Morgunblaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 1
36 SIÐUR 138. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 6 segja sig úr stjórn Desais Nýju Delhi 30. júní. Reuter — AP SEX indverskir ráðherrar sögðu aí sér í dag og ollu með því mestu erfiðleikum sem ríkisstjórn Morarji Desai forsætisráðherra hefur komizt í síðan stjórnin kom til valda fyrir 15 mánuðum. Desai neyddi Charan Singh innanríkisráðherra, sem gengur næstur honum að völdum á Indlandi. og Raj Narain heil- brigðismálaráðherra til að biðj- ast lausnar vegna harðra árása sem þeir hafa gert á forystu Janata flokksins sem stendur að ríkisstjórninni. Fjórir aðstoðar- ráðherrar sögðu þá af sér í mótmælaskyni. Framhald á bls. 20 Frá minníngarathöfn um Jens Otto Krag fyrrverandi forseta í alÞýðuhúsinu i Kaupmannahöfn í g»r. Walter Mondale tekur í höndina á Menachem Begin forsætisráð- herra við komuna til ísrael í gær. Khartoum — Nairobi, 30. júní, Reuter. UPPREISNARMENN í Eritreu hafa skýrt frá því að Eþíópíuher hafi hafið stórfelldustu sókn sína í 17 ára stríði Eþíópíuyfirvalda og aðskilnaðarsinna í Eritreu- héraði. í frétt uppreisnarmannanna segir að aðalsóknin hafi byrjað í gær, er mörg þúsund manna herlið þusti út úr aðalstöðvum stjórnarinnar í Aduwa í nágrenni Tigrehéraðs. Greindist þeim svo frá að þeim hefði tekizt að ná útvarpsorðsendingu, sem gaf til kynna að Sovétmenn tækju þátt í yfirstjórn aðgerðanna en hins vegar kváðu þeir hvorki Sovét- menn né Kúbani hafa tekið beinan þátt í baráttunni við víglínuna. Einnig kom fram hjá Mond^le reynir að stilla IsraeLsmenn upplýsingaþjónustu uppreisnar- mannanna að þúsundir kúbanskra hermanna héldu vörð um borgir þær í Tigrehéraði, sem stjórnin hefði á valdi sínu svo sjálfir hermenn Eþíópíustjórnar gætu sinnt árásaraðgerðum. Þá sagði að hreyfingar þær, er stríddu gegn stjórninni væru einkum þrjár, Eritreiska þjóðfrelsishreyfingin (EPLF), Frelsissamtök Eritreu (ELF) og Þjóðfrelsishreyfing Tigrehéraðs (TPLF). Framhald á bls. 20 Sprenging íNew York Jerúsalem 30. janúar AP — Reuter. „FARÐU heim MondaIe“ heyrðist hrópað við Grátmúrinn í Jerúsal- em skömmu eftir að Walter Mondale varaforseti Bandaríkj- 38% með Carter New York, 30. júní, Reuter. BANDARÍKJAMENN eru óánægðir með frammistöðu Carters forseta í Ilvítahúsinu og átta sig ekki á stefnu hans gagnvart Sovétríkjunum sam- kvæmt skoðanakönnun í dag. Aðeins 38% eru ánægðir með fr;pnmistöðu Carters miðað við 64% fyrir rúmu ári og enginn fimm fyrirrennara hans hefur fengið eins slæma útkomu í skoðanakönnun á sama tíma á embættistíma sínum. 35% töldu Carter fylgja harðri stefnu gagnvart Rússum en 41% taldi að hann vildi draga úr spennu. Aðéins 29% voru ánægðir með frammistöðu hans í utanríkismálum. anna kom ttl ísraels í fjögurra daga friðarferð í dag. „Svíktu okkur ekki eins og þið svikuð Víetnama“ heyrðist einnig hrópað og maður nokkur bar spjald sem á stóði „Gyðingablóð er mikilvægara en Arabaolía.“ Þátttakendur f þessum mótmæla- aðgerðum voru 20 — 30 en nokkur hundruð manns fögnuðu varafor- setanum. Aður hafði Mondale hyllt „sér- stök tengsl" ísraels og Bandaríkj- anna og Menachem Begin forsæt- isráðherra kallaði Mondale „vin þjóðar okkar“ þegar hann tók á móti varaforsetanum og sagði að hann kæmi frá landi sem Israels- menn væru tengdir traustum böndum. Mondale kallaði ísraels; menn „merka þjóð“ sem hefði í 30 ár verið „heiminum til fyrirmynd- ar fyrir hugrekki sitt.“ Tilgangurinn með ferð Mondales er að leggja áherzlu á stuðning Bandaríkjanna við Israel og hvetja ísraelska leiðtoga til að hefja friðarviðræður að nýju við Egypta. Einn af fylgdarmönnum vara- forsetans Stuart Eizenstat ráðu- nautur Carters forseta ítrekaði í dag að Bandarikjamenn hefðu ekki í hyggju að beita ísraelsmenn þvingunum til að koma af stað friðarviðræðum. Eizenstat sagði að Mondale hefði engar nýjar tillögur meðferðis. Strangar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í sambandi við Framhald á bls. 20 New York, 30. júní. AP. Reuter. MJÓLKURBÍLL sprakk í loft upp, ef til vill vegna sprengjutil- ræðis á Manhattan skammt frá ráðhúsi New York í dag og um 1G0 slösuðust, 14 þeirra alvarlega að sögn lögregiunnar. Lögreglan gekk út frá því að um sprengjutilræði hefði verið að ræða þar sem sprengjubrot fannst en vildi þó ekki fullyrða að svo hafi verið að svo komnu máli. Seinna leit út fyrir að bilun á bflnum hefði verið orsökin. Sprengingin varð nálægt Wall Street-hverfinu og fjöldi manns var á ferli. Sjónarvottar sáu fórnarlömb rangla um hálfringl- uð og blæðandi og reyna að stöðva blóðstrauminn með fötun- um. „Sumir stóðu í ljósum logum, föt annarra vorú sundurrifin og í tætlum" sagði sjónarvottur. Rúður brotnuðu í skýjakljúfum, verslunum og veitingahúsum við nokkrar götur við sprenginguna sem var geysiöflug og flestir virðast hafa slaszt af fljúgandi glerbrotum. Glerbrot hrundu úr nokkrum háreistum byggingum næstum því tveimur klukkutímum Framhald á bls. 20 Þóf um ítalskan forseta Róm. 30. júní. AP ÍTALSKIR stjórnmálaleiðtogar héldu áfram viðræðum að tjalda- baki í dag um val nýs forseta í stað Giovanni Leone sem sagði af sér í síðustu viku vegna ásakana um skattsvik og fjármálamisferli. Framhald á bls. 20 Skörungur jarðsettur Kaupmannahöfn, 30. júní^Reuter. MARGIR forystumenn jafnaðarmanna á Vesturlöndum voru á föstudag viðstaddir útför Jens Otto Krags, fyrrverandi forsætisráöherra Dana, er lézt á fimmtudag í síðustu viku 63 ára að aldri. Fyrrverandi kanzlari Vestur-Þýzkalands, Willy Brandt, sem í Þetta skipti kom fram fyrir hönd alÞjóðasamtaka jafnaðarmanna, lét svo um mælt við jarðarförina að Krag hefði verið „stjórnvitringur og mikill leiðtogi jafnaöarmanna“. Krag dró sig í hlé úr stjórnmálum eftir að Danir ákváðu að ganga í Efnahagsbandalagíð í október 1972. Hann hafði sjálfur átt mestan Þátt í að svo varð. Eþíópíumerm gera stórárás í Erítreu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.