Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
Eru
þeir að
fá 'ann
■
Mjög góð veiði
í Blöndu
„Veiðin hefur verið jöfn í
sumar og mjög góð, við veiðum á
4 stangir á dag og er kvóti, 14
laxar á stöng. All mikil brögð
hafa verið að því að menn hafi
fyllt sinn kvóta." Þetta mælti
Sigurður Kr. Jónsson á Blöndu-
ósi í viðtali við Mbl. í gær. Taldi
Sigurður að á land væru komnir
Þessi
mynd
er frá
Laxá
í Kjós.
þar sem
veiðst
hefur
framúr-
skarandi
vel
í sumar.
Veiði-
maður
afgoggar
nýgeng-
inn stór-
lax.
um 1200 laxar, en erfitt væri að
hafa það nákvæmara, vegna
þess að tveir aðilar hefðu ána á
leigu og skráir hvor aðili í sína
bók. Veiðin hófst í Blöndu þann
10. júní og veiddust strax fyrsta
daginn 38 laxar. Þá og allt fram
í miðjan júlí var Blanda tær sem
bergvatn, en er hún þó jökulá og
oftast með tilheyrandi lit. Sig-
urður taldi meðalþungann vera
milli 8 og 9 pund og stærsta
laxinn í sumar veiddi Grétar
Guðmundsson á spón við svo-
kallaðan Bug. Var fiskurinn 23
pund. Þá hefur einn 21 punds
lax verið dreginn, tveir 19 punda
og all margir 17—18 punda.
Heldur hefur laxinn þó farið
smækkandi undanfarið.
Svartá«
Jafnmikil veiði á
fyrstu 2 dögum nú
og allt
síðastliðið sumar
Sigurður tjáði okkur, að
Svartá hefði verið á mikilli
niðurleið undanfarin ár og því
var brugðið á það ráð að veiða
aðeins í einn mánuð á þessu
sumri. Veiðin hófst því ekki fyrr
en 22. júlí og fyrstu tvo dagana
veiddust 48 laxar á þær 3
stangir sem leyfðar eru. Það er
einnig kvóti í Svartá og má
aðeins veiða 8 laxa á stöng á
dag, fylltu því allar stangirnar
kvóta sinn. Þetta er nákvæm-
lega sami fjöldi laxa og var
dreginn úr Svartá allt síðastlið-
ið sumar og sagði Sigurður, að
sýnilega væri mikill fiskur í
ánni nú. Laxinn er vænn eins og
í Blöndu, en Svartá á ós að
henni.
Veiðin hefur víðast hvar verið miklu betri en í fyrra. svo og
laxgengd. þrátt fyrir mikla þurrka í júií.
Vegur Hallár
fer vaxandi
Hallá er vatnslítil, en nokkuð
löng á, sem farið hefur vaxandi
sem laxveiðiá á síðustu árum.
Sigurður sagði, að góð veiði
hefði verið í ánni í allt sumar,
aðeins tvær stangir væru leyfð-
ar á dag, en dagsaflinn farið upp
í 9 fiska. Laxinn er yfirleitt
frekar smár í Hallá, þetta 4—8
pund, en Sigurður vissi til þess
að þeir hafi veiðst allt upp í 13
pund.
Flóka aldrei
vatnsminni
„Flóka var orðin svo vatnslít-
il, að ég hef aldrei séð annað
eins. Eigi að síður er veiðin
orðin hátt í helmingi meiri en
hún var á sama tíma í fyrra, eða
um 230 laxar.“ Svo fórust
Ingvari á Múlastöðum orð í
samtali í gær. Þá kom fram, að
mikill lax er í ánni og enn verða
menn varir við nýjar göngur.
Þrátt fyrir vatnsleysið, hefur
aflast sæmilega og hver einasti
hópur hefur dregið eitthvað á
land, bara mismunandi mikið.
Laxarnir eru flestir milli 4 og 9
pund, en í fyrradag veiddi Jón
Jónsson úr Grindavík stærsta
laxinn í sumar, 16 punda lax, á
maðk við Steðjatún.
~ gg
t
Systir mín,
MARÍASÍNA MARÍASOÓTTIR,
Kleppsvegi 10,
Reykjavík,
andaöist 3. ágúst á Landakotsspítala.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Þóröur Finnbogi Guömundsaon.
t
Eiginkona min
SIGRÚN ANDRÉSDÓTTIR
andaöist á Borgarspítalanum 3. ágúst
Már Gunnarsson.
Maðurinn minn, faðir okkar og afi
PÁLL ÁSGRÍMSSON
Mjóstræti 2, Siglufiröi
andaöist á sjúkrahúsi Siglufjaröar fimmtudaginn 3. ágúst.
Ingibjörg Sveinsdóttir, börn og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
INGIBJORG ÁRNADÓTTIR,
Fálkagötu 14
lést í Landakotsspítala 3. ágúst.
Guðrún F. Magnúsdóttir, Skúli Magnússon,
Þorkell Magnússon, Ásta Kristjánsdóttir,
Kristinn Magnússon, Fjóla Guólaugsdóttir,
Rafn Thorarensen, Guðfinna Guðmundsdóttir,
og barnabörn.
t
Bestu þakkir færum við öllum er sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og
jarðarför
JÚLÍÖNU BJARGAR JÓNSDÓTTUR
frá Ásólfsskála,
Hólavangi 3, Hellu.
