Morgunblaðið - 05.08.1978, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
35
56 m SKUTTOGARI -
499 BRÚTTÓRÚMLESTIR -
Humarvertíd
lokið h já Horna
fjarðarbátum
HUMAR- og sumarvertíð telst nú
lokið hjá Hornafjarðarbátum.
Heildarhumaraflinn varð í ár
170% tonn og er það 42 tonnum
meira en í fyrra en humarinn
reyndist smærri, fóru aðeins 40%
í fyrsta flokk, en 50% í fyrra.
Annar fiskafli á þessum tíma
varð 1446 tonn. Er það 300 tonnum
meira en á sama tíma í fyrra. Auk
þess hafa 3 bátar siglt með 120
lestir til Englands. Mestan humar-
lafla hafði Æskan, 16.626 kg, og
varð heildaraflaverðmæti bátsins
26 milljónir króna.
Lokið verður við vinnslu í
frystihúsinu eftir helgi og verður
því þá lokað um óákveðinn tíma.
Fjórir bátar ætla að fara eina til
tvær veiðiferðir á humar og verður
afli þeirra unninn á Eskifirði.
Flestir bátanna eru þegar farnir
að undirbúa sig undir síldveiðarn-
ar.
Gunnar
Skipasmíðar: T * * “■ •
----- Lanamalin
sigla öllu í strand
INNLEND skipasmíði hefur
átt við vaxandi rekstrar-
vanda að stríða á undanförn-
um misserum. Jón Sveinsson
forstjóri skipasmíðastöðvar-
innar Stálvíkur sagði í
viðtali við Viðskiptasíðuna
að það væri illt til þess að
vita að eftir að fyrirtækið
hefði lagt í ýmsar hag-
ræðingaraðgerðir og tryggt
sér kaupendur að framleiðsl-
unni væri ekki hægt að fara
í gang. Ástæðan væri staðan
á lánamarkaðinum og
verðbólguþróunin, því þó
svo mönnum takist að safna
saman í útborgun sem eigin
f ramlag í dag dygði það ekki
næsta dag. Þau lán sem
útgerðaraðilum er boðið upp
á í dag hjá Fiskveiðasjóði
eru annað hvort gengis- eða
vísitölutryggð auk þess sem
þau bera háa vexti.
Það má geta þess að um
tuttugu alvarlegar fyrir-
spurnir hafa borizt fyrirtæk-
inu varðandi nýja tegund
togara en þessar reglur hafa
fælt marga sterka kaupendur
frá, sagði Jón Við hjá Stálvík
höfum á undanförnum árum
unnið að ýmsum hagræðing-
arþáttum í rekstri fyrir-
tækisins.
Tölva hefur verið
keypt og var við það miðað að
hún gæti sinnt þörfum
tæknimannanna, sem hins
almenna stjórnanda. Merk-
asta átakið er þó eflaust
hönnun sérstaks 339 tonna
togara og var eitt megin-
markmiðið með hönnuninni
að gefa íslenzkum útgerðar-
aðilum kost á skipi sem
krefðist mun minna eldsneyt-
is en sambærileg skip krefj-
ast í dag. Erlendar tækni-
stofnanir hafa gert tilraunir
með líkan af skipinu og eru
niðurstöður allar hinar
jákvæðustu, m.a. þær að
sparnaður, vegna minni olíu-
notkunar sé á gildandi verð-
lagi um 20 millj. á ári.
Jón
sagði að við hönnunina hefði
einnig verið lögð áherzla á
það að staðla sem flesta
verkþætti og má t.d. nota
sama skrokkinn jafnt fyrir
skuttogara, rækjutogara og
nótaveiðiskip.
Á grundvelli
þessa hönnunarverks og
smíði togarans Elínar Þor-
bjarnardóttur var gerður
bónussamningur við starfs-
menn Stálvíkur þannig að
auka mætti hagræðinguna
enn frekar og þar með
samkeppnishæfni fyrirtækis-
ins sagði Jón að lokum.
