Morgunblaðið - 14.11.1978, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
25
em í hans valdi stendur til að reyna að stöðva Viggó Sigurðsson í leik
Viggó átti stórgóðan leik og skoraði sjö mörk. Ljósm. Kristján.
ir búnir að
lestinni?
; með 20 mörkum gegn 17, og eru
r eítir að hafa tapað sex stigum í
ag misnotuðu Haukar alls fimm
ðari hálfleiksins. Er þetta annar
?ga kostaði þetta sigur þeirra í
Víkingar sigia fram úr og
komast í 20-16, og síðasta mark
Hauka skorar Stefán Jónsson úr
vítakasti.
Lið Víkings kom vel frá þessum
leik. Leikreynslan er þung á
metunum og á úrslitastundum
tókst að nýta vítaköst og spila af
skynsemi og það reið baggamunin-
um. Viggó Sigurðsson var besti
maður liðsins að þessu sinni.
Kristján varði vel þegar mest á
reið, en var svo frekar slakur í
leiknum. Páll Björgvinsson fiskaði
mörg vítaköst og hélt spilinu vel
gangandi en skoraði lítið sjálfur.
Útkoma Haukaliðsins er ekki til
að hrópa húrra fyrir, einn sigur í
fjórum leikjum. Það var undarlegt
að Þorgeir þjálfari skyldi ekki
breyta til með menn til þess að
taka vítaköstin. Þeim nöfnum
Herði Sigmarssyni og Harðarsyni
hefur gengið illa í þeim í síðustu
leikjum og þegar þeim tókst ekki
að skora núna í sínum fyrstu
tiiraunum hefði Þorgeir átt að
breyta til.
Haukaliðið var nokkuð jafnt í
þessum leik, Gunnlaugur mark-
vörður stóð sig vel í fyrri hálf-
leiknum en varði mun verr í þeim
síðari. Hörður Harðarson átti
góðan leik í sókninni og skoraði
gullfalleg mörk flest langt utan af
velli, sannkölluð þrumuskot. Þá
voru þeir Stefán Jónsson og
Andrés Kristjánsson frískir.
í STUTTU MÁLIi
fslandsmótið 1. deild. fþróttahAsið Hafnar
firði 12. nóv, Haukar—Víkinifur 17—20
(10-10).
MÖRK HAUKAi Hörður Harðarson 5 (1 v.).
Stefán Jónsson 4 (1 v.), Andrés Kristjánsson
3, Árni Sverrisson 1. Si)tur({eir Marteinsson
1. Þórir Gíslason 1.
MÖRK VÍKINGS. \iggó Sigurðsson 7,
Ólafur Einarsson 4 (3 v.). Árni Indriðasón 3
v. Ólafur Jónsson 2, Páll BjörKvinsson 2.
SÍKurður Gunnarsson 1, Erlendur Her-
mannsson 1.
MISHEPPNUÐ VfTAKÖST. Hörður Sig-
marsson Haukum skaut f þverslá á 3. mín
ok lét verja hjá sér á 53. mín. Hörður
Ilarðarson skaut framhjá á 50. mín. og lét
verja hjá sér á 57. mín. Andrés Kristjánsson
Ilaukum lét verja hjá sér á 39. mín.
Gunnlaugur varði hjá Páli Björgvinssyni
Víkingi á 3. mín.
BROTTVÍSANIR AF VELLI. Ingimar
llaraldsson Haukum f 2. mfn. Magnús
Gudfinnsson ok Erlendur Hermannsson
Víkinxi í 2 mín. hvor.
DÓMARAR. Gunnar Kjartansson og óli
Olsen ok dæmdu þeir leikinn nokkuð vel,
rétt einstöku atvik var umdeiianlegt en í
heildina var dómjíæslan góð.
I>r.
