Morgunblaðið - 15.10.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
27
Sextugur—Ölafur
Hjartar bókavörður
Árin líða hvert af öðru og fyrr
en varir hafa menn náð þeim aldri
að full ástæða er að geta þess með
nokkrum orðum.
Einn þessara manna er vinur
minn Ólafur F. Hjartar bókavörð-
ur sem er sextugur í dag.
Ólafur er fæddur á Suðureyri í
Súgandafirði, þar sem foreldrar
hans, Kristín Þóra Jónsdóttir og
Friðrik Hjartar skólastjóri,
bjuggu.
Ólafur var við nám í Mennta-
skólanum á Akureyri og varð
stúdent þaðan 1939. Kennarapróf
tók hann 1942. Síðan lagði hann
stund á bókvörslu í School of
Librarianship, University College,
í London. B.A.-próf í ensku tók
hann við Háskóla íslands 1954.
Eftir það starfaði Ólafur við
kennslu um skeið við barnaskólana
í Vestmannaeyjum, Siglufirði og
Akranesi. Kenndi einnig við Stýri-
mannaskólann, Námsflokka
Reykjavíkur, Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar og Flensborg í Hafn-
arfirði.
Hann var aðstoðarbókavörður
við bókasafn Háskóla íslands
1947—53. Starfsmaður fjármála-
eftirlits skólamála um eins árs
skeið og bókavörður við Borgar-
bókasafn Reykjavíkur.
Árið 1958 var Ólafur ráðinn
bókavörður í Landsbókasafni ísl.
og hefur starfað þar síðan.
Ólafur er félagshyggjumaður,
ungur að árum gekk hann í reglu
góðtemplara og hefur verið virkur
félagi þar um áratugi. Hann hefur
gegnt þar ábyrgðarstörfum, verið
gæslumaður í barnastúku og átt
sæti í framkvæmdanefnd Stór-
stúkunnar, framkvæmdastjóri
Áfengis- og bindindismálasýning-
ar haustið 1955. Umsjónarmaður
bindindisbókasafns G.T.-reglunn-
ar um árabil og skrásetti hann þá
safnið og flokkaði. Öll störf sem
honum hafa verið . falin hefur
Ólafur rækt af kostgæfni og
trúmennsku.
Ólafur er músíkalskur og söng-
elskur, leikur prýðisvel á orgel, og
hefur það oft komið sér vel þegar
þurft hefur að leita til hans í
félagsstarfinu.
Rýmingarsala
60—80% afsláttur á margskonar
ullarvörum.
Peysur, pils, kjólar, buxur o.fl.
Dalbær, Hverfisgötu 32.
Frá Hofi
Nýkomnar handskornar trévörur,
listiðnaður frá Fillipseyjum.
Ótrúlega fallegt úrval
hannyrðavörum og garni.
Hof
Ingólfsstræti 1.
af
Til sölu
Fasteignin Tunguháls 9, Rvík.
Stærö grunnflatar 450 fm.
Stærö samtals um 1000 fm.
Stækkunarmöguleikar um 600 fm.
Stærö lóðar 3.500 fm.
Hentugt fyrir iönaö, heildverzlun, félagsheimili,
skemmtistaö.
Upplýsingar í síma 85020 og 82567 á kvöldin.
Nokkur rit liggja eftir hann,
sem hann hefur ritað einn eða með
öðrum og má þar nefna Bókasafns-
rit 1. ásamt Birni Sigfússyni,
Vorblómið ásamt öðrum, lítil bók
skrifuð fyrir börn og unglinga,
sem komið hefur út árlega s.l. 15
ár á vegum Unglingareglunnar.
Hann aðstoðaði við útgáfu á hinu
nýja Alþingismannatali, sem ný-
lega er komið út. Auk þess sem hér
er talið liggja fleiri rit eftir hann
sem hér verða ekki talin.
Ólafur er léttur á fæti og snar í
hreyfingum, fljótur að koma í
framkvæmd því verkefni sem fyrir
liggur. Hann er ekki málskrafs-
maður, en ákveðinn í tilsvörum og
segir meiningu sína hver sem í
hlut á. Heilsteyptur og orðheldinn.
Aðalstarf Ólafs hefur verið eins
og fyrr segir við bókasöfn og hefur
hann lagt sig fram um að kynna
sér þau störf sem best, og er því
mjög fær á þessu sviði, enda
áhugasamur um bækur og bókaút-
gáfu og fylgist þar mjög vel með.
Eiginkona Ólafs er Jóhanna
Sigríður Sigurðardóttir og eiga
þau þrjú börn, Svavar, Sverri og
Þóru. Þau hjónin hafa búið sér
gott heimili að Mosgerði 9 og
þangað hefur verið ánægjulegt að
koma. Ég vona að við spilafélag-
arnir eigum enn um stund eftir að
hittast og taka slag, eins og við
höfum gert um mörg liðin ár.
Ólafur, heillaóskir til þín og
fjölskyldu þinnar á þessum merku
tímamótum.
Kristján Guðmundsson.
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar Fram
Knattspyrnudeild Fram heldur aöalfund sinn í
félagsheimilinu viö Safamýri í dag 15. október kl.
2.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Fdtamarkaóur
Drengjabuxur frá 900.-
Barna gallabuxur frá kr. 2.200-
Drengjaskyrtur frá kr. 700-
Smekkbuxur frá kr. 2.200,-
Herrabuxur frá kr. 3.200.-
Kvennbuxur frá kr. 3.500.-
Peysur, sokkar og margt fleira á góðu verði.
Mikíö úrval af allskonar efnisbútum.
Komið skoðið og gerið góð kaup.
Buxna- og bútamarkaðurinn
Skúlagötu 26.