Morgunblaðið - 20.06.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
47
Rússar óttast frið
Japans og Kínverja
Tókýó. 19. júní. AP.
SOVÉZK stjórnvöld vöruðu
Japani við því á mánudag að yrði
af fyrirhuguðum friðarsáttmála
þeirra við Kínverja mætti líta svo
á að þeir hefðu tekið höndum
saman með rfkisstjórn sem ógnar
friði. Þetta kom fram í skjali sem
sendiherra Sovétríkjanna í
Tókýó, Dmitrii Polianskii, af-
henti japanska aðstoðarutan-
ríkisráðherranum Keisuke Arita.
Arita svaraði sendiherranum
hins vegar til að umrædd sátt
Japana og Kínverja beindist ekki
gegn neinum þriðja aðila og
mættu Sovétmenn ekki misskilja
tilgang hennar.
Japanir tóku upp stjórnmála-
samband við Kína árið 1972, en
friðarsáttmáli landanna hefur
síðan 1975 strandað á þeirri kröfu
Kínverja að innlima í slíkan
sáttmála ákvæði þess efnis að
ekkert eitt ríki skuli gera tilkall til
forystu í heimsálfunni. Sovétmenn
hafa allt til þessa litið svo á að
þess konar samkomulag gæti
aðeins beinzt gegn Sovétríkjunum
og hafa af þeim sökum verið vöflur
á japönsku stjórninni um að
undirrita ákvæðið.
Utanríkisráðherra Japan, Sunao
Sonoda, tók þó af skarið í gær og
fullyrti að mótbárur Sovétmanna
myndu ekki hafa minnstu áhrif á
friðar- og vináttusamkomulag
Japans og Kína, sem ráðgert er í
náinni framtíð.
Tindemans fær
ekki að far a frá
Carter Bandaríkjaforseti og Rosalynn, eiginkona hans, horfa yfir
Panamaskurðinn að loknum hádegisverði á laugardag. (AP)
Patricia
Hearst í
hjónaband
New York. 19. júní. AP.
PATRICIA Hcarst, sem sneri
aftur í fangelsi í síðasta mánuði
til að fullnægja sjö ára dómi
fyrir bankarán, hefur í hyggju
að giftast fyrrverandi lífverði
sínum að sögn bandarfska tíma-
ritsins „Newsweek".
Timman
efstur
Niksic. JÚKÓslavíu. 18. júní, AP.
EFTIR tíu umferðir á alþjóðlega
stórmeistaramótinu í skák í
Júgóslavíu var staðan þessi á
laugardagi Timman var efstur
með 7 vinninga, Gulko kom
næstur með G.5 og biðskák, þá
Portisch og Vaganian 6, Hort 5.5,
Uhlmann, Glicoric og Ribly 5,
Anderson 4, Ljubojevic 3.5 og
biðskák, Velemirovic 3.5 og
Ivanovic 1.5.
BrUssel - 19. júní - AP.
BAUDOUIN Belgíukonung-
ur neitaði í dag að taka til
greina afsagnarbeiðni Leo
Tindemans forsætisráðherra
og stjórnar hans, eftir að
stjórnarflokkarnir fjórir
Tindemans
höfðu náð samkomulagi um
hvernig bregðast eigi við
efnahagsvandamálum
Belgíu.
Þar með er endi bundinn á þá
stjórnarkreppu sem ríkt hefur í
Belgíu frá því á fimmtudag, en þá
gekk Tindemans á fund konungs
og lagði fram afsagnarbeiðni sína.
Stjórnarkreppan var vegna
ágreinings innan stjórnarinnar
um leiðir til að bæta efnahag
landsins.
í samkomulaginu, sem nú náð-
ist, er gert ráð fyrir að fjárlög
verði skorin niður og að völd
stjórnarinnar verði aukin svo hún
geti gripið til sparnaðaraðgerða,
án þéss að þurfa að leita álits
þingsins.
Helzta vandamál stjórnarinnar
er að reyna að verða sér úti um fé
til að vega upp á móti þeim 2.4
milljarða dollara halla (um 624
milljarðar króna) sem búizt er við
að verði á fjárlögum þessa árs.
Carter vel tekið
af Panamabúum
Washington, 18. júní. Rcuter.
