Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978 41 fclk f fréttum + Við kunnum ekki að nefna nöfn þessara krakka sem á myndinni eru, enda skiptir það ekki máli. — Krakkarnir komust í fréttir Parsíarblaðanna fyrir skemmstu vegna þess að þau vígðu hjólaskautavöll í Parísarborg fyrir skömmu. — Víða í V-Evrópulöndum, a.m.k., hafa hjólaskautar eins og þessir krakkar eru að renna sér á, náð mikilli útbreiðslu meðal barna. Krakkarnir eiga að vera með hjálma í öryggisskyni þegar þau eru á skautabrautinni. + Þetta er ein nýjasta myndin af Karli Breta- prins. Hann er hér klæddur í Skotabúning, svo sem sjá má. — Þess er ekki getið í mynda- textanum, hvort prins- inn þyki hafa fallega fætur. — En hann er á leið til hinnar miklu sýningarhallar í London í Earl’s Court. + betta er götumynd írá Rio de Janeiro. — Maðurinn gerir ekki miklar kröfur til hvflustaðarins, því hann hafði steinsofið þarna aftan á „Follanum“ og látið sólina verma iljar sínar. Rumskað hafði hann er einhverjir vegfarendur töldu hann sjúkan og hjálpar þurfi, — snúið sér til veggjar og sofnað værum svefni á ný. + Fátt hefur skelft heiminn meira en hryðjuverkamenn þeir sem starfað hafa ba>ði í Þýzkalandi og Ítalíu. Öðru hverju tekst þó stjórnvöldum hinna ýmsu landa að hafa hendur í hári þessa fólks. Nýjasta dæmið er frá Kanada. bar hafa stjórnvöld h^idtekið 27 ára gamla stúlku að nafni Kristina Berster. Fraulein Beflher er grunuð um að vera félagi í Baader-Meinhof samtökunum. Hún var handtekin er hún reyndi að komast inn í Bandaríkin á fölsuðu vegabréfi. Myndin sýnir hana í gæslu lögreglumanns í Kanada. Afengisvarnanefnd: Sýnum manndómsþroska og höfnum áfengisnautn á ferðalögum helgarinnar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftir- farandi fréttatilkynning frð Áfengis- varnanefnd Reykjavíkur: Ein mesta ferðahelgi ársins — verzlunarmannahelgin — er á næsta leiti — en hún er orðin að miklu leyti almennur frídagur. Undirbúningur hvers og eins, til að njóta þessa langa helgarfrís, hver á sinn hátt, mun að mestu fullráðinn. Þúsundir manna þyrpast í allar áttir, burt frá önn og erli hins rúmhelga dags. Samkvæmt árlegri reynslu er umferð á þjóðvegum úti aldrei meiri en einmitt um þessa helgi og sú umferð fer vaxandi ár frá ári. Hundruðum, já, jafnvel þúsund- um saman þjóta bifreiðir, fullskip- aðar ferðafólki, burt frá borgum og bæjum, út í sveit, upp til fjalla og öræfa. I slíkri umferð, sem reynsla áranna hefir sýnt og sannað, að er um þessa helgi, gildir eitt boðorð öðru fremur, sem tákna má með aðeins einu orði — aðgæzla eða öryggi. En brot gegn þessu boðorði getur gætnin ein komið í veg fyrir. Hafa menn hugleitt í upphafi ferðar — skemmtiferðar — þau ömurlegu endalok slíkrar hvíldar- og frídagafarar, þeim, sem vegna óaðgæzlu, veldur slysi á sjálfum sér, sínum nánustu, kunningjum eða samferðafólki. Sá, sem lendir í slíku óláni, bíður slíkt tjón, að sjaldan eða aldrei grær um heilt. Það er staðreynd, sem ekki verður hrakin, að einn mesti bölvaldur í nútima þjóðfélagi, með sína margþættu gg síauknu vél- væðingu, er áfengisnautnin. Tekur það böl og ekki síst til umferðar- innar almennt, en þó sér í lagi á miklum ferðahelgum. Það er því dæmigert ábyrgðar- leysi í hástigi, að setjast að bílstýri undir áhrifum áfengis. Afleiðingar slíks láta heldur ekki, að öllu jafnaði á sér standa. Þær birtast oft í lífstíðarörkumli eða hinum hryllilegasta dauðdaga. Áfengisvarnanefnd Reykjavíkur skorar því á alla, sem hyggja til ferðalaga um verzlunarmanna- helgina, að sýna þá umgengnis- menningu í umferð sem á dvalar- stöðum, er frjálsbornu og sið- menntuðu fólki einu sæmir. En slíkt verður því aðeins, að sá manndómsþroski sé fyrir hendi með hverjum einstökum, að hafna allri áfengisnautn á þeim skemmtiferðalögum sem fyrir dyr- um standa. Áfengisvarnanefnd Reykjavíkur. Innilegar þakkir sendum viö ættingjum og vinum fyrir hlýjar kveöjur og hamingjuóskir í tilefni gullbrúökaups okkar. Guö blessi ykkur öll. Sigurborg og Gísli, Skáleyjum. Landsmót hestamanna 1978 Dregiö var í happdrætti landsmótsins 17. júlí s.l. Upp komu eftirtalin númer: Nr. 6669 Gódhestur meó reiötygjum. Nr. 4305 Samvinnuferð til Hollands. Nr. 6460 Sunnuferö til Mallorka. Nr. 5262 Útsýnarferð til Costa del Sol. Nr. 7609 Úrvalsferð. Nr. 1427 Flugferð til London. Ósótta vinninga ber aö sækja fyrir 1. október 1978. Á skrifstofu Landssambands hestamannafélaga, í félagsheimili Fáks, viö Elliðaár í Reykjavík, eru til sölu ýmsir minjagripir sem gerðir voru í tilefni landsmótsins í sumar. Myntsöfnurum er sérstak- lega bent á tölusetta brons og silfur minjapeninga meö mótsmerkinu. Gefnir voru út 500 brons og 100 silfur minjapenipgar. Framkvæmdanefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.