2. deild karia
Eyja-Þór lagði
nafna sinn að velli
ÞÓRSARAR í Vestmannaeyjum halda áfram sigurgöngu sinni í 2.
deild í handknattleik og á laugardaginn lögðu þeir að velli nafna sína
Þór frá Akureyri. Leikið var í Eyjum og Eyja Þór sigraði 22«19. Hefur
frammistaða Eyjamanna vakið mikla athygli, sjö stig af átta
mögulegum en liðið lék sem kunnugt er í 3. deild í fyrravetur. Eftir
þessa viðureign nafnanna má ljóst vera að bæði liðin verða með í
toppbaráttunni í vetur.
Fyrri hálfleikurinn var mjög
jafn og ágætlega leikinn af báðum
liðum. Eyjamenn voru þó oftast
með 2—3 mörk yfir en er nálgaðist
leikhlé náðu norðanmenn að jafna
leikinn. Á síðustu sekúndu hálf-
leiksins skoraði Andrés Bridde
fyrir Eyjamenn og staðan í
hálfleik var 12:11 fyrir heima-
menn.
Seinni hálfleikurinn var til
muna slakari og bar þá mikið á
mistökum, jafnvel hreinum vit-
leysum hjá liðunum. Var svo að sjá
sem þau væru bæði að fara á
taugum enda leikurinn jafn og
mikið í húfi. Þegar 10 mínútur
voru til leiksloka var staðan jöfn
17:17 en þá skildi með þeim
nöfnum. Heimamenn náðu að síga
framúr og unnu sem fyrr segir
22:19. Á þessum kafla geta Eyja-
menn fyrst og fremst þakkað
markverði sínum Sigmari Þresti
Oskarssyni fyrir sigurinn. Hver
mistökin ráku önnur hjá báðum
liðum, í sóknarleiknum þessar
síðustu mínútur leiksins og dóm-
ararnir smituðust af þessum
hamagangi. Voru norðanmenn
heldur þungorðir í garð þeirra
bræðra, Bjarna og Gunnrs Gunn-
arssona að leikslokum.
Langbezti maður Eyja-Þórs og
jafnframt vallarins var Hannes
Leifsson, sem skoraði 12 mörk á
hinn margvíslegasta hátt. Þá átti
Sigmar Þröstur ágætan leik í
markinu. Hjá norðanmönnum bar
mest á Arnari Guðlaugssyni með-
an hann hafði úthald í slaginn. Þá
áttu þeir ágæta kafla fyrst Sigurð-
ur Sigurðsson og síðan Sigtryggur
Guðlaugsson.
Sem fyrr segir eiga bæði þessi
lið möguleika á því að taka þátt í
baráttunni um toppsætin í deild-
inni og þá trúlega ásamt Ármanni,
KR, KA og hugsanlega Þrótti.
Bæði Þórsliðin hafa til þess alla
burði, þó svo að í þessum leik
brygði til beggja átta í leik
liðanna. Fyrri hálfleikurinn var
ágætur en sá síðari afspyrnulakur.
En eflaust á eftir að reyna að
þolrifin hjá þeim nöfnunum þegar
líða tekur á veturinn og baráttan
harðnar enn.
Mörk Þórs VM: Hannes Leifsson
12 (4 v), Andrés Bridde 3, Herbert
Þorleifsson 3 (2v), Ragnar Hilm-
arsson 2, Þórarinn Ingi Olafsson 1,
Böðvar Bergþórsson 1 mark.
Mörk Þórs AK: Sigurður Sig-
urðsson 7 (2 v)„ Gunnar Gunnars-
son 4, Sigtryggur Guðlaugsson 4,
Arnar Guðlaugsson 2, Jón Sigurðs-
- hkj.
Góður sigur Þróttar
EFTIR slaka byrjun í 2. deildinni
náðu Þróttarar sér á strik er þeir
mættu Ármanni I Laugardalshöll-
inni á sunnudagskvöldið. Þróttur
lék sinn bezta leik í vetur og vann
Ármann verðskuldað 26i20 í mjög
fjörugum og skemmtilegum leik.
