Morgunblaðið - 14.11.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
13
Bókmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
horft þegjandi og hnugginn í átt
til fjallsins sem ég bar mikla
virðingu fyrir og orti um mörgum
áratugum síðar (Fjallið mitt góða í
Heim til þín, ísland, bls. 32). Að
lokum varð gestkomandi frænka
mín til þess að inna mig eftir því
hvers vegna ég væri svona stúrinn
og þegjandalegur. Ég lét þeirri
spurningu ósvarað en sneri mér
þess í stað að frænku minni og
sagði: „Mikið hlýtur fjallið að eiga
bágt að þurfa alltaf að sofa undir
berum himni.“
Tómas varar menn við „að glata
sambandi sínu við óflekkaðan
hugarheim bernsku sinnar". En
þess skyldu menn minnast að
mannúðleg lífsviðhorf nægja ekki
ein til að gera menn að skáldum.
Hvernig Tómas túlkar þessi við-
horf í Ijóðum sínum er það sem
mestu skiptir. Þó er til dæmis
mikilvægt að kynnast þeirri sögu
sem liggur að baki Minningar-
ljóðsins um Stubb til dæmis, eins
og hún er sögð í inngangi Matth-
íasar. Sum ljóð Tómasar eru
margræðari en svo að auðvelt sé
að skýra þau í fljótu bragði.
Val ljóðanna í Á meðal skáld-
fugla er gert með skólaæsku í
huga. Mér virðist það hafa tekist
svo vel að bókin sé í senn kjörin
fyrir kornunga nemendur og þá
sem lengra eru komnir.
Agnar Þórðarsoni
KALLAÐ í KREMLARMÚR.
Ferð um Sovétríkin sumarið 1956
með Steini Steinar og fleirum.
Aimenna bókafélagið 1978.
ÞAÐ voru mistök hjá Kristni E.
Andréssyni þegar hann kom því til
leiðar að Agnar Þórðarson, Steinn
Steinarr og fleiri fengu að ferðast
um Sovétríkin sumarið 1956.
Ferðin varð til þess að margir sem
áður höfðu fylgt Sovétríkjunum
einhuga skoðuðu hug sinn. Sumir
komust að þeirri niðurstöðu, ekki
síst eftir Ungverjalandsuppreisn-
ina um haustið, að málsvarar hins
illa byggju innan Kremlarmúra,
samanber ljóð Steins: Kreml.
Samkvæmt bók Agnars Þórðar-
sonar vörðust Sovétfararnir í
fyrstu allra frétta, að minnsta
kosti létu þeir ekkert hafa eftir sér
opinberlega. En grein eftir Hall-
dóru B. Björnsson skáldkonu í
Þjóðviljanum olli því að blaðaskrif
hófust um ferðina. Halldóra hafði
líkt og Sovétfararnir sjö heimsótt
Ilja Ehrenbúrg og verið tekið
heldur fálega. Ástæðan virtist
vera sú að sjömenningarnir höfðu
ekki komið fram við rithöfundinn
af tilhlýðilegri kurteisi og spurt
heldur gáleysislega. Það mátti lesa
Agnar Þórðarson og Steinn Steinarr á fótstalli marmarastyttu í Súhúmi,
einni af mörgum sem Stali'n lót gera af sér og Lenín.
Bókmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Góður matur, vín, konur og
skáldskapur voru mönnum þar
ofar í huga.
Steinn skemmti sér við að stríða
tveim fulltrúum íslenskra Sovét-
vina, þeim Jóni Bjarnasyni og
ísleifi Högnasyni. „Þú ert farinn
að tala eins og Morgunblaðið“
sagði Jón Bjarnason eitt sinn
þegar honum þótti Steinn ganga of
langt í Sovétfjandskap. Bók Agnrs
er öðrum þræði lýsing á ódrengi-
legum dylgjum íslenskra sósiálista
í garð Steins eftir að hann kom
heim. Auðvitað hafi Steinn selt sig
auðvaldinu að þeirra dómi. Enn
geta þeir ekki fyrirgefið honum
hinn harða dóm um fyrirheitna
landið. Eins og Agnar bendir á
hafði André Gide orðið fyrir líku
aðkasti eftir að honum var ljóst
hvert stefndi í Sovétríkjunum.
Skáld gegn stórveldi
út úr grein Halldóru. Um þessa
heimsókn hefur margt verið ritað.
Jón Oskar hefur sagt frá henni.
Agnar Þórðarson birtir skýrslu
um fundinn með Ehrenbúrg í bók
sinni, áður hafði hann látið móðan
mása um sama efni í blaðaviðtali.
Það sem haft er eftir Ehrenbúrg
í bók Agnars er yfirleitt skynsam-
legt eins og við mátti búast. Aftur
á móti er ljóst að vanþekking
Islendinganna á sovéskum bók-
menntum, ekki síst skáldsögum
Ehrenbúrgs sjálfs, hefur farið í
taugarnar á honum og gert hann
viðskotaillan.
Agnar Þórðarson sýnir í bók
sinni fram á marga annmarka
Sovétskipulagsins. Hann fer um
það hörðum orðum á sama grund-
velli og Steinn Steinarr sem í
blaðaviðtali lagði áherslu á að:
„Þetta er ekkUsósíalismi". Sögu-
legar skýringar Agnars eru marg-
ar hverjar athyglisverðar og tölu-
vert á bókinni að græða frá því
sjónarmiði. En ég held að það sem
gefi bókinni helst gildi séu ýmsar
persónulegar minningar úr ferð
þeirra félaga, einkum sú mynd
sem dregin er upp af Steini.
Steinn var auðvitað ekkert lamb
að leika við og lét stundum
meinfýsi sína bitna á gestgjöfun-
um. En ljúfur hefur hann lika
verið, einkum þegar hann hitti
fólk sem honum geðjaðist að eins
og til dæmis Jasja Psjavelz. Þetta
grúsíska þjóðskáld hélt þeim
félögum dýrðlega veislu sem stóð
fram á morgun. I þeim fagnaði var
ekki þráttað um Sovétbókmenntir.
En Steinn kunni að bíta frá sér
og lifði það að sjá hvatskeytilegar
full.vrðingar sínar verða að veru-
leika.
Kallað í Kremlarmúr er ekki
bók sem kemur á óvart þeim sem
áður hafa lesið um ferð þeirra
sjömenninga. En hún er góð
heimild um hið afdrifaríka ár
1956.
I bókinni eru margar ljósmynd-
ir. Einkum er fengur í myndinni af
þeim Agnari og Steini á fótstalli
styttu af Lenín og Stalín.
Stjömur
LJOÐFELAGIÐ
skónum
Sveinbjörn
I. Baldvinsson
— Ljóðfélagið
Sveinbjörn I. Baldvinsson- Ljóðfélagið
Steæo
Plata sem vekur athygli
Dreifing: Steinar h.f. símar 19490 og 28155