Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 37
1 MORGUNBLAÐIÐ, ÞMM«DAGUR»,NðVEMBERl978 45 VELVAKANDI SVARAR j SÍMA Í10100KL. 10—11 /l FRÁ MÁNUDEGI ~"v i> n^h'unFK-lutJ'u ir OSRAM f lúrpípur fyrir réttan lit og góða birtu Það má e.t.v. teljast merkilegt að ekki skyidu miklar rannsóknir hafa farið fram á þessum vett- vangi. Þó hefur embætti skipa- skoðunarstjóra eða siglingamála- stjóra eins og það nú heitir, gert mikið á sviði öryggismála og sennilega er það eini aðilinn, sem ber hag sjómanna fyrir brjósti á þann hátt að vinna að fyrirbyggj- andi aðgerðum. Hafa komið fjöldamargar ábendingar og ráð- leggingar frá þeirri stofnun á • Bilaður sími Inga hringdi og kvartaði yfir því að eitthvað væri bogið við símann í olíustöðinni í Hvalfirði. „Þaðan er hægt að hringja með því að setja 50 kall í apparatið, en þótt 50-köllum sé dælt í það heyrist samt ekki múkk,“ sagði hún. Hún sagði að oft væri hringt til sín þaðan, en það væri undir hælinn lagt, hvort nokkuð heyrðist. Hún sagði að útilokað væri annað en síminn þeirra þar uppfrá væri eitthvað „klikkaður", og nú er það ósk hennar að viökomandi láti líta á tækið og koma því í lag. — Þeirri frómu ósk Ingu er hér með komið á framfæri. • Breytið timanum Sjónvarpsnotandi bað fyrir eftirfarandi beiðni til ráðamanna dagskrár sjónvarpsins: — Undanfarna sunnudaga hafa verið sýndar nokkrar óperur og er það framtak sem ber að lofa hjá sjónvarpinu og nýbreytni, sem ég vona að geti verið í dagskránni öðru hverju á næstu misserum og náinni framtíð. Þessi nýbreytni á sér þó einn galla, en það er sjálfur útsendingartíminn, sem sagt á sunnudagseftirmiðdögum. Sá tími er oftast nær notaður til að fjölskyldur heimsæki hver aðra, fólk lyftir sér upp á einhvern hátt SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á tékkneska meistaramótinu í ár kom þessi staða upp í skák þeirra Ftacniks, sem hafði hvítt og átti leik, og Meduna. 21. Bxb6! — Hd5,(Hvítur hefur einnig unnið tafl eftir 21... Hxb6, 22. Hxd8+ - Bxd8, 23. Rxb6 - Bxb6, 24. Hcl eða 21... Hxdl+, 22. Hxdl - Hxb6, 23. Rxb6 - Bxb6, 24. Hcl - Rd7, 25. Hc8+ - Rf8, 26. Hc6) 22. Hxd5 - exd5, 23. Hcl og svartur gafst upp. Skákmeistari Tékkóslóvakíu varð Prandsetter, hann hlaut llVz v. af 16 möguleg- um. Næstur kom Smejkal með 10'/2 v. liðnum árum um öryggistæki, frágang um borð í skipum og svo ekki sé talað um ábendingar um varnir gegn mengun og reglur þar að lútandi. Mér datt í hug að nefna þessi atriði hér að framan, því að oft hefur ekki mikið verið fjallað um þessa hlið sjómennskunnar, þ.e. þá hættulegu hlið, sem al- menningur tekur ekki eftir, veit kannski ekki af og hugsar því ekki útí. Frekar er fjallað um háseta- hlutinn og hér einkum verið að tala um fiskiskip. Eg hefi ekki stundað sjómennsku sjálfur, en reynt að fylgjast örlítið með þeim málum og hefi gaman af allri umræðu um þessi mál. Vona ég því að enginn taki þessar línur illa upp og vænti þess e.t.v. samt að þær geti vakið umræður meðal manna um hversu mikilvæg atvinnugrein sjómennskan er og hversu mikil- vægt það er henni að vel sé hugað að öryggismálum hennar. Áhugamaður.“ með því að reyna að komast út undir bert loft og þar fram eftir götunum. Nefna má einnig að heimsóknartími á mörgum sjúkra- húsum er á þessum tíma þannig að þeir sem þurfa að sinna sjúkum sleppa því kannski alveg eða verða annars af ágætu efni. Þess vegna er það spurning mín hvort unnt er í næstu óperusyrpu eða nú í lok þessarar ef það er hægt, að finna annan sýningar- tíma, .því þetta má ómögulega verða til þess að fjölskyldutengsl rofni epdanlega og algjörlega, því það er vitað mál að hafi menn á annað borð áhuga fyrir einhverju sjónvarpsefni þá gengur það fyrir flestu öðru sem menn taka sér fyrir hendur, jafnvel því að sinna fjölskyldu eða sjúklingum. Þannig er nú sjónvarps„sýkin“ búin að ná tökum á okkur, að því er ég bezt fæ séð. Flúrpípurnar frá OSRAM hafa viðurkenningu fagmanna fyrir létt Ijósmagn og góðan lit. Hjá OSRAM er hægt að velja á milli margvíslegra litabrigða í hvítum grunnlit, — allt eftir umhverfinu, sem lýsa þarf. Rétt birta á vinnustað og heimili er lífsnauðsyn. Réttur litur er hluti birtunnar. OSRAM - vegna birtunnar [rompton Parkinson Enskir rafmótorar einfasa 0.33—3 HÖ þrífasa 0.5—25 HÖ Gírmótorar 0.5—7.5 HÖ VÖNDUÐ VARA HAGSTÆTT VERÐ VALD. POULSENf SUÐURLANDSBRAUTIú — SÍMAR: 38520-31142 />

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.