Halldóra I. Sigmundsdóttir, Kristpór Breiöfjörð Keuksson,
Siguröur Sigmundsson, Elín Jónsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Hjalti Bjarnason,
Vigfús Sigurósson,
Jón Sigurðsson, Helga Helgadóttir,
börn og barnabörn
Óskar Brynjólfs-
son — Minning
Fæddur 28. des. 1910.
Dáinn 28. júlí 1978.
Því varrt allt svo hljútt viö helfroirn þína
sem hafi klökkur xíkjustrenxur brustið.
0« ejj veit marxt hjarta harmi lustið
mun huxsa til þín alla daxa sfna.
T.G.
Oskar fæddist á Syðri-Vatna-
hjáleigu í Landeyjum, Rang. For-
eldrar hans voru hjónin Brynjólf-
ur Jónsson og Margrét Guðmunds-
dóttir er þar bjuggu. Hjá þeim ólst
hann upp til 12 ára aldurs. Þá
fluttust þau til Vestmannaeyja en
hann að Hallgilsey í sömu sveit,
þar sem hann átti heima til 28 ára
aldurs.
Fundum okkar Óskars bar fyrst
saman er hann var heitbundinn
fóstursystur minni Björgu Rögn-
valdsdóttir. Þau gengu í hjóna-
band 2. desember 1944. Um áramót
1946 fluttust þau til ísafjarðar.
Þar hóf hann starf sem línumaður
við rafmagnsveitu ísafjarðar og
gegndi því starfi meðan kraftar
hans entust. Hann tók nokkurn
þátt í félagsmálum á ísafirði.
Lengi meðlimur í Taflfélagi þar og
einnig við leikstörf.
Þeim hjónum varð 6 barna
auðið. Þau eru: Guðfinna Margrét
nú kennari við Barnaskóla I$a-
fjarðar, gift Trausta Hermanns-
syni, sérstökum ágætismanni;
Stefán Dan sjómaður, kvæntur
Rannveigu Hestness; Brynjólfur
verkstjóri við Rækjuverksmiðju
ísafjarðar kvæntur Önnu Guðna-
dóttur; Rögnvaldur sem nú vinnur
sem bakari í Svíþjóð, kvæntur
Guðrúnu Halldórsdóttur; Már
sjómaður sem enn dvelur í heima-
húsum og Arnar nemandi í
Menntaskóla ísafjarðar, kvæntur
Elínu Björnsdóttur.
Eg minnist Óskars sem eins
allra besta og ábyrgasta manns
sem eg hefi kynnst. Umhyggja
hans gagnvart konu, börnum,
starfi sínu og öllu er honum við
kom var frábær. Eftir að börnin
voru komin til þroska, dvöldu þau
hjónin oft um tíma í Reykjavík og
bjuggu þá jafnan hjá mér. Er hann
talaði í síma vð börn sín eða
tengdabörn á ísafirði, kvaddi hann
þau alltaf með orðunum: „Svo
munið þið að fara heim til okkar
og gefa köttunum."
Mér fannst það mjög falleg saga
er köna hans sagði mér, er hann
kom heim um síðustu jól, eftir
nokkurra vikna sjúkrahússdvöl
hér í Reykjavík. Var þá orðinn það
hress að geta sest í stólinn sinn við
sjónvarpið. Kom þaL mikla eftir-
Guðríður Jóns-
dóttir—Minning
í dag verður amma mín, Guðríð-
ur Jónsdóttir, Hlíðarendakoti í
Fljótshlíð, jarðsett.
Ljúfar minningar koma upp í
hugann, þegar ég minnist ömmu í
Hlíðarendakoti.
Sem barn fór ég oft austur í
Fljótshlíð til ömmu, ásamt syst-
kinum mínum og voru þær ferðir
alltaf skemmtilegar og minnis-
stæðar.
Amma tók á móti okkur, bros-
andi með skotthúfuna sína, á
hlaðinu hjá gamla bænum sínum
undir hlíðinni.
Ennþá stendur gamli bærinn og
er dýrmætt að geta farið austur'
„Hlíð“ með barnabarnabörn ömmu
og rifjað upp endurminningar með
þeim.
Við þökkum elsku ömmu þær
mörgu samverustundir.
Hvíli hún í Guös friði.
Valgerður Lárusdóttir.
lætisdýr heimiliskisan, settist við
stólinn, starði á hann nokkra
stund, uns hún stökk upp í kjöltu
hans og tjáði honum á sínu máli
hve glöð hún var að sjá hann aftur.
Eg þakka Óskari fyrir alla þá
vinsemd er hann hefur sýnt mér
frá okkar fyrstu kynnum og að
lokum þakka ég honum starf er
hann vann fyrir mig á ísafirði s.l.
haust, starf er ekki var hægt að fá
unnið í Reykjavík.
Við alla þá er nú horfa á það
sárum trega að Óskar Brynjólfs-
son er horfinn af þessu jarðvistar-
sviði vil ég kveðja með orðum Jóns
Bergmanns er hann segir:
SurKÍn lífi samoinuú
som er að oss kveðin.
hún er öll í ætt við guð
cins ok dýpsta Kleðin.
Útför Óskars Brynjólfssonar fer
fram frá Isafjarðarkirkju í dag.
Svanlaug Daníelsdóttir.