Morgunblaðið - 13.09.1978, Side 1
32 SÍÐUR
207. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rhódesíudeilan:
Skæruliðafor-
ingja greinir á
Sadat og Carter íhuga
nýjar tillögur Begins
%***•
Leyniskyttur uppreisnarmanna láta mjög til sín taka í Masaya, og ganga hermenn Somoza hér fram
í skjóli herjeppa á götu í borginni í gær. (AP símamynd.).
Nicaragua:
Algjört neyðar-
ástand í Masaya
Managua — 12. sept. — AP — Reuter
MIKLIR bardagar geisuðu í allan
dag í borginni Masaya í
Niearagua. og má telja víst að
tala fallinna og særðra í borginni
skipti nú hundruðum. í kvöld
bárust af því fregnir að um 300
manna lið Somozas væri að
undirbúa mikla sókn gegn upp-
reisnarmönnum í borginni, en
uppreisnarmenn segjast hafa
hana á valdi sínu að mestu.
Algjört neyðarástand ríkir í
Masaya og er Rauða kross-liðum
og fréttamönnum meinaður að-
gangur að henni. Fyrr í dag voru
þjóðvarðliðar sagðir ganga hart
fram gegn uppreisnarmönnum.
sem nú ógna veldi Somoza forseta
og fjölskyldu hans í landinu.
Barizt er í mörgum borgum og
bæjum. en ástandið í höfuðborg-
inni. Managua, er þó tiltölulega
rólegt. enda þótt þar megi enn
heyra skothríð og sprengingar
öðru hverju.
Hermenn Somozas segjast hafa
fundið gífurlegt magn vopna í
fórum uppreisnarmanna í
Managua, en í borginni hafa verið
gerðar gífurlegar varúðarráð-
stafanir, og hvarvetna má sjá
hermenn Somozas i viðbragðs-
stöðu, meðal annars á þökum
helztu bygginga.
Herflugvél frá Nicaragua fór í
dag yfir á landsvæði Costa Rica,
ög segir stjórn landsins að
sprengju hafi verið varpað á
bifreið með þeim afleiðingum að
maður hafi látið lífið. Somoza lýsti
því yfir í kvöld að hermenn hans
hefðu heft för 50 skæruliða, sem
hafi ætlað yfir landamæri Costa
Rica, og hvatti hann stjórnina þar
til að efla vörð við landamærin.
Ljóst er að stjórnir nágranna-
ríkja Nicaragua hafa miklar
áhyggjur af ástandinu, og Peres
forseti Venezúela sagði í dag, að í
Nicaragua geisaði nú borgara-
styrjöld, um leið og hann skoraði
á Sameinuðu þjóðirnar og samtök
Ameríkuríkja að grípa i taumana
og tryggja frið í þessum hluta
álfunnar.
Somoza sýnir enn engin merki
þess að hann hyggist verða við
kröfum um að hann segi af sér.
Ekkert lát hefur orðið á verkföll-
um, og nú er talið að í höfuðborg-
inni séu 75% vinnandi fólks í
verkfalli, en allt að 90% i öðrum
helztu borgum landsins. Óttast
ýmsir að því iengur sem Somoza
þverskallast við að segja af sér
þeim mun styrkari verði staða
uppreisnarmanna meðal frið-
samra borgara, en það dragi aftur
úr líkum á því að eðlilegt ástand
komist á í landinu á næstunni.
400 létu
llfid á
flótta frá
Kambídíu
Banxkok — 12. srptembrr — Reuter.
IIIN opinbera fréttastofa Víet-
nams skýrði frá því í dag að
nýlega hefðu um fiOO kambódískir
flóttamenn komið til landsins. en
Lusaka — Salisbury —
12. september — AP — Reuter.
VONIR um að þrátt íyrir yfirlýs-
ingar Joshua Nkomos að undan-
förnu verði unnt að koma á fundi
allra aðila í Rhódesíudeilunni
innan tíðar vöknuðu óvænt í dag
er einn af leiðtogum Þjóðernis-
fylkingarinnar, Edgar Tekere.
lýsti því yfir að Nkomo hefði ekki
umboð til þess að standa gegn
samningum eða fundi allra deilu-
aðila. Tekere er einn helzti
stuðningsmaður Mugabes, og
kvað hann Zanuarm fylkingar-
innar hyggja á þátttöku í fundin-
um, sem stjórnir Bandaríkjanna
og Bretlands hafa á undanförn-
um mánuðum lagt mikið kapp á
að haldinn yrði.
Öryggislögreglan í Rhódesíu
handtók í dag þrjá úr hópi helztu
stuðningsmanna Nkomos, og
óstaðfestar fregnir eru um að þar
að auki hafi 200 aðrir úr hreyfingu
hans verið handteknir í herferð
þeirri sem stjórn Ian Smiths hefur
farið gegn skæruliðum í hefndar-
skyni fyrir'þá 48, sem létu lífið er
Nkomo-menn skutu niður farþega-
flugvél á dögunum.
Ummæli Tekeres í dag hafa
vakið mikla athygli, enda þótt enn
hafi hvorki Nkomo né Mugabe tjáð
sig um málið, en þetta er í fyrsta
skipti sem yfirlýsingar skæruliða-
Joshua Nkomo.
