Morgunblaðið - 05.08.1978, Síða 26

Morgunblaðið - 05.08.1978, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978 „Fólk á öllum aldri kaupir íþr óttavörur’ ’ STEFÁN V. Pálsson og Kjart- an V. Guðmundsson eru eigend- ur sportvöruverzlunarinnar Bikarsins s.f., en 1. ágúst var 1 ár liðið síðan þeir tóku við rekstri verzlunarinnar. Stefán starfar í verzluninni og komu blaðamenn við í Bikarnum og hittu hann að máli. „Það var nú ekkert sérstakt sem olli því að ég byrjaði á verzlunarrekstri. Ég hafði starf- að sem verzlunarstjóri hjá Gunnari Ásgeirssyni í 11 ár og mig langaði til þess að prófa sjálfstæðan rekstur. Hjá mér var það ekki íþróttaáhuginn sem gerði það að verkum að ég fór að verzla með sportvörur, en sá sem er í þessu með mér hann er mikill Valsmaður. Ég kann ágætlega við mig í þessu starfi. Það er tilbreyting að hugsa um allt sjálfur, allt frá því að maður pantar vöruna > þangað til að maður afgreiðir hana til kaupenda. Við seljum einungis vörur til íþróttaiðkana og höfum verið að , flytja eitthvað inn sjálfir. Það er nokkuð erfitt að ná í vörur annars, því að það er mjög lítið um raunverulegar heildverzlan- ir í þessari grein. Það eru helzt verzlanirnar sjálfar, en þær gera lítið af því að dreifa vörum til annarra verzlana. Fólkið sem kaupir vörur hjá okkur er á öllum aldri. Maður hafði alltaf haldið að það væru helzt unglingar sem keyptu íþróttavörur. Annað hvort er það að breytast eða maður hefur ekki tekið eftir því áður, að það er ekki svo. Ég held nú samt að þetta sé að breytast, að fólk sé farið að hugsa meira um heils- una og sé því farið að stunda íþróttir, „trimma", meira nú en áður. Annars er sportfatnaður að verða nánast sem tízkufyrir- brigði. Það þarf að hafa mikla fjölbreytni í sportfatnaðinum. Ég hef nú samt ekki tekið eftir því að hann sé neitt dýrari en annar fatnaður. Þessar vörur eru allar háðar verðlagseftirliti og álagningin á þeim er í raun ekki eins há og á tízkufatnaði yfirleitt. Verzlunin hefur gengið fram- ar vonum. Það er náttúrulega ekki komin nein reynd á þetta enn þá en ég er ekkert óánægður eins og er. Það eru vissulega sveiflur á verzluninni. Á vorin, svona frá aprílbyrjun, fer að aukast salan á fatnaði fyrir útiíþróttir og þá helzt fótbolt- ann. Sú verzlun helzt fram í lok ágústmánaðar, þá taka innan- hússíþróttirnar við. Verzlunin er minnst í ágúst og marz en annars er hún nokkuð jöfn.“ Séð inni í Bikarnum. r „Eg er líklega fæddur með þessum ósköpum” Jón Bjarni Þórðarson er eig- andi verzlunarinnar Breiðholts- kjörs. „Ég byrjaði í bransanum fyrir alvöru árið 1957 er ég hóf að reka verzlunina Þrótt. Síðan átti ég Heimakjör (10 ár og Kjötmiðstöð- ina í 2 ár. Árið 1969 stofnsetti ég síðan þessa verzlun, Breiðholts- kjör. Ég byrjaði í þessu húsnæði og hef ekkert stækkað við mig nema hvað ég þurfti að byggja við þegar mjólkin kom inn í myndina. Hér starfa nú yfir 30 manns og eru þá líka taldir með þeir sem vinna hálfan daginn. Ég held að ég hljóti að hafa smitazt af kaupmennskunni hjá Jón Bjarni Þórðarson — „Ég kann vel við mig í Brciðholtinu.“ föður mínum á sínum tíma en hann var kaupmaður í mörg ár. Ég er ekki lærður í greininni svo að ég hlýt að vera fæddur með þessum ósköpum. En ég öfunda ekki þá sem eru að byrja nú í dag á verzlunarrekstri. Það er svo erfitt að fá fjármagn í þetta. Maður er kannski búinn að gleyma öllum erfiðleikunum sem voru í upphafi en ég vildi ekki vera að byrja minn verzlunarrekstur í dag. Ég er mjög ánægður hér í Breiðholtinu. Hvað sem aðrir segja þá er gott fólk hérna." Fólk að verzla í Breiðholtskjöri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.