Morgunblaðið - 14.11.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEM3ER 1978
DaKurinn styttist sílellt oj? ljósatíminn lenKÍst. Með þessari mynd sem tekin var á Skúlagötunni í gær
mætti minna ökumenn á að aka með ljósum, helzt allan daginn. Ljósm. Iiax.
fslenzkir verkalýðsforingjar í kynnisferð í Noregi:
Undirbúningur að samninga-
gerð við Járnblendifélagið
SAMÞYKKT heíur verið að hefja samningaviðræður vegna væntanlegra starfsmanna járnblendiverksmiðjunnar
á Grundartanga, um störf manna við framleiðslu og rekstur verksmiðjunnar. Gcrður verður einn samningur við
allt starfsfólk verksmiðjunnar, svo sem gert var við starfsfólk álversins í Straumsvík á sínum tíma. Aðilar að
samningnum verður járnblendiverksmiðjan annars vegar og Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélagið Hörður í
Hvalfirði, Sveinafélag málmiðnaðarmanna á Akrancsi, Verkamannasamband íslands. Málm— og
skipasmíðasamband íslands og Rafiðnaðarsamband íslands hins vegar.
Sex fulitrúar úr samninganefnd verkalýðsfélaganna fóru nýlega utan til Noregs til undirbúnings þessari
samningagerð — ásamt forstjóra Járnblendifélagsins h.f., Jóni Sigurðssyni, og væntanlegum framleiðslustjóra
fyrirta'kisins, Össuri Kristinssyni. Skoðuðu þessir aðilar tvær járnblendivcrksmiðjur í Noregi, sem eru í eign
Elkem Spiegelverket.
Öldungadeild við F jöl-
brautaskólann í Breið
holti næsta haust?
Guðjón Jónsson, formaður Málm-
og skipasmíðasambands Islands, var
einn þeirra fulltrúa sem fóru til
Noregs. Guðjón sagði í samtali við
Morgunblaðið að fyrst heföu þeir
félaðar skoðað Saltenverksmiðjuna,
sem staðsett er í nágrenni Bodö.
Guðjón sagði að þessi verksmiðja
væri tiltölulega ný, reist um og eftir
1970, 3ja ofna verksmiðja. A einum
þriggja ofna verksmiðjunnar eru
hreinsitæki fyrir útblástur hennar.
Ræddu þeir félagar við forystumenn
og trúnaðarmenn starfsfólksins um
launa- og kjaraatriði, svo og slysa-
tölfræði. Síðan var haldið til Kristi-
ansand, en þar er önnur járnblendi-
verksmiðja, Fiskaa- verksmiðjan,
sem er nokkru eldri en verksmiðjan í
Bodö.
I Fiskaa- verksmiðjunni hittu
fulltrúar verkalýðsfélaganna 12 Isl-
LOKIÐ er með dómsátt máli því.
sem spratt af kæru verðlagsskrif-
stofunnar . s.l. vor á hendur
forráðamönnum heildverzlunar-
innar John Lindsay hf fyrir of
háa álagningu.
Varð niðurstaðan sú að forráða-
mennirnir, þrír að tölu, sam-
þykktu að greiða sektir, samtals
að upphæð 750 þúsund krónur, og
gerður var upptækur ólöglegur
endinga, sem þar hafa verið í
starfsþjálfun til undirbúnings starfa
þeirra á Grundartanga. Fengu þeir
upplýsingar um reynslu þeirra. Kvað
Guðjón þá félaga hafa komið birga
heim af alls konar upplýsingum, sem
að gagni kæmu við samningagerðina.
Guðjón Jónsson kvað störf í
járnblendiverksmiðjum heldur
óþrifaleg, mikið væri af svörtu ryki á
vinnustaðnum og mikill hiti frá
ofnunum. „Ef bera á þetta saman við
störf í kerskálanum í Straumsvík, þá
er hér um snöggtum óþrifalegri
vinnuaðstöðu að ræða,“ sagði Guðjón
Jónsson. „I Fiskaa var verið að gera
við einn ofnanna, sem þó var fullur
af heitum málmi. Minnti þetta einna
helzt á það, þegar verið var að gera
við kolakynnta gufukatla í gamla
daga. Nú en okkur var sagt, að
Grundartangaverksmiðjan yrði öll
hagnaður vegna rangrar og of
hárrar álagningar, samtals krónur
3.217.117.00.
