Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
9
f-IFLATIR:
SKOLAR
,J%iHAFNARFJORBUR
hi
VIFILST.
ARNARNESVOGUR
j; :
iFYRIR i
fHUGUÐi
f REYKJA
'nes .;v v-
BRAUTW
SJAVAR8RAUT
STALVIK
6,*j km. á
■■,^Æs*uLmí-K'. .•••' •;•■;■. t*
TILLAGA SAMKV.
AÐALSKIPULAGI
I
l!g'v'V ^ :>■***> m . /
Þetta kort sýnir þéttbýli Garðabæjar og helstu umferðagötur, sem nefndar eru í greininni.
Greinilega sést hvernig Reykjanesbrautin verður lögð framhjá mesta þéttbýlinu.
meðfylgjandi mynda og greinar
Garðars Sigurgeirssonar bæjar-
stjóra í Mbl. 26. þ.m. Hann færir
þar rök fyrir því að megin
forsendur sem þú byggir grein
þína á séu rangar.
Borgarfundurinn
19. okt. 1976
markaði skýra
stefnu
Borgarfundurinn gerði svohljóð-
andi samþykkt:
1. Fundurinn lýsir eindregnum
stuðningi við þá stefnu bæjar-
stjórnarinnar að hraða beri sem
mest lagningu Reykjanesbrautar
úr Breiðholti, vestan Vífilsstaða-
vegar að Kaplakrika við Hafnar-
fjörð.
2. Fundurinn telur útilokað að
endurbyggja Hafnarfjarðarveg
suður í Engidal sem hraðbraut í
núverandi legu vegarins.
3. Vegna væntanlegrar byggðar
á Álftanesi verði við yfirstandandi
endurskoðun aðalskipulags bæjar-
ins tekið frá land fyrir hugsanlega
hraðbraut vestan núverandi Hafn-
arfjarðarvegar með tengingu við
Álftanesveg.
Ég hefi ekki í neinu hvikað frá
þessari stefnu og tel mig bundinn
niðurstöðum þessa fjölmenna
borgarafundar, sem ég tók þátt í.
Reykjanesbraut
IJm legu Reykjanesbrautar hefir
y nú, eftir margra ára þóf, náðst
fullt samkomulag, sem hlaut
staðfestingu Félagsmálaráðuneyt-
isins 13. apríl 1977. Telja verður
það skyldu fjárveitingarvaldsins
að leggja til allt það fé, sem þarf í
þessa braut án tafar þ.e. á næstu
fjárlögum.
Oforsvaranlegt er að reyna ekki
að sporna við hinum tíðu og
hörmulegu slysum, sem eiga sér
stað á_ Hafnarfjarðarvegi, því er
óhjákvæmilegt að gera nokkrar
endurbætur á honum nú þegar.
Ég tel skyldu mína vera að
hlusta á sjónarmið allra, sem
eitthvað hafa fram að færa. Ég hef
bæði hlustað á þig og íbúa við
Heiðarlund, auk fjölda annarra.
Þetta fólk hefur ekki hátt, en flutti
mál sitt af einurð og sanngirni.
Ég óttast að opinbert innbyrðis
deilur Garðabúa um þjóðvegi í
gegnum byggðalagið, tefji fyrir
framkvæmdum og fjárveitingum
til veganna. Framkvæmdir hafa
ætíð takmarkast af of litlum
fjárveitingum til Hafnarfjarðar-
vegar, þrátt fyrir gífurlega um-
ferð.
Hafnarfjarðarvegur frá Arnar-
nesi í Engidal er mesti slysavegur
á landinu. Ég treysti mér ekki til
þess að taka á mig þá ábyrgð, sem
því fylgir að tefja fyrir lagfæringu
á þessum slysavegi og hygg ég að
enginn hafi efni á því.
