Morgunblaðið - 13.09.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1978
5
Fimmtíu þús. kr.
til Strandakirkju
ÞAÐ HEFUR einatt komið
fyrir, að ritstjórum Morgun-
blaðsins séu send áheit á
Strandakirkju, stundum mjög
háar upphæðir án þess þó að
þær séu í ábyrgðarpósti. Aður
hefur þess verið óskað að slík
bréf séu ekki send í almennum
pósti og helzt ekki til ritstjóra
blaðsins, heldur til réttra aðila.
En þessu hefur ekki alltaf verið
sinnt og nú síðast í fyrradag
barst ritstjóra Mbl. í hendur
póstlagt bréf með 50 þús. kr.
áheiti á Strandakirkju, án þess
það væri í ábyrgðarbréfi. Á
umslagi, sem fylgdi stenduri
Hjer með með kr. 50.000.00,
sem eiga að fara í sjóð Stranda-
kirkju í Selvogi. Þjer gerið svo
vel að koma peningunum til
skila.
X+D.
Peningunum hefur nú verið
komið tii skila á bókhald Mbl„
eins og um er beðið, en þess er
vinsamlega vænzt að slfkar
peningasendingar séu ekki
oftar sendar ritstjórum blaðs-
ins, heldur beint í áheitasjóð-
inn. Bréf geta týnzt eða misfar-
izt og því öruggast að senda
þau í ábyrgð til réttra aðila. En
Ijúft er að efla Strandakirkju
og ritstj. blaðsins vilja að
sjálfsögðu taka þátt í þvi, þó að
þeir vilji ekki vera milliliðir
vegna áheita og bera ábyrgð á
tugum þúsunda króna.
Hrossakaupstefna á
Hellu 23. sept n.k.
HROSSAKAUPSTEFNA verður
haldin á Hellu í Rangárvallasýslu
laugardaginn 23. september n.k.
og eru það Rangæingadeild Hags-
munafélags hrossabænda, Hesta-
mannafélagið Geysir og Kaup-
félag Rangæinga, sem standa
fyrir þessari kaupstefnu.
Verður kaupstefnan haldin í
tamningastöð Geysis á Hellu og á
sýningarsvæði félagsins. Fyrir-
komulag kaupstefnunnar verður
með þeim hætti, að gert er ráð
fyrir að eigendur hrossanna komi
með þau árdegis á laugardag og þá
verði þau metin í flokka eftir
gæðum af sérstakri dómnefnd. Að
þessu loknu verði gefin út ítarleg
skrá um hrossin en eftir hádegið
FEF undirbýr
flóamarkad
FÉLAG einstæðra foreldra er um
þessar mundir að undirbúa árlegan
flóamarkað sinn, sem verður í
Fáksheimilinu dagana 6., 7. og 8.
október n.k. Flóamarkaður FEF eru
orðnir árviss viðburður og eru.einnig
ein af drýgstu tekjulindum FEF.
Félagar og aðrir jákvæðir aðilar sem
vilja gefa muni á flóamarkaðinn hafi
samband við skrifstofu 11822 eða
framkvæmdastjóra í heimasíma á
kvöldin 32601. Allt er þakksamlega
þegið utan fatnaðar.
(Fréttatilkynning)
verði þau sýnd og geta kaupendur
þá lagt inn tilboð í hrossin en
tilboðin verða opnuð við lok
hrossakaupstefnunnar. Þarna
verða bæði á boðstólum tamin og
ótamin hross og sagði Magnús
Finnbogason, bóndi á Lágafelli,
sem er einn nefndarmanna í
framkvæmdanefnd kaupstefnunn-
ar, að þetta væri tilraun en áhugi
væri á því að kaupstefnur sem
þessi gætu orðið bæði vor og haust
í framtíðinni og auglýstar með það
löngum fyrirvara að útlendingar
ættu kost á að leggja leið sína
hingað vegna þeirra.
Auk Magnúsar eru 5 fram-
kvæmdanefndinni Halldór
Gunnarsson í Holti og Guðni
Jóhannsson á Hvolsvelli og eru
þeir, sem áhuga hafa á að láta
skrá hross á kaupstefnuna, beðnir
um að hafa samband við einhvern
nefndarmarina.
Háskólafyrirlestur
PRÓFESSOR Hans Kuhn frá
Canberra í Ástralíu flytur opin-
beran fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands fimmtu-
daginn 14. september 1978 kl. 17.15
í stofu 422 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist „Narra-
tive Structure and history in
Heimskringla" og verður fluttur á
ensku. Öllum er heimill aðgangur.
Höfðingleg gjöf til FEF
FÉLAGI einstæðra foreldra hefur
nýlega borizt myndarleg gjöf —
hálf milljón króna — frá velunn-
ara sem ekki vill láta nafns síns
getið. Fjárhæðin er arfshluti
gefandans eftir afa sinn og færð
FEF til minningar um ömmu hans
sem ól ein önn fyrir tvíburadrengj-
um sínum.
Fjárhæðin verður að
öllum líkindum vísir að sjóði sem
hugsaður verður til að aðstoða
ungar einstæðar mæður til náms.
(Fréttatilkynning)
„Gat nú verið! Hún er líka i Duffys“
Frumsnið tölvureiknuo.
100% amerísk bómull — þvegin.
Stærðir: 27, — 28, — 29, —
30, — 31, — 32, — 33, —
34, — 36, — 38. ^
gallabuxurnar
ÓWk MUNftþuk
Austurstræti
sími: 27211
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
I>1 AKiI.VSIRl M V1.I.T I.AND l>K(.AR
1>1 Al I.l.VSlR I MORfiVNBI.ADIM