Morgunblaðið - 14.11.1978, Page 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
Urslitin í
t. deild eins
og spáð var
Grindavík — KFI 100—60
(50-31)
GRINDVÍKINGAR áttu ekki í
miklum vandræðum með Isfirð-
inga er liðin léku í fyrstu deild
körfuknattleiksins í íþróttahúsi
Seltjarnarness á laugardaginn.
Grindvíkingar náðu strax öruggri
forystu, sem þeir svo smá juku út
allan leikinn. í hálfleik var 19
að
stig
L
^ Isfirðingar höfðu ekkert svar í
seinni hálfleiknum og urð
V sætta sig við 40 stiga ta
Grindvíkingar skoruðu 100
S* gegn 60 stigum ísfirðinga.
Bestir Grindvíkinga voru þeir
Mark Holmes, sem skoraði 32 stig
og hirti fjölda frákasta og Eyjólf-
ur Guðlaugsson, sem skoraði 18
stig.
^ Þá var einnig góður Olafur
Jóhannesson, sem lék í fyrra með
iiði Fram, en Ólafur skoraði 10
stig.
Lið Isfirðinga var ekki til
stórræðanna á laugardaginn, en
langbestur þeirra var Guðmundur
Jóhannsson, sem skoraði 25 stig.
KFÍ - Fram 50-113
(21—64)
ísfirðingar sóttu ekki heldur
gull í greipar Frömurum frekar en
Grindvíkingum daginn áður, en
Framarar, sem pressuðu gestina
stíft allan leikinn, komust strax í
11—2. Síðan mátti sjá á stigatöfl-
unni 43—11, en í hálfleik var
staðan 64—21. Sama einstefnan
var í seinni hálfleik. Um miðjan
seinni hálfleik var staðan 91—29,
síðustu mínúturnar réttu Isfirð-
ingar aðeins úr kútnum, en
lokastaðan var 113—50.
Flest stig Framara skoraði John
Johnson 52, sem vissulega er met í
hinnu nýju 1. deild. Þá skoraði
Símon Ólafsson 26 stig.
Flest stig ísfirðinga skoruðu Óli
Ingimarsson 9 og Örnólfur Odds-
son og Guðmundur Jóhannsson 8.
Ármann — ÍV 106—67
(56-26)
Vestmannaeyingar léku sinn
fyrsta leik í 1. deild gegn Armenn-
ingum á sunnudaginn í íþróttahúsi
Hagaskólans. Var þar sem um
aðrar viðureignir heigarinnar
ójafn leikur. Ármenningar nánast
kafsigldu eyjamenn og var 30 stiga
munur í hálfleik 56—26. í seinni-
hálfleik var ekki um jafn mikia
einstefnu að ræða og þar unnu
Ármenningar hann aðeins með 10
stiga mun, en lokatölur urðu
106-67.
|
I
r
Staðan
Staðan í 1. deild er nú pesaí:
Tindastóll
Fram
Ármann
UMFG
Snæfell
ÍBV
KFÍ
Stighæstir
Bestur Ármenninga var Stew
Johnson, sem skoraði 28 stig og
nýtti skot sín mjög vel. Þá var Atli
Arason góður, en hann skoraði 22
stig. Þá átti Jón Björgvinsson, sem
nú lék sinn 250. leik fyrir Ármann
góðan leik og skoraði 18 stig, en
sama stigafjölda skoraði hinn
efnilegi Jón Steingrímsson.
Vestmannaeyingar eru skammt
á veg komnir í íþróttinni, en
vonandi stendur það allt til bóta.
Bestur þeirra í leiknum var
Bandaríkjamaðurinn James
Brooks, sem skoraði 21 stig.
Næstur honum kom Haraldur
Hlöðversson með 16 stig.
gíg-
Hart harist í leik Þróttar og UMSE í Hagaskólanum.
Ljósm. Mbl.i — gg.
