Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 48
AUíiLÝSINfiASÍMÍNN ER:
22480
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
Mikil Og
slysalaus
umferð frá
Reykjavík
FJÖLDI fólks leggur upp í
ferðalög um verzlunar-
mannahelgina og skv.
upplýsingum frá Flug-
leiðum og upplýsingamið-
stöð umferðarráðs var um-
ferð mikil í gærdag og í
gærkvöldi.
Aöalumferðin hjá Flugleiðum
var til Vestmannaeyja en þangað
voru flognar 11 ferðir með Fokker
Friendship vélunum og tvær ferðir
með Twin Otter vél Vængja. Alls
voru því fluttir til Eyja um 550
farþegar flugleiðis á vegum Flug-
leiða.
Þá átti að fljúga tvær ferðir til
Akureyrar með einni þotu Flug-
leiða en hætta varð við það vegna
þoku, en hefja flug snemma í
morgun. Þá var ekki flogið til
Húsavíkur eða Sauðárkróks í
gærkvöldi. Að öðru leyti gekk
innanlandsflug eðlilega fyrir sig.
Hjá upplýsingamiðstöð um-
ferðarráðs sem starfrækt verður
um helgina fékk Mbl. þær
upplýsingar að ekkert alvarlegt
slys hefði átt sér stað í umferðinni
í gærkvöldi og lítið um óhöpp. Óli
H. Þórðarson framkvæmdastjóri
umferðarráðs sagði að taldir hefðu
verið bílar á leið frá Reykjavík um
Vesturlands- og Suðurlandvegi.
Hefðu 125 bílar farið á 15
mínútum um Vesturlandsveg við
Grafarholt og 123 um Suðurlands-
veg og væri því umferðin jöfn.
trt
iöf æ ‘M
— I.júsm. Si^urjírir.
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum var sett kl. 14 í gær, en þangað munu
nú vera komnir milli 7 og 8 þúsund gestir. Flugleiðir fóru margar ferðir
í gær og Herjólfur einnig og biðu bílar í Þorlákshöfn eftix fari á
fimmtudagskvöld. Tjaldaði fólk við bílana og sigldi síðan tifEyja á
föstudagsmorgni. í upphafi þjóðhátíðar flutti Vigfús Ólafsson
hátíðarræðu, sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson annaðist guðsþjónustu og
kirkjukór Landakirkju söng undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar.
Dansleikur var í gærkvöldi á tveimur stöðum og í kvöld verður
kvöldvaka með ýmsu efni, varðeldur, dansleikir og flugeldasýning á
miðnætti.
Telja ekki rétt að
semja við Norðurás
— Á FUNDI stjórnar Verkamannabústaðanna var ákveðið að ekki
væri grundvöllur fyrir því að ganga til samninga við fyrirtækið
Norðurás, sagði Eyjólfur K. Sigurjónsson formaður stjórnar
Verkamannabústaðanna.
— Við höfurp fengið svör við
spurningum okkar varðandi þetta
fyrirtæki og telur stjórnin að þessi
grundvöllur sé ekki fyrir hendi. Á
fundinum var einnig samþykkt að
fresta lokaákvörðun um það hvort
samningnum við Breiðholt hf.
verði rift. Það er eining um það í
stjórninni að hugsanlegt sé að
stjórnin taki við verkinu, en það
hefur enn ekki verið ákveðið.
Tryggingar voru í upphafi settar
er nema 10% af verksamningsupp-
hæðinni og eru þær hjá Útvegs-
banka Islands. Ef úr rætist hjá
Breiðholti hf. nú um helgina er
hugsanlegt að engin breyting verði
gerð á þeirra aðild, en þeir eru nú
að athuga sín mál, sagði Eyjólfur
K. Sigurjónsson að lokum.
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Guðmund J. Guðmunds-
son sem á sæti í stjórn verka-
mannabústaða og sagðist hann á
þessu stigi málsins ekki vilja tjá
sig um það. Hann sagði að
starfsmenn Breiðholts hf. hefðu
mikla re.vnslu í að vinna að
byggingum með þessum sérstöku
mótum, sem notuð væru, og á
fundi stjórnar verkamannabústað-
anna eftir helgina yrði framhald
málsins ráðið og því ekkert af því
að segja að svo stöddu. .
Maraþonfundur hjá
Framsóknarflokki
AFDRIF þjóðstjórnarhugmyndar
íorystumanna Sjálfstæðisflokks-
ins eru ekki endanlega ráðin, en
gcrt er ráð fyrir að Ijóst verði í
dag eða um helgina hvort ástæða
sé tii að hefja formlegar tilraunir
til stjórnarmyndunar af þessu
tagi. Almennt er þó talinn svo
lítill grundvöllur fyrir viðræðum
af þessu tagi innan allra fjögurra
stjórnmálaflokkanna, að telja
verður ósennilegt að formlegar
viðræður um myndun þjóðstjórn-
ar verði hafnar.
Geir Hallgrímsson, formaður
ilfstæðisflokksins, sagði í sam-
við Morgunblaðið í gærkvöldi
ekkert væri af þessu máli að
• ja í bili. Greinilegt var að
j; ystumenn Sjálfstæðisflokksins
og einnig Alþýðubandalags og
A«pýðuflokks biðu átekta eftir
niðurstöðum miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins.