Konráð Jónsson sú mikla skytta
hrelldi Ármenningana mjög.
Skoraði hann 12 mörk í leiknum
og þar af aðeins 1 úr vítakasti.
Reyndu Ármanningar ýmis ráð
til þess að stöðva Konráð en hann
varð ekki haminn.
Leikurinn var lengst af alveg
hnífjafn. Liðin skiptust á um
forystuna og aldrei munaði nema
einu marki. Þróttur hafði þannig
til að mynda eitt mark yfir í
hálfleik 13:12. í upphafi seinni
hálfleiks voru Þróttarar ákveðnari
og brátt náðu þeir þriggja marka
forystu, sem þeir héldu út leikinn
nema hvað þeir juku forystuna í
sex mörk undir lok leiksins.
Lokatölurnar urðu 26:20.
I þessum leik börðust bæði liðin
af mikilli hörku bæði i vörn og
sókn og þótti manni nóg um á
stundum. Þrátt fyrir þennan mikla
markafjölda stóðu báðir mark-
mennirnir sig vel.
Sóknarlotur voru yfirleitt stutt-
ar hjá liðunum og því voru
sóknirnar óvenju margar í þessum
skemmtilega leik.
Manni sýnist að bæði þessi lið
hafi alla burði til þess að verða í
toppitaráttunni í 2. deild í vetur.
Hjá Þrótti var Konráð í sérflokki
og Sigurður Ragnarsson mark-
vörður var einnig mjög góður en í
heild var liðið gott. Hjá Ármanni
skoraði Björn Jóhannesson mest
að vanda en í þessum leik átti
fyrirliðinn Pétur Ingólfsson einna
beztan leik ásamt Ragnari
Gunnarssyni markverði.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson
12 (1 v), Jóhann Frímannsson 4,
Ari Einarssón 3, Halldór Harðar-
son 2, Sveinlaugur Kristjánsson 2,
Páll Olafsson 2, Einar Sveinsson 1
mark.
Mörk Ármanns: Björn
Jóhannesson 9 (6 v), Friðrik
Jóhannesson 4, Pétur Ingólfsson 4,
Einar Þórhallsson 2, Oskar Ás-
mundsson 1 mark.
- SS.
Of auðvelt hjá KR
ÞAÐ ER auðvell að vera stuttorður
um leik KR og Leiknis í Laugardais-
höllinni á laugardaginn, leikurinn
verðskuldar það varla að verið sé að
eyða í hann orðum og rými. KR vann
algeran yfirburðasigur, 30—19,
15—8 í hálfleik, Undir lokin var
markmiðið eitt að skora 30 mörk og
er þetta í annað skiptið í 3 leikjum,
sem Leiknir faer á sig slíkt markaflóö.
Liðið er afar slakt og í fljótu bragði
trúir maður því ekki fyrr en maður
verði vitni að, að liðið eigi eftir að fá
svo mikið sem eitt stig í vetur,
þ.e.a.s. eins og liðið leikur nú.
Um gang leiksins er þaö aö segja,
að jafnt var upp í 5—5, en þá kvöddu
KR-ingar og jafnræöi var úr sögunni.
Eina ályktunin sem hægt er aö draga
af leiknum, er sú, að Leiknir mun
berjast gegn falli í vetur, KR verður
ekki dæmt af leiknum, til þess var
mótherjinn of slakur.
MÖRK KR: Símon 9 (4 víti), Björn
Pétursson 6 (5 víti), Ingi Steinn 4,
Haukur og Jóhannes 3 hvor, Ólafur
og Siguröur Páll 2 hvor.
MÖRK LEIKNIS: Guðmundur Krist-
insson 9, Hafliði Kristinsson 6 og
Knútur Kristinsson 4 mörk.
—99-
Ólafur Lárusson skorar hér yfir vörn Leíkuis. Ljósm. Kristján.
í