Morgunblaðið - 14.11.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
33
Nordiska lolkhögskolan og Nordens folkliga akademi — Norræni lýðháskólinn og Miðstöð
alþýðufræðslu á Norðurlöndum. Útsýni yfir Gauteldi og hraðbrautina til Gautaborgar. Bohus virkið í
baksýn ofarlega til hægri.
Svídþjóðarbréf
Magnús
Gíslason:
KunKalv í október 1978
KUNGALV er vinaleg borg með
rösklega 30 þúsund íbúa. Hún
stendur á bökkum fljótsins
Nordreálv, sem er vatnsmikil,
skipgeng þverá úr Götaálv, um
20 km fyrir norðan Gautaborg.
Elstí hluti borgarinnar
stendur á dálitlu undirlendi
milli fljótsins og Fontinfellsins
að nokkru uppi i hlíðinni and-
spænis rúst hins volduga ríkis,
Bohus-kastala, sem fyrst var
reistur laust eftir árið 1300 á
hólma í fljótinu. En það mann-
virki, sem danskur konungur lét
reisa á norskri grund (um 1600),
gnæfir nú yfir sænska byggð,
vatnaleiðir og hraðbrautir og
setur svip á umhverfið víða
vegu.
I íslenskum fornritum er
konungahellu við Gautelfi oft
getið — bæði í Heimskringlu,
Gunnlaugs sögu, Hallfreðar
sögu, Droplaugarsona sögu og
Njálu. Sú sögufræga borg, sem
snemma á miðöldum var ein-
hver þróttmesta borg Noregs,
stóð hér nokkru neðar við
fljótið. Bohuslán var eins og
kunnugt er norskur landshluti
allt til ársins 1658.
Þessi forna landamærabyggð
á sér þannig merka sögu, þar
sem hinn aldni Bohus-kastali
enn í dag stendur vörð, annars
vegar við lygnan straum fljóts-
ins og hins vegar við þunga
straumiðu umferðarinnar um
E6 (Evrópuveg nr. 6 sem liggur
allar götur frá suðurströnd
Spánar norður fyrir Þrándheim)
en þjóðbrautin, sannkallaður
Norðvegur að sunnan gegnum
Gautaborg til Óslóar, liggur svo
að segja við vesturvegg ríkisins.
Elsti borgarhlutinn í Kungálv
hefur mikið menningarsögulegt
gildi ug er hann nú að mestu
friðlýst svæði, þannig að reynt
er að varðveita hverfið óbre.vtt.
En borgin er ört vaxandi.
Norræni lýðháskólinn í
Kungálv var stofnaður árið
1947. Að honum stendur sér-
stakt félag, sem stofnað var í
þeim tilgangi að koma á fót
samnorrænum lýðháskóla í
þakklæti og gleði yfir því, að
landamærin voru aftur opin
milii Norðurlandanna að stríð-
inu loknu.
Borgarstjórinn í Kungálv
hafði þegar árið 1943 gefið
fyrirheit um lóð undir norræna
menningarstofnun hátt uppi í
skógi vaxinni hlíð Fontinfellsins
mgð útsýni til Gautaborgar og
m.a. yfir skipaumferðina á
Gautelfi og Bohus-kastala. Ein-
mitt þarna var talið tilvalið að
reisa nýtt virki til eflingar
norrænu menningarsamstarfi.
Lýöháskólinn hóf starfsemi
sína í fallegu timburhúsi
skammt frá krikjunni miðsvæð-
is í gamla borgarhlutanum og
var hann starfræktur þar fyrstu
20 árin.
Árið 1966 hafði loks tekist að
afla fjármagns til nýbyggingar
og var þá strax hafist handa. A
því ári hafði Nroðurlandaráð
einnig samþykkt að stofna
Miðstöð alþýðufræðslunnar á
Norðurlöndum (Nordens
folkliga akademi) og var nú
ákveðiö að staðsetja þá stofnun í
Kungálv í tengslum við Nor-
ræna lýðháskólann í tilrauna-
skyni fyrstu fimm árin.
I ársbyrjun 1968 fluttu svo
báðar þessar stofnanir inn í ný
húsakynni uppi á Fontinfellinu
og starfa nú hér sem tvær
sjálfstæðar stofnanir hlið við
hlið undir sama þaki og hafa
með sér nána og góða samvinnu.
