Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
MANCHESTER-LIÐIN, United og City, guldu mikið afhroð um helgina einkum
United, sem lék á útivelli gegn Birmingham sem ekki hafði unnið einn einasta leik á
keppnistímahilinu. Það sem gerði tap MU enn háðuglegra, var að liðið náði meira að
segja forystunni gegn Birmingham snemma í leiknum. Birmingham svaraði síðan með
5 mörkum og þau hefðu getað orðið fleiri. Tap Man. City var ekki eins stórt en engu að
síður afar slæmt, á heimavelli gegn Derby, liði sem ekki hefur verið í fremstu röð í
haust. Fjögur efstu liðin, Liverpool, Everton, Nottingham Forest og West Bromwich
unnu öll leiki sína og breyttist því staðan ekkert á toppinum. í botnbaráttunni ber
helst til tíðinda f jórða 4 marka tap Úlfanna í röð. Þeirra virðist ekkert annað bíða en
2. deildin.
Ilamskiptingar BirminKham.
Það virtist ekki stefna í annað
en enn eitt niðurlægjandi tap hjá
Birmingham, þegar Joe Jordan
náði forystunni fyrir MU þegar á
13. mínútu leiksins. Og MU hafði
yfirburði framan af leiknum. En á
22. mínútu jafnaði Kevin Dillon
óvænt fyrir Birmingham með
glæsilegu þrumuskoti. Leikur MU
hrundi við þetta óvænta mótlæti
og þegar vel fór að ganga, tók
Argentínumaðurinn Tarantini að
sýna hvað í honum býr. Var hann
besti leikmaður Birmingham.
Heimaliðið bætti 2 mörkum við
fyrir hálfleik og skoraði Mick
Buckley þau bæði. I síðari hálfleik
voru yfirburðir Birmingham al-
gerir og þá bættu þeir Don Givens
og Jim Calderwood mörkum við.
City sótti — Derby skoraði
Miðið við gang leiksins, voru
úrslitin einkennileg. MC sótti án
afláts frá upphafi til enda leiksins,
en uppskar aðeins 1 mark og það
úr víti. Derby átti hins vegar
heilar 4 sóknarlotur sem heitið
gátu því nafni og með 50% nýtingu
hirti liðið bæði stigin. John
Dundan skoraði fyrra mark Derby
eftir fyrirgjöf Gordon Hill. Gerry
Daly skoraði síðan fyrir leikhléið
úr víti. Eina mark MC skoraði
Gary Owen úr vítaspyrnu snemma
í síðari hálfleik. Maðurinn á bak
við sigur Derby var hiklaust
markvörðurinn John Middleton,
sem varði hvað eftir annað eins og
berserkur. Hefði markvarslan vart
orðið betri þó að leikmenn Derby
hefðu múrað upp í markið.
Öruggt hjá Liverpool.
Rangers náðu forystunni gegn
Liverpool á 29. mínútu, með marki
Peter Eastoe, en Liverpool svaraði
með mörkum frá Sveve Heighway
og Ray Kennedy fyrir leikhlé.
Framan af sótti lið Rangers án
afláts og kom þá oft til kasta Ray
Clemmenee í marki Rauða hersins.
Gestirnir stóðu hins vegar af sér
stórviðrið og rétt undir lokin
skoraði Dave Johnson þriðja
markið. Sigur Liverpool var örugg-
ur, en heldur stór miðað við gang
leiksins.
óheppnin elti Chelsea.
Chelsea náði tvívegis forystunni
gegn Everton og í síðara sinnið
hélt liðið henni allt þar til skammt
var til leiksloka, en þá skoraði
Martin Dobson tvívegis eftir
fyrirgjafir Dave Thomas. Duncan
McKenzie náði forystunni fvrir
Chelsea snemma í leiknum, en
Andy King jafnaði. Sú dýrð stóð
eigi lengi, því að Tom Langley náði
fljótlega forystunni á ný. Mörk
Dobsons komu á 71. og 80. mínútu
leiksins.
5. heimatap Ipswich
Ipswich tapaði einum heima-
leiknum enn, er WBA kom í
heimsókn. I slökum leik var lið
gestanna skömminni skárra og
vann verðskuldað með marki Ally
Brown á 22. mínútu. Skoraði
kappinn eftir góða fyrirgjöf Len
Cantello.
Ilálfgert varalið Forest vann
léttilega
Lið Forest var án margra
fastamanna gegn Tottenham á
White Hart Lane og hugðu því
margir að stóra stundin væri
runnin upp, þegar Forest myndi
loks tapa deildarleik. En allt kom
fyrir ekki, Arcie Gemmell var
settur til höfuðs Ardiles hjá
Tottenham og þannig var beittasta
vígtönn Tottenham dregin úr.
