Morgunblaðið - 05.08.1978, Page 12

Morgunblaðið - 05.08.1978, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978 Arndís Björnsdóttir, kennari: S j álfstæðis- stefnan í gildi „Sjálfstæðisflokkurinn tapaði í kosningunum, en sjálfstæðisstefn- an sigraði", sagði Davíð Oddsson í ágætri ræðu sinni á fundi Heim- dallar hinn 26. júlí sl. Við skulum vona, að þetta reynist orð að sönnu. Kosningaúrslitin voru verulegt áfall fyrir Sjálfstæðis- fiokkinn og verður hann að taka þau sem alvarlega áminningu stuðningsmanna sinna — og taka sig á — ella kann enn verr að fara næst. Fólk telur flokkinn hafa brugðizt stefnu sinni og unir því ekki lengur, að stefnuskrá fiokks- ins sé marklítið plagg, sem einung- is er vitnað í við hátíðleg tækifæri, en gleymist svo þess á milli. Við getum dregið þann lærdóm af ósigri flokksins, að kjósendur vilja sterka stjórn, sterkari stjórn en þá, sem setið hefur undanfarin 4 ár. Það hefur verið gengið alveg fram af fólki; verðbólgan geysist áfram og aðhaldsleysi ríkir á flestum sviðum, sem snerta ríkis- rekstur. Sjálfstæðisstefnan er stefna einkaframtaks, frjálsrar \ atvinnustefnu og ábyrgra athafna einstaklingsins. Fráhvarf frá þess- um meginþáttum er að mínu áliti ein aðalorsök þess, að margir af dyggum stuðningsmönnum flokks- ins kusu að greiða öðrum flokkum atkvæði sitt, því að þeir treystu flokknum ekki lengur. Að vísu er allt gott um það að segja, að flokkur sé „víðsýnn umbótaflokk- ur“, en allt á sér einhvers staðar takmörk og við getum ekki haldið áfram að fá ábyrgðarlausri for- ystu Alþýðubandalagsins og liði hennar í verkalýðsforystunni þau vopn í hendur, sem við höfum gert. Tvöfeldnin í þeim herbúðum er talandi dæmi um, hvernig þessi öfl reyna að koma á algerri upplausn í þjóðfélaginu til þess að eftirleikur- inn verði þeim auðveldur. Þegar vinstri stjórn sat árið 1973, þótti sjálfsagt að skrifa undir „ábyrga olíusamninga“, en þegar gengið var til samninga árið 1977, var Arndfs Björnsdóttir ríkisstjórnin neydd til þess að ganga að samningum, sem eru meðal þess ábyrgðarlausasta, sem gerzt hefur á Islandi í langa tíð og köllum við þó ekki allt ömmu okkar. Bar þá ekki stjórn landsins að leggja málið í dóm þjóðarinnar? Samninga, sem fyrirfram var vitað um, að ekki gætu haldizt, átti ekki að skrifa undir því að einhvern tímann kemur að skulda- dögunum og greinilegt, að hér verður hart að mæta hörðu og skynsemin að ráða. Enda er nú svo komið, að vinstri fylking verka- lýðsforystunnar hefur komið öllu í öngþveiti með óbilgirni sinni og lítil von um, að skynsemi og sanngirni fái að ráða ferðinni. Nú þarf að grípa til alls kyns úrræða, svo að þjóðarskútan sökkvi ekki. Þar verða allir að taka á sig hlutfallslega jafna byrði, en ekki íþyngja vissum hópum eða atvinnugreinum umfram aðra. Atvinnufyrirtæki þjóðarinnar verða að fá að starfa á eðlilegum grundvelli, þau mega ekki vera svo skattpínd, að eðlileg endurnýjun og vöxtur eigi sér ekki stað. Undanfarin ár hefur verið viðtekin hefð að leggja alls konar auka- skatta á atvinnufyrirtæki ef tóma- hljóð hefur verið í ríkiskassanum og óneitanlega hljómar vel í munni, að fyrirtæki í einkarekstri geti endalaust staðið undir opin- berri eyðslustefnu. Þessi afstaða, sem vel mætti kalla þjóðarinnræt- ingu, er áreiðanlega ein aðalorsök fylgistaps Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisfólk er andvígt þessari stefnu, sem er stórhættuleg, og ætlast réttilega til þess af flokkn- um, að hann veiti miklu meira viðnám gegn ríkisafskiptum, en hann hefur gert. Þegnarnir verða að horfa aðgerðarlausir á, hvernig stjórnir ríkisrekinna fyrirtækja fremja hver mistökin af öðrum og kosta skattborgarana milljarða í auknum álögum. I þeim fyrirtækj- um ber enginn ábyrgð, þau fara ekki á hausinn það er staðreynd, að ríkisvaldið hefur of mikil neikvæð afskipti af atvinnurekstri hér á landi og því þarf að breyta. íslendingar eru að verða einstak- lingshyggjumenn, og vilja ekki