Nordens folkliga akademi er
ríkisstofnun, hliðstæð Norræna
húsinu í Reykjavík, sem einnig
var stofnsett 1968. Báðar þessar
stofnanir eru reknar með fram-
lagi frá ríkisstjórnum hinna
fimm sjálfstæðu norrænu þjóða.
Akademían hefur að markmiði
að efla norræna alþýðumennt-
un, fyrst og fremst með nám-
skeiðum og fræðslufundum fvrir
þá, sem starfa að slíkum málum
eða hafa í hyggju að heiga
starfskrafta sína alþýðufræðslu
eða æskulýðsstarfi. Rektor við
Nordens folkliga akademi er frá
ársbyrjun 1978 fil. lic. Maj-Britt
Imnander, sem áður var fram-
kvæmdastjóri Norræna hússins
í Reykjavík.
Norræni lýðháskólinn er eins
og áður er sagt samnorrænn
skóli. Lágmarksaldur nemenda
er 18 ár. Kennarar eru frá öllum
Norðurlöndum nema Færeyjum.
I vetur eru hér 2 danskir
kennarar, 2 finnskir (annar með
finnsku og hinn með sænsku að
móðurmáli) 1 íslenskur (sem
einnig er rektor skólans), 2
norskir og 4 sænskir kennarar í
fullu starfi. Auk þess eru
nokkrir stundakennarar. Mál
skólans eru sænska, danska og
norska. Einnig fer fram kennsla
bæði í finnsku og íslensku.
Skólinn hefur frá fyrstu
byrjun, í yfir 30 ár, haft
nemendur árlega frá öllum
Norðurlöndum. Alls hafa 145
Islendingar verið hér nemendur
á þessu tímabili.
I vetur eru hér 88 nemendur á
vetrarskólanum (30 vikurl. Þar
af eru 36 sænskir nemendur, 14
danskir, 1 færeyskur, 13 finnsk-
ir, 9 íslenskir, 14 norskir og 1 frá
Álandseyjum. Auk þess starf-
rækir skólinn tvær dagdeildir
(34 vikur) fyrir eldra fólk,
meðalaldur um 30 ár, með 42
nemendum. I henni eru aðallega
sænskir nemendur. Þeir eru
flestir til heimilis í nágrenni
skólans og búa ekki á skólanum.
Þannig eru alls 130 nemendur í
skólanum í vetur. I 10 ár hefur
skólinn haft útibú í Gautaborg
með um 170 nemendur. Sú deild
er nú orðin sjálfstæður lýðhá-
skóli.
Vetrarskólinn skiptist í þrjár
aðaldeildir: 1) Almenn norræn
deild (norræn mál, bókmenntir,
menningarsaga, samfélagsfræði
og fleiri almennar greinar. 2)
Leiklistardeild fyrir þá, sem
vilja kynnast leiklist eða ætla
sér í ieiklist. 3) Blaðamanna-
deild fyrir þá, sem vilja nema
eða kynnast blaðamennsku. Um
það' bil helmingi námstímans í
hverri deild er varið til fastra
sérgreina, en út yfir það eru
valfrjálsar greinar opnar
nemendum allra deilda.
Nemendur búa í einnar hæðar
húsum, 8 í hverju húsi. Helst
eiga þá allar deildir skólans,
bæði kyn og sem flest þjóðerni
að eiga fulltrúa í hverju heima-
vistarhúsi. Hvert hús myndar
einingu. Þar skiptast allir
nemendur á um að vinna að
vissum hagnýtum verkefnum í
þágu hússins og heildarinnar,
eru t.d. til skiptis fulltrúar í
stjórnarnefnd skólans. Lögð er
áhersla á, að allir nemendur,
kennarar og annað starfsfólk
skólans vinni saman og taki
virkan þátt í rökræðu um
skólastarfið, skipulagningu
starfsins og fái tækifæri til að
eiga aðild að stjórn skólans.
Norræni lýðháskólinn starfar
sem sé samkvæmt þeim lögum
og reglum sem gilda um slíka
skóla í Svíþjóð. Lögin eru mjög
rúm. Skólarnir hafa frelsi innan
ramma laganna til þess að velja
og forma bæði námsefni og
námsaðferðir, en verða síðan að
gefa fræðsluyfirvöldunum all-
nákvæma skýrslu að námstíma-
bili loknu um hvernig námi og
námstíma hefur verið varið.
