Morgunblaðið - 23.11.1978, Síða 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978
21
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Rítstjórnarfutltrúi
Fréttastjóri
Augtýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiósla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannes«en,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2200.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 110 kr. eintakið.
Síðbúin
viðurkenning og
skilningur
Verðlagsþróun, vísitala og víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags
eru í brennipunkti íslenzkrar þjóðmálaumræðu í dag. í því efni
er hollt að minnast þess, að öll viðreisnarárin, eða í þrjú kjörtímabil,
tókst að halda verðlagshækkun hér á landi nálægt 10% að meðaltali
á ári, eða svipað því sem verðbólguvexti nemur í viðskiptalöndum
okkar hin síðari ár. Samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks á
þessu tímabili færði okkur heim sanninn um, að það er hægt að
halda verðbólgu hér innan viðráðanlegra marka, ef samheldni ríkir á
þjóðarheimilinu, aðhalds er gætt í ríkisfjármálum, arðsemi í
fjárfestingu og hygginda í launaþróun. Mikil krónuhækkun kaups,
sem kemur aðeins að litlu leyti fram í aukinni kaupgetu launa, en að
mestu leyti í verðbólguauka, er skammgóður vermir. Verðbólgan
veikir rekstrarstöðu atvinnuvega, samkeppnisaðstöðu útflutnings-
greina okkar og atvinnuöryggi í landinu, sem þrátt fyrir allt hefur
tekizt að tryggja um langt árabil.
Um leið og horft er til viðreisnaráranna sem tímabils jafnvægis og
stöðugleika í efnahagsmálum — má einnig minnast þess, að þær
þjóðir, sem búa við óbrenglað markaðskerfi, samkeppni og írjálsræði
í þjóðarbúksap, hafa allar innan við 10% verðbólgu, sumar raunar
litla sem enga. Þrátt fyrir margháttaða sérstöðu þjóðarbúskapar
okkar er vert að hyggja að því, sem fært hefur öðrum þjóðum svo
miklum mun meiri árangur í viðnámi gegn verðbólgu en okkur.
Vinstri stjórnin 1971—’74, sem tók við af viðreisnarstjórninni, og
hægum verðbólguvexti, skilaði hins vegar þjóðarbúinu með 54%
óðaverðbólgu. Tómas Árnason, fjármálaráðherra, viðurkenndi þetta
í sjónvarpsumræðu í fyrrakvöld, en taldi meginorsakir liggja utan
valdasviðs þáv. ríkisstjórnar. Nefndi hann til afleiðingar eldgossins
á Heimaey, olíukreppu og óraunhæfa kjarasamninga aðila
vinnumarkaðarins. Þetta þrennt hefur efalítið haft sín áhrif á þróun
mála en stefna þáv. ríkisstjórnar í ríkisfjármálum, fjárfestingu og
efnahagsmálum í heild var engu að síður þung á metum. Þessi
vinstri stjórnar verðbólga hefur tröllriðið þjóðarbúinu síðan.
Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar skilaði um flest góðum
starfsárangri. Utfærsla landhelginnar í 200 sjómílur og friðun
hennar af brezkri og v-þýzkri veiðisókn ber þar hæst. En hún náði
einnig umtalsverðum árangri í viðnámi gegn verðbólgu niður úr
54% vinstri stjórnar stiginu í um 27% á miðju ári 1977. Þá seig hins
vegar aftur á ógæfuhlið, m.a. vegna vanhugsaðrar launaþróunar, þar
sem meira kapp var lagt á krónuhækkun en hækkun kaupgildis
launa — meira kapp á fleiri en verðminni krónur en færri og
verðmeiri. (Þar réðu þeir enn ferð, sem veg vísuðu á vinstri
stjórnarárunum 1971—’74.)
Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar í
febrúar- og maímánuði sl. voru viðbrögð gegn viðblasandi
verðbólguauka — til að tryggja rekstrargrundvöll undirstöðuat-
vinnuvega og atvinnuöryggið í landinu. Þessar aðgerðir voru rægðar
niður af Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi, enda tvöfalt kosningaár.