búa við þjóðskipulag, þar sem einstak- lingurinn er háður opinberri forsjá í einu og öllu. Hvergi verða lífskjör almennings jafn ömurleg og í slíku þjóðfélagi og hvergi verður stéttaskiptingin meiri. Fólkið í þessu landi vill uppskera laun í samræmi við vinnu sína. Þess vegna er það lífsnauðsun fyrir okkur að viðhalda gildi einstaklingsins og viðurkenna hana sem slíkan. Það, sem fyrst og fremst þarf að gera, er að skera niður ríkisbáknið. Við Islendingar höfum ekki efni á þeirri yfirbygg- ingu, sem við höfum reist okkr. Við byggjum afkomu okkar á óvissum aflaverðmætum, og get- um ekki leyft okkur að koma sérhverjum þjóðfélagsþegn ein- hvers staðar á ríkisjötuna. Við þurfum stjórn, sem þorir að skera niður það kerfi samtryggingar og pólitísks siðleysis, sem viðgengizt hefur í öllum flokkum. Við viljum afnema öll þau óeðlilegu fríðindi, sem embættismannakerfið hefur komið á. Það þarf breytt siðgæðisviðhorf í stjórnmálum á íslandi. Menn eiga að standa og falla með ákvörðunum sínum og kjósendur hljóta að geta ætlazt til þess, að einhvers ábyrgð fylgi því þjónustustarfi, sem þingmennska er. Við, sem trúum á sjálfstæðis- stefnuna, ætlumst til þess, að umboðsmenn okkar á Alþingi fylgi stefnu flokksins, fylgi fast eftir kröfu um heilbrigt atvinnulíf, sem fái að dafna í friði, en verði ekki drepið hægum dauða með „vinstri" meðulum. Sjálfstæðisflokkurinn á að hætta að samþykjja lagafrum- vörp, þar sem önnur hver setning hefst á : „Ríkið skal hlutast til um“. Því aðeins getur Sjálfstæðis- flokkurinn búizt við að endur- heimta fyrra fylgi sitt, að hann fylgi ótrauður, í stjórn eða stjórnarandstöðu, þeirri stefnu athafnafrelsis og einstaklings- hyggju, sem verið hefur horn- steinn hans frá öndverðu. Bridge Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON Taf 1- og bridge- klúbburinn Sl. fimmtudag var spilað í þremur riðlum. einum 16 para og tveimur 12 para. Meðalár- angur í A riðli var 210 stig og í B- og C-riðli 165 stig. AriðiIIi Magnús Oddsson — Sigríður Pálsdóttir 250 Árni Pálsson — Guðmundína Pálsdóttir 232 Gísli Tryggvason — Guðlaugur Nielsen 230 Einar Þorfinnsson — Sigtryggur Sigurðsson 224 Friðrik Karlsson — Kári Sigurjónsson 224 B-riðilIi Ásmundur Pálsson — Stefán J. Guðjohnsen 198 Jakob R. Möller — Sigurður Sverrisson 188 Gissur Ingólfsson — Viðar Jónsson 186 Alda Hansen — Nanna Ágústsdóttir 183 Kristján Guðmundsson — Sophonias Benediktss. 168 C-riðiIli Kristján Blöndal — Skafti Jónsson 213 Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 191 Páll Valdimarsson — Valur Sigurðsson 185 Ingvar Hauksson — Orwelle Utlay 171 Guðni Sigurbjörnsson — Jónas Erlingsson 168 Staðan í stigakeppninnii Valur Sigurðsson 9 Ásmundur Pálsson 9 Viðar Jónsson 8 Ragnar Júlíusson skólastjóri: „Framhjá Matthíasi Bjarna- syni verður ekki gengið” Allt frá því í júnílok að ríkis- stjórn Geirs Hallgrímssonar sagði af sér hafa dagblöðin verið að gera því skóna hverjir yrðu næstu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins ef hann tæki þátt í myndun nýrrar ríkisstjórnar. Formaður Alþýðuflokksins hef- ur nú gefist upp við stjórnarmynd- un og Geir Hallgrímssyni hefur nú verið falið að gera tilraun til stjórnarmýndunar. Miðstjórn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafa nú falið Geir Hallgrímssyni og Gunnari Thoroddsen að hefja viðræður. Allir núverandi ráðherrar í ráðuneyti Geirs Hallgrímssonar hafa verið nefndir sem væntanleg- ir ráðherrar auk flestra þeirra sem í þingflokki Sjálfstæðisflokksins eru að undanskildum Matthíasi Bjarnasyni sem fer með tvo af stærstu málaflokkunum í núver- andi ríkisstjórn. Hvers vegna er hann ekki nefndur í hugleiðingum þeirra sem um þessi mál hafa fjallað að undanförnu í síðdegisblöðunum? Er hann óhæfur, eða eru önnur Matthías Bjarnason sjónarmið sem koma þar fram? Þeir sem ég hefi heyrt ræða þessi mál eru á annarri skoðun. Matth- ías Bjarnason hefur verið þing- maður Vestfirðinga s.l. 15 ár og aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins þar og náði það hámarki 1974 þegar Sjálfstæðisflokkurinn átti þar þrjá þingmenn, tvo kjördæma- kjörna og einn í uppbótarsæti, Að vísu tapaðist uppbótarsætið nú í alþingiskosningunum 1978, en fylgi flokksins stendur ekki síður föstum fótum á Vestfjörðum en annars staðar á landinu. Matthías Bjarnason hefur s.l. 4 ár sem ráðherra' Sjálfstæðis-- flokksins farið með eins og áður segir, tvo af þýðingarmestu mála- flokkum ríkisstjórnarinnar, þ.e. sjávarútvegsmálin ásamt heil- brigðis- og tryggingamálunum. Á þessu tímabili hafa orðið meiri breytingar á sjávarútvegi en á nokkru öðru kjörtímabili fyrr og síðar. Fyrst skal nefna lokasigur í landhelgismálinu þegar landhelgin var 15. okt. 1975 færð út í 200 mílur en hlutur hans er þar stór þó hans sé ekki sigurinn allur. En í hans ráðherratíð hefur tekist að afla viðurkenningar allra þjóða á óskoruðum yfirráðarétti 200 mílnanna. Þýðingu þess má marka af því að árið 1973 var hlutdeild okkar af heildar botnfiskaflanum um 59% en 1977 87% og þar af 97% af þorskaflanum. Nú fá útlendingar ekki að veiða innan landhelginnar nemá með samþykki okkar sem þeir allir virða. Á þessu sama tímabili hafa verið gerðar stórfelldari ráðstaf- anir en nokkru sinni fyrr til fiskfriðunar, og nægir að nefna að ráðherra brast ekki kjark til framkvæmda svo sem alþjóð er kunnugt. Samfara þessu hafa hlutfallstekjur sjómanna aukist verulega eða allt að 22% umfram aðrar stéttir þjóðfélagsins. Heilbrigðis- og tryggingamál er svo stór málaflokkur, að í stuttri grein verða þeim ekki gerð skil svo að nokkru nemi, en bætur til þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu hafa hækkað meira í tíð Matthíasar Bjarnasonar en í tíð nokkurs annars ráðherra. Sem dæmi má nefna að tekju- trygging, sem skiptir mestu máli fyrir aldna og sjúka, hefur hækkað um 495% á meðan almennir kauptaxtar í landinu hafa hækkað um 253%. íslenzkar konur til Grænlands í NÆSTU viku leggja 24 konur frá Kvenfélagasambandi íslands upp í vikuferð til Grænlands í boði kvenfélaga þar í landi, en þar með eru grænlenzkar konur að endurgjalda boð, sem 25 grænlenzkar konur þáðu s.l. sumar á íslandi. Farið verður til Julianehaab, Narsaque og að Görðum. Farar- stjóri er Sigríður Thorlacius, formaður Kvenfélagasambands- ins. Mikill hvatamaður að þessum tengslum milli íslenzkra og græn- lenzkra kvenna er Henrik Lund, borgarstjóri í Grænlandi, sem m.a. hefur verið í vetur við nám í Háskóla íslands. Dregið í happdrætti Lionsklúbbs Kópavogs LIONSKLÚBBUR Kópavogs dreifði í sumar þjónustublaði á öll heimili í Kópavogi, segir í frétta- tilkynningu frá klúbbnum. I blað- inu voru ýmsar upplýsingar svo og auglýsingar og gilti hvert blað sem happdrættismiði og var númerið að finna á blaðsíðu 10. Vinningur- inn var írlandsferð fyrir 60 þúsund krónur. Nú hefur verið dregið í happ- drættinu og kom vinningurinn upp á miða númer 3651. Vinningshafi getur vitjað vinningsins hjá Grét- ari Kristjánssyni í síma 40755. EkkiBooth heldur Tryon MAÐURlKtN, sem tók á móti Karli Bretaprinsi, er hann kom til Egilsstaða í fyrradag, var ekki Brian Booth, eins og sagt var frá í frétt Mbl. heldur Anthony Tryon lávarður og var kona hans með honum. Ragnar Júlíusson. Hvers vegna er ég með þessar hugleiðingar um ráðherradóm Matthíasar Bjarnasonar? Jú, þeim er auðsvarað. Undanfarin ár hefi ég setið í stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur og í útgerðarráði B.Ú.R. og kynnst störfum ráðherr- ans í báðum þeim málaflokkum sem undir hann hafa fallið og þess vegna er mér og mörgum öðrum sjálfstæðismönnum lítt skiljanlegt hvers vegna hans nafn hefur ekki verið nefnt í þeim hugleiðingum sem ég nefndi í upphafi þessarar stuttu greinar. Komi til aðildar Sjálfstæðis- flokksins að næstu ríkisstjórn fæ ég og fjölmargir aðrir ekki séð að fram hjá Matthíasi Bjarnasyni verði gengið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.