Tottenham sótti þó til muna meira
i fyrri hálfleik, án þess þó að
leikmönnum liðsins tækist að
finna leiðina í netið. A 62. mínútu
tókst hins vegar Viv Anderson að
skora fyrir Forest, eftir góða
fyrirgjöf frá hinum 17 ára gamla
Gary Mills. Nokkrum mínútum
síðar skoraði John Robertson og
var staðan þá orðin 2-0. John Pratt
minnkaði muninn, en Gary Birtles
innsiglaði sigurinn skömmu fyrir
leikslok.
Aðrir leikir
Arsenal skaust í hóp efstu
liðanna með frekar óvæntum
útisigri í Leeds. Ungur nýliði að
nafni Steve Gatting skoraði sigur-
markið á 20. mínútu, með góðu
skoti af 15 metra færi. Leeds sótti
mun meira í leiknum og á
lokamínútu leiksins skoraði Ray
Hankin að því er virtist gott mark,
en dómarinn dæmdi það snarlega
af vegna rangstöðu. Hófust þá
heiftarleg áflog meðal áhorfenda,
sem lauk með því að margir hlutu
sár og ýmsir voru færðir til
yfirheyrslu.
Ulfarnir hafa nú fengið á sig 12
mörk í 3 síðustu leikjum sínum og
eru það litlir meistarataktar. Það
er mikill fallstimpill á liðinu, það
lék oft og tíðum ágætlega gegn
Villa, en mörkin vildu ekki koma
og nokkur slæm mistök í vörninni
ollu stórtapi. Steve Daley, einn af
máttarstólpum liðsins, lék ekki
mað að þessu sinni vegna rifrildis
við stjórn liðsins í kjölfarið á
brottrekstri Sammy Chung í síð-
ustu viku. Úlfarnir töldu sig hafa
ráð á að dæma Daley i bann. 2
mörk á 2 mínútum rétt fyrir hlé,
rotaði Úlfana, Gary Shelton og
Ken McNaught skoruðu. í síðari
hálfleik sóttu heimamenn án
afláts, en linuðust undir lokin og
þá bættu þeir John Deehan og
Dennis Mortimer mörkum við.
1. DEILD 2. DEILD
Liverpool 14 11 2 1 39 7 24 Stoke 14 8 4 2 19 12 20
Evcrton 14 8 6 0 18 8 22 Crystal Palace 14 7 5 2 23 11 19
West Bromwich 14 8 4 2 29 13 20 Fuitiam 13 8 2 4 20 13 18
Nottingham Forcst 14 6 8 0 18 9 20 West Ham 14 7 3 4 27 15 17
Arsenai 14 7 4 3 24 14 18 Charlton 14 6 4 4 23 15 16
Coventry 14 6 5 3 19 19 17 Brighton 14 7 2 5 23 19 16
Manchester City 14 5 6 3 23 17 16 Bristol Rovers 14 7 2 5 22 20 16
Manchcster lltd. 14 5 6 3 21 24 16 Burnley 14 6 4 4 21 20 16
Aston Villa 14 5 5 4 19 13 15 Sundcrland 14 6 4 4 18 18 16
Bristol City 14 6 3 5 19 17 15 Ncwcastle 14 6 4 4 14 14 16
Tottenham 14 5 5 4 17 25 15 Notts County 14 6 3 5 18 25 15
Norwich 14 3 7 4 27 27 13 Cambridge 14 4 6 4 14 12 14
Derby 14 5 3 6 18 27 13 Wrexham 14 4 6 4 13 11 14
Leeds 14 4 4 6 23 20 12 Luton 14 5 3 6 29 17 13
Middlcsbrough 14 4 3 7 18 19 11 Leicester 14 4 5 5 12 13 13
Southampton 14 2 7 5 16 21 11 Oldham 14 5 3 6 19 22 13
QPR 14 3 5 6 11 17 11 Shefficid Utd. 14 4 4 6 19 20 12
Ipswich 14 4 2 8 14 20 10 Orient 14 4 3 7 15 18 11
Bolton 14 3 4 7 19 30 10 Blackburn 14 3 4 7 14 24 10
Chelsea 14 2 4 8 17 29 8 Cardiff 14 4 2 8 18 33 10
Wolverhampton 14 3 0 11 11 30 6 Preston 14 2 4 8 20 31 • 8
Birraíngham 14 1 3 10 12 26 5 Millwall 14 1 3 10 9 27 5
• Ilcr cr svipmvnd úr ítölsku knattspyrnunni. Alberto Bigon framvörður Milan sést hér skora eitt af
fjórum mörkum liðs síns gegn Fiorentina á dögunum. án þess að markvörðurinn Galli og varnarmennirnir
Calbiati og Orlandini fái rönd við reist.
