Morgunblaðið - 05.08.1978, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
Á myndinni sýnir X hvar lagning Reykjanesbrautar endar við mörk Reykjavíkur og Kópavogs.
Rópavogur
Jón Sveinsson, forseti bæ jarstjórnar Gardabæ jar:
Loforðin
gleymdust ekki
Svar við opnu bréfi Jóns B. Sigurðssonar
Besti Jón.
Þú sendir mér sem forseta
bæjarstjórnar í Garðabæ opið bréf
í Dagblaðinu 22. þ.m. auk pistla í
grein í Mbl. sama dag og segir mig
m.a. hafa gleymt nýgefnum kosn-
ingaloforðum og færir til sönnun-
ar grein nr. 2 úr kosningaskrifum
mínum frá því í vor, þar sem ég
heiti því að beita mér af alefli
fyrir lagfæringu á vegamálum
okkar en þar stendur orðrétt:
„2. Vinna að framtíðarlausn á
umferðarmálum bæjarins, sem nú
valda bæði hættu, töfum og ónæði
í bænum, beina umferð framhjá
með skipulagi og gerð aðalvega út
frá byggðinni.“ Við höfum sitt-
hvora skoðun á því hvernig vinna
skal að þessu verkefni, en ættum
þó ekki að þurfa að brigsla hvor
öðrum um óheillind af þeim
sökum. Ef grannt er skoðað, tel ég
heppilegt að beina umferðinni út
fyrir Garðabæ á eftirfarandi hátt:
Með því að beina þungaflutning-
um, sem valda miklu ónæði af
íbúðargötum svo sem Karlabraut
og Vífilsstaðavegi á aðalbrautir
utan byggðahverfa t.d. á Arnar-
nesveg, sem verður nýr vegur á
Arnarneshálsinum og tengir hann
saman Hafnarfjarðarveg og
Reykjanesbraut. Kortið sýnir af-
stöðu veganna. Skipulagsyfirvöld
hafa samþykkt legu Arnarnesveg-
arins. Karlabrautin liggur aðeins í
5 metra fjarlægð frá húsvegg íbúa
við Heiðarlund. Þar hafa sam-
kvæmt talningu íbúa, ekið allt að 3
malarflutningabílar á mínútu tím-
um saman um miðjar nætur, þegar
álag hefur verið mest.
Þetta er mjög aðkallandi að
lagfæra með því að ná fram
lagningu Arnarnesvegar. Að því er
nú unnið, en samninga við opin-
bera aðila þarf til. Bæjarstjóra
Garðabæjar var falið á seinasta
bæjarstjórnarfundi að leita eftir
framgangi þessa máls.
Þetta er í fullu samræmi við
framangreint kosningaloforð
mitt og hefur því ekki gleymst af
minni hálfu eftir kosningar eins
og þú heldur fram.
Forsendur þínar
eru rangar
Að öðru leyti vísa ég til
Þessi mynd sýnir þungaflutningabíla á leið suður Hafnarf jarðarveg. Þeir verða að þræða þéttbýlið. Beinna hefði legið við
fyrir þessa bfla að velja Reykjanesbrautina við Elliðaárnar, stytstu leið suður á Keflavíkurveg, sunnan byggðar í
Kópavogi og Garðabæ, en þar vantar aðeins 6,7 km vegarlagningu til þess að opna leiðina. Ca. 37 km hafa verið lagðir.