Morgunblaðið - 09.09.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978
29v
fclk í
fréttum
+ Hinn nýkjörni páfi Jóhannes Páll I. sést hér ganga til hásætis síns í Vatikaninu.
A áheyrendabekkjunum eru blaðamenn heimspressunnar, en þetta var fyrsti
fundur páfans með blaðamönnum.
+ FYRIR nokkru játuðu hjón
fyrir rctti í Kaliíorníu að hafa
framið mannrán það er framið
var á heimili bandaríska blaða-
kóngsins Hearst. er dóttur hans
Patricíu var rænt. lljónin heita
Emily og William Harris. lið-
lega þrítug bæði. Þetta er
Ilarris. Þau höfðu setið hlið við
hlið í réttarsalnum og haldizt í
hendur. Ilarris sagði í salnum.
svo að allir máttu heyra. að þau
tækju á sig afleiðingar allar af
því að hafa framið fyrsta
pólitíska mannránið í þcssu
landi (Bandaríkjunum). —
Myndin er tekin er William
yfirgaf réttarsalinn, eftir játn-
ingu þeirra hjóna.
+ FYRIR fáeinum árum var tæplega hægt að fletta
dagblaði án þess að rekast á mynd af manninum til
hægri á þessari mynd. Sá er fyrrum utanríkisráð-
herra og Nóbelsverðlaunahafi, Henry Kissinger.
Myndin er tekinn í leikhúsi einu að tjaldabaki en
með honum er leikarin frægi Jack Lemmon.
+ Við höfum lesið fréttir um vaxandi fjölda hvítra flóttamanna
frá Ródesíu. — Þetta er einmitt mynd þaðan. Hún sýnir bílalest
hvítra Rodesíumanna á leið hurt frá landinu fyrir fullt og allt.
— Fremst á myndinni má sjá hervörð með bflalestinni í
Landrover. en á bflinn er fest vélbyssa hermannsins. Um 600
manns yfirgefa nú Ródesíu á mánuði hverjum.
Lýst gjaldþrota
SKIPTARÁÐANDINN í Reykja-
vík auglýsir í síðasta tölublaði
Lögbirtingablaðsins að eftirtalin
þrjú fyrirtæki hafi verið tekin til
gjaldþrotaskipta og skorar á þá,
sem eiga kröfur á hendur þessum
fyrirtækjum að lýsa þeim við
skiptaráðanda. Þessi fyrirtæki eru
J.P.Guðjónsson h.f., Tröð h.f. og
Cudogler h.f.
Brezk sjávar-
útvegssýning
í Reykjavík
DAGANA 3. og 4. október verður
brezk sjávarútvegssýning haldin á
Hótel Loftleiðum. Það er British
Marine Equipment Council, sem
stendur fyrir þessari sýningu. Á
sýningunni verður sýnt allt það
helzta sem Bretar framleiða á
sviði sjávarútvegs, bæði vélar,
tæki, veiðibúnaður o.fl.
Skora á nýju ráð-
herrana að veita
ekki áfengi í
veizlum
ÍSLENSKIR ungtemplarar hafa
sent öllum ráðherrum hinnar
nýju ríkisstjórnar áskorun þess
efnis að þeir veiti ekki áfengi í
veizlum sínum. Skeytið til ráð-
herranna er svohljóðandi.
„Oskum yður gæfu í nýju starfi.
Vettvangur okkar er áfengislaust
félagsstarf æskufólks. Erfiðasti
andstæðingurinn er áfengistískan.
Stórkostleg þáttaskil gætu orðið ef
ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar
sameinuðust um að veita ekki
áfengi í veislum sínum. Það er-
staðföst trú okkar að í framtíðinni
muni yfirvöld í menningarríkjum
vinna þannig gegn áfengistísku og
áfengisneyslu. Við yrðum stolt og
þakklát ef islenskir ráðherrar
sýndu þaö fordæmi sem í framtíð-
inni yrði minnst. sem eins merk-
asta áfangans í erfiðri varnarbar-
áttu gegn þessum ógæfuvaldi."
m
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiöar og ógangfærar bifreiöar er
veröa sýndar aö Grensásvegi 9, þriöjudaginn 12.
sept. kl. 12—3. Tilboöin veröa opnuð í skrifstofu
vorri kl. 5.
Sala varnarliðseigna.
m
I Orð Krossins
Fagnaóarerindi veröur boöaö á íslensku frá Trans
World Radio, Monte Carlo, á hverju mánudags-
kvöldi kl. 23.15—23.30.
Sent veröur á miöbylgju 205 metra (1466 KHz)
Ath.: Breyttur tími og bylgjulend.
Orö Krossins pósth. 4187 Reykjavík.
Austurbær: Laugavegur 1-33,
Skúlagata,
__ _ Samtún,
Vesturbær: Hringbraut 92-121,
Kvisthagi,
Miöbær,
Hávallagata,
Ásvallagata II
Úthverfi:
Langholtsvegur 110—208
Laugarásvegur 38—77
Austurbrún frá 8.
Seltjarnarnes: Látraströnd.
argtmÞfafrifc
Uppl. í síma 35408.