Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 Páll V. Daníelsson: Stofnunin ræður ekki sjálf sínum ha-kkunum. «k beiðnir hennar mótast af fjárlÖKum. Sjötíu prósent hækkun sím- ííjalda á einu ári er ekki lítið otr ekki nein smárök fyrir því að Pósti ok síma væri synjað um að fá 45% hækkun 1. nóv. s.l. Þegar menn leyfa sér að skýra þannÍK frá málum og ætla mætti að Póstur og sími væri að gera það að gamni sínu aö þjaka almenning með háum þjónustugjöldum er erfitt að svara ekki fyrir sig og þar sem ég get stöðu minnar vegna tekið öðrum fremur á mig ábyrgð í þessum efnum skal ég upplýsa nokkrar staðreyndir varðandi gjaldskrár stofnunarinnar og hvernig beiðnum hennar hefur verið háttað. 33% urðu að 70% Frá 1. jan. 1977 til 1. febr. 1978 varð engin gjaldskrárbreyting. Hinsvegar fór Póstur og sími fram á 33% hækkun 1. nóv. 1977, bæði til þess að mæta launahækkunum, sem urðu að afloknu verkfalli opinberra starfsmanna, það sem eftir var ársins 1977 og til að mæta þeim hækkunum, sem sýnt var að yrðu á árinu 1978. Þess má geta að um 70% rekstrarútgjalda stofnun- arinnar eru laun svo að útgjöld hennar eru mjög viðkvæm fyrir launabreytingum. Hækkunar- beiðninni var svnjað. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1978 var gert ráð fyrir 2393 millj. kr. hærri tekjum en áætlaðar tekjur samkvæmt gildandi gjald- skrá voru. í jan. 1978 var því beðið um hækkun frá 1. febr., en vegna þess hve seint er hægt að inn- heimta stóra tekjuliði eins og t.d. framyfirsímtöl þurfti hækkunin að verða 40% til þess að ná sömu krónutölu á árinu 1978 og 33% hækkun 1. nóv. 1977 hefði gefið. Leyfð var 28% hækkun að við- bættum 2% til verðjöfnunar fyrir dreifbýlið. Þessi hækkun gaf 1560 millj. kr. Vantaði þá 833 millj. kr. til þess að áætlaðar tekjur næðust. Enn var því beðið um hækkun 1. maí 1978 og þurfti þá 20% hækkun til þess að ná áætluðum tekjum samkvæmt fjárlögum. Þá var veitt 14% hækkun frá 20. apr., sem áætlað var að gæfi 580 millj. kr. Vantaði þá enn 253 millj. kr. upp á fjárlagaupphæðina. Og nú var leyfðð 12% hækkun að viðbættum 2% til jöfnunar fyrir landsbyggð- ina. Þannig hafa verðlagsyfirvöld hækkað símgjöldin um nær 70% á einu ári en þessi 70% hækkun gefur Pósti og síma ekki fleiri krónur á árinu 1978 heldur en 33% hækkunin, sem um var beðið frá 1. nóv. 1977. Hefði sú hækkun fengist stæði Póstur og sími ekkert ver í dag þótt engin hækkun hefði orðið það sem af er þessu ári. Þar við bætist, að stofnunin hefur allt árið búið við það fjárhagslega þröngan kost og mikla óvissu um hvaða fé hún hefði til ráðstöfunar á hverj- um tíma, að af því hefur hlotist fjárhagslegt tjón, bæði beint og óbeint og meiri óþægindi fyrir þá sem þjónustunnar njóta heldur en þurft hefði að vera. Að velja réttan tíma Það hefur verið stefna Pósts og síma að halda þjónustugjöldum í skefjum eins og kostur hefur verið. Þáttur í því hefur verið að reyna að fá rétt fjárlög og gjaldskrár- breytingar gætu varið fram í nóvember. Þetta er eitt grund- vallaratriði fyrir hagkvæmari rekstri. Að geta skipulagt starf- semi ársins strax i ársbyrjun gerir aila hluti miklu einfaldari og betri árangur næst. En á þessi rök hefur ekki verið hlustað nú fremur en s.l. ár. Afleiðingin verður sú að sama krónufjölda verður að sækja í vasa símnotenda með enn meiri hækk- unum en ella. Má t.d. benda á það, að 12% hækkun 1. nóv. 1978, 26% hækkun 1. febr. 1979 og 26% hækkun 1. ág. 1979 eða samtals Páll V. Daníelsson 78% hækkun gæfu Pósti og síma sömu krónutölu til ráðstöfunar á árinu 1979 og 45% hækkun 1. nóv. 1978 mundi ein gera. Mér er ljóst hvor leiðin er hagkvæmari fyrir hinn almenna símnotanda. Mér er líka ljóst hvor leiðin er afdrifaríkari í baráttunni gegn verðbólgunni. Hinsvegar getur Póstur og sími aðeins farið fram á hækkun en hann hefur ekki valdið til þess að hækka. Póstur og sími getur líka gefið upplýsingar en að þessu sinni var ekki við hann rætt af verðlagsyfirvöldum fremur en stofnunin væri ekki til. Að forðast hallarekstur Röng áætlunagerð er rót margs ills í stjórn fyrirtækis eða stofnun- ar. Oft hefur áætlunum Pósts og síma verið breytt. Ekki hefur mátt viðurkenna verðlagsþróunina. Það er e.t.v. vorkunn en um leið flótti frá veruleikanum. Utgjaldahlið áætlunar Pósts og síma fyrir árið 1978 var lækkuð óraunhæft. Þótt einhverjar umframtekjur verði til þess að mæta umframgjöldum stefnir í verulegan greiðsluhalla. En slíkur óraunhæfur niðurskurð- ur gjalda hefur alltaf reynst rangur og til hins verra. Að vera með ranga áætlun útgjalda, þegar tekjuhliðin er bundin með gjalda- skrá, sem ekki tekur verðlags- breytingum er hættulegt og leiðir til hallareksturs. Hallarekstur ríkissjóðs er verð- Nokkrar staðreyndir um gjald- skrárhœkkanir Pósts og síma Ll NGUAPHONE-umbodió Hljóðfærahús Reykiavlkur Laugavegi 96 - Sími 13656 Gallerí Suðurgata 7: Þrír erlendir listamenn sýna á tveim sýningum GALLERÝ Suðurgata 7 opnar tvær sýningar sam- tímis laugardaginn 18. nóvember kl. 16. A neðri hæð hússins sýnir um: „núllinu", „I am glad if...“ og „rigningu". Um þessar mundir dvelst Tót í Vestur-Berlín á starfsstyrk sem borgaryfirvöld veita Nýlistarmaðurinn Endré Tót. Ungverjinn Endré Tót. Heiti sýningar hans er: „Regnspurningar", þ.e. eyðublöð sem ýmsir aðilar, innlendir og erlendir hafa fyllt út. Endré Tót er nýlistarmaður. Síðan um 1970 hefur hann helgað sig þremur höfuðviðfangsefn- listamönnum víðs vegar um heim (DAAD). Það var þó ekki fyrr en eftir talsvert þref við yfirvöld í Ungverja- landi að Tót fékk ferðaleyfi til þessarar dvalar. A efri hæð hússins sýnir Planstudio Siepmann ljós- myndir, teikningar og skjal- festingar á gerningum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.