Morgunblaðið - 20.08.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1978
17
Allar Pennabúðirnar eru stútfullar af splunkunýjum
skólavörum. Bókum, blokkum, blýöntum, strokleörum,
skólatöskum, o.fl. o.fl. — og svo pennum fyrir alla aldurs-
flokka.
Komið í Pennabúðirnar og veljið nýju skólavörurnar, þær
gera skólaveruna miklu skemmtilegri.
á T _T \ \ J' \ Hallarmúla 2, Laugavegi 84
1 J^l ll tll ll Hafnarstræti 18
mállaus á Reykjalundi, þar sem
hún lézt.
Þórlaug systir Dags er hjúkrun-
arkona að mennt. Hún er gift og
búsett í Danmörku. Sigríður er
einnig gift og býr í Garðabæ. Þau
áttu hálfbróður af fyrra hjóna-
bandi móður sinnar, Pétur Hall-
dórsson, hann er látinn fyrir
nokkrum árum.
Hulda systir þeirra er gift kona
hér í bæ og hjá henni var Dagur
í fæði um tíma áður en mötuneytið
í Hátúni 12 tók til starfa. Hann
hafði oft góða skemmtun af
börnum Huldu og sagðist oft hafa
átt bágt með sig við matarborðið,
taldi sjálfan sig ekki góðan
uppalanda, því það var svo stutt í
hláturinn.
Á Þorgerðarstöðum í Fljótsdal
býr Þórhallur, sonur Ingibjargar
stjúpu Dags. Þangað fór Dagur oft
í heimsókn sér til mikillar ánægju
og þar eins og annars staðar, sem
hann átti vini, er hans nú sárt
saknað.
En sá sem reynzt hefur Degi
sem sannur fóstbróðir er bróður-
sonur Ingibjargar, Björgulfur
Andrésson. Þeir hafa farið saman
í ferðalög og heimsóknir og
Björgúlfur og allt hans fólk hafa
reynzt sannir og traustir vinir.
Eftir að Dagur hætti að afgreiða
við símann á Illugastöðum var
hann að sumarlagi benzínaf-
greiðslumaður á Stað í Hrútafirði,
þar hefur líka verið litið á hann
sem einn af heimafólkinu síðan.
En eftir að hann flutti suður var
hann fyrst um margra ára skeið
starfsmaður Lyfjaverzlunar Ríkis-
ins, en nú síðastliðin ár var hann
símsvari og reikningaskrifari a
verkstæði Bifreiða- og Landbún-
aðarvéla. Allir, sem unnu með
honum á þessum stöðum, sakna nú
skemmtilegs og góðs vinnufélaga.
Dagur starfaði af lífi og sál í
Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra. Hann
var að sjálfsögðu hrókur alls
fagnaðar á ferðalögum félagsins.
Og ef farnar voru ferðir um
Húnavatnssýslu og fyrir Vatnsnes
var hann sjálfkjörinn leiðsögu-
maður. Það var ekki nóg með að
hann þekkti bæina, hann gat líka
lofað mönnum að heyra raddir
ábúendanna og sýnt ýmsa þeirra
takta.
Um tíma var hann mikill
áhugaljósmyndari og myndaði í
gríð og erg. Svo steinhætti hann að
taka myndir, lét sér nægja bóka-
lestur um nokkurt skeið. Einkum
hafði hann áhuga á öllu sem
viðkom dýrafræði. Það var varla
til það kvikindi ferfætt eða fiðrað
að hann vissi ekki á því skil og
gæti sagt frá ýmsu fróðlegu sem
aðrir vissu ekki.
En núna síðustu árin fór drjúg-
ur tími af tómstundum hans í að
lesa inn á segulbönd fyrir blindra-
félagið og talbókasafnið. Þannig
gat hann látið aðra njóta góðs af
hæfileikum sínum og hann var
góður upplesari. Það er vissulega
ánægjulegt að hugsa til þess, að
rödd hans mun varðveitast um
ókomin ár öðrum til ánægju.
Það er svo ótal margs að
minnast og mikið sem við vinir
hans höfum að þakka fyrir. Og víst
megum við vera þakklát að hann
þurfti ekki að heyja langt og erfitt
dauðastríð. Hann var sjálfum sér
nógur og fremur veitandi en
þiggjandi allt sitt líf. Hress og
kátur til síðustu stundar.
Ég votta systrum hans og
aðstandendum öllum mína innileg-
ustu samúð. Minning Dags Bryn-
* júlfssonar mun lifa með öllum er
kynntust honum.
Edda Ársælsdóttir.
MMMÉáMÁ
Gestir fá að bragða
á mjólkurvörum
Mjólkursamsalan sýnir á land-
búnaðarsýningunni allar þær
vörur, sem samsalan selur og auk
þess selur Mjólkursamsalan á
sýningunni vörur á sérstöku
kynningarverði og býður gestum
að bragða á nokkrum.
Að sögn starfsmanna Mjólkur-
samsölunnar er selt jógúrt og
G-vara á sérstöku verði á sýning-
unni. Jógúrtið, sem hér um ræðir,
er selt á 500 krónur, sex dósir í
pakka og eru í hverjum pakka
jógúrt með sveskjum, kaffijógúrt,
jógúrt með blönduðum ávöxtum,
jarðarberjajógúrt og bláberja-
jógúrt. Auk þess er gestum boðið
að bragða á kaffijógúrtinni og
jógúrt með sveskjum einu sinni á
dag, en matvælakynning Mjólkur-
samsölunnar er á mismunandi
tíma dag hvern og stendur í eina
klukkustund.
Þá eru seldir pakkar sem
innihalda fjóra og hálfan lítra af
svonefndri G-vöru. Pakkar þessir
kosta 1200 krónur og innihalda
allar tegundir G-vöru, sem fram-
leiddar eru. Einnig er kókómjólk
seld á sérstöku kynningarverði.
Auk þess að kynna jógúrt
kynnir Mjólkursamsalan mysu-
drykk, sem er blanda úr mysu og
Flóridanaþykkni og eru hlutföllin
þrír af mysu á móti einum af
Flóridana. Hefur mysudrykkur
þessi hlotið góðar viðtökur gesta á
sýningunni. Þá kynnir samsalan
jarðarberjaskyr og Emm-ess
frómase, en af því eru framleiddar
þrjár tegundir.
Kynningu Mjólkursamsölunnar
hefur verið sérstaklega vel tekið,
að sögn starfsmanna, en sala
hefur ekki verið eins góð, þótt svo
hún hafi verið alveg sæmileg.
Aukin þjónusta
Sérpantanir á Ulferts
húsgögnum.
Hafið þið leitað lengi að réttu húsgögnunum?
Farið búð úr búð og ekki fundið það rétta?
í vali á húsgögnum ræður smekkur miklu. Nýi
Ulferts litmyndalistinn er fullur af smekklegum
húsgögnum: Raðstólum, borðum, stólum, rúmum ofl.
Þið finnið áreiðanlega eitthvað við ykkar hæfi.
Skrifið eftir nýja Ulferts litmyndalistanum og
veljið síðan eftir ykkar eigin smekk.
Eins og áður er úrval Ulferts húsgagna
að jafnaði til á lager verslunarinnar.
HúSGflcnnvERSLun
KRISTJflnS
SIGGEIRSSOnflR HF.
LAUGAVEG113 REYKJAVIK SIMI 25870
Til Kristjáns Siggeirssonar hf.
Laugavegi 13,101 Reykjavík.
Vinsamlega sendið mér ókeypis Ulferts
litmyndalistann.
Nafn:
Heimilisfang: