Morgunblaðið - 05.08.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
3
Fjölmenni á
þjóðhátíð
ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmannaeyinga var sett í Herjólfsdal í gærdag
og eru á henni milli 7 og 8 þúsund gestir. í upphafi lék
Lúðrasveit Vestmannaeyja undir stjórn Hjálmars Guðnasonar og
síðan setti Árni Johnsen hátíðina, en hann er jafnframt kynnir
hennar. Vigfús ólafsson skólastjóri flutti hátíðarræðu og síðan
var guðsþjónusta.
Frjálsar íþróttir voru stundaðar síðdegis og í reiptogi yfir
tjörnina miili bæjarstjórnar og þjóðhátiðarnefndar togaði
þjóðhátíðarnefndin bæjarstjórnina yfir tjörnina við hlátur gesta
að sögn. Sigurður Sigurbergsson sýndi bjargsig í Fiskhellanefii
síðan var barnagaman í umsjá Lcikféiags Vestmannaeyja.
Fjölbreytt dagskrá var á kvöidvöku, m.a. Einsöngvarakvartett-
inn, Jörundur, Randver, Eymenn, Júlli á Illíðarenda,
Brekkusöngur o.fl. og siðan voru dansleikir á tveimur stöðum.
Er þjóðhátíðargestir hófu að tjalda í fyrrakvöld var rigning.
en bezta veður var komið í gær og útlit fyrir að það héldist. Á
þessum myndum Sigurgeirs má sjá stemninguna á þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum, sem er að þessu sinni í umsjá Þórs.
„Fólk kaupir
mest svið
Og harðfisk”
Hjá okkur hefur verið
talsvert mikil umferð í
dag, mikil og jöfn umferð,
sagði verzlunarstjóri í
einni af stórverzlunum
borgarinnar. — Oftast
hefur mest verið að gera á
tímabilinu 6—8 síðdegis,
en nú er ösin jafnari og
betri. Fólk kaupir mest
svið og harðfisk, svo
greinilegt er að þá er
helgarferðin höfð í huga,
og nokkuð er um að keypt-
ir séu strigaskór og regn-
gallar, en mest er um
matvælin.
Á þessum myndum sést
hvar Reykvíkingar eru á
ferli í miðborginni og
sjálfsagt í verzlunarerind-
um.
Bjóða endurgreiðslu
sólarlandaferða komi
til lækkunar á gengi
MORGUNBLAÐIÐ spurð-
ist fyrir um það hjá ferða-
skrifstofu hvort fargjöld í
sólarlandaferðum myndu
hækka ef kæmi til gengis-
fellingar. Fulltrúi á ferða-
skrifstofu, sem rætt var
við, sagði, að hjá þeim
hefði reglan verið sú að
kæmi til gengislækkunar
einum til tveimur dögum
fyrir brottför í sólarlanda-
ferð hefði sú ferð verið
farin á óbreyttu verði.
— Hingað til okkar hefur komið
folk að undanförnu, sem hefur
viljað fá farmiða sína strax, löngu
fyrir brottför, en það teljum við
ekki eðlilegt, viljum ekki afgreiða
farmiða nema með um það bil
hálfsmánaðar fyrirvara. Venjan er
sú að við þurfum að eltast við fólk
til að fá það til að borga, en því er
nánast öfugt farið um þessar
mundir.
— Síðast þegar gengið var
lækkað létum við hóp fara á
óbreyttu verði, en sú ferð var farin
2—3 dögum eftir gengislækkun.
Hins vegar náðum við að hringja í
alla sem áttu pantað í næstu ferð
er átti að fara viku til hálfum
mánuði eftir að gengið var lækkað.
Fólki var gefinn kostur á tvennu,
að hætta við og fá þá endurgreitt
það sem greitt hafði verið inná
ferðina, eða að greiða þá 15—20%
hækkun, sem varð að vera, því
mestur kostnaður við þessar
sólarlandaferðir er greiddur og
FÉLAG íslenzkra iðnrekenda
efnir til sýningar á íslenzkum
fötum í Laugardalshöli 1,—10.
septomber n.k. Sýningin verður
með svipuðu sniði og sýningin
„íslenzk föt ’76“, sem fór fram í
upphafi iðnky nningarárs og
vakti mikla athygii almennings.
Jafnframt því að sýningin er
opin almenningi verður hún kaup-
stefna, þar sem kaupmönnum og
innkaupastjórum er boðið að gera
innkaup. Flest stærstu fyrirtæki í
íslenskum fataiðnaði munu sýna
þarna framleiðslu sína, utan
umsaminn í erlendri mynt.
— Yfirleitt eru greiddar 25
þúsund inná ferðir við pöntun og
fólk getur fengið þær endurgreidd-
ar ef sérstaklega stendur á, en
yfirleitt er það ekki gert, því það
er litið svo á að greiði fólk þessa
upphæð sé það nokkuð ákveðið í að
fara ferðina.
Sambandsins og verður lögð
áherzla á að sýna allt það nýjasta í
íslenzkri fataframleiðslu.
Þáttur í þessari sýningu eru
tízkusýningar. Verða tvær tízku-
sýningar á dag og þrjár um helgar.
Á þeim verður kynnt það nýjasta
sem fataframleiðendur hafa á
boðstólum, og verður þetta viða-
mesta tízkusýning sem fram hefur
farið hér á landi. Auk tízkusýning-
anna er áætlað að halda hár-
greiðslu- og snyrtisýningar, þar
sem hárgreiðslufólk og fegrunar-
sérfræðingar sýna áhorfendum
handverk sitt.
Islenzk föt í
Laugardalshöll