Morgunblaðið - 01.07.1978, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1978
Komið við í
SKÍÐASKÓLINN í Kerlingarfjöllum
hóf sitt nítjánda starfsár Þann 21.
júní s.l. og eins og undanfarin ár er
aðsókn aö skólanum mjög mikil og
um helgina var aöeins hægt aö
komast aö á tveimur námskeiðum
í sumar. Á hverju námskeiði eru nú
um 80 manns, en húsrými í Ás-
garðsbyggðinni hefur aukist mikið
síðustu ár, en alls standa Þar nú 12
hús, en auk nemenda starfa um 20
manns við skólann að meöaltali.
Fyrsta námskeiöið, sem var í 5
daga, var unglinganámskeið, fyrir
börn á aldrinum 11—15 ára. Á
Þessu námskeíði voru börn alls
staðar að af landinu, eins og t.d.
Fáskrúösfirði og Vestmannaeyjum
og allir virtust kunna vel viö sig.
Auk unglinganna kom nokkuð af
fólki úr Reykjavík til að fara á skíði
í Kerlingarfjöllum um helgina, en
ágætis færi er nú inn í Kerlingarfjöll
úr Reykjavík.
Matarlystin
eykst um 30%
„Hér tekur maður greinilega eftir
hvað matarlyst unglinganna eykst
við útiveruna, því þegar líða tekur á
námskeið eykst matarlyst þeirra um
30% miðað við fyrstu tvo—þrjá
dagana. Til marks um lystina
borðuðu 130 manns 430 stórar
fiskbollur hér á laugardagskvöld,"
sagði Birgir Viðar Halldórsson bryti
Kerlingarfjöllum:
Kerlingarfjiill séð af veginum nurðan Kjalfells. Ljósm. Mbl.i Þúrlcifur Ólafsson.
nú á ég heima í Vestmannaeyjum og
þar er nú dálítið erfitt að stunda
skíði af krafti,“ sagði Jón Gístason,
13 ára. Hann kvaðst hafa byrjað að
fara á skíði í Bláfjöll og Skálafell á
meðan hann átti heima í Reykjavík.
„Ég hef reyndar aldrei verið áður
í Kerlingarfjöllum, en það er reglu-
lega gaman hérna,“ sagði Jón og
bætti því við að hann væri ekki eini
Vestmannaeyingurinn í Kerlingar-
fjöllum, þar væri líka ein stúlka.
Brekkurnar fínar
„Mér finnst brekkurnar hér fínar,
og almennt er mjög gott að vera hér.
Eini gallinn, sem ég finn, er hvað
langt er að fara í brekkurnar frá
bílastæðinu fyrir neðan Fannborg,"
sagði Pétur Bjarnason frá Akureyri.
„Ég hef verið mikið á skíðum
heima, sérstaklega nú eftir síðustu
jól og áhuginn eykst sífellt, því gæti
ég vel hugsað mér að fara hingað á
ný næsta sumar þ.e.a.s. ef maður
lendir í góðum hópi, félagsskapurinn
hefur allt að segja."
„Það eru tvö ár síðan ég byrjaði að
stunda skíði og ég fer alltaf á skíði
„Við hinir höldum í halann
og fylgjum Valdimar eftir"
Jón Gislason
í Kerlingarfjöllum þegar við rædd-
um við hann. Birgir starfar nú þar
efra og sagðist hafa ráðið sig í fjöllin
til að breyta til og að sjálfsögðu til
að læra á skíðum, en hann er nú
heltekinn skíðabakteríunni eftir
þann stutta tíma, sem hann hefur
verið í Kerlingarfjöllum.
„Ég kann ákaflega vel við mig
hér,“ heldur hann áfram. „Andinn í
starfsfólkinu er mjög góður, þetta er
eins og stór fjölskylda, endá þarf það
líka að vera, ef allt á að ganga vel.
Hér eru allir í öllu og hver reynir að
rétta öðrum hjálparhönd.“
— Er ekki erfitt með öll aðföng
hér, þar sem á annað hundrað
kílómetrar eru í næstu verzlun og
vegurinn ekki beint greiðfær?
Jón Bjarki Sigurðsson
Matseöillinn útbúinn
fyrir 3 vikur
„Ég útbý matseðilinn fyrir 3 vikur
í senn, og hef síðan alltaf aukahrá-
efni ef eitthvað ber út af, því hér
hleypur maður ekki út í næstu búð.
Annars er það svo, að fyrstu
dagana voru krakkarnir hálflystar-
lausir hér, en nú hefur matarlystin
aukist gífurlega. Við vinnum nú sex
í eldhúsinu, tvær stúlkur eru á vakt
í senn með mér, en hinar þrífa. Þá
sjá stúlkurnar um morgunmatinn,
og nestið sem sent er upp í fjall, en
ég sé algjörlega um kvöldverðinn og
að nóg sé til af áleggi ofan á nestið.“
— Hafðirðu stundað skíði áður en
þú komst hingað?
Pctur Bjarnason
— Nei, ég hafði aðeins stundað
sund og sundknattleik, auk fótbolta.
Skíðin voru alveg ný fyrir mér og
markmiðið er að verða orðinn góður
skíðamaður í haust. Nú fer ég á skíði
á hverjum degi og mun halda því
áfram.“
Skíðasnjór var með mesta og bezta
móti í Kerlingarfjöllum um helgina.
Það var búið að vera kalt um
nokkurn tíma, og snjóað hafði á
nóttunni. Snjórinn í Fannborgar- og
Snækollshlíðum var því skjannahvít-
ur og snjóbirtan eftir því. I fjallinu
hittum við nokkra þeirra unglinga,
sem voru í skíðakennslu hjá þeim
Valdimar Örnólfssyni, Jakob Al-
bertssyni, Steinunni Sæmundsdótt-
ur. Árna Þóí Árnasyni, Nínu Helga-
Svcinn Kristinsson
dóttur og Pétri Jónassyni. Fyrst
hittum við 13 ára pilt úr Reykjavík,
sem sagðist heita Jón Bjarki Sig-
urðsson.
Aftur næsta sumar
„Ég hef aldrei verið hérna áður, en
það er alveg ofsagott að vera hér og
ég er ákveðinn í að fara hingað á ný
næsta sumar Ég hef líka mikið verið
í Bláfjöllum áskíðum, en það er ekki
líkt því eins gaman.
Þá er skíðakennsla fín hérna og
maturinn er algjört æði, svona
oftast."
Erfitt aö fara á
skíði í Eyjum
„Ég hef dálítið verið á skíðum, en
Jakob Ágústsson
þegar ég kemst," sagði Sveinn
Kristinsson, 14 ára gamall Kópa-
vogsbúi. „Það er mjög gott að vera
hérna, miklu betra en ég hélt fyrst
og því langar mig að koma hingað
aftur næsta sumar.
Kennararnir góöir
„Ég held að ég hafi tekið miklum
framförum þann tíma sem ég hef
verið hér á skíðum. Kennararnir eru
hreint frádærir, en við erum 15—20
í hóp með þeim. Því er samt ekki að
neita, að þegar líður á daginn, verður
maður þreyttur."
Þorði ekki niöur
brekkurnar
„Ég kom hingað til að læra á
Nokkrir vclunnarar skólans komu upp í Kcrlingarfjöll um helgina og lagfærðu Snjótroðari cr nú kominn í Kerlingarfjöll og munu flestir skíðamenn vera ánægðir
hlaðinn bakka. cn hcllurnar höfðu runnið til í vor. með það