Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
31
Enginn fór fram
gegn Benedikt...
Framkvæmdast jóri Alþýðuflokks-
ins sagði af sér á flokksþinginu
BENEDIKT Gröndal var endurkjörinn formaður Alþýðu-
flokksins með þorra atkvæða á þingi flokksins sem haldið var í
Reykjavík um helgina, en hann var einn í framboði til
formennsku. Þá var Kjartan Jóhannsson kjörinn varafor-
maður flokksins og Karl Steinar Guðnason kjörinn ritari í stað
Björns Jónssonar sem ekki gaf kost á sér vegna veikinda.
Gjaldkeri Alþýðuflokksins var kjörinn Eyjólfur Sigurðsson.
Bjarni P. Magnússon fram-
kvæmdastjóri Alþýðuflokksins
var í framboði til ritara
flokksins ásamt Karli Steinari.
Karl Steinar var kjörinn ritari
með 112 atkvæðum, en Bjarni
hlaut 39 atkvæði. Að kosning-
unum afstöðnum sté Bjarni í
pontu og gerði grein fyrir
framboði sínu. Við það tæki-
færi sagði hann af sér störfum
framkvæmdastjóra flokksins.
Sagðist Bjarni ekki geta sætt
sig við, að ekki hefði verið
haldinn fundur í flokksstjórn
Alþýðuflokksins frá því að
núverandi ríkisstjórn var
mynduð. „Með þessu er stefna
ríkisstjórnarinnar orðin stefna
flokksins, en við það get ég
ekki sætt mig og segi því upp
störfum," sagði Bjarni.
Karl Steinar Guðnason
baðst undan því á þinginu að
vera endurkjörinn formaður
verkalýðsmálanefndar Alþýðu-
flokksins og í hans stað var
Jón Helgason frá Akureyri
kjörinn formaður nefndarinn-
ar.
Bencdikt Gröndal
Margir vildu
íflokksstjórn
ALLS buöu 79 fulltrúar á þingi
Alþýðuflokksins sig fram við kjör
til flokksstjórnar Alþýðuflokksins,
en kosið var á þinginu um 25 sæti í
flokksstjórninni. Um 170 fulltrúar
sátu þing flokksins að þessu sinni,
en margir þeirra hafa þegar verið
útnefndir í flokksstjórnina af
kjördæmisráðum.
r
STUDIO
KGMMI
GLIT
Keramik
unga
fólksins
«pt
jmJ HÖFÐABAKKA 9
SÍM185411
Um 1,1 milljón kr.
hefur safnast til
kristniboðsins
ÁRLEGUR kristniboðsdagur
var sl. sunnudag og var starfs
Sambands ísl. kristniboðsfélaga
í Konsó og Kenya minnst á
samkomum og við guðsþjónust-
ur víða um land. Jafnframt var
tekið við gjöfum til starfsins og
hafði í gærdag safnast um 1.1
milljón króna.
Að sögn Gísla Arnkelssonar
formanns S.Í.K. er hér um að
ræða fé sem safnaðist í Reykja-
vík, Akureyri og Akranesi og
sagði hann að ekki hefðu enn
skilað sér fjármunir sem safnað
hefði verið við guðsþjónustur og
samkomur víða um landið og
myndu framlög væntanlega ber-
ast næstu daga. Kostnaður við
starfið á þessu ári er ráðgerður
ríflega 20 milljónir króna og
sagði Gísli að þegar væru
komnar nokkuð yfir 16 milljónir
með því sem nú hefði safnast og
því vantaði enn nokkuð á að
endar næðu saman, en hann
kvaðst bjartsýnn á að hægt yrði
að standa við allar skuldbinding-
ar. Af þessum 20 milljónum fara
milli 10 og 12 milljónir til
byggingar kristniboðsstöðvar í
Kenya, þar sem nýlega hefur
verið hafið starf á vegum S.Í.K.
og Gísli tók fram að óvenjumik-
ill ferðakostnaður hefði verið á
þessu ári eða á þriðju milljón
króna þar sem kristniboðafjöl-
skyldur voru á ferð sl. sumar
vegna sumarleyfa.
Canon piQ-Q
Þessi vél var aö fá CES-verðlaunin í Bandaríkjunum.
Vélin gerir allar vinnslur stærri véla Ijósaborð & strimill
+ rafhleðsla.
Verö kr. 50.400-
SKRIFVÉLIN HF Suöurlandsbr. 12 s. 85277
þflÐER 5TRÐREVnD
Að með hagstæðum innkaupa
samningi beint við ITT verksmiðj
urnar i Bretlandi hefur okkur
tekist að bjóða þessi vönduðu
sjónvarpstæki á ótrúl. lágu verði
UTBORGUN FRA KR. 180.000
eða riflegur staðgreiðsluafsláttur,
en með honum er verð á 22 tommu tæki
AÐEINS KR. 467.000 kr. MEÐ FJARSTÝRINGU
myncliðpri
EÁSTÞÓRf
Hafnarstræti 17 Sími 22580
BETRA VERÐ ER VART AÐ FINNA