Fundur miðstjórnar Framsókn-
arflokksins reyndist maraþon-
fundur. Hann hófst á Hótel Sögu
kl. 2 í gærdag og stóð enn rétt fyrir
miðnætti' í gærkvöldi. Miklar
umræður urðu á fundinum, að því
er Morgunblaðið fregnaði, og
töluvert deilt á störf fráfarandi
ríkisstjórnar en forustumenn
flokksins lágu ekki verulega undir
gagnrýni þann hluta fundarins,
sem Mbl. hafði fregnir af.
Á miðstjornarfundinum átti að
taka afstöðu til þátttöku flokksins
í viðræðum um stjórnarmyndun,
en bera átti upp tillögu um þetta
efni í lok fundarins. Klukkan
rúmlega 11 í gærkvöldi voru þó
enn 9 á mælendaskrá eftir nær
stöðugar umræður allan daginn,
og tókst Mbl. því ekki að hafa
fregnir af því hvaða afstöðu
fundurinn tók til þjóðstjórnarinn-
ar.
„Læragjá”
lokuð að
næturlagi
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að fela hitavcitustjóra
að láta loka íyrir rennsli í
heita lækinn í Nauthólsvík að
næturlagi um 3—4 vikna skeið
í tilraunaskyni.
Jóhannes Zoéga hitaveitu-
stjóri, sagði í samtali við Mbl.
að fyrst hefði verið lokað á
miðvikudagskvöld og væri jafn-
an lokað frá kl. 22 til 7—8 á
morgnana, en nokkuð væri þó
erfitt að hafa nákvæma stjórn
á því hvenær rennslið hæfist
aftur að morgninum. Sagði
hann einnig að þessar lokunar-
aðgerðir væru nokkuð dýrar og
fylgdi því nokkurt umstang að
koma þeim í kring.
Á fundi borgarráðs óskaði
Albert Guðmundsson að það
yrði bókað að hann væri á móti
öllum ráðstöfunum til „að hefta
frjáls afnot að næturlagi á
baðstað fólksins í Nauthólsvík.
Bannaðgerðir af þessu tagi
hljóta að stríða gegn réttlætis-
kennd þess stóra hóps Reyk-
víkinga sm gert'hefur þennan
heita læk að vinsælum útibað-
stað“ eins og segir í bókun
Alberts.
Þurfa að
kanna
þyrluflak-
ið betur
— Við höfum tekið í sundur
stélskrúfuna og erum að athuga
hana, en ekki er neitt hægt að
fullyrða á þessu stigi um orsakir
þess að annað skrúfublaðið losnaði
frá. sagði Skúli Jón Sigurðsson hjá
loftferðaeftirlitinu í samtali við
Mbl.
Skúli sagði að kanna þyrfti betur
flakið sjálft og því yrði það ekki ljóst
fyrr en í næstu viku eða síðar
hverjar orsakirnar fyrir þessu væru.
Um tíð þyrluslys sagði Skúli Jón
að hafa yrði það í huga að þyrlur
flygju einatt stuttar vegalengdir í
lítilli hæð og því mætti segja að
þyrluflug væri stundum nokkru
hættulegra, en almennt flug. Taldi
hann að þyrluflug hér á landi, sem
nú hefði verið stundað í 12—13 ár,
| hefði gengið vel, t.d. hjá Landhelgis-
gæzlunni og Andra Heiðberg, en
menn myndu fremur eftir slysunum
þegar þau gerðust.
MWÉMs:
Yfirvinnubanni Vöku í Siglufírði aflétt:
„Breytir ekki miklu nema
aflétt verði í Eyium líka”
— ÉG SÉ ekki að það breyti miklu þótt yfirvinnubanninu hafi verið aflétt í Siglufirði,
en við vonumst eftir að því verði einnig aflétt í Vestmannaeyjum og þá batna mjög
móttökuskilyrði og verður hægt að senda fleiri báta á veiðar, sagði Kristján
Ragnarsson formaður Landssambands ísl. útvegsmanna f samtali við Mbl. í gærkvöldi.
dag og þar verður tekin ákvörð-
un um hvað gert verður, en það
er ekki víst að allur flotinn geti
hafið veiðar jafnvel þótt Vest-
mannaeyjar komi einnig til
vegna fyrrgreindra vinnsluerfið-
leika. Loðnunefnd var einnig á
fundi í kvöld, sagði Sigurður, og
— Ákveðið var á fundi hjá
okkur s.l. miðvikudag að 18 skip
myndu geta hafið veiðar á
laugardagskvöld og þó Siglu-
fjörður komi til núna gerir það
ekki annað en losa aðeins um,
því sjálfsagt hefðu komið upp
vandræði hjá þessum 18 skipum
við að losa sig við aflann. Mjög
erfitt er að vinna hann núna
vegna átunnar og ekki er hægt
að geyma hann nema stutt,
þannig að við höfum ákveðið að
dreifa aflanum úr þessum 18
skipum á nokkra staði.
— L.Í.Ú. hefur fund á þriðju-
hyggst hún halda annan fund að
loknum okkar fundi á þriðjudag
og taka ákvörðun í framhaldi af
niðurstöðu fundar okkar, og við
vonumst til að banninu verði
einnig aflétt i Vestmannaeyjum
og að þessar þrjár afkastamestu
stöðvar komist í gang að nýju,
sagði Sigurður Ragnarsson að
lokum.
Sjá viðbrögð íormanns Vöku
og framkvæmdastjóra SR á
bls. 2.