Ekki verður hægt að fram-
kvæma mikið fyrir þá peninga sem
tiltækir eru af fjárveitingu til
vegarins á þessu ári, en ég tel að
þeim peningum verði best varið
með því að bæta öryggi yngri sem
eldri vegfarenda og þannig draga
úr þeim uggvænlegu slysum, sem
eru hér staðreynd í dag sbr.
skýrslur lögreglunnar. Lágmarks-
krafa okkar hlýtur að vera að
koma öruggum gönguleiðum fyrir
börnin okkar og aðra gangandi
vegfarendur á milli Arnarness og
Silfurtúns og milli gamla Gagn-
fræðaskólans og Garðaskóla, sem
einnig mundi tryggja gönguleið
milli Grunda- og Flataskóla. Á
báðum þessum stöðum er mögu-
legt að koma fyrir tröppulausum
gangi undir veginn. Einnig koma
göngubrýr yfir veginn til greina.
Við allar framkvæmdir við
veginn þarf að hafa hugfast að
draga eihs mikið úr hávaða frá
honum og unnt er.
Stóru flutningabílarnir, kranar
og aðrar vinnuvélar, sem fara um
Hafnarfjarðarveg, tefja umferðina
mjög oft og hafa valdið óbætanleg-
um slysum. Um það bil tíundi hver
bíll sem fer um Hafnarfjarðarveg,
er talinn vera þungaflutningabíll.
Stór hluti þessara þungu bíla ekur
á milli grjótnáms sunnan Hafnar-
fjarðar og nýrri byggingarsvæða í
Kópavogi, Breiðholti og Mosfells-
sveit eða úr Sundahöfn suður á
Reykjanes. Fyrir alla þessa um-
ferð lægi beinna við að fara
Reykjanesbraut, þegar búið verður
að ljúka við hana. Sama gildir um
fólksbílaumferð milli nefndra
svæða og alla umferð hér sunnan
að, sem fer eftir Suðurlandsvegi
eða Vesturlandsvegi.
Eins og málin standa í dag er öll
þessi umferð þvinguð í gegnum
þéttbýli Hafnarfjarðar, Garða-
bæjar, Kópavogs og Reykjavíkur
um gatnamót Kringlumýrarbraut-
ar og Miklubrautar. Þótt sjávar-
braut væri lögð á undan spottan-
um sem eftir er til að ljúka við
Reykjanesbraut er öll þessi um-
ferð þvinguð í gegnum þéttbýlis-
svæði okkar eftir sem áður meðan
Reykjanesbraut er ótengd.
Reykjaneshrautin ein beinir
þungaumferðinni framhjá þétt-
býlinu í Garðabæ svo viðunandi
sé.
Tvær hliðar á
hverju máli
Fleiri en ein hlið eru á hverju
máli. Hver heilvita maður sér að
þú hefir haft mig fyrir rangri
sök.Ég vona að þú sjáir það líka.
Mesti slysavegur landsins er
okkur þungur í skauti.
Við Garðabúar gerum þá kröfu
að þingmenn Reykjaneskjördæmis
taki nú þegar höndum saman um
að útvega það fé sem með þarf til
þess að draga sem fyrst úr
slysunum á Hafnarfjarðarvegi.
Þau eru meiri og tíðari en fólk
gerir sér almennt grein fyrir.
Það verkefni ætti að vera hafið
yfir pólitískar deilur.
Garðabæ, 2. ágúst
Jón Sveinsson
Athugasemd
frá Félagi
Sérleyfishafa
NOKKURS misskilnings gætir í
túlkun blaðamanns á fréttatil-
kynningu Félags sérleyfishafa í
blaði yðar 4. ágúst.
Tilgangur Félags sérleyfishafa
með útgáfu hinna nýju miða á
sérleyfin er ALLS EKKI að
sporna við því, að ferðaskrifstofur
skipuleggi sínar eigin ferðir um
ísland. Aðaltilgangurinn er að
auka farþegafjölda á hinum al-
mennu sérleyfum á Islandi. Góð
samvinna hefur tekist milli Félags
sérleyfishafa og ferðaskrifstofa
um sölu á þessum nýju miðum og
hafa margir forráðamenn ferða-
skrifstofa lýst yfir áhuga sínum og
ánægju með tilkomu miða þessara.
Félag sérleyfishafa hefur ætíð
kappkostað að hafa góða samvinnu
við innlendar ferðaskrifstofur og
telur, að ekki sé hægt, nema með
góðri samvinnu og gagnkvæmum
skilningi, að ná góðum árangri í
ferðamálum hér á landi.
