Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 24
r
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
NAFNIÐ á verzluninni Buxna-
klaufinni vakti mikla athygli á
sínum tíma og var jafnvel skrifað
um það í blöðin, en nú finnur
enginn neitt að því lengur að
nefna buxnaverzlun með meiru
þessu nafni. Popphúsið við
Bankastræti og Buxnaklaufin
þar á móti og ofar á Laugavegin-
um eru einhverjar nýtfzkulegustu
verzlanirnar í borginni, sérstak-
lega að því er varðar ytra útlit og
innréttingar og ekki sízt útstill-
ingar í giuggum. Verzlanirnar
reka Jón Ármannsson og Guð-
laug Baldursdóttir í sameiningu
og hitti Mbl. Guðlaugu að máli í
vikunni.
„Við byrjuðum með því að opna
Popphúsið sumarið 1970 or það má
Guðlaug Baldursdóttiri nÞað má segja að það sé auðvelt að opna
verzlun, en það er annað að reka verzlun“.
„Aldurinn skiptii*
ekki lengur
máli í klæðnaði’ ’
— Spjallað við Guðlaugu Baldursdóttur
segja að við höfum byrjað verzlun-
arreksturinn með tvær hendur
tómar eða því sem næst. Jón hafði
þá nýlokið skólanámi, en með
hjálp góðra manna er fyrirtækið
orðið það sem það er. Þetta hefur
vaxið smátt og smátt, og við
höfum reynt að koma verzlunun-
um á þann mælikvarða sem
tízkuverzlanir eru á erlendis þegar
þær gerast beztar. Og þá um leið
reynt að gera eitthvað fyrir
verzlanirnar sjálfar, þ.e. innrétt-
ingar og ytra útlit. Ég er þeirrar
skoðunar að það skipti geysilega
miklu máli að vöruvalið og öll
uppsetning í verzlunum sé í
ákveðnu samræmi," sagði Guðlaug
í byrjun.
Hvort það er auðvelt að koma
upp tízkuverzlun? Þeir eru ófáir
sem halda, að á hálfum mánuði
verði þeir milljónamæringar á
verzlun með tízkufatnað og byrja
sumir með því hugarfari á slíkum
rekstri. Það má kannski segja að
það sé auðvelt að opna verzlun, —
en það er annað að reka verzlun.
Okkur hefur vegnað vel, en þegar
við byrjuðum voru tvær tízku-
verzlanir fyrir í borginni. Nýlega
taldi ég saman á milli 30—40
tízkuverzlanir á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu."
Fataverzíanir
hafa breytzt
„Ég verð að segja að fataverzl-
anir hafa breytzt geysilega mikið,
— þessar „gömlu" eru að hverfa.
Ég tel það mikinn kost að geta
gengið inn í fataverzlun og skoðað
mig um og síðan fengið aðstoð ef
ég leita eftir því. Það er ekki eins
þvingað að koma inn í verzlanir og
áður.“
„Nei, ég tel tízkufatnað ekki