Morgunblaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1978 3 „Snyrti- vörum hamstrað” „ÞETTA er í fyrsta skipti, sem ég upplifi að fólk hamstri snyrtivörur. Verzlunin hefur aldrei verið neitt þessu lík,“ saicði verzlunarstjórinn snyrtivöruverzluninni Oculus. Verzlunarstjórinn sagði, að fram til þessa hefði afgreiðslu- fólk í snyrtivöruverzlunum ekki svo mikið sem orðið vart við örtröð í verzlunum, þó gengis- felling hafi skollið á. Hins vegar gegndi nú öðru máli, þegar fyrst hefði komið gengisfelling og síðan hækkun vörugjalds á snyrtivörum. Meðalhljómflutningstæki hækka um „ÞAÐ ER ljóst að vegna geng- isfcllingar og hækkaðs vöru- gjalds hækkar hljómflutnings- samstæða, sem áður kostaði 258.195 kr„ um 84.478 kr. eða hátt í 100 þús. kr.,“ sagði Þorgeir Björnsson verzlunar- stjóri í Gelli þegar Mbl. spurði hann um hvaða áhrif gengis- felling og hækkað vörugjald hefði á hljómfiutningstæki. Þorgeir sagði, að hljómtækja- samsta'ðan. sem hann talaði um. væri meðalgóð samstæða. 85 þús. kr. Við gengisfellinguna hefði hún hækkað um kr. 46.708 og hækkun vörugjalds úr 16% í 30 hefði síðan þýtt 35.774 kr. hækkun, þannig að nú kostaði þessi sama samstæða kr. 342.677 kr. „Það hefur verið gífurleg eftirspurn eftir hljómflutnings- tækjum síðustu daga og sjálfir erum við búnir að selja allt, og svipað mun vera hjá öðrum verzlunum á þessu sviði.“ Hljómplötur rifnar út „SALA A hljómplötum hefur verið hreint ótrúleg síðustu daga. en það sem gerir örtröð- ina hvað mesta hjá okkur er, að við höfum verið með hljóm- plötuútsölu undanfarið. Ann- ars hefur það gerzt síðan fólk frétti um hækkun vörugjalds á hljómplötum, að allt er rifið út,“ sagði verzlunarstjórinn hjá Fálkanum. Að sögn verzlunarstjórans þá óttast margir að mjög muni draga úr hljómplötusölu á næstu vikum, jafnvel það mikið að einhverjar hljómplötuverzl- ananna muni gefast upp. »Mt gjaldpínt nema léreftíð” „EF VIÐ lítum út um gluggann þá sjáum við ekkert nema listmálara. Þcir hamast við að taka hér út,“ sagði Eggert Kristinsson forstjóri Málarans, en samkvæmt bráðabirgðalög- um ríkisstjórnarinnar flytjast allir litir í nýja 30% vörugjaldsflokkinn. „Þetta er allt gjaldpínt nema léreftið," sagði Eggert, er Mbl. spurði um tolla og vörugjald af málaravörum." Það er 35% tollur á litunum og 14 tollur á penslunum, en á þá leggst ekkert vörugjald." Eggert sagði að hreinlætis- vörur sem hans fyrirtæki verzl- ar einnig með hefðu nú verið settar í 30% vörugjaldsflokkinn. „Tollar á hreinlætisvörum hafa farið hríðlækkandi síðustu ár- in,“ sagði Eggert. „Og nú er á þeim 16% tollur. Mönnum finnst hart að hrein- lætisvörur skuli falla undir 30% vörugjald, meira að segja tann- kremið, en ég man nú þá tíð, að hreinlætisvörur voru taldar af stjórnvöldum slíkur lúxus að á þær var lagður 125% tollur." 3 milljóna króna aukaskattur á meðaltogara SKATTLAGNING sú, sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja á afskriftir, þýðir 3 millj. kr. í aukaskatt á hvern meðaltogara í land- inu, ef miðað er við s.I. ár. Kom þetta fram þegar Morgunblaðið ræddi við Kristján Ragnarsson for- mann Landsambands ísl. útvegsmanna í gær. Meðalafskriftir af skut- togara munu hafa verið 50—60 millj. kr. á s.l. ári, en eðlilega eru afskriftirnar mjög mismunandi, því ekki er sama hvort skipið er gamalt eða nýtt og hvort það hefur aflað upp í afskriftir. Nýi aukatekjuskatturinn er 6% og ef miðað er við 50 millj. kr. afskriftir þarf hver útgerð að borga 3 millj. kr. í aukaskattinn. Hins vegar verður þessi upphæð mun hærri á nýju skipunum heldur en þeim eldri, sem kannski er búið að afskrifa mikið til. 200 ófrosnir dilka- skrokkar til Parisar og Kaupmannahafnar ÁRDEGIS í dag verða fluttir til Um 100 dilkar fara til hvorrar Parísar og Kaupmannahafnar með borgar og verða þeir fluttir út í flugvélum frá Keflavfkurflugvelli um 200 ófrosnir dilkakjötsskrokkar. vöruflutningarými farþegavéla. Fer sendingin beint til Kaupmannahafnar en sendingin til Parísar fer með flugi til Luxemborgar og þaðan verður kjötið flutt með kælibíl til Parísar. — Þetta er tilraun með útflutning á ófrosnu kjöti og það fer eftir þeim undirtektum, sem þessar sendingar fá, hvort framhald verður á þessum útflutningi en verð fyrir ófrosið kjöt er hærra en fyrir frosið í þessum löndum, sagði Jón. Er hér um tilraun að ræða í útflutningi dilkakjöts héðan og stendur Markaðsnefnd landbúnaðar- ins ásamt Búvörudeild SÍS fyrir þessari tilraun og fer Jón R. Björnsson starfsmaður Markaðs- nefndarinnar utan með kjötsending unni til Parísar og kemur í bakaleið- inni við í Kaupmannahöfn. Þessum dilkum var slátrað í Sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands á Selfossi á mánudag og var síðdegis í gær unnið að því að pakka skrokkunum f sérstakar umbúðir. Verið er að pakka dilkakjötinu sem í morgun var flutt ófrosið til Parísar og Kaupmannahafnar. Var myndin tekin í Sláturhúsinu á Selfossi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.