Morgunblaðið - 04.08.1978, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978
9
sig að reyna að auka kaup frá
Portúgal, eins erfitt og það virðist
vera? Hér að framan benti ég á
mikilvægi þessa markaðar á
síðastliðnum árum. Því til viðbót-
ar má einnig nefna, að meginhluti
þess fiskmagns, sem til Portúgal
hefur farið upp á síðkastið, hefði
ekki gengið á aðra markaði og er
því um enn mikilvægari markað að
ræða en beinar tölur segja til um.
Það er öllum fiskframleiðendum
vel kunnugt.
Portúgalir hafa verið og eru
mikil fiskneyzluþjóð og saltfiskur
er þjóðarréttur þeirra. Vonandi er
sú aflahrota, sem nú stendur,
aðeins upphaf að síauknum afla á
næstu árum í kjölfar útfærslu
landhelginnar og eins og stendur
að þessar togarasmíðar í Portúgal
stangist á við hagsmuni innlendra
skipasm íðastöðva.
Vafalaust stangast allur inn-
flutningur frá Portúgal á við
hagsmuni einhverra aðilja, en ég
vil benda á það, sem Þórleifur
Jónsson, frkvstj. Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja, sagði í
nefndri grein, að hagsmunir fisk-
framleiðenda og skipaiðnaðarins
fara að miklu leyti saman. Ég vil
leyfa mér að taka svo sterkt til
orða, að í þessu sambandi fari
hagsmunir fiskframleiðenda og
landsmanna allra saman.
Ég skora þvi á þessa aðila, sem
hafa verið að agnúast út i þessi
viðskipti, að beita sér heldur fyrir
því, að dregið verði úr innflutningi
ófreistað til að
um í Portúgal
virðist ekkert veita af öllum þeim
mörkuðum, sem við höfum aðgang
að.
Þær hjáróma raddir hafa
heyrzt, að við yrðum að búa svo
um hnútana, að við þyrftum ekki á
portúgalska markaðnum að halda
framvegis og slyppum þá við þetta
umstang við að auka innkaupin.
Vissulega væri æskilegt, að við
hefðum ávalit svo góða markaðs-
stöð fyrir útflutningsvörur okkar,
að við gætum látið lönd og leið
þann markað, sem erfiður er
hverju sinni, en að við höfum efni
á að strika yfir markaðinn í
Portúgal í einu vetfangi, held ég að
sé ofmat á öðrum mörkuðum, enda
gott nærtækt dæmi um skreiðar-
markaðinn í Nígeríu, sem talinn
var tapaður en hefur nú opnast
aftur, eftir að mikil vinna hefur
verið lögð í það, bæði af opinberum
aþilum og sölufélögum. Ég held að
engum blandist hugur um það, hve
mikilvægt það hafi verið að hann
opnaðist og það er bjargföst
skoðun mín, að einskis eigi að láta
ófreistað til að halda öllum þeim
mörkuðum fyrir fiskafurðir, sem
einhvers virði geta talizt, a.m.k.
meðan þær breytingar á mörkuð-
um eru að eiga sér stað, sem fylgja
í kjölfar breytingar á hafréttar-
málum.
Bent heíur verið á í blaðagrein,
hliðstæðra vara frá þjóðum, sem
lítt eða ekkert af okkur kaupa, og
beina auknum viðskiptum til
góðra viðskiptaþjóða eins og
Portúgal. Auðvitað verður reynt
hér eftir sem hingað til, að reyna
að forðast árekstra við innlenda
hagsmunahópa í þessu sambandi,
en hér duga engin vettlingatök.
S.l.F. hefur hingað til ekki viljað
hafa bein afskipti af innflutningi
frá Portúgal, en talið eðlilegra að
hefðbundnir innflytjendur sæu um
hann. Sú skoðun er enn óbreytt, en
hins vegar hefur S.Í.F. nú ráðið
mann í nokkra mánuði til þess að
reyna að kanna til hlítar, hvað
valdið geti þeim erfiðleikum, sem
íslenzkir innflytjendur telja að séu
á viðskiptum við Portúgal. Mun
hann hafa náið samband við
Viðskiptaráðuneytið og reyna að
aðstoða innflytjendur eftir föng-
um við að koma á viðskiptum við
portúgalska útflytjendur.
Rétt er að undirstrika það, að
með þessu er S.Í.F. ekki að
vanþakka það sem unnið hefur
verið að þessum málum, heldur
vill það þvert á móti reyna að
leggja þessum viðskiptum sérstakt
lið, og treystir jafnframt á liðsinni
allra góðra manna til að viðhalda
góðum viðskiptum íslands og
Portúgal.
Karnabær
HLJCHDCILD
Fyrir 2 plötur ókeypis buröargjald.
Fyrir 4 plötur10% afsláttur og
ókeypis buröargjaid.
í takt við tímann
SGT
Heart Club
PBB? HíAMJfON :TV€ BŒ (
Peppers Lonley
Band:
Bee Gees, Peter Framplan o.fl.
Aldrei nokkurntíma í sögunni hefur
veriö beöiö meö jafn mikilli
eftirvæntingu eftir nokkurri hljóm-
plötu sem þessari. í Bandaríkjunum
einum voru fyrirfram pantanir 4
milljón eintök! Auövitaö vorum viö
í Karnabæ fyrstir meö þessa plötu
hér á landi og nú geröir þú
einungis rétt meö því aö athuga
um hvaö allur spenningurinn
snýst.
Fjörefni — Dansaö á Dekki.
Þessi afspyrnugóöa stuöplata ■
veröur kynnt viö verslun okkar í ■
Austurstræti í dag og fá allir
vegfarendur Fjörefna-pillu til aö
næla í barminn í tilefni dagsins.
Eins og sjá má eigum viö nú allar vinsælustu og athyglisveröustu plöturnar
á markaöinum, auk geipigóös kassesttuúrvals. Þess vegna liggur beinast
viö aö spara sporin og leggja leiö sína í einhverja af 3 verslunum okkar
viljiröu hafa góöa og/eða skemmtilega tónlist á dagskránni um
Verslunarmannahelgina.
Nýjar vinsælar plötur
Gerry Rafferty — City to City
Ðonni Tyler — Natural Force
Billy Joel — The Stranger
Electric Light Orchestra — Out of the blue
Motors — Approved by the Motors
Darts — Everyone plays darts
Moody blues — Octive
Randver — Þaö stendur mikiö til
Burton Cummlngs — Dream of a Child
Johnny Winter — Ný plata
Boney M — Night flight to Venus
Tom Robinson Band — Power in the Darkness (tvöföld)
Boomtown Rats — A tonic for the Troops
Rocky Horror Picture Show
Dave Gilmore — Dave Gilmore
lan Dury — New Boots & Panties
Bob Dylan — Street Legal
Bruce Springsteen — Darknes on the Edge after Town
Bee Gees o.fl. — Saturday Night fever
Montreaux Summitt II (super jassplata)
Barry Manilow — Even Now
Kate Bush — The Kick Inside
Einnig geypilega gott úrval af jass/progressivum plötum
fyrir pá sem vilja eyöa helginni í pælingar.
Og svo eru auðvitað allar vinsælustu plöturnar
einnig til é kassettum.
Kamabær, Hljómplötudead
\ Laugavegi 66
\ S. 281 55
í