsl fjölmiðla
og hryðjuverkastefnu, sem nú
stendur yfir á Ítalíu.
Lávarðurinn sagði í ávarpi
sínu að hryðjuverkamenn bæri
að meðhöndla sem stigamenn og
morðingja. Hann fullyrti að allt
of mikil brögð hefðu verið að því
að fréttastofur tækju í þjónustu
sína málfar „Rauðu herdeildar-
innar" ítölsku, sem bar ábyrgð-
ina á ráni og síðar morði Aldo
Moros, fyrrverandi forsætisráð-
herra Ítalíu. Hann benti á að
yfirlýsingar frá herdeildinni
hefðu verið sviðsettar fyrir
fjölmiðla á táknrænan hátt og
hefðu fjölmiðlar átt að gæta
meiri varkárni.
Flestir ræðumanna á ráð-
stefnunni, frá Bretlandi, Vest-
ur-Þýzkalandi, Ítalíu, Japan og
Bandaríkjunum, létu það álit í
Ijós að fréttastofur ættu af
sjálfsdáðum að fara fram með
meiri sjálfsgagnrýni og vinna
með lögregluyfirvöldum þar sem
um væri að ræða pólitíska
atburði, sem stofnuðu lífi fólks
í hættu. „Hryðjuverk eru of-
beldi, sem miðast við áhorfend-
ur. — Hryðjuverkamenn gaum-
gæfa óhæfuverk sín áður en þeir
ráðast í þau“ sagði bandarískur
ræðumaður, Brian Jenkins.
Fulltrúi japanska ritstjóra-
sambandsins í Evrópu, Chujo
Watanabi, kvað nokkuð hafa
miðað í samvinnu blaða og
yfirvalda varðandi frásagnir af
pólitískum ofbeldisverkum þar í
landi. Sama kom fram í máli
fyrrverandi yfirmanns brezku
lögreglunnar í London, Sir
Roberts Marks. Talsmaður vest-
ur-þýzku stjórnarinnar, Armin
Grúnewald, lét hins vegar að því
liggja að enn væri nokkuð langt
í land með samvinnu af þessu
tagi í Vestur-Þýzkalandi.
Það vakti athygli að einarð-
asti andstæðingur stjórnaraf-
skipta af fjölmiðlum, var einn
kunnasti lögreglumaður Banda-
ríkjanna í seinni tíð, Patric
Murp.hy, fyrrverandi yfirmaður
New York-lögreglunnar. Hann
sagði: „Að grípa fram fyrir
hendur frjálsra fjölmiðla, þegar
þeir skýra frá ofbeldisverkum,
er að leggja lið þeirri ásökun
hryðjuverkamanna að lýðræðis-
þjóðfélög þau, er þeir beina
spjótum sínum að, séu í raun og
sannleika ófrjáls."
diplómatískar heimildir hermdu í
dag.
Sérfræðingarnir munu hafa
komið til landsins á laugardag,
aðeins einni viku áður en kín-
versk sendinefnd var væntanleg
til Zaire til skrafs og ráðagerða
við þarlenda embættismenn.
Velta menn nú vöngum yfir hvort
Kínverjar muni enn auka fram-
lag sitt til landvarna rikisins.
Kínverskir sérfræðingar störf-
uðu áður með yfirvöldum lands-
ins í nokkra mánuði á árinu 1976.
Kínverjarnir komu til Zaire
eftir að þarlend öryggisþjónusta
greindi svo frá að um eitt þúsund
uppreisnarmenn væru nú að
þjappa sér saman í Angóla,
skammt suður af landamærum
Shabahéraðsins. Talsmenn upp-
reisnarmanna hafa á hinn bóginn
andmælt því að um nokkurn slíkan
samblástur sé að ræða sunnan
landamæranna og fyllyrða að þeir
hafi aldrei horfið á brott frá
Shaba eftir innrásina í síðasta
mánuði.
Samkvæmt hinum opinberu
heimildum mun ráðgjöf Kínverja
við flota landsins ekki hafa í för
með sér frekari ítök þeirra í
áformum hernaðaryfirvalda í
Zaire. Mobutu forseti hefur sagt
að Frakkar og Belgar muni eink-
um aðstoða við þjálfun herdeilda
til starfa í Shaba-héraði.
I flota landsins eru um það bil
30 gæzlubátar á fljótum og vötn-
um og um 800 hermenn. Hann
mun aðallega starfa meðfram
hinni mjóu landræmu ríkisins við
ósa Kongóárinnar.
Árásin á togarana var gerð 280
km suðaustur af Bangkok skammt
frá Laem Thien-héraði í Trat-
fylki. Tvö thailenzk eftirlitsskip
flýttu sér á vettvang. Thailenzku
eftirlitsskipin og kambódísku fall-
byssubátarnir skiptust á skotum í
hartnær tvo tíma.
Fjórir thailenzkir togarar flýðu
en ekki er vitað um afdrif hinna
þriggja.
Thailendingarnir og Kambódíu-
menn hafa deilt um hafsvæði
nálægt eynni Kud síðan
Kambódíumenn lýstu yfir 200
mílna efnahagslögsögu.
Veður
I i heim
Amsterdam 22 sólskin
Apena 32 bjart
Berlín 22 sólskin
BrUssel 24 sólskin
Chicago 25 skýjað
Frankfurt 21 bjart
Genf 17 skýjað
Helsinki 16 sólskin
Jóhannesarb 16 sólskin
Kaupmannah 21 sólskin
Lissabon 20 skýjað
London 21 sólskin
Los Angeles 30 bjart
Madrid 18 skýjað
Malaga 22 bjart
Miami 28 rigning
Moskva 19 rigning
New York 25 bjart
Osló 26 skýjað
Parls 20 skýjað
Reykjavík 9 bjart
Róm 26 skýjað
Stokkh 22 sóiskin
Tel Avív 27 bjart
Tókýó 30 bjart
Vancouvor 21 sólekin
Vín 16 akýjaö