Þetta hefur í för með sér, að
engir tveir lýðháskólar meðal
þeirra rösklega 100 slíkra skóla í
Svíþjóð eru eins. Það sama
gildir í stórum dráttum um þá
u.þ.b. 370 lýðháskóla, sem fyrir-
finnast dreifðir um öll Norður-
lönd.
Norræni lýðháskólinn hefur
eins og nafnið bendir til nor-
rænt samstarf að markmiði.
Skólinn vill gjarnan verða mið-
stöð, þar sem fólk á þess kost að
hittast og kynnast í námi og
starfi. Hér er nú gott bókasafn
með nær 20 þúsund bindi, þar
sem meir en helmingur bókanna
er á öðrum Norðurlandamálum
en sænsku. Bókasafnið er mikil-
vægt, þar sem starfsaðferðir
skólans byggja að mjög iitlu
leyti á lexíunámi. Ne.mendur
velja sér í samráði við kennara
verkefni, tema, sem vissir
starfshópar vinna að yfir lengri
eða skemmri tíma.
Einnig er það fastur liður í
starfi skólans, að farið er í
námsferðir til nágrannaland-
anna að vorinu. Oftast hafa þá
10—15 nemendur undir hand-
leiðslu kennara farið til ýmissa
staða á Norðurlöndum, t.d. til
Lofoten í Noregi, farið til sjós og
í fiskvinnslu. Annar hópur hefur
farið til Lapplands. Hinn þriðji
til dönsku eyjarinnar Læsso.
Fjórði hópurinn til Álandseyja
eða Helsingfors o.s. frv. Þetta er
unnið þannig, að fyrst fer fram
undirhúningsnám í skólanum í
hálfan mánuð eða þar um bil,
þar sem fyrirhuguð viku eða tíu
daga námsdvöl er undirbúin.
Síðan að námsdvöl lokinni er
unnið úr verkefnum og skilað
skýrslum og ritgerðum um
námsdvölina.
Skólaárið 1977 —‘78 var
ákveðið að allur skólinn færi til
íslands í stað þess að dreifa
nemendahópnum á 6—8 staði
víðs vegar um Norðurlönd.
Nemendum og kennurum, alls
110 manns, var þá skipt í 15
starfshópa. Hver hópur valdi sér
viðfangsefni til undirbúnings
íslandsferðar, sem átti sér stað
17.3 - 28.3 1978.
íslandsferðin heppnaðist
ljómandi vel. Við hlutum styrk
til ferðarinnar úr Norræna
menningarsjóðnum og það var
okkur mikið happ, að við feng-
um Miðbæjarskólann í Reykja-
vík, léðan sem aðalbækistöð.
Þegar nemendur og kennarar
komu heim aftur til Kungalv,
var svo tekið til óspilltra
málanna og unnið ör þeim
efnivið, sem sal'naö hafði verið,
bæði viðtölum, minnispunktum
og heimildum ýmiss konar.
Unnið var dugnaðarlega að því
að ganga frá handritum að texta
fyrir sérstakt kynningarrit um
Island, sem ætlunin var að
skólinn gæfi út. Texti bókarinn-
ar verður jöfnum höndum á
sænsku, dönsku og norsku.
Við vonuni, að þess verði ekki
iangt að bíða, að ritið sjái
dagsins Ijós til gagns og ánægju
fyrir þá, sem þurfa á slíku riti
að halda. En oft berast fyrir-
spurnir hingað um slíkt kynn-
ingarrit um ísland í dag.
Ymsar góðar ritgerðir og
yfirlitsgreinar um Island og
íslensk málefni birtast við og við
í blöðum og tímaritum bæði
heima og erlendis. Þess væri
þörf að safna því besta í
aðgengilegt safnrit um íslensk
málefni. Greinarnar þyrftu þá
að vera á dönsku, norsku eða
sænsku. — Nú þegar
NORRÆNI menningarsjóður-
inn er farinn að veita fjármagn
til slíkra hluta ætti ekki að vera
útilokað að koma slíku í fram-
kvæmd.