Verðlagsstjóri kærði heild-
verzlunina fyrir verðlagsdómi
Reykjavíkur s.l. vor eftir að hafa
haft fyrirtækið í athugun um
nokkurn tíma. Kom í ljós að
fyrirtækið hafði haft of háa
álagningu um nokkurra mánaða
skeið eða mánuðina júní til
nóvember 1977.
mun nýtízkulegri en þessar og að sú
tækni, sem þar yrði notuð myndi
draga mikið úr þessu svarta ryki, t.d.
þyrfti ekki á sama hátt að skara í
ofnana og þurfti að gera í Fiskaa.
Þetta eru atriði, sem við eigum nú
eftir að sjá,“ sagði Guðjón.
Hingað kom nýlega til lands
Arthur Svenson, formaður verka-
lýðssambands norsks efnaiðnaðar.
Guðjón Jónsson sagði að samkvæmt
viðtölum, sem forystumenn í íslenzk-
um stéttarfélögum áttu við hann,
hefði komið fram, að hann teldi að
allir möguleikar yrðu á talsvert
skárri vinnuaðstöðu í Grundar-
tangaverksmiðjunni. Grundartanga-
verksmiðjan á að fara í gang
samkvæmt áætlun hinn 1. apríl
næstkomandi. Guðjón Jónsson kvað
hugsanlega fyrst gerðan bráða-
birgðasamning, sem síðan yrði
lagfærður með hliðsjón af fenginni
reynslu, er verksmiðjan fer í gang.
Hann kvað þessa ferð utan til
Noregs hafa verið i senn mjög
gagnlega og fróðlega fyrir samn-
inganefnd verkalýðsfélaganna, sem
gera á samninga við Járnblendifé-
lagið.
LEIFUR Auðunsson frá I)al-
seli, síðar bóndi á nýbýli, er
hann stofnaði í Austur-Landeyj-
um. Leifsstöðum, lézt á Grens-
ásdeild Borgarspítalans, hinn
9. nóv. sl.
Leifur Auðunsson tók virkan
þátt í flokksstarfi Sjálfstæðis-
flokksins og átti sæti á fjölmörg-
um landsfundum hans. Leifur
Auðunsson var í framboði til
Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn í N-Þingeyjarsýslu á sínum
tíma.
Leifur Auðunsson var fæddur
26. febrúar 1907 og stofnaði
hann nýbýlið að Leifsstöðum
UM NOKKURT skeið hefur verið
í athugun hvort ráðlegt þykir að
setja á stofn öldungadeild við
Fjölbrautarskólann í Breiðholti
og sagði Guðmundur Sveinsson
skólameistari í viðtali við Mbl., að
málið væri komið á talsverðan
rekspöl, cn hefði ekkert verið
ákveðið enn sem komið væri.
Sl. vetur var borin fram um það
tillaga í fræðsluráði og síðar í
horgarstjórn að öldungadeild
yrði komið á fót við skólann og
sagði Guðmundur að fræðsluráð
hefði unnið að undirbúningi
málsins ásamt nefnd og sagði
hann jafnframt, að skólinn teldi
sig tilbúinn að bjóða slíkt nám.
hann hefði aðstöðu og kennara og
teldi hann skylt af skólans hálfu
að það yrði notfært.
Guðmundur Sveinsson sagði, að
tillögur hefðu mótast um að nám
yrði boðið á þessum sviðum:
AlnTennu bóknámssviði, listasviði,
tæknisviði og viðskiptasviði. Þá
sagði Guðmundur Sveinsson að
mál þetta hefði verið kynnt á
sérstökum fundi í skólanum í
október si. og hefði verið til
umfjöllunar hjá fræðsluráði nú í
haust, en honum væri ekki kunn-
ugt um endanlegar ákvarðanir.
Kristján Benediktsson form.
fræðsluráðs sagði í samtali við
Mbl. að rætt hefði verið við
fyrrverandi menntamálaráðherra,
en málið hefði nokkuð dregist á
langinn m.a. vegna stjórnarskipt-
anna. Nú hefði aftur verið rætt við
menntamálaráðherra, Ragnar
Arnalds, og undirtektir héfðu
verið jákvæðar, en eftir væri að
ganga frá skiptingu kostnaðarliða
milli ríkis og borgar og sagði að
Nýlega var lokið við að bora 12.
holuna á svæðinu og er hún 2222
metra djúp og þar með dýpsta
holan, sem boruð hefur verið á
Kröflusvæðinu. Frummælingar
hafa verið gerðar á holunni að
undanförnu, en þær lofa ekki góðu.