Þjóðarframleiðslan:
Mest aukning í
Á myndinni, sem fylgir
þessum texta, má sjá
hver aukningin er í þjóð-
arframleiðslu hinna
ýmsu landa á þessu ári
eða öllu heldur hverju
spáð er að hún verði á
þessu ári.
Einnig má
geta þess að Þjóðhags-
Noregi
stofnun gerir ráð fyrir
um 3% aukningu þjóðar-
framleiðslu okkar á
þessu ári eða svipað og í
Englandi.
Leiðrétting á frétt
frá Stykkishólmi
Stykkishólmi 1.8.1978.
í FRÉTT minni í Mbl. s.l.
föstudaK urðu leið mistök er
þurfa leiðréttingar við.
Þessi grein var um beitingavél í
m.s. Þórsnesi SH 109 frá Stykkis-
hólmi, þar sem höfð voru eftir
Kristni Ó. Jónssyni skipstjóra
ummæli um reynslu hans af
beitingavélinni. Þar sem einstök
ummæli voru ekki rétt eftir
Kristni höfð er rétt að það voru
hvorki orð hans né ætlun að deila
á núverandi skipstjóra bátsins,
eins og fram kemur í fréttagrein-
inni. Einnig er rétt að það komi
fram varðandi samanburð sem
gerður er í greininni á afla bátsins
og annarra báta s.l. vetrarvertíð
að sá samanburður er óraunhæfur,
þar sem línulengd hjá m.s. Þórs-
nesi var 55 balar samanborið við
40—45 bala hjá öðrum bátum.
Þá hefur framkvæmdastjóri
Þórsness h.f. farið þess á leit að
það verði tekið fram, að ástæðan
fyrir því að beitingavélin var tekin
í land var sú, að 5. júlí s.l. var
báturinn sendur á grálúðuveiðar
við Kolbeinsey. Strax kom í ljós að
hann fiskaði ekki sambærilega við
aðra báta. á sömu slóðum, sem
handbeitingu höfðu. Aflinn reynd-
ist allt að tveimur þriðju minni.
Ýtarlegar tilraunir hefðu verið
gerðar án árangurs. 15. júlí s.l. var
báturinn sendur á grálúðuveiðar
að nýju og þá með handbeitingu.
Kom þá í ljós að afli bátsins var
sambærilegur við aðra báta á
sömu slóðum.
Það er rétt að þetta komi fram
og ég biðst velvirðingar á mistök-
unum.
Fréttaritari.
Höfum kaupendur aö eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS: Kaupgengi Yfirgengi míðað við ínnlausnarverð
pr. kr. 100- Seðlabankans
1967 2 flokkur 2756 68 49 2%
1968 1 flokkur 2400 82 32 0%
1968 2. flokkur 2257 95 313%
1969 1 flokkur 1682 32 313%
1970 1 flokkur 1545 13 718%
1970 2. flokkur 1 126 06 31 1%
1971 1 flokkur 1059 15 70 0%
1972 1 flokkur 923 38 31 0%
1972 2 flokkur 790 08 70 0%
1973 1. flokkur A 604 36
1973 2 flokkur 558 71
1974 1 flokkur 388 06
1975 1 flokkur 317 27
1975 2 flokkur 242 13
1976 1 flokkur 229 30
1976 2 flokkur 186 20
1977 1 flokkur 172 93
1977 2 flokkur 144 86
1978 1 flokkur 1 18 05
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF
RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100-
1972—A 598 47 (10% afföll)
1973—B 513 44 (10% afföll)
1974—D 388 22 (10% afföll)
1974—F 274 73 (10% afföll)
VEÐSKULDABRÉFX:
Kaupgengi pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 79-
2 ár Nafnvextir: 26% 70-
3 ár Nafnvextir: 26% 64-
x) Miðað er viö auðseljanlega fasteign.
HLUTABRÉF:
Málning h.f. Kauptilboð óskast.
PiéRpcrrincnRpciAG fiuwu hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjatgötu 12 —- R (iðnaöarbankahúsinu)
Simi 2 05 80.
Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.