Camp David — 12. scpt. — AP.Reuter.
HAFT VAR eftir áreiðanleg-
um heimildarmönnum í
Camp David í kvöld að
ísraelsmenn hefðu lagt fram
nýjar friðartillögur í dag, og
hefðu samninganefndir
Bandaríkjanna og Egypta
þær nú til athugunar. Ekki er
vitað í hverju þessar tillögur
eru fólgnar, en í ráði var að
Sadat og Carter hittust í
foringjanna stangast alvarlega á á
opinberum vettvangi um langa
hríð.
Castro
kominn til
Eþíópíu
Naíróbí — 12. september. Reuter.
FIDEL Castro forseti Kúbu
kom í dag til Eþíópíu til að vera
viðstaddur hátíðahöld, sem
herforingjastjórn Mengistus
efnir nú til í tilefni þess að
fjögur ár eru liðin frá herfor-
ingjabyltingunni þegar Haile
Selassie var steypt af stóli.
Castro hafði viðkomu í Moskvu
á leiðinni til Eþíópíu, og áttu
„félagi Kosygin og félagi Castro
þar saman hlýlegan vinafund",
að því er Moskvuútvarpið
skýrði frá í kvöld.
í sambandi við byltingarhá-
tíðina í Eþíópíu talaði Mengistu
á fjölmennum útifundi, og réðst
hann þar í fyrsta skipti á
stjórnina í Kína. Sakaði Meng-
istu Kínverja um íhlutun í
Erítreu og samvinnu við banda-
rísku leyniþjónustuna, og að
standa í vegi frelsishreyfinga í
mörgum löndum.
Óljósar fregnir hafa borizt af
nýrri sókn aðskilnaðarsinna í
Erítreu á hendur stjórnarher
Eþíópíu, og hefur talsmaður
EPLF-hreyfingarinnar sagt að
um helgina hafi aðskilnaðar-
sinnar fellt og sært um 300
hermerfn stjórnarinnar.
kvöld til að ræða þær. Carter
forseti er sagður leggja mjög
að ísraelsmönnum þessa
stundina um að slá af vissum
kröfum, en enn er talið of
snemmt að spá um árangur
af fundinum.
Enn er ekkert fararsnið að sjá
á fundarmönnum í Camp David,
og er almennt taliö að fundurinn
standi að minnsta kosti fram á
fimmtudag. Sadat og Begin hafa
ekki hitzt á fundi síðan á fimmtu-
daginn var, en Carter forseti ber
boð á milli þeirra.
Haft var eftir ónafngreindum
heimildarmanni, að enn sem fyrr
væri það aðalvandamálið að fá
Israelsstjórn til að fara málamiðl-
unarleið, og enn lægi ekkert fyrir
um það að Carter tækist að koma
á sáttum. Hins vegar lýstu tals-
menn Carters því yfir í Hvíta
húsinu í dag, að staðhæfingar frá
því um helgi um að árangur hefði
þegar náðst varðandi ýmis mikil-
væg atriði stæðu enn, en hins
vegar væri enn ágreiningur um
önnur.
Eftir að Sadat Egyptalandsfor-
seti ræddi við Hussein Jórdaníu-
könung í síma í gær kom upp
kvittur um að sá síðarnefndi væri
væntanlegur til Camp David til að
taka þátt í friðarviðræðunum, en
á fundi með fréttamönnum í dag
kvaðst blaðafulltrúi Carters ekki
hafa neina vitneskju um slíka
heimsókn.
400 létu
lífió á
flótta frá
Kambídíu
Banickok — 12. september — Reuter.
IIIN opinbera fréttastofa Víet-
nams skýrði frá því í dag að
nýlega hefðu um 600 kambtidískir
flóttamenn komið til landsins. en
á leiöinni hefðu 100 manns látið
lífið. Hefðu Rauðu khmerarnir
ýmist skotið fólkið eða kastað að
því sprengjum, en einnig hefðu
margir orðið hungurmorða á
leiöinni eða hnigið niður af þreytu
og vosbúð.
Haft er eftir leiðtoga flóttafólks-
ins, Tich Xu, sem sagður er „féiagi
í kommúnistaflokknum", að flótt-
inn hafi tekið 23 daga, en lagt hafi
verið upp frá Kamchay Mea, Sem er
miðju vegu milli Pnom Penh og
landamæranna að Víetnam. Segir
Tich Xu að í maí s.l. hafi það frétzt
í Kamchay Mea, að þjóöernissinnar
væru að rísa upp gegn stjórn Rauðu
khmeranna, og hafi hann þá hvatt
fólk til að safna vistum handa
uppreisnarmönnum. Hafi khrner-
arnir komizt á snoðir um birgða-
söfnunina, gengið berserksgang, og
byrjað hafi verið á því að afvopna
alla verði og hermenn á þessum
slóðum. Hafi þeir síðan verið
brytjaðir niður, en því næst hafi
röðin komið að óbreyttu plantekru-
fólki og hafi lyktir orðið þær, að
aðeins örfáir íbúar á svæðinu hafi
komizt lífs af.