Svo og er meir en æskilegt að
fá þær íslensku bækur, sem nú
árlega eru þýddar í samhandi
við hókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, gefnar út svo
a.m.k. skólar. bókasöfn og e.t.v.
norrænu félögin geti kynnt þær
og dreift þeim.
Eg vil að lokum nota tæki-
færið enn einu sinni til að
þakka öllum — enginn nefnd-
ur. engum gleymt — þeim. sem
greiddu götu okkar i sambandi
við námsdyöl Norrama lýðhá-
skólans á lslandi á liðnu vori.
Undantekningarlaust ma'ttum
við einstakri gestrisni og hjálp-
semi. sem var okkur mikils
virði og lengi mun í hávegum
höfð. — ba'ði í byggðum
Borgarfjarðar. í Skálholti og
nágrenni. í Grindavík. í Vest-
mannaeyjum. í Kópavogi og
síðast en ekki síst í Reykjavík.
Að Islandsferðip .varð svo
ána-gjuleg og árangursrík. sem
raun bar vitni. er ekki minnst
því að þakka. að ha'ði opinherir
aðilar og stofnanir á Islandi og
þó fyrst og fremst einstakling-
ar. fyrrverandi nemendur. vin-
ir skólans og velunnarar
studdu okkur með ráðum og
dáð.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
—yvv~~w—i—r~~y~yyv—i
óskast I
keypt
—-
Brotamálmur
er fluttur aö Ármúla, sími 37033.
Kaupi allan brotamálm lang-
hæsta veröi. Staðgreiösla.
tilkynningar*
Hilmar Foss
lögg. skjalaþýö. og dómt.
Hafnarstræti 11, sfmi 14824.
Freyjugötu 37, sími 12105.
Blý
Kaupum blý og aöra málma
hæsta verði.
Málmsteypa Ámunda Sigurös-
sonar, Skipholti 23, sími 16812.
AUGLÝSINGASIMINN ER:
22480
2Her0unbIabih
húsnæöi
I boöi
I Vesturbænum
er til leigu 4ra herb. íbúö. Laus
1. des. Uppl. um fjölskyldu-
stærö ofl. leggist inn á augl.
deild Mbl. f. fimmtudag merkt:
.Áriö fyrirfram — 260".
Muniö sérvárzlunina
meö ódýran fatnaö.
Verölistinn. Laugamesvegi 82.
S. 31330
I.O.O.F. Rb 1 = 12811148V4 —
9.0.
□ Edda 597811147— 1.
□ Edda 597811147 = 2.
Hjálpræðisherinn
Þriöjudagur kl. 20 hermanna-
samkoma í salnum.
Allir hermenn velkomnir.
Fíladelfia
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
20.30.
Ræöumaður Einar J. Gíslason.
Leðurvinnunámskeið veröur
þriöjudaginn 14. nóv. Hefst kl.
11.
RÓSARKROSSREGLAN
* M ♦ R C
L 7----.
V ATLANTIS PRONAOS
Pósthólt 7072, 107 Reykjavík.
K.F.U.K. AD.
Fundur í kvöld kl. 8.30. aö
Amtmannsstíg 2B. Séra Karl
Sigurbjörnsson hefur biblíulest-
Allar konur velkomnar.
Alþjóðabænavika K.F.U.M. og
K. stendur yfir og eru því
bænastundir kl. 17.30 alia
þessa viku í húsi félaganna viö
Amtmannsstíg. Allir eru hjartan-
lega velkomnir.
UTIVISTARFERÐIR
Þriðjudag
14/11 kl. 20
Tunglskinsganga um Lækjar-
botna og Setbergshlíö verö
1000 kr. fararstj. Kristján M.
Baldursson. Frítt f. börn m.
fullorönum. Fariö frá BSÍ,
bensínsölu (í Hafnarfiröi v.
kirkjugaröin) Útivisl.
Ferðafélag íslands
Miövikudagur 15. nóvember kl.
20.30.
Myndakvöld aö Hótel Borg.
Tryggvi Halldórsson sýnir
myndir: Páskaferö í Þórsmörk,
Á tindi Snæfellsjökuls un hvíta- -
sunnu, frá Hornströndum.
HeröubreiS og fl. fjöllum Að-
gangur ókeypis. Allir velkomnir
meöan húsrúm leyfir. Kaffi selt í
hléinu