Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
27
„Vinn frá hálf sex
á morgnana til khikk-
an tíu á kvöldin”
segir Sigurjón Þóroddsson í Aðalstrætisbúðinni
„Én er búinn að vinna við
verslun í 53 ár og hef alltaf verið
á sama staðnum, eða hér í
Aðalstrætisbúðinni, Aðalstræti
10“, sagði Sigurjón Þóroddsson
kaupmaður, er við litum inn til
hans í vikunni.
„Ég byrjaði hérna 12 ára
gamail, sem sendill, en byrjaði
svo að afgreiða 17 ára. Fyrir um
tveimur og hálfu ári eignaðist ég
búðina sjálfur.“
— Hvernig er vinnudeginum
háttað hjá þér?
„Það má segja að ég vinni
nokkuð langan vinnudag, en frá
því ég var 17 ára hef ég unnið frá
hálf sex á morgnana til klukkan
tíu á kvöldin, alla daga vikunnar,
en þó kannski eitthvað skemur á
viðskiptavinum, en þó eru hér
alltaf ný andlit á hverjum degi, því
það er mikil umferð hérna. Eg hef
ekki orðið var við neina minnkun
hjá mér eftir að stórverslanirnar
komu til sögunnar. Ég hef því enga
trú á því að stórverslanir eigi eftir
að koma í staðinn fyrir smærri
verslanir. Auk þess að vera með
matvöruverslunina, rek ég sjoppu
hér við hliðina en starfsfólkið hjá
mér er alls sex manns"
„Ég held að ég verði að segja að
það er miklu meira „stress" að
vera í þessu núna en áður var. Það
má segja að það hafi verið mun
þægilegra að þurfa aðeins að
kvitta fyrir kaupinu eins og áður
var í stað þess að þurfa að sjá um
allt sjálfur núna. Viðskiptavinirn-
ir hafa þó ekkert breyst."
Sigurjón Þóroddsson, kaupmaður í 53 ár. Ljósm.i Rax.
sunnudögum. Á þessu tímabili hef
ég ekki tekið mér sumarfrí nema
fimm sinnum. En ég kann mjög vel
við mig í þessu starfi og myndi alls
ekki vilja skipta, þótt þægilegri
vinna væri í boði. Það þýðir þó
ekki að vera neitt skapillur í þessu,
þá er alveg eins gott að hætta."
Þetta er svo sannarlega langur
vinnudagur og við sjáum að einn
af viðskiptavinum Sigurjóns setur
upp undrunarsvip er hann heyrir
þetta, því Sigurjón er alltaf jafn
lipur og almennilegur við viö-
skiptavini sína, hvenær sem þeir
þurfa á að halda. En hvernig
gengur svo verslunin?
„Verslunin gengur alveg prýði-
lega. Ég hef mikið af föstum
— Hvað er framundan hjá þér
Sigurjón?
„Framundan hjá mér er aðeins
vinna, ennþá meiri vinna — svo
lengi sem ég held húsinu."
— Við þökkum Sigurjóni fyrir
spjallið, en því má bæta hér við að
húsið Aðalstræti 10 er eitt af elstu
húsum Reykjavíkur og það eina,
sem eftir er af þeirri húsaröð sem
gaf Aðalstræti þá mynd sem það
hafði fram yfir miðja síðustu öld.
Um aldur þess ríkir þó nokkur
óvissa, en það hefur löngum verið
talið byggt 1752. Sumir hafa þó
talið, að það hafi verið dúk-
vefnaðarhús innréttinganna, sem
brann árið 1764, og húsið sem nú
stendur, sé reist á grunni þess.
Ásgeir ásamt starfsiiðinu í Kirkjufelli.
Ásgeir Jónsson eigandi Kirkjufells:
„Okkur fannst nauðsynlegt
að hér væri verzlun með
vörur tengdar kristninni”
í Reykjavík er starfandi ein
verzlun sem hefur það að
aðalmarkmiði að selja vörur
tengdar kristninni, svo sem
bækur, hljómplötur og fleira.
Verzlun þessi ber nafnið
Kirkjufell og er í eigu Ásgeirs
Jónssonar. Auk þess að vera
kaupmaður er Ásgeir flugvél-
stjóri hjá Loftleiðum.
„Við hjónin hófum rekstur
þessarar verzlunar fyrir 2lA ári
en hún var þá búin að vera
starfandi í jafnlangan tíma. Við
vissum af því að verzlunin var
til sölu og við höfðum alltaf haft
áhuga á kristilegum málefnum.
Það endaði með því að við létum
til skarar skríða og hófum
reksturinn. Okkur fannst það
líka nauðsynlegt að hér væri
starfandi verzlun þar sem fólk
gæti gengið inn og keypt sér
Biblíu eða einhverja aðra kristi-
lega bók.
Það er stundum erfitt að
samræma þessar tvær atvinnu-
greinar, það er að segja kaup-
mennskuna og flugvélastjóra-
starfið, en ég hef stúlku í
búðinni og svo starfar konan
mín þar einnig. Mér finnst líka
ágætt að skipta stundum alveg
um en þegar ég er í búðinni
sjálfúr þá er ég mest við
pappírsvinnu því að við flytjum
sjálf inn mest af okkar vörum.
Reksturinn gekk hálf erfið-
lega í upphafi að okkur fannst
en núna hefur verið að koma í
ljós að sú vinna, sem við höfum
lagt í verzlunina undanfarin 2
ár er að skila sér. Salan á
trúarlegu vörunum hefur verið
heldur dræm en er þó á uppleið.
Þess vegna höfum við haft
gjafavörurnar með og eru mestu
tekjurnar af þeim. Fyrir ferm-
ingarnar höfum við einnig haft
allt sem til þarf, svo sem
sálmabækur, kerti, servéttur og
fleira. Fólk úti á landi hefur
verið mjög ánægt með það að fá
þetta allt á sama stað. Ferm-
ingatíminn er því mesti anna-
tíminn hjá okkur auk jólamán-
aðarins.
£
IIjh
& I
i i 31
Myndin sýnir hluta verzlunarinnar. Til vinstri má sjá prestaskrúða ef vel er að gáð.