Annað sem Félag sérleyfishafa
vill benda á, er að Magnús
Magnússon hefur samið meginmál
í bækling Félags sérleyfishafa með
dyggilegri aðstoð Vigdísar Finn-
bogadóttur og kunnum við þeim
þakkir fyrir.
Virðingarfyllst,
Félag sérleyfishafa.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
VUGLVSINGA-
SIMINN KR:
22480
Opið í dag.
SELJAHVERFI
Höfum til sölu mjög skemmti-
legt raðhús ca. 200 fm. 5
svefnherbergi. Eignin ekki full-
frágengin. Skipti á 4ra til 5
herb. íbúð koma til greina.
Einnig bein sala.
BREKKUGATA HF.
3ja herb. íbúð á 1. hæð,
aukaherbergi í kjallara. Verð
9—10 millj.
VÍFILSGATA
3ja herb. íbúö á 2. hæð ca. 85
fm. Bílskúr fylgir. Verð 14. miilj.
ÁLFTRÖÐ KÓP.
3ja herb. íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Sér inngangur, sér
hiti. Bílskúr fylgir. Utb. 9—10
millj.
GRENIMELUR
2ja herb. íbúð ca. 65 fm. Útb.
6.5—7 millj.
SKIPASUND
5 herb. íbúð á tveimur hæðum,
ca. 140 fm. Útb. 12.5 millj.
FURUGERÐI
2ja herb. íbúö á jaröhæð, ca.
70 fm. Verð 10—10.5 millj.
ÁSBRAUT KÓP.
4ra herb. íbúö á 1. hæð, 100
fm. Verð 13 millj.
SLÉTTAHRAUN HF.
4ra herb. íbúð 100 fm. á 3.
hæð. Verð 13.5 millj.
HAGAMELUR
3ja herb. íbúö á jaröhæö ca. 85
fm. Verð 12.5—13 millj.
REYNIMELUR
Góö 2ja herb. íbúö í kjallara.
(Samþykkt). Verð 8.5 millj.
ROFABÆR
2ja herb. (búð á jarðhæð. Sér
inngangur. Verð 8.5 millj.
KÓNGSBAKKI
3ja herb. endaíbúð 87 fm. Útb.
8—8.5 millj.
HRAFNHÓLAR
Mjög góð 3ja herb. íbúð.
Bílskúr fylgir. Verð 13.5 millj.
KÓNGSBAKKI
6 herb. íbúð. 4 svefnherb.
Stærð 163 fm. Þvottahús inn af
eldhúsi. Verð 20 millj.
FJÁRSTERKUR
KAUPANDI
Höfum kaupanda að tvíbýlis-
húsi á Reykjavíkursvæðinu.
Mjög góð útborgun.
Óskum eftir öllum
stærðum fasteigna á
söluskrá.
Pétur Gunnlaugsson, lögfr
Laugavegi 24,
sfmar 28370 og 28040.
íbúð í Laugarneshverfi
íbúöin er viö Kleppsveg um 110 fm á 1. hæö í 6. íbúöa
húsi. Skipti í tvískipta stofu, svefnherbergi og 2
barnaherbergi. Suöursvalir. Hentar vel fullorðnu fólki.
Útborgun 10 millj. Uppdráttur á skrifstofunni.
Opið næstu morgna.
Dr. Gunnlaugur Þóröarson,
Bergstaöastræti 74A,
sími 16410.
Til sölu: Tvær Góðar:
2ja herb. glæsileg íbúö um 65 fm viö Arahóla:
Óviöjafnanlegt útsýni yfir borgina. Allt fullgert.
Losun samkomulag. Verö 10.5—11.0 m.
4ra herb. glæsileg íbúö um 110 fm á miöhæö viö
Maríubakka. Horníbúö meö útsýni. Afhending
samkomulag. Vönduö íbúö á besta staö í
Breiöholti. Verö 15.5—16.0 millj.
Kjöre<gn sf.
DAN V.S. WIIUM
lögfræðingur
Ármúla 21 R
85988*85009