Morgunblaðið - 01.07.1978, Page 36
Saltfiskurinn 2,7
milljarða verðmæti?
MORGUNBLAÐIÐ Icitaði í gær til
aðila er standa að saltfiskútflutn-
inifi til þess að spyrjast fyrir um
það, hve mikið verðmæti 8 þúsund
tonna af saltfiski, sem afskipa á til
Portúgals, er í íslenzkum krónum.
Ailir aðilar vörðust frétta um það
og var ástæðan sú, að ekki hefur
endanlega verið gengið frá öllum
endum í samhandi við sölusamn-
inga.
Hins vegar ef fiett er upp í
Hagtíðindum og tekið meðaltal
Portúgalsafskipana í fyrra og verð
hvers kílós síðan hækkað um hækk-
un á meðalgengi milli ára kemur í
ljós að hvert kg er um það bil á 340
krónur og ættu þá 8 þúsund tonn að
vera um 2,7 milljarðar króna.
Alvarlegt umferðar-
slys í Borgarfirði
ALVARLEGT umferðarslys varð
á þjóðveginum við Dalsmynni í
Borgarfirði í gærdag um klukk-
an 15.30. I>ar á beina veginum
rákust saman Willis-jeppi og
Mazda-fólksbifreið. í jeppanum
voru þrír piltar og hjón með tvö
börn í fólksbílnum. Farþegi í
Willis-jeppanum slasaðist illa á
höfði og flutti þyrla frá varnar-
liðinu hinn slasaða til Reykjavík-
ur, þar sem hann var lagður inn
á Borgarspítalann.
Hjónin og börnin tvö slösuðust
einnig og voru þau flutt með
sjúkrabifreið í sjúkrahúsið á
Akranesi. Ökumaður jeppans
slapp ómeiddur úr þessu slysi.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Borgarnesi, sem fór á
staðinn, eru báðir bílarnir taldir
gjörónýtir.
Komið með hinn slasaða úr jeppanum til Reykjavíkur. Myndin er tekin,
er hann var fluttur úr þyrlunni í sjúkrabfl.
Danir senda heim
íslenzka pilta sem
voru með fíkniefni
Ekki horfur á sumar-
sölu á ísl. kartöflum
ALLAR horfur eru á að kartöflu-
bændur taki mun seinna upp i
haust en í meðalári. Kartöflu-
bændur í Eyjafirði gera vart ráð
fyrir að þar hefjist upptaka fyrr
en uppúr 10. september en frá
þeim hafa oft komið á markað
kartöflur um 20. ágúst. Að sögn
kartöflubamda í Þykkvabasnum
hefst kartöfluupptaka þar vart
fyrr en í septembcr en stundum
hafa kartöflur frá þeim komið á
markað í byrjun ágúst. Þetta
þýðir að ekki verður um neina
sumarsölu á kartöfium að ræða
en hins vegar sagði Bergvin
Jóhannsson, bóndi á Áshóli f
Eyjafirði, að útlit væri fyrir að
uppskera í heiid gæti orðið
sæmileg en Magnús Sigurlásson,
Eyrarlandi í Þykkvabæ að þar
um slóðir væri mjög bágt útlit
fyrir kartöflusprettu.
Magnús Sigurlásson í
Þykkvabænum sagði að kartöflu-
grös væru nú rétt að byrja að
koma upp, því kuldinn í vor hefði
gert það að verkum að spírurnar
á kartöflunum, sem fyrst voru
settar niður, visnuðu allar af og
þær hefðu því þurft að byrja að
spíra upp á nýtt. Kartöfluspretta
í Þykkvabænum er að sögn
Magnúsar alveg hálfum mánuði á
eftir því sem venja er. — Það er
síkólnandi tíð á Islandi og hitinn
er alltaf broti úr stigi minni þetta
árið en næsta ár á undan og svona
er það búið að vera allar götur frá
1964. Ég er hræddur um að það
fari • brátt að líða að því að
kartöflurækt leggist niður sem
atvinnuvegur hér á landi, sagði
Magnús.
Bergvin Jóhannsson, bóndi As-
hól í Grýtubakkahreppi í Eyjafirði
sagði að þrátt fyrir að sprettan
væri lítil enn þá væru bændur í
næsta nágrenni við hann ekki
vondaufir um að það rættist úr
Framhald af bls. 36.
TVEIMUR íslenzkum piltum, 18
og 24 ára, var fyrir skömmu vísað
úr landi í Danmörku, þar sem
fíkniefni fundust í fórum þeirra.