En í lok þessa kosningaárs og í kjölfar nýrrar vinstri stjórnar
staðfesta báðir þessir flokkar réttmæti hvers einasta atriðis
efnahagsaðgerða fyrri stjórnar — m.a. með enn stærra hugsuðu
fráhvarfi frá umsömdum verðbótum á Íaun en fólst í efnahagsað-
gerðum fyrri stjórnar. Efnahagstillögur núverandi stjórnarflokka
ganga um margt í ólíkar áttir, en þær mætast þó í einum
brennipunkti, að umsamdar verðbætur á laun 1. desember nk. megi
ekki koma til framkvæmda að fullu, ef forðast eigi nýtt
verðbólguflóð. Síðan tína þeir til allar röksemdir fyrri stjórnar, sem
áður hétu „kauprán" og voru talin vega að samningafrelsi á
vinnumarkaði. Betra er seint en aldrei að viðurkenna staðreyndir
þjóðarbúskaparins — en fólkið, sem trúði þessum herrum í
kosningabaráttunni, er reynslunni ríkara.
Hitt er svo annað mál, að ýmsar hliðartillögur Alþýðubandalags-
ins nú ganga þvert á nauðsynlega aðhaldsstefnu í ríkisfjármálum,
sem er ein af lykilforsendum verðbólguviðnáms. Tillögur þess
varðandi lausn vandans 1. desember nk. þýða, að því er upplýst hefur
verið, 15 milljarða króna ný útgjöld. Kostnaður við að greiða niður
hvert prósentustig í launum er um 1700 m.kr. 2% sjúkratryggingar-
gjald nemur 5.6 milljörðum króna fyrir ríkissjóð. Erfitt er að meta,
hvað framkvæmdir á félagslegum réttindamálum þýða í útgjöldum,
en sé farið bil beggja, niðurgreiðslna á launum og sjúkratryggingar-
gjaldsins, nemur hvert prósentustig 2.2 milljörðum króna. Þessu
tekjutapi og útgjaldaauka vill Alþýðubandalagið síðan mæta með
nýrri skattaflóðbylgju í þjóðfélaginu, sem þó er óljós og óraunhæf í
túlkun þess.
Þungamiðja þjóðmálaumræðu um verðlag, vísitölu og víxlhækkan-
ir nú felur í sér viðurkenningu Alþýðuflokks og Alþýðubandalags á
réttmæti efnahagsaðgerða fyrri ríkisstjórnar. Vonandi leiðir þessi
síðbúni skilningur til samstöðu og marktæks viðnáms gegn
verðbólgu, sem leiði til hliðstæðs árangurs og á tímum
viðreisnarstjórnarinnar.
Svipmyndir frá Srí Lanka
Colombo, 22. nóvember (AP). — Yfirlitsmynd af slysstaðnum og afstöðunni til flugvallarins. Hringur hefur verið dreginn utan um
staðinn þar sem vélin kom niður en í bakgrunni er flugbrautin á Colombo-flugvelli sem flugvélin stefndi á.
m t ’ * þ^ x \4 % y
* -* 4 |. /á •
m * *■ ♦» % m * » '■
Þær stöllurnar Jónína Sigmarsdóttir og Þuríður Vilhjálmsdóttir eru óðum að ná heilsu. og hér sjást þær á
tali saman í sjúkrahúsinu í' gær.
Slasaðust pílagrímur er hér studdur út úr sjúkrabifreið á
Colombo-flugvelii áður en hann er borinnn um borð í
flugvélina.
Colombo. 22. nóvember — Loftmynd af brakinu úr DC-8 þotunni á kókoshnetuakri skammt frá
flugvellinum.
Pílagrímarnir
Hér eru
myndir frá
AP
fréttastofunni
af því þegar
verið var að
flytja lík
indónesísku
pílagrímanna
og þá sem
komust lif-
andi af úr
flugslysinu í
síðustu viku
til heim-
kynna sinna
í gær og
fyrradag.
Indónesískir hermenn bera hér kistur þeirra sem fórust í flugslysinu í bænur
Banjarmasin í austanverðri Kalimanta þar sem útför þeirra allra fór fram.
heim
Einn hinna slösuðu er hér borinn á sjúkrabörum upp í flugvél frá indónesfska flugfélaginu á
Colombo-flugvelli sem flutti þá sem lifðu af slysið, áfram til Indónesíu í gær.