Að vísu eru þær ekki endanlegar
árið 1954. Eftirlifandi kona hans
er Guðrún Geirsdóttir og eiga
þau 3 uppkomin börn.
áhugi væri mestur fyrir því að
koma upp öldungadeild á verzlun-
ar- og tæknisviðum, að mest
þörfin væri talin fyrir þessi svið.
Kristján taldi ekki mögulegt að
deildin hæfi störf um miðjan
janúar, eins og skólayfirvöld hefðu
áhuga á, en taldi líklegra að það
gæti orðið við upphaf næsta
skólaárs, og með því gæfist góður
tími til lokaundirbúnings.
5 ára dreng-
ur varð fyr-
ir vörubfl og
beið bana
ÞAÐ sviplega slys varð á Arnar-
bakka í Reykjavík á sunnudags-
kvöldið að fimm áa drengur,
Magnús Viktor Vöggsson, Jörfa-
bakka 16, varð fyrir vörubifreið og
beið bana. Magnús heitinn var
fæddur 12. maí 1973.
Slysið varð með þeim hætti að
verið var að strá af bifreiðinni salti á
götur í Breiðholtinu. Var hún með
saltdreifara á palli og ók hægt um
göturnar. Þegar hún kom í Arnar-
bakkann um klukkan 20.40 var hópur
barna og unglinga við Breiðholts-
skóla. Kvaðst ökumaður bifreiðar-
innar hafa ekið mjög rólega um
götuna en skyndilega hefði Magnús
tekið sig út úr hópnum og hlaupið
fyrir bílinn. Kvaðst ökumaðurinn
hafa bremsað stráx en um seinan.
Varð Magnús fyrir hægra framhjól-
inu og er talið að hann hafi látizt
samstundis.
og það kemur ekki í ljós fyrr en í
fyrsta lagi eftir þrjár vikur hvort
holan gefur eitthvert afl.
Þær holur á Kröflusvæðinu, sem
eru í blæstri, gefa 2—3 megawött,
en það er ekki nóg til að starf-
rækja virkjunina. Mest gufa fer í
fyrstu megawöttin, en það sem
síðan fæst nýtist beint til orku-
framleiðslu. Með öðrum orðum
þarf mesta gufu til að koma
virkjuninni af stað, en síðan minni
gufu í hvert MW eftir það.
Að sögn Karls Ragnars var
fjárveiting til borana og annarra
verkefna Orkustofnunar á
Kröflusvæði 500 milljónir króna.
Ekki er enn ljóst hver kostnaður-
inn er orðinn við boranir og
viðgerðir á holum í ár, en auk þess
hefur hluti fjárveitingarinnar
farið í lagfæringar á stöðinni
sjálfri.
♦ ♦ »-----
Fyrstaumræða
fjárlagafrum-
varpsins í dag
Á fundi Sameinaðs Alþingis í
dag verður á dagskrá fyrsta
umræða um fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar.
Hefst fundur þingsins kl. 14.
Skyndihappdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Dregið eftir 4 daga
NÚ ERU aðeins 1 dagar þar til
dregið verður í Skyndihapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins —
dregið verður n.k. laugardag.
Það eru vinsamleg tilmæli til
þeirra, sem enn eiga ógerð skil á
heimsendum miðum, að þeir
geri skil sem allra fyrst. Skrif-
stofa happdrættisins er í Sjálf-
stæðishúsinu að Háaleitisbraut
1 og mun hún sjá um að senda
og sækja greiðslur til þeirra sem
óska eftir því. Skrifstofan er
opin alla duga vikunnar tii kl.
22 og síminn er 82900.
Sektaðir fyrir of
háa álagningu
x4uk þess gerðar upptækar rúmar 3.2 millj.
Leif ur Auðunsson
f rá Dalseli látinn
Hvorki ljós né ylur
frá Kröflu í vetur?
„VIÐ HÖLDUM enn í vonina, en það verður að segjast
eins og er að við erum ekki sérlega bjartsýnir á að
Kröfluvirkjun verði starfrækt í vetur, sagði Karl
Ragnars hjá Orkustofnun í samtali við Morgunblaðið í
gær. í septembermánuði síðastliðnum var gerð tilraun til
að steypa efra kerfið af í holu 12, en þær tilraunir tókust
ekki sem skyldi. Borinn Dofri hefur nú að nýju verið
fluttur á holuna og á næstunni verður gerð úrslitatilraun
til þess að loka efra kerfið af.