Sigur hjá Þrótti og ÍS
3 LEIKIR fóru fram í 1. deild karla í blaki um helgina. Fyrsta leik átti Þróttur við
Mími og töpuðu Þróttarar óvænt fyrstu hrinunni 14—16. Því svöruðu þeir
harkalega með því að vinna næstu 3 hrinurnar og tryggja sér þannig sigur. Fyrst
vann Þróttur 15—1, síðan 15—3 og loks 15—13.
Á laugardaginn léku síðan ÍS
og Mímir og vann ÍS þar
öruggan sigur, hrinurnar end-
uðu 15-12, 15-6 og 15-6.
Leikurinn var annars frekar
leiðinlegur og bar keim af því
að stúdentar litu á hann sem
fyrirfram unninn. Hjá Mími
bar mest á Gylfa Þorkelssyni,
en Indriði Arnórsson var einna
sprækastur stúdenta.
Loks léku Þróttarar gegn
UMSE og var sú viðureign
jafnari hcldur cn 3—0 sigur
Þróttar gefur til kynna. Þrótt-
ur vann þó örugglega fyrstu
hrinuna 15—5. Síðan vann
Þróttur 15—9 eftir jafnræði
framan af.
Þriðja hrinan var
síðan gifurlega jöfn og UMSE
hafði yfir 14—13 rétt undir
lokin, en góður lokasprettur
tryggði Þrótti sigurinn,
16—14. Það sem mestu réð um
spennu síðustu hrinunnar, var
góð hávörn norðanmannanna,
sóknin var heldur lakari. Guð-
mundur Pálsson og Valdemar
Jónasson voru bestir Þróttara,
en Sigurður Harðarson stóð sig
vel í vörninni hjá UMSE.
— Kg.
Þór fékk sín fyrstu stig
ÞAÐ LEIÐ stuna frá áhorfendum í íþróttaskemmunni á Akureyri á laugardag þegar
Birgi Rafnssyni mistókst í fyrstu tilraun að skora úr víti gegn IS, stuna vegna þess að
aðeins fjórar sekúndur voru til leiksloka og ÍS hafði eins stigs forystu, 72 stig gegn 71.
í annarri tilraun fataðist Birgi hvergi og framlenging var í það minnsta tryggð.
Þögnin var alger þegar Birgir reyndi þriðja sinni og eftir svolítinn dans á barminum
fór boltinn í gegn um körfuna og fögnuður áhorfenda og Þórsara var mikill, því fyrstu
stigin í úrvalsdeildinni voru tryggð.
3 1 226:243 6
2 0 227:130 4
2 0 196:125 4
2 1 272:256 4
0 0 0:0 0
0 2 109:156 0
0 4 215:331 0
stig leikir meðal-
einkunn
17 5 3,4
15 5 3,0
Þorvarðarson
Jón Sigurðsson KR
Þórir Magnússon Val
Gunnar
UMFN 14 5 2,8
Kolbeinn Kristinsson ÍR 14 5 2,8
Kristinn Jörundsson ÍR 14 5 2,8
Kristján Ágústsson Val 13 5 2,6
Þorsteinn Bjarnason UMFN13 5 2,6
Einar Bollason KR 12 5 2,4
Geir Þorsteinsson UMFN 12 5 2,4
Jón Jörundsson ÍR 12 5 2,4
Leikur Þórsara og stúdenta var
annars leikur mikilla sviptinga. I
upphafi var jafnræði með liðunum
og raunar allt þar til um fimm
mín. voru til ioka fyrri hálfleiks.
Þá small allt í baklás hjá Þórsur-
um, á meðan hvert skot stúdenta á
fætur öðru rataði í körfu Þórsara
og stúdentarnir höfðu 16 stiga
forskot í leikhléi, 46 stig gegn 30.
