Morgunblaðið - 01.07.1978, Side 1
36 SIÐUR
138. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
6 segja sig úr
stjórn Desais
Nýju Delhi 30. júní.
Reuter — AP
SEX indverskir ráðherrar sögðu
aí sér í dag og ollu með því mestu
erfiðleikum sem ríkisstjórn
Morarji Desai forsætisráðherra
hefur komizt í síðan stjórnin kom
til valda fyrir 15 mánuðum.
Desai neyddi Charan Singh
innanríkisráðherra, sem gengur
næstur honum að völdum á
Indlandi. og Raj Narain heil-
brigðismálaráðherra til að biðj-
ast lausnar vegna harðra árása
sem þeir hafa gert á forystu
Janata flokksins sem stendur að
ríkisstjórninni. Fjórir aðstoðar-
ráðherrar sögðu þá af sér í
mótmælaskyni.
Framhald á bls. 20
Frá minníngarathöfn um Jens Otto Krag fyrrverandi forseta í alÞýðuhúsinu i Kaupmannahöfn í g»r.
Walter Mondale tekur í höndina á Menachem Begin forsætisráð-
herra við komuna til ísrael í gær.
Khartoum — Nairobi,
30. júní, Reuter.
UPPREISNARMENN í Eritreu
hafa skýrt frá því að Eþíópíuher
hafi hafið stórfelldustu sókn sína
í 17 ára stríði Eþíópíuyfirvalda
og aðskilnaðarsinna í Eritreu-
héraði.
í frétt uppreisnarmannanna
segir að aðalsóknin hafi byrjað í
gær, er mörg þúsund manna
herlið þusti út úr aðalstöðvum
stjórnarinnar í Aduwa í nágrenni
Tigrehéraðs. Greindist þeim svo
frá að þeim hefði tekizt að ná
útvarpsorðsendingu, sem gaf til
kynna að Sovétmenn tækju þátt í
yfirstjórn aðgerðanna en hins
vegar kváðu þeir hvorki Sovét-
menn né Kúbani hafa tekið
beinan þátt í baráttunni við
víglínuna.
Einnig kom fram hjá
Mond^le reynir að
stilla IsraeLsmenn
upplýsingaþjónustu uppreisnar-
mannanna að þúsundir kúbanskra
hermanna héldu vörð um borgir
þær í Tigrehéraði, sem stjórnin
hefði á valdi sínu svo sjálfir
hermenn Eþíópíustjórnar gætu
sinnt árásaraðgerðum. Þá sagði að
hreyfingar þær, er stríddu gegn
stjórninni væru einkum þrjár,
Eritreiska þjóðfrelsishreyfingin
(EPLF), Frelsissamtök Eritreu
(ELF) og Þjóðfrelsishreyfing
Tigrehéraðs (TPLF).
Framhald á bls. 20
Sprenging
íNew York
Jerúsalem 30. janúar
AP — Reuter.
„FARÐU heim MondaIe“ heyrðist
hrópað við Grátmúrinn í Jerúsal-
em skömmu eftir að Walter
Mondale varaforseti Bandaríkj-
38% með
Carter
New York, 30. júní, Reuter.
BANDARÍKJAMENN eru
óánægðir með frammistöðu
Carters forseta í Ilvítahúsinu og
átta sig ekki á stefnu hans
gagnvart Sovétríkjunum sam-
kvæmt skoðanakönnun í dag.
Aðeins 38% eru ánægðir með
fr;pnmistöðu Carters miðað við
64% fyrir rúmu ári og enginn
fimm fyrirrennara hans hefur
fengið eins slæma útkomu í
skoðanakönnun á sama tíma á
embættistíma sínum.
35% töldu Carter fylgja harðri
stefnu gagnvart Rússum en 41%
taldi að hann vildi draga úr
spennu. Aðéins 29% voru
ánægðir með frammistöðu hans í
utanríkismálum.
anna kom ttl ísraels í fjögurra
daga friðarferð í dag.
