Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
Rætt við Guðlaug Pálsson, kaupmann á Eyrarbakka
Á Eyrarbakka er verslun er
nefnist Verslun Guðlaugs Páls-
sonar, en þar hittum við að máli
eiganda verslunarinnar. Guðlaug
Pálsson. Sagði hann að verslun-
inni hefði verið komið á fót þann
5. desember 1917 og hefði hún
verið á sama stað mest allan
tímann. eða frá árinu 1919.
„Ég vann í tvö ár í búð áður en
ég byrjaði sjálfur með verslun.
Tildrög þess að ég fór út í þetta
voru þau að kaupmaðurinn, sem ég
vann hjá, hætti með verslun sína
og bauð mér að leigja húsið og
kaupa af sér lagerinn, sem ég þáði.
Um svipað leyti hætti önnur
verslun hér og keypti ég einnig
lager hennar. Upphæðin, sem ég
borgaði fyrir þetta, var ekki há
miðað við gildi peninga í dag, það
voru 8.500 krónur fyrir annan
lagerinn og 500 krónur fyrir hinn,
en það þótti dágóð upphæð á þeim
tíma.“
Guðlaugur Pálsson, kaupmaður á Eyrarbakka. Ljósm.t Emilía.
„Búin að vera við
verzlun í 60 ár”
Skóverzlun Þórðar Péturssonar:
„Ég er gífurlega
ánægður í þessu starfi”
segir Rúnar Didriksen, verzlunarstjóri
í skóverzlun Þórðar Péturssonar
póstkröfu. Hvernig gengur sú
þjónusta við landsbyggðina?
„Hún hefur gengið mjög vel.
Fólk hefur verið fljótt að taka við
VIÐ Austurvöllinn stendur lið-
lega 50 ára gömul verzlun,
Skóverzlun Þórðar Péturssonar.
Fyrir 10 árum urðu eigendaskipti
og keypti hana þá Færeyingur,
Schumann Didriksen að nafni, og
rekur hann verzlunina cnn 1 dag.
Er blaðamenn litu við í verzlun-
inni var Schumann ekki við en
við hittum að máli verzlunarstjór-
ann, Rúnu, en hún er dóttir
Schumanns.
„Við erum 6 sem vinnum hérna
að staðaldri, með foreldrum mín-
um en nú í sumar erum við með
eina sumarstúlku. Við pabbi skipt-
um starfinu þannig á milli okkar
að hann sér um alla pappírsvinnu
og það sem tilheyrir skrifstofunni
en ég sé aftur á móti um það sem
viðkemur verzluninni, kvörtunum
og því um líku.“
Nú hafið þið auglýst mikið í
blöðum um að þið sendið gegn
„Ágætís vinna, annars
væri ég ekki í þessu”
segir Þórir Halldórsson bflasali
Á Bílasölu Guðfinns í Borg-
artúni 24 hittum við að máli
Þóri Halldórsson bflasala.
Hann sagði okkur að Bflasala
Guðfinns væri starfrækt á
tveimur stöðum og væri hin í
Haliarmúla.
„Ég er búinn að vinna við
þetta frá því að Bflasala
Guðfinns var stofnuð árið
1975 og líkar starfið ágæt-
lega. Þetta útheimtir þó mikla
vinnu og getur oft á tíðum
verið þreytandi, en eins og ég
segi, þá er þetta ágætis vinna,
því annars væri ég ekki í
þessu.“
— Hvernig gengur ykkur að
reka tvær bílasölur?
„Ástæðan fyrir því að við
fórum út í það að opna aðra
bílasölu var aðallega sú, að við
gátum orðið ekki annað öllum
þeim fjölda, sem kom á hinn
staðinn. Bílafjöldinn og fjöldi
viðskiptavina var orðinn svo
mikill að hitt var orðið of lítið
fyrir okkur, svo ákveðið var að
opna þessa bílasölu hér í
Borgartúninu, en hún var
opnuð núna síðastliðið vor.
Okkur hefur gengið ágætlega
að reka báðar þessar bílasölur
og eins og ástandið er a
bílasölumarkaðinum í dag er
alveg rekstrargrundvöllur fyr-
ir þær báðar. Samkeppnin á
þessum markaði fer þó stöðugt
harðnandi, því mikið hefur
verið opnað af nýjum bílasöl-
um á tiltölulega stuttum tíma.
Þó held ég að megi segja, að
íslendingar eru farnir að
skipta nokkuð oftar um bíla en
áður var, og menn skipta um
bíla á svona 1 til 2 ára fresti en
ekki 3 til 4 ára fresti eins og
áður tíðkaðist mest. „ „
Maður
vonar bara að ekki fari eins
með bílasölurnar og fasteigna-
sölurnar, sem spruttu upp eins
og gorkúlur en þegar markað-
urinn var mettaður varð að
loka mörgum. Þó hef ég þá trú
að einhverjar af minni bílasöl-
unum a.m.k. neyðist til að loka
í vetur þegar bílaviðskiptin
fara að minnka. Væntanlega
verður svo eins næsta vor-og
var núna, þá spretta bílasöl-
urnar upp aftur.“
— Er eitthvað um það að
konur standi í bílaviðskiptum?
„Það verður nú að segja eins
og er að karlmenn eru í
algjörum meirihluta sem við-
skiptavinir hjá okkur. Þó hefur
það aukist nokkuð upp á
síðkastið að kvenmenn eigi bíla
og standi í viðskiptum í sam-
bandi við þá.“
— Eykst sala á bílum eitt-
hvað fyrir verslunarmanna-
helgina?
„Áður fyrr var aðaltíminn í
bílasölu fyrir verslunarmanna-