Morgunblaðið - 14.11.1978, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
Islendingar eta
7 6 kg af k jöti
í búnaöarblaðinu Frey er
sagt frá könnun á kjötneyslu
ýmissa þjóða undir fyrirsögn-
inni „Grettir át í málið eitt“.
Þar segir að Islendingar hafi
að meöaltali stúfað 76 kg af
kjöti árið 1977, þar af 46 kg
kindakjöts.
Tilefni fréttarinnar er
29555
Keupendur
Hundruð eigna á söluskrá.
Leitiö upplýsinga.
Seljendur
Skráið eign yðar hjá okkur.
Verömetum án skuldbindinga
og aö kostnaöarlausu.
Eignanaust
Sölumenn:
Finnur Óskarsson,
heimasími 35090.
Helgi Már Haraldsson,
heimasími 72858.
Lárus Helgason
29558
könnun, sem landbúnaðar-
ráðuneytið í Bandaríkjunum
gerði á kjötneyslu fólks í 50
löndum árið 1977. Miðað við
fyrri kannanir neyttu menn
nú meira kjöts í flestum
þessara land en áður. í fimm
löndum var kjötneysla á mann
meira en 100 kg á ári. Efst á
blaði var Ástralía með 120 kg
á mann, þá Bandaríkin með
113 kg á mann, Argentína 108
kg og Nýja Sjáland og Kanada
með rösk 100 kg. Sovétmenn
átu 48 kg af kjöti að
meðaltali, en E1 Salvador-
menn minna en 10 kg og voru
lægstir þeirra þjóða sem, sem
athugaðar voru.
Mest er etið af nautakjöti í
Argentínu, enda eru
Argentínumenn nautmargir.
Vestur-Þjóðverjar halda upp á
svínakjöt og borðuðu manna
mest af því.
Jörð til sölu
Til sölu húsalaus ca. 130 ha. jörö í næsta
nágrenni Selfoss.
Tilvaliö fyrir hestamenn.
Tilboö sendist augld. Mbl. fyrir 17. nóv. merkt: „Jörö
— 9901“.
Verkstæðishús —
Hveragerði
Höfum fengiö til sölu 115 ferm, verkstæöishús í
Hverageröi. Húsinu fylgir 612 fertn. lóö. Húsiö
stendur viö Þjóðbraut. Verö 10 millj., útb. 6 millj.
Allar nánari uppl. veittar á skrifstofunni.
Eignaval
Suöuriandsbraut 10, símar 33510, 85650, 85740.
Grétar Haraldsson hrl. Sigurjón Ari Sigurjónsson, Bjarni Jónsson.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ. LARUS Þ VALOIMARS
L0GM. JÓH. ÞÓROARSON HDL
Til sölu og sýnis m.a.
Rúmgóð byggingarlóö á úrvals staö
á Nesinu fyrir þríbýlishús. Lítiö hús íbúöarhæft stendur nú á
lóöinni. Uppl. aöeins á skrifstofunni.
Góö íbúö viö Kvisthaga
Kjallaraíbúö 76 ferm., nýleg teppi, sér inng. Sampykkt sér
íbúö.
4ra herb. íbúö meö bílskúr
viö Ásbraut í Kóp. á 4. hæð um 107 ferm. Rúmgóö 3
svefnherb. meö innbyggðum skápum. Útsýni.
Raöhús viö Ásgarð
meö 4ra herb. íbúö á tveim hæöum og ennfremur eitt—tvö
íbúöarherb., m.m. í kjailara. Ræktuö lóö. Útsýni.
Hæö og ris viö Reynimel
alls 5—6 íbúöarherb. Risið er nýtt, ekki fullgert. Trjágaröur,
tvennar svalir.
Skammt ffrá Háskólanum
3ja herb. nýleg íbúð í fjölbýlishúsi á 1. hæö um 80 ferm.
Sólrík íbúö, teppalögð meö vandaðri innréttingu.
Þurffum aö útvega
í Fossvógi nágrenni óskast 3ja—4ra herb. íbúö.
Rúmgott einbýlishús óskast. Skiptamöguleiki á minna
einbýlishúsi á úrvals staö.
í Laugarneshverfi nágrenni óskast góö 3ja—4ra herb. íbúö
meö bílskúr eöa bílskúrsrétti. Skipti möguleg á stórri hæö
meö bílskúr.