Foru piltarnir sendir til Islands
og við komuna hingað fundust
einnig á þeim fíkniefni. Yfirvöld
í Kaupmannahöfn, þar sem pilt
arnir voru handteknir, taka mjög
hart á fíkniefnabrotum og er
þetta ekki eina dæmið um að
Islendingar hafi verið sendir
heim til íslands vegna meðhöndl-
unar fikniefna.
Það var lögreglan í Kaupmanna-
höfn sem handtók piltana í
hippanýlendunni Kristjaníu.
Laugardalshiill fékk nýtt hlutverk í gærkviildi, þegar
fjiilleikahús Gerry Cottle frá Englandi hélt þar fyrstu
sýningu sína hér á landi. Myndin að ofan er af einum trúði
fiokksins, en á bls. 12—13 er lýst undirhúningi fyrir
sýningar í Laugardalshöll og ra-tt við fjiilleikafólkið. Á bls
3 birtast svo umsagnir nokkurra íslen/.kra ungmenna á
sýningunni í gærkviildi.
m
Fundust 60 grömm af hassi í
fórum annars þeirra en 90 grömm
í fórum hins. Grunur lék á því að
piltarnir hefðu haft undir höndum
meira af hassi, sem þeir hefðu
Framhald á bls. 20
Hættir að greiða
fullar vísitölubætur
STJÓRN Félagsstoínunar stúdenta
hefur ákveðið að hætta að greiða
fullar vísitölubætur á laun, svo sem
stofnunin hefur gert undanfarna
þrjá mánuði eða frá 1. marz. f stað
þess ákvað stjórnin á fundi í
fyrradag að greiða á sama hátt og
Reykjavíkurborg vísitölubætur í
áföngum.
Jóhannes Scheving framkvæmda-
stjóri Félagsstofnaninnar sagði að
þessi ákvörðun þýddi ekki endilega
að laun fólks lækkuðu heldur fengi
það ekki eins mikla hækkun og aðrir.
Annars sagði framkvæmdastjórinn
að ekki væri útséð með fram-
kvæmdaatriði þessa, þar sem starfs-
fólk Félagsstofnunarinnar er í
allmörgum stéttarfélögum og ekki
nægir að taka launataxta Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
sem viðmiðun.
Jóhannes kvað fyrri ákvörðunina
— um að greiða fullar vísitölubætur
á laun — hafa verið bráðabirgða-
ákvörðun og stjórnin hafi ætlað sér
að bíða eftir hinni almennu þróun í
landinu. Nú væri hafið nýtt vísitölu-
tímabil og inn í þetta spilaði einnig
slæm fjárhagsaðstaða stofnunar-
innar. Einnig væri Ijóst að stofnunin
gæti ékki endalaust greitt óskertar
vísitölubætur, þar sem kaupgjald hjá
stofnuninni yrði þá innan skamms
tíma komið úr öllum tengslum við
annað kaupgjald í landinu.
Þá sagði Jóhannes, að það væri
takmark stofnunarinnar að veita
stúdentum eins ódýra þjónustu og
frekast væri kostur. Ákvörðunin frá
1. marz, hafi verið tekin eftir beiðni
frá Stúdentaráði og umboðsaðilum
stúdentanna sjálfra og samþykkt í
stjórn á þeim tíma.
Enn er allt
óákveðið
með stjórn-
armyndun
EINS OG fram kom í Morgun-
blaðinu í gær sagði forseti
íslands, herra Kristján Eldjárn
í viðtali við Morgunblaðið að
hann ætti ekki von á því að
hann fæli einhverjum stjórnar-
myndun alveg á næstunni. í
samtölum, sem Morgunblaðið
átti í gær við Geir Hallgrímsson
og ólaf Jóhannesson, sögðust
Framhaid á bls. 20
Mikill kolmunni
á Digranesflaki
SKUTTOGARINN Jón Kjartans-
son, sem áður var Narfi, var í gær
einskipa í „bullandi" kolmunna á
Digranesflakinu, sem er nokkuð
djúpt undan norðanverðum Aust-
fjörðum. Síðast þegar fréttist var
skipið búið að fá 700 tonn og fékk
það 100 til 200 tonn á 3ja tíma hali.
Samkvæmt upplýsingum Aðal-
steins Jónssonar á Eskifirði var
ekki vitað um neitt leitarskip á
þessum slóðum í gær og engin
önnur veiðiskip voru komin á þessi
mið.