Þegar í upphafi síðari hálfleiks.
tóku Þórsarar að minnka muninn,
þannig var munurinn kominn
niður í þrjú stig eftir þrettán
mínútna leik, og Þórsarar komnir
stigi yfir 65 gegn 64, þegar fimm
mín. liðu af leik. Síðustu
mínúturnar voru síðan æsispenn-
andi, liðin skiptust á um að skora
og síðustu sekúndunum er lýst hér
að framan.
Stúdentarnir léku þennan Ieik
vel á köflum, einkum þó síðari
hluta fyrri hálfleiks. í síðari
hálfleiknum tóku stúdentarnir of
mikla áhættu í innáskiptingum.
Tóku t.d. Bjarna Gunnar út af, en
Bjarni hafði reynst Þórsurum
erfiður viðureignar. Inn á komu þá
minni spámenn, sem ekki tókst að
halda í horfinu og því fór sem fór.
Að þessu sinni voru Ingi Stefáns-
son og Steinn Sveinsson bestu
menn stúdenta og Bjarni átti
einnig ágætan leik. Að sjálfsögðu
er skarð fyrir skildi þar sem Dirk
Dunbar vantaði í lið stúdenta og
má víst telja að
hefðu orðið á annan
hefði notið við.
úrslit leiksins
veg ef hans
Staðan í úrvalsdeild
I u t
KR 5 4 1
ÍR 5 3 2
UMFN 532
Valur 5 3 2
ÍS 5 14
Þór 5 14
Stigahæstu
menn:
Paul Stewart IR
John Hudson KR
Dirk Dunbar ÍS
Ted Bee UMFN
Þórir Magnús. Val
Mark Christens Þór 123
Jón Indriðas. Þór
Jón Sigurós. KR
Kristján Ág. Val
Kristinn Jör. ÍR
Kolb. Kristins. ÍR
Tim Dwyer Val
stiga-
tala
455:387
459:427
481:481
439:459
429:446
398:461
stig
8
6
6
6
2
2
skor í leik
aö meðal-
tali
91,0:77,4
91,8:85,4
96,2:96,2
87,8:91,8
85,8:89,2
79,6:92,2
• Þórir Magnússon hefur skorað
fleat stig af íslenzku leikmönnun-
um.
Þórsarar kræktu sér í sin fyrstu
stig í deildinni með þessum sigri
sínum yfir stúdentum. Hætt er við
að Þórsarar komi til með að eiga í
erfiðri baráttu til að haida sæti
sínu í deildinni, og til að svo megi
verða þarf leikur liðsins að batna
til muna. Hitt er svo aftur ljóst að
Þórsarar hafa spilað mjög fáa leiki
í haust og samæfingin því ekki upp
á það besta, en liðinu virðist fara
fram með hverjum leik.
Sem fyrr skaraði Mark
Christensen fram úr af Þórsurum.
Samt sem áður viröist Mark ekki
enn í eins góðu formi og í fyrra en
virðist finna sig betur með hverj-
um leiknum sem líður. Sömu sögu
gegnir með Eirík Sigurðsson.
Leikurinn á laugardaginn var
besti leikur Eiríks í vetur, einkum
þó í vörninni. Jón Indriðason er
eiginlega sérkapítuli út af fyrir
sig. I fyrri hálfleiknum skaut Jón
líkast til einum fimmtán skotum,
en skoraði ekki stig. í þeim síðari
fann Jón síðan fjölina um tíma og
skoraði þá 14 stig, á stuttum tíma.
Birgir Rafnsson átti ágætan leik
auk þeirra Mark og Eiríks. Birgir
er leikmaður sem á án efa eftir að
taka miklum framförum.
Stig Þórs: Mark 24, Birgir 15,
Eiríkur 14, Jón 14, Þröstur 4, Karl
2.
Stig ÍS: Steinn 18, Ingi 17,
Bjarni Gunnar 14, Jón Héðinsson
11, Jón Oddsson 10, Albert
Guðmundsson 2.
Hörður Tuliníus og Sigurður
Valur Halldórsson dæmdu leikinn
ágætlega.
—Sigb. G.