Morgunblaðið - 01.07.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1978 5
Fjórir norrænir listamenn á Kjarvalsstöðum:
„Verkið er byggt á skynj-
un minni á Snorra-Eddu”
SAMSÝNING fjögurra ungra
listamanna frá Norðurlöndum
hofst á Kjarvalsstöðum í dag.
Þeir sem sýna eru Ólafur
Lárusson, íslandi, Björn
Nörgaard. Danmörku, Anders
Aaberg, Svíþjóð og Viggo
Andersen frá Noregi. Sýning
þessi cr hingaö komin fyrir
tilstilli Sonja Ilenie og Niels
Onstad stafnsins í Noregi og
Norræna menningarmálasjóðs-
ins. Hefur hún ferðazt víða um
Norðurlönd.
Upphaflega voru þessir fjórir
listamenn valdir á hinn þekkta
æsku-Biennal í París árið 1977,
en þangað er jafnan boðið þeim
listamönnum sem ekki hafa náð
35 ára aldri og þykja standa
framarlega innan nýlista. Eru
það gagnrýnendur sem ráða
valinu en ekki opinberar nefndir
í hverju landi.
Að loknu Æsku-Biennal
ákvað Sonja Henies og Niels
Onstad safnið að vekja sérstaka
-.athygli á fulltrúum Norðurland-
anna með þessari sýningu á
nokkrum verka þeirra. Sýningin
hefur tekið nokkrum breyting-
um frá landi til lands.
Daninn Björn Nörgaard
ákvað t.d. að byggja upp nýtt
verk hér á staðnum og er
Snorra-Edda að hans sögn
kveikjan að því. Norðmaðurinn
Viggo Andersen hefur og breytt
og endurskoðað verkið sem hann
sýnir. Myndir Ólafs Lárussonar
og tréskúlptúr Svíans Anders
Aaberg eru hins vegar óbreytt.
Um verk sitt segir Daninn
Björn Nörgaard: „Ég vinn með
margar stakar hugmyndir í einu
og er engin þeirra annarri
Bezt væri ef áhorfandinn notaði
einungis eigin skilningarvit og
væri ekki að lesa þetta. Þó get
ég sagt • og fullyrt að fjórir
meginþræðir liggja að baki
þessu verki. — 1) Allt efnið eru
eins konar frumefni 2) Raun-
sæishugmyndin, þ.e. notkun á
hlutum úr daglega lífinu sófa-
settinu, lampa, sjónvarpi og
fleira. 3) Formhugsunin, þ.e.
notkun á þróunarforminu og
lagningu gifsveggjarins. — 4)
Frásögnin, verkið er byggt á
skynjun minni á Snorra-Eddu.
Henni tilheyra t.d. hlutirnir sem
standa á hraungrýtinu, bollinn,
pottablómið og litli sauðurinn.
Snorra-Eddu las ég fyrst í skóla,
en árið 1971 tók ég þátt í tilraun
til að stofna samyrkjubú og
kommúnu á eyju við strendur
Danmerkur. Þar las ég aftur
Islendingasögurnar og Eddu og
þær eru yfirfullar af sögum af
fólki sem er einmitt að skapa
sér þjóðfélag og eigin lifsmáta.
Snorra-Edda er einnig mjög
myndrík bók, þar er öllu lýst á
stuttan og laggóðan hátt. Þess
konar myndríki hef ég einnig
reynt að stofna að í þessu verki".
Um verk hans segir Aðal-
steinn Ingólfsson, „Nægir að
segja að verk hans grundvallist
Framhald á bls. 21
• Björn Nörgaard við listaverk sitt. sem hann hefur sett upp eftir hugmyndum sem hann hefur fengið úr Snorra-Eddu. • Sænska
verkið á sýningunni.
Hryssa kastaði
tveimur f olöldum
FYRIR skcmmstu kastaði hryssa ein á bænum Balaskarði í
Austur-Húnavatnssýslu tveimur folöldum. Folöldin voru tveir
rauðir hestar og lifðu báðir en móðir þcirra er 14 vetra dökkjörp
og bcr nefnið Þota. Að sögn Þorkels Bjarnasonar, hrossaræktar-
ráðunauts er það mjög sjaldgæft að f þeim tilvikum, sem hryssur
kasta tveimur folöldum að þá lifi bæði. Þorkell sagðist muna eftir
örfáum tilvikum þar sem bæði folöldin hefðu lifað en óhætt væri
þó að fullyrða að slíkt væri mjög sjaldgæft. Ljósm.i M.A.
Lögreglan syng-
ur á Lækjartorgi
NORSKI lögreglukórinn kom
hingað til lands í gærmorgun. I
förinni eru um 30 norskir lögreglu-
menn og eiginkonur þeirra. Hóp-
urinn mun dvelja hér til þriðju-
dagskvölds og skoða landið.
Ef veður leyfir ætlar kórinn að
syngja nokkur lög á Lækjartorgi
klukkan 15 í dag. íslenzki lögreglu-
kórinn mun taka lagið með hinum
norsku starfsbræðrum sínum og
verða þá sungin norræn lög, sem
kórarnir hafa áður sungið saman
á kóramótum.
Sveinn Þormóðsson tók þessa
mynd af orska kórnum á æfingu í
gærmorgun.
ðin
CUCB&
CtMAXRO
MEÐ BUNDIÐ FYRIR AUGU
OG HETTU YFIR HÖFÐI
Gengur annar bróðirinn eftir örmjórri línu með hinn
standandi á herðum sér hátt yfir höfðum áhorfanda
án nokkurs öryggisútbúnaðar.