CARTER Bandaríkjaforseti telur
að ferð sín til Panama hafi sýnt
einlægni og vilja Bandaríkja-
stjórnar til að láta Panamabúum
eftir stjórn Panamaskurðar árið
2000 að sögn bandarískra emb-
ættismanna á sunnudag.
Israelsmenn bjóða
aðeins s jálfstjórn
Jerúsalem — 19. júní — AP.
MOSIIE Dayan utanríkisráðherra
sagði í dag að ísraelsmenn útilok-
uðu ekki viðræður í framtíðinni
um yfirráð yfir vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu en teldu sjálf-
stjórn Palestínumanna varanlegt
fyrirkomulag á þessum umdeildu
svæðum.
Dayan sagði fréttamönnum að
ísraelsmenn gengju út frá því að
takmörkuð sjálfstjórn yrði um
óákveðinn tíma á vesturbakkanum.
Stjórnin tók þessa afstöðu í gær
eftir umræður sem hafa staðið í
rúman mánuð og skýrði bandarísku
stjórninni frá henni í orðsendingu.
Hún var svar við fyrirspurnum frá
Bandaríkjamönnum er miðuðu að
því að bjarga friðarviðræðunum við
Egypta úr þeirri sjálfheldu sem þær
hafa verið í.
Að sögn Dayans líta ísraelsmenn
svo á að sjálfstjórn sé ekki bráða-
birgðalausn heldur lausn sem geri
Aröbum og Gyðingum kleift að lifa
saman á vesturbakkanum og
Gaza-svæðinu. Dayan var að skýra
nánar tvíræða yfirlýsingu stjórnar-
innar þess efnis að Israelsmenn
væru reiðubúnir að semja um „eðli
framtíðarsamskipta" ísraels, Jór-
daníu og Palestínumanna á vestur-
bakkanum að loknum fimm ára
tímabili takmarkaðrar sjálfstjórn-
ar.
Bandaríska stjórnin vildi að
ísraelsstjórn féllist á svokallaða
„varanlega stöðu“ vesturbakkans
eftir fimm ár en slíka skuldbind-
ingu var ekki að finna í yfirlýsingu
hennar. ísraelsstjórn forðaðist
þetta orðalag Bandaríkjastjórnar
þar sem í því felst að sjálfstjórnar-
fyrirætlunin sé bráðabirgðalausn
og að seinna verði samið um yfirráð
og fullveldi vesturbakkans.
Dayan sagði að ef Palestínumenn
eða Jórdaníumenn vektu máls á
yfirráðum yfir vesturbakkanum
eftir fimm ár mundu ísraelsmenn
semja. En hann sagði að takmörkuð
sjálfstjórn væri hugmynd Israels-
manna og þeir teldu ekki að til væri
betri leið. Fimm ráðherrar af 19
voru andvígir yfirlýsingu stjórnar-
innar.
ísraelsmenn settu einnig þessi
skilyrði fyrir því að endurskoða
afstöðu sína síðar:
• Samningur um frið í Miðaust-
urlöndum er skilyrði fyrir hvers
konar breytingum á núverandi
stöðu vesturbakkans sem hertekins
svæðis. í stjórnaryfirlýsingunni var
tekið skýrt fram að sjálfstjórn
Framhald á bls. 31
Þetta gerðist
Ungmenmim meinað að
fara til Austur-Berlínar
VesturBerlín, 19. júní. Reuter. AP.
AUSTUR-ÞÝZKIR landamæraverð-
ir neituðu á laugardag nokkrum
áætlunarbifreiðum, fullum af vest-
ur-þýzkum, hægrisinnuðum ung-
mennum, að aka í gegnum Aust-
urÞýzkaland til VesturBerlínar.
Ungmennin ætluðu að fara í kröfu-
göngu til að minnast þess að 25 ár
eru liðin sfðan verkamenn í Austur
Berlín efndu til uppþota.
Bretar, Frakkar og Bandaríkja-
menn hafa krafizt þess að gefin verði
skýring á því hvers vegna ungmenn-
unum var meinað að fara til
Vestur-Berlínar, en í samkomulagi
frá 1971, sem Frakkland, Bretland,
Bandaríkin og Sovétríkin undirrit-
uðu, er kveðið á um að Vestur-Þjóð-
verjum sé leyfilegt að aka frá
Vestur-Þýzkalandi til Vestur-Berlín-
ar um Austur-Þýzkaland.