„Svíktu okkur ekki eins og þið
svikuð Víetnama“ heyrðist einnig
hrópað og maður nokkur bar
spjald sem á stóði „Gyðingablóð
er mikilvægara en Arabaolía.“
Þátttakendur f þessum mótmæla-
aðgerðum voru 20 — 30 en nokkur
hundruð manns fögnuðu varafor-
setanum.
Aður hafði Mondale hyllt „sér-
stök tengsl" ísraels og Bandaríkj-
anna og Menachem Begin forsæt-
isráðherra kallaði Mondale „vin
þjóðar okkar“ þegar hann tók á
móti varaforsetanum og sagði að
hann kæmi frá landi sem Israels-
menn væru tengdir traustum
böndum. Mondale kallaði ísraels;
menn „merka þjóð“ sem hefði í 30
ár verið „heiminum til fyrirmynd-
ar fyrir hugrekki sitt.“
Tilgangurinn með ferð Mondales
er að leggja áherzlu á stuðning
Bandaríkjanna við Israel og hvetja
ísraelska leiðtoga til að hefja
friðarviðræður að nýju við Egypta.
Einn af fylgdarmönnum vara-
forsetans Stuart Eizenstat ráðu-
nautur Carters forseta ítrekaði í
dag að Bandarikjamenn hefðu ekki
í hyggju að beita ísraelsmenn
þvingunum til að koma af stað
friðarviðræðum. Eizenstat sagði
að Mondale hefði engar nýjar
tillögur meðferðis.
Strangar öryggisráðstafanir
hafa verið gerðar í sambandi við
Framhald á bls. 20
New York, 30. júní. AP. Reuter.
MJÓLKURBÍLL sprakk í loft
upp, ef til vill vegna sprengjutil-
ræðis á Manhattan skammt frá
ráðhúsi New York í dag og um
1G0 slösuðust, 14 þeirra alvarlega
að sögn lögregiunnar.
Lögreglan gekk út frá því að
um sprengjutilræði hefði verið að
ræða þar sem sprengjubrot
fannst en vildi þó ekki fullyrða að
svo hafi verið að svo komnu máli.
Seinna leit út fyrir að bilun á
bflnum hefði verið orsökin.
Sprengingin varð nálægt Wall
Street-hverfinu og fjöldi manns
var á ferli. Sjónarvottar sáu
fórnarlömb rangla um hálfringl-
uð og blæðandi og reyna að
stöðva blóðstrauminn með fötun-
um. „Sumir stóðu í ljósum logum,
föt annarra vorú sundurrifin og í
tætlum" sagði sjónarvottur.
Rúður brotnuðu í skýjakljúfum,
verslunum og veitingahúsum við
nokkrar götur við sprenginguna
sem var geysiöflug og flestir
virðast hafa slaszt af fljúgandi
glerbrotum. Glerbrot hrundu úr
nokkrum háreistum byggingum
næstum því tveimur klukkutímum
Framhald á bls. 20
Þóf um
ítalskan
forseta
Róm. 30. júní. AP
ÍTALSKIR stjórnmálaleiðtogar
héldu áfram viðræðum að tjalda-
baki í dag um val nýs forseta í
stað Giovanni Leone sem sagði af
sér í síðustu viku vegna ásakana
um skattsvik og fjármálamisferli.
Framhald á bls. 20
Skörungur
jarðsettur
Kaupmannahöfn, 30. júní^Reuter.
MARGIR forystumenn jafnaðarmanna á Vesturlöndum voru á föstudag
viðstaddir útför Jens Otto Krags, fyrrverandi forsætisráöherra Dana,
er lézt á fimmtudag í síðustu viku 63 ára að aldri. Fyrrverandi kanzlari
Vestur-Þýzkalands, Willy Brandt, sem í Þetta skipti kom fram fyrir
hönd alÞjóðasamtaka jafnaðarmanna, lét svo um mælt við jarðarförina
að Krag hefði verið „stjórnvitringur og mikill leiðtogi jafnaöarmanna“.
Krag dró sig í hlé úr stjórnmálum eftir að Danir ákváðu að ganga í
Efnahagsbandalagíð í október 1972. Hann hafði sjálfur átt mestan Þátt
í að svo varð.
Eþíópíumerm gera
stórárás í Erítreu