í-ja—3ja herb. íbúö óskast
í gamla bænum.
ALMENNA
FASTEI GNASATaTÍ
LAUGAVEGI 49 SÍMAR 21150-21370
Sigurgeir Sigurðsson bæ jarstjóri;
Flokkur allra
landsmanna
Gagnleg
og þörf
rádstefna
Jákvæd stjórn-
arandstaöa
Stétt meö
stétt
Stefnuskrá
Formanna- og
flokksráðsfundur
Um síðustu helgi var haldinn
formanna- og flokksráðsfundur
Sjálfstæðisflokksins. Mikill
fjöldi fulltrúa sótti ráðstefnuna,
sem tókst í alla staði vel.
Sjálfstæðismenn hafa nú hafið
gagnsókn eftir tapið í sumar og
hyggjast ná aftur sínum hlut
meðal kjósenda.
Aðalmál fundarins var
skýrsla nefndar er miðstjórn
skipaði í sumar. í þessari
skýrslu er gerð greinargóð
úttekt á þeim ástæðum, sen
nefndarmenn telja helstar hafa
valdið tapi okkar í sumar, en
áhugaverðari eru tillögur um
skipulagsbreytingar í flokknum
tjl styrktar starfinu framundan.
Þessar skipulagsbreytingar
hlutu góðar undirtektir og hafa
nú verið kynntar í fjölmiðlum.
Ábyrg
stjórnarandstaða
Að vera ábyrgir í stjórnar-
andstöðu er ekki síður verðugt
verkefni fyrir stjórnmálaflokk
en að standa að stjórn. Hrika-
iegt dæmi um ábyrgðarlausa
stjórnarandstöðu og afleiðingar
má sjá í núverandi ríkisstjórn
þegar saman eru borin fyrirheit
og efndir.
Sá flokkur, sem hagar sinni
stjórnarandstöðu með það í
huga að geta hvenær sem er lagt
mál sín fyrir kjósendur án
kinnroða og hafið stjórnarþátt-
töku án þess að þurfa að kyngja
sínum stefnumálum, vinnur
traust kjósenda. Án þess að vera
með nokkrar spár um langlífi
eða afrek núverandi stjórnar, tel
ég ólíklegt, að landsmenn sitji
fjögur ár undir slíku fargi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lýst því yfir, að flokkurinn muni
halda uppi jákvæðri stjórnar-
andstöðu, sem fjalla muni mál-
efnalega um verk stjórnarinnar.
Slík afstaða er stjórnmálaflokki
til sóma.
Fólkiö í landinu
39982 landsmenn ljáðu Sjálf-
stæðisflokknum atkvæði sitt í
síðustu kosningum af 122207,
sem á kjörstað komu. Þegar
þessar tölur eru athugaðar
getur engum dulist að Sjálf-
stæðisflokkurinn er flokkur
allra stétta, flokkur fólksins í
landinu.
Sjálfstæðisflokkurinn varð að
vísu að þola 10% tap frá
kosningunum 1974 og er hér
ekki gerð tilraun til að gera lítið
úr því, en hafa ber í huga, að þá
höfðu setið í stjórn um þriggja
ára skeið þeir flokkar, sem
kenna sig við „vinstri" og þjóðin
hafði fengið nóg.
Þriðja hrinan gengur nú yfir
þjóðina og skal engu um það
spáð hve lengi hún varir. Víst er,
að ef ekki linnir þeim ólögum,
sem yfir okkur hafa dunið á
þessum haustmánuðum hlýtur
strandið að vera skammt undan.
Mótum framtíöar
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á
fundum sínum í sumar og haust
lagt höfuð áherzlu á mótun
stefnu flokksins til lengri tíma.
Málefnanefndir flokksins og
sérsambönd hafa unnið að
stefnumótun næsta áratugs og
munu halda því starfi áfram.
Flokkur eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn, sem á fylgi í öllum
stéttum þjóðfélagsins getur ekki
byggt stefnu sína á stirnuðum
kennisetningum heldur síungri
lifandi stefnu, sem á hljóm-
grunn hjá öllum þorra lands-
manna, er setja einstaklinginn
og skoðanir hans ofar ríkisfor-
sjá sósialismans.