Lítið var rætt um 25 ára afmæli
uppreisnarinnar í austur-þýzkum
fjölmiðlum, en nokkur dagblöð í
Austur-Berlín minntust á daginn og
sögðu að sameining Austur-Berlínar
og Vestur-Berlínar væri með öllu
óhugsanleg í dag. 17. júní er opinber
hátíðisdagur í Vestur-Þýzkalandi og
er dagsins minnzt sem sameiningar-
dags Þýzkalands.
1977 — Begin verður forsætis-
ráðherra ísraeis.
197G — Bandaríkjamenn og
aðrir útlendingar flbttir frá
Líbanon í bandarískum herskip-
um.
1971 — Hafréttarráðstefna 150
þjóða hefst í Caracas.
1973 — Perón snýr heim til
Argentínu eftir 18 ára útlegð.
1972 — Or.vggisráðið fordiemir
flugrán.
19G3 — Samkomulag um „heita
Hnu" milli Hvíta hússins og
Krentlar.
1915 — Spánn útitokaður frá
SÞ.
1933 — Iierbylting í Síarn.
1927 — Uppreisn Drúsa lýkur í
Sýrlandi.
1898 — 'Bandaríkjamenn taka
Guant í stríðinu við Spánverja.
18G7 — Andrew Johnson forseti
kunngerir santninginn unt kaup-
in á Alaska af Rússunt.
1837 — Viktoría verður Breta-
drottning við andlát Vilhjálnts
IV. — Hollenzkir landnentar
stofna Natal-iýðveldið.
1791 — l,oð\'ík XVI reynir að
fiýja land, en honum er snúið
við og hann færöur aftur til
Parísar.
1789 — Þriðja stéttin vinnur
tennisvallareiðinn í Frakklandi
og ákveður að Ijúka samningu
stjórnarskrár.
1G05 — Teodór II Rússakeisari
ráðinn af dögunt í hallarbylt-
ingu.
Forsetinn sneri aftur til Hvíta
hússins á laugardagskvöld eftir að
hafa skipzt á undirrituðum yfir-
lýsingum við þjóðarleiðtoga Pan-
ama, Omar Torrijos, um það að
Bandaríkjamenn afhendi þjóðinni
eftirlit með skipaskurðinum.
Tveggja daga dvöl forsetans í
Panama var að sögn einkar
friðsöm, en óttast hafði verið að
andstæðingar Panamastjórnar
myndu e.t.v. nota tækifærið til að
gera aðsúg að stjórn Torrijos
herforingja. Mun forsetinn hafa
fullvissað áheyrendur sína í Pan-
ama um að Bandaríkjamenn hygð-
ust standa við orð sín og halda sig
fjarri innanríkismálefnum Pan-
amabúa.
I Panama hefur að undanförnu
gætt óróa út af því ákvæði
samningsins, sem segir að her
Bandaríkjamanna geti tekið sér
vald til að verja skipaskurðinn ef
ástæða er talin til. Andstæðingar
Torrijos herforingja hafa litið svo.
á að ákvæðið brjóti gegn sjálfsfor-
ræði Panamaríkis.
Samningaumleitanir höfðu stað-
ið yfir frá árinu 1964, er fjórir
Bandaríkjamenn og 20 Panamabú-
ar létu lífið í skærum, er urðu við
skurðinn. Það var í september sl.
að samkomulag það var undirrit-
að, er segir að Panamastjórn skuli
hafa algert eftirlit með skurðinum
um næstu aldamót.
Almæll dagsiTTsi Adam
Ferguson skozkur hagfræðingur
(1723—1816) — Jacques
Öffénbach þýzkt-franskt tón-
skáld (1819-1880) - Lillian
Ilellman bandartskur leikrita-
höfundur (1905— ).
Innlenti Eggert Ólafsson og
Bjarni Pálsson klífa Heklu
fyrstir inanna 1750 — Fyrsta
bifreið reynd á Islandi 190] —
Kristján X kemur í heimsókn til
íslands 1926 — Framsóknar-
flokkur stausti flokkur á þingi
í kosningum 1937.
Orð dagsinsi Ég var ár í
bænum. einn sunnudag —
Warwick Deeping enskur rithöf-
undur (1877 — 1950).