Gary Thompson, 19 ára blökku-
maður hjá Coventry, skoraði
sigurmark liðsins gegn
Middlesbrough, þegar aðeins 1
mínúta var til leiksloka. Coventry
var sterkari aðilinn í leiknum, en
gekk illa að nýta tækifærin. Ian
Wallace skoraði fyrra mark
Coventry á 18. mínútu leiksins, en
Micky Burns tókst að jafna fyrir
Boro á 78. mínútu.
Bristol City lék sinn besta leik á
haustinu gegn Bolton. Joe Royle
skoraði sitt fyrsta mark á vetrin-
um og lét ekki þar við sitja, heldur
skoraði strax annað snemma í
síðari hálfleik. Mick Walsh hafði
náð forystunni fyrir Bolton
snemma í fyrri hálfleik, en Tom
Ritchie hafði jafnað á síðustu
mínútu hálfleiksins. Fjórða mark
Bristol skoraði hinn markheppni
varnarmaður liðsins Dave
Rodgers.
Southhampton náði tvívegis
forystunni gegn Norwich, en tókst
ekki að knýja fram sigur, því að
leikmenn Norwich jöfnuðu jafn-
harðan. Nick Holmes og Chris
Nicholl skoruðu mörk heimaliðs-
ins, en Jim Neighbour og Tony
Powell skoruðu fyrir Norwich.
Kom mark Powells á frekar
leiðinlegum tíma frá sjónarhóli
Southhampton, eða 4 mínútum
fyrir leikslok.
Úrslit. markaskorarar og
áhorfendafjöldi f 2. deiidi
Brighton 2 (Ryan, Horton) —
Wrexham 1 (Shinton), 19.659.
Charlton l(Madden) — Sunder-
land 2 (Entwistle, Rowell), 11.412.
Crystal Palace 3 (Walsh,
Swindlehurst 2) — Blackburn 0,
17.006.
Leicester 2 (Weller, Cristie) —
Burnely 1 (Ingham), 12.842.
Newcastle 1 (Pearson) —
Millwall 0, 20.561.
Notts County 1 (O’Brian) —
West Ham 0, 11.002.
Oldham 2 (Halom, Taylor) —
Luton 0, 6.876.
Orient 1 (Kitchen) — Sheffield
Utd l(Anderson). 5.000.
Preston 2 (Robinson 2) —
Cardiff 1 (Evans), 9.268.
Stoke 1 ( Irwing) — Cambridge
3 (Biley, Leuch, Garner), 19.017.
ENGLAND. 1. DEILD.
Birminj?ham—Man. Utd.
Bristol C—Bolton
Coventry—MiddlesbrouKh
Everton—Chelsea
Ipawirh—West Bromwich
Leeds—Arsenal
Man.City—Derby
QPR—Llverpool
Southhampton—Norwkh
Tottenham—Nott. Forest
Wo'"“—Aston Villa
ENtiLAND, 2. DEILD.
Brighton—W rexham
Charlton — Sdnderland
Crystal Palace—Blackburn
Leicester—Burnley
Newcastle—Millwall
Notts County—West Ham
Oldham — Luton
Orient—Sheífield Utd.
Preston—Cardilf
Stoke—Cambridge
ENGLAND, 3. DEILD.
Brentford — Exeter
Bury—Swansea
Carlisle—Blackpool
Chester—IIull
Mansfield—Swindon
Oxford—Chesterfield
Plymouth —Southend
Rotherham—Colchester
Sheffield Wed-Lincoln
Watford—Gillinxham
ENGLAND. 4. DEILD.
Bradford C—Northhampton
Crewe—Portsmouth
Oar linxton—Hereford
ilaiifax—Aldershot
Hartlcpool—Bournemouth
Readintf—Huddersfield
Roehdale—Port Vale
Scunthorpe— Doncaster
Wimbledon—Stockport
York—Barnsley
u
SKOTLAND,
ÚRVALSDEILD.
Hearts—Partiek Th
Morton—Dundee Utd.
Motherwell—A berdeen
Ranijers—Celtic
St. Mirren—Hibs
5-1
4-1
2-1
3-2
0-1
0-1
1-2
1- 3
2- 2
1-3
0-4
2-1
1-2
3-0
2-1
1-0
1-0
2-0
1-1
2-1
1-3
0-0
0-1
1-1
2-1
0-1
1-1
1-1
1-0
0-0
1-0
3-0
0-0
2-1
1-1
0-0
1-1
0-1
0-0
2-0
0-1
Staðan I Skotlandi
Dundee Unitcd
Partick Thistle
Aberdeen
Celtic
St Mirren
Ranifers
Hihernian
Morton
Hearts
er nú þessi.
