Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 15 Dr. Þráinn Eggertsson lektor: Menntun og lífskj ör — Líklega er ógerlegt að mæla áhrif menntunar á efnahagsleg- ar framfarir 1930—1960 orsakað 23% af vexti þjóðarframleiðslunnar í Banda- ríkjunum. Þessi tala, 23%, læsti sig um heimsbyggðina eins og eldur í sinu, og var tekið sem lokasönnun á mikilvægi menntun- ar fyrir hagvöxt. Afgangsaðferðin er frumstæð og byggir á mjög ströngum og að mörgu leyti ósennilegum forsend- um. Denison notaði jafnframt aðferð til að endurbæta aðfanga- vísitöluna, sem var óleyfileg rök- fræðilega. Hann notaði launamis- mun milli menntahópa til að áætla framlag þeirra til þjóðarfram- leiðslunnar, þ.e. í aðfangavísitöl- unni vóru vinnustundir hópanna vegnar með launamismuninum. Þarna erum við komin í hring og gefum okkur sem forsendu það sem reynt er að sanna. Vinnuáhrif og ráöstöfunaráhrif Ahrif menntunar á efnahagsleg- ar framfarir (og hagvöxt) hljóta að vera margslungin og tæpast að furða þótt illa gangi að kasta máli þar á. Flokkur líttþekktra rann- sókna .á áhrifum menntunar á framleiðslu í landbúnaði varpar þó etv. nokkru ljósi á þetta samband. Það hefur vakið furðu hagfræð- inga, að frumstæð bændaþjóðfélög víða um heim, sem búið hafa við sömu framleiðsluhætti um alda- raðir, virðast leysa efnahagsdæm- ið af gífurlegri hagkvæmni miðað við þekkta tækni. Fastir siðir hafa myndast, fólkið hefur lært af reynslunni og þarna virðist form- leg skólaganga hafa nær ekkert efnahagslegt gildi fyrir einstakl- inginn, ef efnahagsskipulágið er óbreytt. En myndin breytist, ef kerfið raskast vegna tæknibyltingar að utan. Indverskur hagfræðingur, D.P. Chaudhri, sýndi árið 1968 fram á tvenns konar áhrif mennt- unar á framleiðslu, þegar raskað hefur verið ró hefðbundins bænda- samfélags. Að öðru óbreyttu af- kasta menntaðir bændur meiru en ómenntaðir við dagleg störf. Þetta nefndi Chaudhri vinnuáhrifin. í öðru lagi stunda menntaðir bænd- ur annars konar og hagkvæmari búskap en ómenntaðir bændur. Þetta nefndi hann ráðstöfunaráhriíin. Menntaðir bændur á Indlandi voru fyrstir til að notfæra sér grænu byltinguna svo kölluðu, og fyrir daga hennar voru þeir í fararbroddi með vísindalega áburðarnotkun. Árið 1970 taldi bandaríski hag- fræðingurinn, Finis Welch, sig hafa einangrað vinnu- og ráðstöf- unaráhrifin í tölfræðilegri rann- sókn á framleiðslu bandarískra bænda. Welch hafði komist að raun um að bændur, er lokið höfðu háskólaprófi, höfðu 62% hærri tekjur af búum sínum en bændur með stúdentspróf. Taldi Welch ólíklegt, að þessi munur stafaði af vinnuáhrifum einum, t.d. vegna þess að háskólanám yki leikni bænda í dráttarvélaakstri. Reynd- in varð líka sú, að ráðstöfunar- ^áhrifin virtust ráða miklu. Mennt- aðir bændur voru fyrstir til að tileinka sér nýjungar í landbúnað- arvísindum og mæta breyttum markaðsaðstæðum. Niöurstöður Af þessu máli má draga eftirfar- andi ályktanir. 1. Líklega er ógerlegt að mæla af nokkru viti áhrif menntunar á efnahagslegar framfarir þjðða. 2. Menntun er lykilþáttur í framförum í vísindum og tækni, en ólíklegt er að smáþjóð á borð við íslendinga leggi mikið af mörkum á því sviði. 3. Menntun gerir okkur kleift að bæta afköstin í daglegum störfum, en þar hljóta áhrifin að vera misjöfn eftir því við hvað er unnið. 4. Loks eykur menntun hæfni okkar til að velja hverju sinni besta kostinn, sem gefst í breyti- legum heimi. Þ.E. Það er vandalaust að útrýma lús Fréttatilkynning frá Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur Undanfarnar tvær til þrjár vikur hefur stöku sinnum verið kvartað um það við Heilsuvernd- arstöð Reykjavíkur, að lús hafi fundizt í skólabarni og. jafnframt spurzt fyrir um, hvernig við skuli brugðizt. Þetta er gjarnan orðað svo, að lús hafi kornið upp í hinum eða þessum skólanum. Það er rétt að lúsar hefur orðið vart í nokkrum grunnskólum borgarinnar á þessu hausti. Þetta er ekki óvenjulegt og hefur borið við árlega síðasta áratuginn og stundum á harnaheimilum. Hafa ber hugfast, að lús lætur á sér kræla annars staðar en á nefndum stofnunum og einhvers staðar frá er hún þangað komin. Um er að ræða hreinlæti fólks almennt. Þessi þáttur heilsugæzlu í skól- um er í höndum skólahjúkrunar- fræðinga. Þegar þessa kvilla verð- ur vart er aðstandendum viðkom- andi nemenda gert viðvart og þeir fá upplýsingar um, hvernig við skuli brugðizt, hvaða lyf megi nota og hvernig. Jafnframt skoðar hjúkrunarfræðingurinn alla þá nemendur, sem nánast samneyti hafa við viðkomandi einstakling (þýsilinn) og fylgist með hópnum þar tii kvillinn er að fullu upprættur. Það verður að teljast skylda nemanda og (eða) aðstand- enda hans að tilkynna skólahjúkr- unarfræðingi þegar í stað ef lúsar verður vart, svo að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir. Lús er smitandi. Lyf þau, sem við eiga eru svo handhæg óg hættulítil, ef farið er að fyrirmæl- um, að teljast verður hættulaust þeim, sem hafa nánast samband við hinn smitaða, að nota þau í öryggisskyni, þótt þeir séu e.t.v. ósmitaðir sjálfir. I lyfjabúðum fást mjög virk lyf til útrýmingar lús og má fá þau keypt án lyfseðils. Nefna má: Spiritus Clofenotani (Clofenotani-spritt), Tinctura Quassiae (Quassiae-spritt) og Quellaela-hársápu. Fólki er sér- staklega bent á, að lyfjabúðum ber -skylda til að láta ítarlegar leið- beiningar fylgja lyfjunum. Hafið þetta hugfast: Það er vandalaust að útrýma lús. Til þess þarf hreinlæti og viðeigandi lyf, sem notuð w eru samvizkusamlega samkvæmt leið- beiningum og (eða) fyrirmælum. Haldið stillingu yðar. Drepið lúsina. Reykjavík. 9. nóvember 1978. O O cta 'ÁS'Pda' V'ö'asn^ böK 09 ^ . ^nv\ö^^epp\ 09 f St'ðfn2 a",a SnÍla ^ ® oQ óla'saöa sV.á'dsa9a ósWn VÍ- ósW"a 9 endWS^ sö9 ÍPÍusm • Q0Li Bræðraborgarsttq 16 5 S(ml 12923-19156 ÆSILEGASTA VÍSINDASKÁLDSAGA SEM SAMIN HEFUR VERIÐ. íii iii

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.