13 5 5 3 16
13 6 3 4 14
13 5 3 4 24
13 6 2 5 22
13 6 2 5 13
13 3 7 3 13
13 4 5 4 13
13 4 5 4 16
13 4 4 5 14
13 3 1 9 11
12 15
12 15
15 14
17 14
12 14
12 13
13 13
17 13
20 12
26 7
ÍTALÍA, 1. DEILD.
Boloicnia—Avellino 0—0
Catanzarro—Fiorentina 0—0
Lazio—Roma 0—0
AC Milan—lnter Milan 1—0
Napóli—Juventus 0—0
PeruRÍa—Ascoli 2—0
Torinó—Lanerossi 4—0
Verona—Atalanta 1—1
Peruxia er efst með 12 stin. AC Milan
hefur stiiri minna oc Torino hefur 10
stig.
Það var óvenjulitið skorað að þessu
sinni, þó aö menn séu ýmsu vanir frá
hendi ftala. Franccsko Grazianni skoraöi
þó þrennu þar sem Torinó burstaði
Lanerossi. Annar í sviðsljósinu var Dino
Zoff. markvörðurinn snjalli hjá Juvent-
us. en snilli hans bjargaði stigi fyrir
Juventus gegn Napólí.
BELGÍA, 1. DEILD.
Molenbeek—Beerschot 4—0
Beveren — Lokaren 3—0
Brugge—Anderlecht 3—0
Antwerp—Beringen 1 — 1
Courtrai—Lierse 2—1
Standard—Charleroi 1 — 1
Berchem—Winterschlag 1 — 1
Beveren hefur forystuna í Beigíu, með
16 stig eftir 11 leiki. Anderlecht og
Antwerp hafa bffði hlotið einu stigi
minna, en hafa leikið einum leik meira.
Standard er í fimmta sæti með 14 stig, en
Lokarcn hefur nú dregist dálftið aftur
úr, er nú 111 sæti með 12 stig.
• %
V.#
IIOLLAND, 1. DEILD.
Dcn Ilaag—Sparta Rodd. 0-2
AZ‘67 Alkmaar—Nec Nijmegen 8-1
Haarlem—Maastricht 0-1
GAE Deventcr—Utrecht 2-3
PSV Eindhoven—Pec Zvolle 0-1
VVV Venló-Nac Breda 0-1
Vitesse Arnhem—Tvente 3-2
Feyenoord—Volcndam 2-0
Ajax—Roda JC 1-2
0-1
3-1
1-1
1-1
1-0
Jóhannes Eðvaldsson var í sviðsljós-
inu, er lið hans Celtic gerði jafntcfli við
erkifjendurnar Rangers. Celtic náði
forystu mcð marki Andy Lynch, cn
aðcins fáeinum mfnútum sfðar var
þrumuskalli frá Johnstonc á leið f Celtic
nctið. þegar Búhbi kastaði sér eins og
bcsti markviirður heims og sló knöttinn
yfir slána. Víti var óumflýjanlegt og úr
því jafnaði Alex Forsyth fyrir Rangers.
Pec Zvolle náði þeim merka árangri.
að leggja risana PSV að velli á heimavelli
sfðarnefnda liðsins. Ben Ilendriks skor
aði cina rnark og sigurmark leiksins.
Ajax tapaði einnig óvaent á heimavcllí.
Roda JC hirti af þeim bæði stigin og náði
þar með forystunni í deildinni. Dick
Nanninga skoraði ba?ði mörkin.
Feyenoord vann varalið Volendam með
2 sjálfsmörkum. ekki beinlfnis snilldar
árangur þaö. Staðan f Hollandi er nú
Roda' JC 13 8 4 1 27-10 20
Ajax 13 9 1 3 34-10 19
PSV Eindhofen 13 9 1 3 27 -8 19
AZ‘67 13 7 2 4 41-22 16
Feycnwird 13 5 6 2 18-7 16
Sparta 13 7 2 4 17-14 16
Go Ahead Eagles 13 5 5 3 18-15 15
FCTwcnte 13 4 6 3 18-13 14
MVV 13 5 4 4 12-15 14
FCUtrocht 13 4 3 6 21-24 11
Nec 13 2 7 4 11-19 11
Nac 13 3 5 5 17-27 11
Pcc 13 1 8 4 8-15 10
FCPenHaag 13 2 5 6 11-19 9
Vitesse 13 2 5 6 16-30 9
Ilaarlem 13 2 5 6 11-28 9
Volendam 13 2 4 7 14-22 8
FCVVV 13 2 3 8 6-28 7